Morgunblaðið - 06.03.1998, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 06.03.1998, Blaðsíða 34
Könnun á stöðu atvinnulífs á Akranesi Ferðahegðun 34 FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, i Styrmir Gunnarsson. TILLÖGUR SJÁVARÚTVEGS- RÁÐHERRA Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, kynnti í fyrradag tillögur nefndar þeirrar, sem sett var á stofn til þess að fjalla um ágreiningsefni sjómanna og útgerðarmanna, þegar verkfalli sjómanna var frestað snemma í febrúar. Sjávarút- vegsráðherra hefur gert þessar tillögur að sínum og ríkis- stjórnin sem slík sömuleiðis. Verði þessar tillögur samþykktar munu þær augljóslega valda ákveðnum þáttaskilum í sjávarút- vegsmálum. Hugmyndin um stofnun Verðlagsstofu skiptaverðs, sem á að þjóna hlutverki eins konar umboðsmanns sjómanna og tryggja, að ekki verði níðst á þeim með kröfum um þátttöku í kvótakaupum, er góð og líkleg til þess að leysa að nokkru leyti þann vanda, sem um er að ræða. Utgerðarmenn hafa þegar samþykkt þennan þátt tillagnanna og er það fagnaðarefni. Sú tillaga nefndarinnar, sjávarútvegsráðherra og ríkis- stjórnar, að sett verði á stofn kvótaþing, þar sem fram fari við- skipti með aflaheimildir með ákveðnum takmörkunum þó er sjálfsögð. Það er grundvallarmisskilningur hjá stjórn LIU, að þar sé um að ræða bann við frjálsum viðskiptum með aflaheim- ildir og þess í stað komi „lögboðið miðstýrt uppboðskerfi“. Með kvótaþingi er verið að tryggja, að viðskipti með aflaheim- ildir fari eftir ákveðnum leikreglum alveg með sama hætti og viðskipti með hlutabréf og önnur verðbréf fara eftir ákveðnum leikregium í stað þess að lögmál frumskógarins ráði. Enginn heldur því fram, að viðskipti með hlutabréf séu ekki frjáls. Þegar kvótaþing hefur tekið til starfa mun engum detta í hug, að viðskipti með aflaheimildir séu ekki frjáls. Hins vegar munu menn fagna því að þau verða nú sjáanleg og fara fram á opnum vettvangi. Tillagan um aukna veiðiskyldu er líka sjálfsögð og óþarft að hafa um hana mörg orð. Þorsteinn Pálsson lýsti því yfír í fyrradag, að samþykktu sjómenn þessar hugmyndir mundi ríkisstjórnin beita sér fyrir lögfestingu þeirra á Alþingi, jafnvel þótt LÍÚ legðist gegn þeim, sem samtökin hafa nú gert að hluta til. Þessi afstaða ráð- herrans og ríkisstjórnarinnar er mikilvæg. Með henni rétta þessir aðilar fram höndina til sjómanna og ætla verður að þeir muni taka í framrétta hönd í dag. NÝ SKÓLASTEFNA BJORN Bjarnason, menntamálaráðherra, kynnti í fyrradag nýja, samræmda skólastefnu, fyrir grunn- og framhalds- skóla. Hin nýja skólastefna felur í sér umtalsverðar breytingar á námi í grunn- og framhaldsskólum, sem virðast flestar vera til þess fallnar að auka skólastarfið og bæta, samræma það á milli skólastiga og hafa það að markmiði að skila þjóðfélaginu betur menntuðum og sjálfstæðari einstaklingum. Fram kom í máli ráðherrans, þegar hann kynnti nýja skóla- stefnu, að markmiðið er að styrkja og móta heildstætt skóla- starf, herða námskröfur, nýta kennslutíma til hins ýtrasta, auka sveigjanleika og bæta árangur nemenda, jafnt í einstök- um greinum sem og náminu í heild. Þessi markmið eru öll góðra gjalda verð, en auðvitað verður það svo undir kennurum, nemendum, skólastjórnendum og nýjum námskrám komið, hvort þau nást. Það er ýmislegt jákvætt sem ráðherrann kynnti í nýrri skólastefnu, s.s. aukið valfrelsi grunnskólanemenda á síðustu tveimur námsárunum, þannig að valfög geti orðið um 30% af námstíma nemenda í 9. og 10. bekk. Sömuleiðis ber að fagna þeim ásetningi, að afburðanemendur á grunn- og framhalds- skólastigi, fái í framtíðinni að njóta námshæfileika sinna á þann veg, að þeir geti lokið grunnskólanámi á níu árum í stað tíu og stúdentsprófi á þremur árum í stað fjögurra. Afburða- nemendur hafa löngum verið afgangsstærð í íslensku skóla- kerfi, sem er miður. Hér virðist ætla að verða ánægjuleg breyting á. Jafnframt er ánægjuefni að auka eigi stuðning við þá sem á sérstakri stuðningskennslu þurfa að halda, auk þess sem stefnt er að því að bjóða öllum nemendum við upphaf grunn- skóla upp á lesblindupróf. Greining á lesblindu svo snemma getur skipt sköpum fyrir nemandann og skólagöngu hans. Ráðherrann boðar einnig að hann hyggist efna til funda um allt land á næstunni, þar sem almenningi jafnt sem fagfólki gefst færi á að kynna sér hina nýju stefnu og gera athuga- semdir við hana áður en gengið verður endanlega frá nýjum námskrám fyrir grunn- og framhaldsskóla næsta haust. Þetta eru skynsamleg vinnubrögð hjá menntamálaráðherra og gefa fyrirheit um að umræða um nýja skólastefnu og aðaláherslur geti vaknað um land allt. Mun opnun Hvalfjarðarganga hafa áhrifá ferðahegðun Akranesbúa? Obreytt Könnun gerð meðal farþega Akraborgar 8% Sjaldnar Slagurinn um sorpið Með auknum kröfum um umhverfisvernd hefur förgun sorps orðið að vaxandi vanda- máli. Kristín Gunnarsdóttir kynnti sér hvernig staðið er að förgun sorps og endur- vinnslu á höfuðborgarsvæðinu og í ná- grannabyggðarlögum en þar eru rekin tvö byggðasamlög um förgun sorps. Hafa stjórn- völd sett sér það markmið að árið 2000 skuli urðun á sorpi hafa dregist saman um 50% á landinu öllu miðað við árið 1990. UM síðustu áramót ákvað stjórn Sorpu að hækka gjaldskrá fyrirtækisins og var ástæðan m.a. sögð vera sú að tölu- verðu af blönduðum úrgangi væri ek- ið frá höfuðborgarsvæðinu til urðun- ar á Kirkjuferjuhjáleigu. Hafa íbúar í Ölfushreppi lýst mikilli óánægju með þá flutninga. Sorpa bs. er í eigu sveitarfélaga allt frá Hafnarfirði að Kjalarnesi og er tekið á móti flokkuðu og gróf- flokkuðu sorpi til endurvinnslu. Að auki tekur Sorpa við úrgangi frá Akranesi, þar sem enn er óráðið um urðunarstað í Borgarfirði og frá því í haust hafa staðið yfir viðræður við Reykjanesbæ um förgun sorps. Fyr- irtækið tók til starfa árið 1991 og hefur reksturinn gengið nokkuð vel til þessa. Meðal þess, sem fer til end- urvinnslu er timbur, bylgjupappi, dagblöð/tímarit, skrifstofupappír, drykkjarumbúðir úr pappa, botn- vörpunet án aðskotahluta, garðaúr- gangur, ávaxta- og grænmetisúr- gangur og flokkaður kjöt- og slátur- úrgangur. Það sorp sem ekki er hægt að end- urvinna er baggað og urðað í Álfs- nesi en það land var keypti fyrir 100 milljónir og var böggun sorpsins for- senda þess að leyfi fékkst til að urða sorpið í Álfsnesi. Lagður var vegur að urðunarstaðnum og var það gert á kostnað fyrirtækisins. Að sögn Ögmundar Einai-ssonar, framkvæmdastjóra Sorpu, er nýting urðunarstaðarins mjög góð eða að meðaltali 10 tonn á fermetra en 1.400 kg á rúmmetra eða 17 metrar á hæð í böggum og er notkun aðfluttra jarð- efna í lágmarki. Um 18 flutningabílar fara daglega frá Reykjavík um Mos- fellsbæ. Sagði hann að sorphirða á höfuðborgarsvæðinu væri óháð veð- urfari á urðunarstað vegna móttöku- stöðvarinnar í Gufunesi en reynslan sýndi að vinna á Álfsnesi liggur niðri vegna roks í 22 daga á ári, þrátt fyrir böggun. Þeir dagar hefðu orðið mun fleiri ef böggun væri ekki beitt. Gjaldskráin hækkuð í upphaflegri rekstraráætlun Sorpu var gert ráð fyrir að stöðin gæti annað 100 þús. tonn- um á ári og að hana mætti reka með 85 þús. tonnum en kannanir sýna að árlega megi gera ráð fyrir um 110 ______ þús. tonnum af úrgangi frá svæði samlagsins. Nú hefur það gerst að dregið hef- ur úr sorpi til Sorpu um 15 þús. tonn miðað við árið 1995 vegna flutninga á úrgangi af höfuðborgarsvæðinu til Sorpstöðvar Suðurlands. Eiga þessir flutningar meðal annars þátt í að stjóm Sorpu ákvað að hækka al- menna gjaldskrá um 4,7% frá 1. jan- úar sl. og fyrir blandaðan úrgang um 4,97 kr. fyrir kg án vsk. en 6,19 kr. fyrir kg með vsk. og 8,25 kr. án vsk. fyrir grófan úrgang og 10,27 kr. með vsk. Þessar hækkanir svara til 5,13% Kostnaður falinn í skattlagningu hækkunar umfram byggingavísitölu en frá september 1993 hefur gjald- skráin tekið breytingum í samræmi við breytingar á byggingavísitölu. Frekari lög og reglur Ögmundur segir að setja þurfi frekari lög og reglur um leiðir til að takast á við þetta vandamál sem fórg- un og endurvinnsla er. „Menn upp- lifðu nýja tíma eftir að greiða þurfti fyrir að farga sorpi,“ sagði hann. „Víða um land er kostnaðurinn falinn í einhvers konar skattlagningu og greiðandinn veit ekki hvað hann er að greiða fyrir. Reykjavíkurborg inn- heimtir sáralítið gjald en í öðrum sveitarfélögum er það allt að 10 þús- und krónur á íbúð. Sú upphæð nær að sjálfsögðu ekki raunkostnaði en er þó nær þeirri alþjóðlegu samþykkt, sem við höfum skrifað undir um að menn eigi að vita fyrir hvað verið er að greiða. í nágrannalöndunum er þróunin í þá átt að kostnaðurinn verði sýnilegur og er víða greitt eftir vikt. Þannig gefst möguleiki á að taka frá þunga hluti eða minnka rúmmál sorpsins og draga úr kostnaði." Ögmundur sagðist verða var við að þær fjölskyldur sem legðu sig fram um flokkun á sorpi vildu fá umbun fyi-ir. „Við erum farin að heyra það og sjá að fólk metur þennan mála- flokk eins og aðrar veitur svo sem rafmagns-, hita- og vatnsveitur," sagði hann. Benti hann á að gjald- skrá Sorpu skiptist í nokkra flokka og að reynt væri að taka mið af því hversu mikið sorpið væri flokkað. Mætti lækka gjaldskrána Ögmundur sagði að ef þessi 15 þús. tonn af úrgangi, sem nú fara austur kæmu til móttöku hjá Sorpu þá mætti lækka gjaldskrána um 7-9% eða um 30 milljónir króna í lækkuðum móttökugjöldum. Spurn- ingin sé hvort þeir sem losa sig við úrganginn austur hafi orðið varir við samsvarandi lækkun á sínum kostn- aði hjá þeim sem taka úrganginn. „Sunnlendingar hafa hins vegar nýtt sér stöðuna og halda sinni gjald- skrá niðri en hún þyrfti sjálfsagt að hækka um 80-90% ef þessir flutning- •ar legðust af,“ sagði Ögmundur. --------- „Með öðrum orðum eru fyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu að greiða niður sorpeyðingarkostnað á _________ Suðurlandi. Hverju sveit- arfélagi er ætlað að leysa umhverfismál sín á sínum forsendum og uppfylla um leið kröfu stjórnvalda á hverjum tíma en trúir nokkur því að framfarir verði í þeim málum ef hvert svæði getur haft áhrif á lausnir nærliggjandi sveitarfélaga á pen- ingalegum forsendum? Það gengur ekki að sveitarfélög séu að vinna svona hvert gegn öðru.“ Sorpstöð Suðurlands bs. Sorpstöð Suðurlands bs. nær yfir 25 af 27 sveitarfélögum í Árnes- og Rangárvallasýslum og eru einungis FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998 35 Áhrif Hvalfíarðarganganna margvísleg á Akranesi Úrgangi ekið rúml. 60 km leið í Kirkju- ferjuhjáleigu í Ölfusi % MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ sveitirnar undir Eyjafjöllum utan við samlagið. Ibúar á svæðinu eru tæp- lega 15 þús. en á sumrin dvelja þar að auki um 10 þús. sumarbústaðaeig- endur að jafnaði. Sorpstöðin hefur gert leigusamn- ing til 25 ára um urðun í landi Kirkjuferjuhjáleigu í Ölfusi en það land er í eigu ríkisins. Að sögn Þorvarðar Hjaltasonar, framkvæmdastjóra Sorpstöðvar Suð- urlands bs., er eingöngu tekið við sorpi til urðunar og er það urðað í urðunarreinum sem eru sérstaklega þéttar. Þaðan liggur drenlögn sem tekur við vatni og leiðir í gegnum sí- unarmannvirki og út í tjörn. Sagði hann að sérstaklega væri fylgst með efnum sem safnast í vatnið og að þau væru innan tilskilinna marka eins og kveðið væri á um í starfsleyfi stöðv- arinnar. „Það eru Hollustuvernd ríkisins og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, sem fylgjast með rekstrinum og að starfs- leyfið sé haldið,“ sagði hann. „Við höfum fjárfest verulega í þessum urðunarreinum og í mannvirkjum og allri aðstöðu á svæðinu. Við lögðum einnig veginn frá Suðurlandsvegi og niður að Kirkjuferjuhjáleigu og lögð- um í raun út fyrir vegalagningunni að öllu leyti þrátt fyrir að vegurinn sé að hluta til innansveitarvegur. Þetta er í heildina um 80 milljóna króna fjárfesting hjá fyrirtækinu að meðtöldum troðaranum en eigið fé stöðvarinnar er 50 milljónir, þannig að vel hefur gengið að greiða niður þessa fjárfestingu og fyrirtækið stendur mjög vel.“ 22 þús. tonn á ári Upphafleg áætlun um sorpmagn af öllu svæðinu gerði ráð fyrir um 10 þús. tonnum á ári en þær tölur voru ágiskun að einhveiju leyti, að sögn Þorvarðar. „Við vitum nákvæmlega hvað við fáum mikið, þar sem allt sorp er viktað inn á svæðið," sagði hann. „Við höfum verið í viðskiptum við Reykjavík í um tvö ár og fáum í heildina inn um 22 þús. tonn á ári eða rúmlega helmingi meira en upphaf- leg áætlun gerði ráð fyrir.“ Sagði hann að forsendur hefðu breyst þeg- ar keyptur var sorptroðari sem gerði það að verkum að sorpið kæmist fyr- ir á mun minna svæði miðað við upp- haflega áætlun. „Við náum 800 kíló- um á rúmmetra, sem er mun betri árangur en með venjulegum aðferð- um,“ sagði hann. „Urðunarreinarnar verða átta metra háar en þær eru í lægð og ekki áberandi í landslaginu." Þorvarður sagði að flokkun á sorpi sem kæmi til stöðvarinnar færi fram á móttökustöðvum eða gámasvæðum sveitarfélaganna þar sem tekið væri við efni sem ekki mætti urða. Það sama ætti við um sorp af höfuðborg- arsvæðinu þar sem í samningum við hreinsunarfyrirtækin væri kveðið á um að sorpið væri forflokkað. Samningur við tvö fyrirtæki Aðildarsveitarfélögin greiða 1.600 ki-ónur fyi-ir tonn af sorpi til urðunar eða 1,60 krónur fyrir lcílóið en fyrir sláturúrgang eru greiddar 3,30 krónur fyrir kg. „Við verðum að taka við sátur- úrgangi til urðunar,“ sagði Þorvarður. „Við erum ______________ reyndar í samvinnu við sláturleyfishafa að kanna möguleika á að reisa kjötmjölsverksmiðju á svæðinu og er undirbúningur langt á veg kominn en þó ekki á ákvörðunar- stig.“ I Árnessýslu falla til um 2.500 tonn af sláturúrgangi auk þess sem gert er ráð fyrir að um 2.000 tonn komi í verksmiðjuna frá Sorpstöð Rangæinga sem sér um urðun á flokkuðum úrgangi á Strönd. Þorvarður vildi ekki gefa upp hvað hreinsunarfyrirtækin frá höfuðborg- arsvæðinu greiddu fyrir úrgang sinn en sagði að 1,60 krónur fyrir kílóið Hagkvæmur flutningur fyrir sorpstöðina væru nærri lagi. „Við ei-um með samninga við tvö fyrirtæki um mót- töku á 10 þúsund tonnum,“ sagði hann. „Fyrirtækin telja þennan flutning hagkvæman og við teljum hann mjög hagkvæman fyrir sorpstöðina. Með þessu nýtum við fjárfestingu okkar betur og höfum af þessu verulegan hagnað, sem við getum nýtt til ann- arra verkefna eins og t.d. hugsan- legrar þátttöku í þessari kjötmjöls- verksmiðju. Við höfum einnig unnið að ýmsum úrbótum í þessum mála- flokki fyrir allt Suðurland, komum á pappírssöfnun dagblaða og söfnun á mjólkurfernum, sem Sorpa tekur síð- an við. Árangur af þessu er mjög góður og mun betri tel ég en á höfuð- borgarsvæðinu." Óánægja í Olfushreppi En það eru ekki allir á eitt sáttir með ui’ðun Sorpstöðvar Suðurlands á Kirkjuferjuhjáleigu. Hreppsnefnd Ölfushrepps hefur lýst yfir óánægju með að tekið sé við sorpi frá höfuð- borgarsvæðinu og segir Sigurður Þráinsson, einn hreppsnefndar- -------- manna, að verið sé að koma aftan að íbúunum þegar gróðasjónarmið séu látin ráða og upphaflegum _________ markmiðum fórnað. „Málið snýst fyrst og fremst um að farið var í þessi sorp- viðskipti án þess að leita álits hjá Ölf- usingum,“ sagði hann. „Þetta er byggðasamlag en ekki gróðafyrir- tæki og var kynnt sem slíkt þegar ákveðið var að taka starfsemina inn í Ölfusið og leysa þannig ákveðinn samfélagslegan vanda á Suðurlandi. Við getum ekki sætt okkur við að komið sé svona aftan að okkur. Spurningin er hvort yfir 20 sveitarfé- lög á Suðurlandi geti tekið þá ákvörðun að flytja allt þetta sorp inn í Ölfus án þess að tala við okkur.“ Kippur í fasteigna- sölu að undanförnu 4,97* kr./kg flokkað 8,25* kr./kg grófblandað Sorpa flokkar úrgang og baggar það sem fer til urðunar * án vsk. Baggaður úrgangur frá Sorpu er urðaður í Álfsnesi, um 15 km akstur í burtu Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu greiðir gámafyrirtæki fyrir losun, 10-12 kr./kg BILHRÆ eru til lýta í náttúrunni um land j Morgunblaðið/RAX Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson BORN á Akranesi taka fyrstu skóflustunguna að nýjum einsetnum leikskóla. Bæjarsfjórnin vonast til að aukin nálægð við höfuðborgarsvæðið laði að fleiri barnafjölskyldur. HVALF JARÐARGÖN GIN munu hafa mikil áhrif á búsetu og atvinnu- þróun á Akranesi. Með bættum og öruggari samgöngum allt árið verður atvinnusvæði Akurnesinga stærra en áður og samkeppnishæfni fyrirtækja á Akranesi eykst. Búist er við að fasteignaverð hækki og segir Gísli Gíslason bæjar- stjóri að undanfarið hafi komið kipp- ur í fasteignasölu á staðnum. Já- kvætt væri einnig að Akurnesingar myndu koma til með að eiga greiðari aðgang að námi, þjónustu og menn- ingu í Reykjavík. Göngin verða opnuð 10. júlí og er það mun fyrr en ráðgert hafði verið. Akraneskaupstaður hyggst mæta þessum miklu breytingum og hefur sérstök verkefnastjórn látið vinna „stefnumótun vegna verslunar, þjón- ustu, ferðaþjónustu og afþreyingar á Akranesi". Einnig var gerð könnun á viðskiptavenjum Akumesinga, stöðu atvinnulífs bæjarins og að lokum vom framkvæmdar markaðs- og kynningaráætlanir um hvernig mætti vinna sem best úr breytingunum. Leiðin styttist um 60 kílómetra Leiðin frá Akranesi til Reykjavík- ur styttist um 60 km og Akurnesing- ar geta komist í höfuðborgina á hálf- tfma í stað klukkutíma áður. Ferðir Akraborgarinnar leggjast af en í staðinn mun áætlunarbifreið sérleyf- ishafans Sæmundar Sigmundssonar aka á milli Reykjavíkur og Aki-aness um það bil sex sinnum á dag. Bæjarstjórn Akraness kynnti fyrr- nefnda stefnumótunarvinnu á mið- vikudag og í gögnum sem lögð voru fram kom fram að tilkoma ganganna myndi hafa bæði jákvæð og neikvæð áhrif á Akranes. Gísli Gíslason sagði að með greiningu ógnana og tæki- færa, eins og það er kallað í stefnumótunai-vinnu, væri mögulegt að meta hugsanleg áhrif og bregðast við þeim. Hins vegar ættu Hvalfjarð- argöngin sér ekki hliðstæðu í sam- göngumannvirkjum á Islandi og því væii vandkvæðum bundið að meta áhrifin til fulls. Unnið gegn neikvæðum áhrifum Fyrirtæki og þjónusta á Akranesi munu eiga í aukinni samkeppni við fyrirtæki og þjónustu á höfuðborgar- í Kirkjuferjuhjáleigu er allur úrgangur urðaður 1,60 kr./kg svæðinu sem gæti haft þau áhrif að sérhæfð fyrirtæki og verslanir á Skaganum ættu undir högg að sækja. Önnur neikvæð áhrif gætu orðið þau að Akranes yrði of nálægt höfuðborginni til að vera áfangastað- ur ferðalanga um Vesturland og að þónokkur störf tapist þegar Akra- borgin leggst af. Bæjarstjórn Akraness hefur þegar hafist handa við að deyfa neikvæð áhrif Hvalfjarðarganganna með því að bæta búsetuskilyrði í bæjarfélag- inu. Hún stefnir á næstunni að því að lækka húshitunarkostnað, endur- bæta holræsakerfið og sinna vatns- veitumálum, auk þess sem nýr leik- skóli mun verða byggður. Flestir versla í heima- byggð MARKAÐSKÖNNUN sem Gallup gerði fyrir Akranesbæ sýndi að Akurnesingar eru * tryggir neytendur í heimabyggð sinni. Rúmlega 67% aðspurðra sögðu að stærsti hluti innkaupa heimilisins væri gerður í verslun Einars Ólafssonar. Rúm 22% sögðust versla í Skagaveri og 6% í Grtmdavali. Athygli vekur að einungis.tæp 5% versla utan Akraneskaupstaðar en þar af eru 3% sem vérsla í Bónus. Þá voru bæjarbúaiv almennt ánægðir með verð og vöniúrval í verslunum bæjarins. % Um verslun með fatnað feng- ust svipaðar niðurstöður. Rúm 63% aðspurðra kaupa megin- hluta fatnaðar síns á Akranesi og einungis fjórðungur kaupir að staðaldri fatnað í Reykjavík. Þá kom einnig fram að einungis 5% Akurnesinga finnst vanta - verslanir á Akranes. ® Mun opnun Hvalfjarðarganga stuðla að aukinni samkeppni hjá fyrirtækinu? Samtals svöruðu 88 stjórnendur fyrirtækja á Akranesi Nei, örugglega ekki Nei, sennilega ekki Hlutlaus Já, sennilega Já, örugglega 12,5% 31,8% r-——— 13,6% 18,2% 23,9%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.