Morgunblaðið - 28.02.1998, Page 58
58 LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
4}
Hvað ertu að skrifa, Ég er að senda Kalla Va- Ég gerði það ... mér þykir
Magga? lentínusarkort þú getur mjög vænt um Kalla, hví
ekki gert það ... hann skrifarðu ekki líka nafnið
myndi halda að þér geðjað- mitt undir?
ist að honum ...
Ó, auðvitað! Spara sér að
senda Valentínusarkort á
minn kostnað!
jWorjgíimMafotfo
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Þingsjána fyrr
á morgnana
Frá Kristni H. Gunnarssyni:
HERRA forseti.
Þar sem svo háttar til í dag að
uppstytta er í þinghaldinu, Davíð er
að lesa upp á Gula hananum og Þor-
steinn er heima að leita að skýrsl-
um, þá vil ég leyfa mér að kveðja
mér hljóðs utan þingfundar og
vekja athygli forseta og þjóðarinnar
á því snilldarbragði forráðamanna
Ríkisútvarpsins að setja Þingsjána
á dagskrá nú í vetur árla laugar-
dagsmorguns. Hefur þetta skilað
þeim árangri að svokallað áhorf
mælist eftir mínum heimildum að
dæma 1-2% og er heldur sígandi.
Ég lýsi aðdáun minni á þeirri skyn-
semi að hafa barnaefnið á undan
Þingsjánni en ekki öfugt. Þegar
maður hugsar um það þá liggur
þessi röð í augum uppi. Auðvitað
vakna börnin fyrst og svo þeir sem
búa til börnin.
En eitt veldur mér samt áhyggj-
um. Það eru eftir sem áður heldur
margir sem horfa á Þingsjána. Þú
veist að þegar góðu efni er deilt á of
marga staði þá vill það lenda í úti-
deyfu eins og Sverrir sagði og það
má ekki gerast. Þingmenn hafa
margt spaklegt til mála að leggja og
svo verður um hnúta að binda að
þeir haldi reisn sinni og virðingu.
Svona efni getur aldrei verið fyrir
fjöldann. Ég tek þó fram og bendi á
að forráðamenn Sjónvarpsins hafa
að mínu mati staðið sig afbragðsvel
gegnum árin og hefur tekist að
draga úr glápinu á Þingsjána veru-
lega á örfáum árum. Mér telst til að
um 25% landsmanna hafi horft á
þáttinn þegar hann var á dagskrá
að kvöldi dags. Það getur hver mað-
ur séð að var alveg svakalegt og
mátti ekki við svo búið standa.
En betur má ef duga skal eða á
skal að fjalli stemma eins og hafn-
firska máltækið segir. Ég verð að
skjóta því hér inn að mér finnst
þessi máltæki dáldið skrýtin sem
Guðmundur Árni hefur verið að
kenna mér, en hvað um það. Tillaga
min er sú að færa Þingsjána fram
fyrir barnaefnið á laugardags-
morgnana. Með því vinnst að úr
áhorfendahópnum falla þeir sem ég
hef sterklega grunaða um að hafa
bara vaknað til þess að horfa á
barnaefnið. Eftir standa bestu
mennirnir, hinir árrisulu og verk-
drjúgu synir þjóðarinnar, sem taka
Skalla-Grím sér til fyrirmyndar, en
hann kvað forðum:
Mjök verðr ár, sás aura
ísams meiðr at rísa
váðir vidda bróður
veðrseygja skal kveðja
Ég vil svo að lokum þakka fyrir
þennan frábæra skjáskafmiðaleik
sem Sjónvarpið hefur tekið upp í
stað þess að sýna frá þingfundum.
Fleira var það ekki, herra forseti.
KRISTINN H. GUNNARSSON,
þingmaður Alþýðubandalagsins á
Vestfjörðum.
Fagmenntaðar
stéttir - Þrándur
í Götu hverra?
Frá Helgu Dögg Sverrisdóttur:
EFTIR lestur greinar Bjargar
Bjarnardóttur um stöðu leikskóla-
kennara, sem nú reyna að fá lög-
gildingu á starfsréttindi sín, gat ég
vart orða bundist. Sú stétt sem ég
tilheyri, sjúki-aliðar, hafa sama djöf-
ul að draga. Ekki er enn séð fyrir
endann á málefnum sjúki'aliða. Það
sem kom mér á óvart í grein Bjarg-
ar er andstaða sveitarfélaganna fyr-
ir löggildingunni. Metnaður til
handa framtíðarbörnum þessa lands
er lítill hjá þeim, ef satt reynist. Er
það ekki lágmarkskrafa foreldra
sem eiga börn í leikskólum landsins
að fagmenntaðir aðilar skipi hverja
stöðu, sé þess kostur? Það hefði ég
nú haldið. Hafi sveitarfélögin og
stéttarfelög það vald að hið háa Al-
þingi íslands stoppi frumvarp um
löggildingu fagstétta er það ugg-
vænleg staða. Þau ráðuneyti sem
standa að menntun fagstétta eiga
að hafa þor til að löggilda starfsett-
vang þeirra sem nú þegar hafa ekki
slíka löggildingu, s.s. sjúkraliðar og
leikskólakennarar. Það er með öllu
óviðunandi að bjóða upp á menntun
sem gefur ekki öruggan starfsvett-
vang að námi loknu. Starfsmannafé-
lagið Sókn hefur sett sig í andstöðu
bæði við leikskólakennara og
sjúkraliða hvað þetta varðar. Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga barð-
ist mjög á móti löggildingu starfs-
vettvangs sjúkraliða, þ_eir virtust
hræddir um sinn eigin. í sjálfu sér
lýsir þessi andstaða þessara tveggja
kvennafélaga þeim sjálfum. Sókn
virðist ekki hafa metnað fyrir hönd
sinna félagsmanna, þ.e.a.s. að
hvetja, efla og styrkja þá til að afla
sér menntunar á þeim sviðum sem
þeir hafa starfað lengi við. Ég vil
skora á Alþingi að skoða stöðu
þeirra fagstétta sem ekki hafa lög-
gild starfsréttindi og bæta úr henni.
Avallt mun verða ágreiningur um
málefni af þessu tagi, en sjálfsögð
réttindi í kjölfar náms. Eg óska
leikskólakennurum góðs gengis í
baráttu sinni og styð kröfur þeirra
eindregið.
HELGA DÖGG SVERRISDÓTTIR,
formaður Deildar sjúkraliða á NE.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.