Morgunblaðið - 28.02.1998, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Um álitsgerð Ragnars
Hall hrl. í máli Þ.Þ.
DÓMAFRAMKVÆMD er vanda-
söm, af því að þeir er hana hafa á
hendi, þurfa jafnt að gæta hagsmuna
almannavaldsins sem hagsmuna
þess er dómi sætir. Framkvæmd
dóms má hvorki hafa í för með sér,
að hann verði á þeim vettvangi mild-
aður né þyngdur frá því, sem kveðið
var á um í dómsorði.
Dómur Hæstaréttar í máli Þ.Þ.
Dómur Hæstaréttar frá 12. júní
1997 í máli Þ.Þ. hljóðar svo:
„Ákærði, ÞÞ, sæti fangelsi í 12 mán-
uði, en fresta skal fullnustu níu mán-
aða af refsingunni og sá hluti falla
niður að liðnum þremur árum frá
uppkvaðningu þessa dóms ef ákærði
heldur almennt skilorð 57. gr. al-
mennra hegningarlaga nr. 19/1940,
sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði 50.000.000 króna
sekt í ríkissjóð, en sæti í hennar stað
fangelsi í 12 mánuði ef hún greiðist
ekki innan fjögurra vikna frá birt-
ingu þessa dóms.“
Forgengi sektarkröfunnar
Helgi V. Jónsson hrl. lögmaður
Þ.Þ. fór þess á leit á síðastliðnu
sumri við sýslumanninn á Akranesi,
að sektarkrafa ríkissjóðs gengi fyrir
kröfu ríkissjóðs um önnur opinber
gjöld Þ.Þ. A beiðni þessa féllst ég
sem sýslumaður, þ.e. innheimtumað-
ur ríkissjóðs og framkvæmandi
dóms á hendur Þ.Þ. Til grundvallar
lagði ég, að annars vegar ykjust lík-
ur á, að sektin fengist greidd, þ.e.
fullnusta dómsins tækist, og hins
vegar væru hagsmunir ríkissjóðs á
engan hátt skertir, því
að jafnmargar krónur
kæmu í ríkissjóð, þótt fé
dómfellda yrði fyrst not-
að til að greiða sektina.
Bæði samkvæmt stjóm-
sýslulögum nr. 37/1993
og dómi Hæstaréttar
var mér rétt og skylt að
leysa þannig úr málinu,
jafnvel þótt engin beiðni
hefði komið fram um
það. í fyrsta lagi bar
samkvæmt jafnræðis-
reglu 11. gr. stjórnsýslu-
laga að láta Þ.Þ. njóta
sömu kjara og aðra
gjaldþegna að þessu
leyti. Engin heimild var
til að þyngja dóminn
með því að láta dómfellda sæta lak-
ari kjörum en aðrir gjaldþegnar
njóta. í öðru lagi bar, samkvæmt
meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslu-
laga, þegar tveir misþungbærir kost-
ir fyrir borgarann koma til greina
við töku stjórnvaldsákvörðunar, að
velja þann, sem vægari er. í þriðja
lagi bar samkvæmt dómi Hæstarétt-
ar að láta sektarkröfuna ganga fyrir,
því að sé kveðið á um vararefsingu í
dómi, er forsendan, að dómfelldi hafi
fjárhagslega getu til að greiða
dæmda sekt. Vararefsing er ein-
göngu þvingunarúrræði til að knýja
dómsfellda til að greiða dæmda sekt.
Gagnrýni á þá ákvörðun að láta
sektarkröfu ganga fyrir
í álitsgerð þeirri um málið, er
dómsmálaráðuneyti keypti af Ragn-
ari Hall hrl., kemur ekki
fram nein bitastæð
gagnrýni á ákvörðun
mína. Lögmaðurinn seg-
ir, að nefnda ákvörðun
hafi ég tekið án samráðs
við viðkomandi ráðu-
neyti. Það er rangt, að
því er varðar fjármála-
ráðuneytið, og að því er
varðar dómsmálaráðu-
neytið, jók ákvörðun
mín líkur á, að sektin
fengizt greidd. Því voru
fyrirfram líkur á, að
ráðuneytið yrði sam-
mála. En meginatriði
var, að ákvörðun mín
var stjómvaldsákvörðun
á valdsviði mínu, sem
mér var rétt og skylt að taka án fyr-
irmæla annars staðar frá.
í álitsgerð sinni segir Ragnar Hall
hrl., að hann telji röksemdafærslu
ákvörðunar minnar „sérkennilega,
sér í lagi vegna þess að í báðum til-
vikum er um að ræða dæmdar kröf-
ur í eigu ríkissjóðs". Ég hef ekkert
við það að athuga, að í augum Ragn-
ars Hall hrl. er ákvörðun mín „sér-
kennileg“, en meginatriði er, að hún
var studd við gildandi landslög og
dóm Hæstaréttar. Þann lagagrund-
völl reynir lögmaðurinn ekki einu
sinni að hrekja. Beinlínis röng er sú
staðhæfing hans, að báðar kröfumar
hafi verið dæmdar kröfur 1 eigu rík-
issjóðs. Skattkröfurnar vom ekki
dæmdar af dómstólum, heldur til
orðnar fyrir stjómvaldsákvörðun
skattyfirvalda. Einungis sektarkraf-
Sigurður
Gizurarson
Fasteignalán fyrir eldri borgara
Fasteignalán Handsals hf. eru fyrir þá eldri borgara sem vilja
innleysa að hluta uppsafnaðan spamað í húseign.
Kostir Fasteignaláns Handsals hf. em meðal annars að með því
má lækka eignarskatt, greiða upp óhagstæðari lán eða auðvelda
framfærslu.
Lánið er til allt að 25 ára og fyrstu 10-15 árin em aðeins
vaxtagjalddagar.
Skilyrði fyrir lánveitingu er:
XlVSaNVH
/ I
Undir 50% heildarveðsetning á fasteign
Gildir aðeins fyrir Stór-Reykjavíkurssvæðið
s Vextir á bili 6,75-7,50% eftir veðsetningarhlutfalli
i
16.875 kr.
17.500 kr.
18.750 kr.
5.625 kr.
5.833 kr.
6.250 kr.
6,75%
7,00%
7,50%
* án verðbóta
Hríngdu i sima 5101600 og pantaðu tíma hjá ráðgjafa
Persónuleg og góó þjónusta
Dæmi um vaxtagreiðslur á milljón króna lán*:
Vextir á láni Vaxtagreiðsla Vaxtagreiðsla
á 3 tnán. fresti á mánuði
an var dæmd af dómstól - og hún
var dæmd af Hæstarétti. Lögmaður-
inn vitnar til þess, að samkvæmt lög-
um nr. 19/1991 um galdþrotaskipti
séu kröfur um fésektir jafnsettar
öðrum kröfum ríkissjóðs í skuldaröð.
Þessi röksemd lögmannsins er harla
léttvæg, í fyrsta lagi í ljósi þess, að
dómfelldi hafði ekki verið lýstur
gjaldþrota, þegar ákvörðun var tekin
um að láta sektarkröfuna ganga fyr-
Akvörðun mín miðaði
að því, segír Sigurður
Gizurarson, að aðalefni
dómsins yrði fram-
kvæmt.
ir, í öðru lagi að nefnt ákvæði gjald-
þrotaskiptalaga er frávíkjanlegt og í
þriðja lagi að dómur Hæstaréttar
var á því reistur, að dómfelldi hefði
fé til að greiða sektina.
í álitsgerð sinni heldur Ragnar
Hall hrl. þvi ennfremur fram, að
samkvæmt rökstuðningi mínum hafi
tilgangur minn beinlínis verið að
„upphefja sem allra stærstan hluta
sektarkröfunnar til að koma í veg
fyrir að ÞÞÞ þyrfti að afplána vara-
refsingu samkvæmt sektardómin-
um“. Þessi kenning lögmannsins er
ósæmileg í hæsta máta, því að hér
dróttar hann því að mér, að ég hafi
með ákvörðun minni verið að koma í
veg fyrir framkvæmd hæstaréttar-
dómsins. Akvörðun mín miðaði að
því að aðalefni dómsins yrði fram-
kvæmt. Aðalefni dómsins var, að
dómþoli skyldi greiða 50 millj. kr.
sekt í ríkissjóð. Lögmaðurinn hefur
hins vegar endaskipti á hlutunum, og
því að orð hans verða ekki skilin á
annan veg en þann, að hann telji
þvingunarúrræði, sem Hæstiréttur
kvað á um til að knýja fram sektar-
greiðsluna, aðalefni dómsins. Því fer
fjairi.
Höfundur er sýslumaður á
Aknmesi.
Að gera
andstæðinginn
tortryggilegan
ÞAÐ er gamalt bragð
í rökræðu eða deilu um
menn og málefni að
reyna að gera andstæð-
inginn tortryggilegan.
I lok janúar birtist
stutt bréf frá Karli
Erni Karlssyni lektor í
dálki Víkverja í Morg-
unblaðinu þar sem
hann gerir að umtals-
efni auglýsingar Árna
Sigfússonar borgarfull-
trúa á vegum FIB.
Ekki ætla ég að blanda
mér í þá umræðu. Ég
man þó ekki betur en
grein Karls hafi verið
málefnaleg og án stór-
yrða. Hann mátti að
sjálfsögðu búast við að fá viðbrögð.
Og hann fékk þau sannarlega. Bæði
í Morgunblaðinu og DV hafa birst
andmælagreinar en þær eru því
miður ekki eingöngu á málefnalegu
nótunum. Reynt er að gera Karl
Öm Karlsson, sem að því er ég best
veit er vandaður og sómakær mað-
ur, að tortryggilegri og ómerkilegri
persónu og því máli, sem er til um-
ræðu, þannig drepið á dreif með
ýmsum hætti. Nú síðast 24. febrúar
birtist langt bréf í Velvakanda frá
Páli Erni Líndal þar sem talað er
um að lektorinn sé marklaus mál-
pípa og frá honum hafi komið fúk-
yrðaflaumur. Hvar hefur sá fúk-
yrðaflaumur birst? Ekki hef ég orð-
ið var við hann. Meðal annars er
sagt að sést hafi til Karls í sjón-
varpsþætti heima hjá Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra!
Hvað kemur það málinu við? Hefur
Karl Orn Karlsson ekki skoðana-
frelsi þó að hann sé kunningi Ingi-
bjargar Sólrúnar?
Mér er kunnugt um að Kristín,
kona Karls, hefur um árabil verið
náinn samstarfsaðili Ingibjargar
Sólrúnar í Kvennalistanum. Sú er
að öllum líkindum skýringin á sam-
gangi milli heimila þeirra. Mér er
líka kunnugt um það að mágur
Karls Arnar er einn af þingmönn-
um Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík. Ef sjónvarpið hefði
sýnt hann í heimboði
hjá mági sínum hvers
konar samsæri hefði
það þá verið? Svik
þingmannsins við Árna
Sigfússon? Eðakannski
svik Karls Arnar við
Ingibjörgu Sólrúnu?
Staðreyndin er auð-
vitað sú að kunningja-
og ættingjatengsl ganga
þvert á stjómmála-
flokka. Og samsæris-
kenningar ganga sjaldn-
ast upp. Sjálfum tel ég
mér það til gildis að
eiga vini í öllum stjórn-
málaflokkum. Það er
ekki þar með sagt að ég
sé sammála þeim öllum og enn síður
málpípa þeirra. Nýlega var ég til
dæmis í heimboði hjá einum af sigur-
vegurum Sjálfstæðisflokksins í próf-
Staðreyndin er auðvit-
að sú að kunningja- og
ættingjatengsl ganga
þvert á stjórnmála-
flokka, segir Guðjón
Friðriksson, og sam-
særiskenningar ganga
sjaldnast upp.
kjöri Sjálfstæðisflokksins vegna
borgarstjórnarkosningana í vor. Ef
Páll Örn Líndal hefði séð mig þar
hefði hann sennilega hrópað húrra
og sagt: „Hann kýs D-listann“. Málið
er bara ekki svona einfalt. Ég áskil
mér rétt til að hafa sjálfstæðar skoð-
anir, rökræða og draga ályktanir þó
að ég umgangist menn og konur úr
ýmsum flokkum. Sama rétt verðum
við að áskilja Karli Emi Karlssyni.
Þess vegna er herferðin gegn honum
bæði ómakleg og ósmekkleg.
Höfundur er sagnfræðingur.
Guðjón
Friðriksson