Morgunblaðið - 06.03.1998, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998
MORGUNB LAÐIÐ
BÍLAR
FRÁ Mitsubishi kemur fímm manna bíllinn Spacestar í árslok.
FORD Focus er
framúrstefnulegur
fólksbflf sem von
er á hingað til
lands um áramótin.
Hann er í sama
flokki og Escort
sem verður áfram í
boði til ársins 2000.
ii'iEraiMfflmfiaTEn
KRINGUM 80 gerðir bfla á al-
þjóðlegu bílasýningunni í
Genf, sem opnuð var almenn-
ingi í gær, eru ýmist að koma í fyrsta
sinn fyrir augu heimsbyggðarinnar
eða eru nú kynntar Evrópubúum
fyrst. Aðeins brot af þeim fjölda er
væntanlegt á íslenskan markað en
hér á eftir verður greint frá
nokkrum þeirra.
Meðal bfla sem frumsýndir voru
má nefna Suzuki Grand Vitara jepp-
ann, nýjan lúxusbfl frá Rolls Royce
sem nefndur er Silver Seraph, smá-
bflinn Tóyota Yaris, Mercedes Benz
CLK blæjubfl, endurbættar gerðir
af Renault Clio og Nissan Miera,
Citroén Xsara langbak, Ford Focus,
Kia Kamival sem er 7-9 manna bfll,
Mitsubishi Spacestar, smábílinn Dai-
hatsu Sirion og fleira.
Suzuki Grand Vitara er nýr og
nokkru stærri jeppi en Vitara sem
verið hefur á markaði hérlendis í all-
mörg ár. Nýja gerðin er ívið breið-
ari, með ávölum og frísklegum útlín-
um og má skipta á fullri ferð úr
eindrifi í aldrif þegar á þarf að halda.
Hins vegar verður að stöðva bflinn
þegar skipta á í lága drifið. Þetta er
fimm manna bfll með þokkalegu far-
angursrými. Rúmt er að setjast inn
bæði í fram- og aftursætin. Umboðið
hérlendis, Suzuki bílar, gerir ráð fyr-
ir að bfllinn verði kynntur hér í sum-
arbyrjun og er það með fyrstu lönd-
um í Evrópu. Bfllinn verður boðinn
með tveggja lítra og 2,5 lítra vélum
og er sú stærri 142 hestöfl. Þá er
bíllinn með tveimur líknarbelgjum
og möguleiki er á hemlalæsivöm.
Spacestar frá
Mitsubishi
Annar bíll frá Japan, Spacestar frá
Mitsubishi, var einnig frumsýndur í
Genf. Þetta er fímm manna bíll með
langbakssniði og verður án efa stefnt
gegn bflum eins og Renault Megané
Scenic. Spacestar kemur á markað í
lok ársins en hann er sérstaklega
hannaður með Evrópu í huga og
verður framleiddur í Hollandi. Er
ráðgert að framleiða um 50 þúsund
bfla af þessari gerð á næsta ári. Bfll-
inn verður með sömu 1,8 lítra vélinni
og nú er í Carisma en verður einnig
fáanlegur með 1,3 lítra vél og verður
boðinn með fimm gíra handskiptingu.
Bfllinn er 4,03 metra langur, 1,69 m
breiður og 1,51 m á breidd.
Ford sýndi framtíðarbílinn Focus
sem talsmenn fyrirtækisins sögðust
ætla að byggja á þeirri hefð sem
Escort hefði unnið sér en af Escort
hafa selst nærri 20 milljónir bíla.
Boðnar verða nýjar 1,6 og 1,8 lítra
vélar og staðhæfðu fulltrúar Ford að
þær væru um 25% spameytnari en
eldri gerðir og mun hljóðlátari.
Einnig verður bæði stærri og minni
vél í boði og ein gerð af dísilvél.
Focus og Escort saman
Ford Focus á ekki að taka við af
Escort, þó gera megi ráð fyrir því að
salan færist mikið til yfir á nýju
gerðina, því Escort verður fram-
leiddur að minnsta kosti í tvö ár til
viðbótar. Focus er verulega laglegur
bfll enda ætlar Ford að skáka til
hliðar keppinautunum Opel Astra og
Volkswagen Golf. Hann er ekkert
Nýr og
stærri jeppi
frá Suzuki
Evrópskir, bandarískir og japanskir
bílaframleiðendur höfðu margt að sýna
á bílasýningunni í Genf sem standa á til
15. mars. Jóhannes Tómasson kynnti
sér eitt og annað sem þar bar fyrir augu.
Ýmsar nýjungar eru væntanlegar hingað
til lands á næstu mánuðum.
TOYOTA kynnti meðal annars Yaris, smábfl sem væntanlegur er á
markað eftir um það bil ár.
líkur Escort nema með góðum vilja
má sjá örlítinn svip með vatnskassa-
hlífunum. Focus er með mjög boga-
dreginn og eiginlega framúrstefnu-
legan framenda, líflegt yfirbragð á
luktum og brot í hliðum við hjóla-
skálar. Talsmenn Ford vildu hins
vegar lítið meira segja um bflinn að
svo stöddu, sögðu hann kynntan síð-
ar í ár og að sala hæfist síðan með
haustinu. Von er á bflnum hingað til
lands um næstu áramót.
Eins og áður státa stjórnendur
■PP' SIRION
Per frá Daihatsu
og er búist við
honum hingað til
lands á miðju án.
sýningarinnar í Genf sig af vinsæld-
um hennar, segja gesti verða kring-
um 700 þúsund, sýnendur í ár séu
280 frá 33 löndum og með 1.020
vörumerki. Fyrir utan bfla eru það
breytingar og sérstakar útfærslur á
bflum, fylgihlutir, verkfæri, hjól-
barðar og hvers kyns tækni og allt
þetta dreifist á 93 þúsund fermetra
svæði. Þá benda þeir einnig á að sýn-
ingin sé haldin á hlutlausu svæði,
bílaframleiðendur hafi jafna stöðu til
að ná athygli gesta og fjölmiðla.
ZAFIRA frá Opel er sjö maima langbakur sem er þeim eiginleikum búinn
að með fáum handtökum má fella niður farþegasætin og er þá boðið uppá
1.700 lítra flutningsrými. Iiann er væntanlegur á markað á næsta ári.
Morgunblaðið/jt
GRAND Vitara er forvitnilegur jeppi frá Suzuki sem umboðið ráðgerir
að kynna hér í byrjun sumars.