Morgunblaðið - 06.03.1998, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Málþing um
Sigurð Breiðfjörð
FÉLAG íslenskra
fræða efnir til mál-
þings um Sigurð
Breiðfjörð skáld í fyr-
irlestrarsal á 2. hæð
Þjóðarbókhlöðunnar í
dag, laugardag, kl. 14.
Tilefnið er að 4. mars
voru liðin tvö hundruð
ár frá fæðingu Sigurð-
ar. Flutt verða þrjú
erindi um skáldið,
ásamt stuttum inn-
gangslestri um ævi
Sigurðar og ritstörf.
Þórður Helgason,
lektor við Kennarahá-
skóla Islands, talar
um bragform Sigurð-
Sigurður
Breiðfjörð
ar en í samtali við Morgunblaðið
sagði Þórður að þar væri ýmislegt
hnýsilegt að fínna sem hefur viljað
fara frarh hjá mönnum. „Mér sýn-
ist að Sigurður hafi komið fram
með ýmsar nýjungar á sínum
tíma, bæði nýja bragarhætti og
svo nýjungar í stuðlasetningu.
Sigurður var auðvitað í Danmörku
á tíma mikilla hræringa í bók-
menntum og ekki
óeðlilegt að hann hafi
borið hingað heim
eitthvað af þeim í
skáldskap sínum.“
Dagný Kristjáns-
dóttir, dósent við Há-
skóla Islands, flytur
erindi sem hún kallar
„Alþýðuskáldið eina“.
„Ég ætla að fjalla um
goðsögnina um al-
þýðuskáldið, hvemig
hún mótast og breytist
og fer að endurfram-
leiða sig í bókmennta-
sögunni. Segja má að
þessi goðsögn festist í
sessi í Olafi Kárasyni
og eftir það birtist hún í ýmsum
textum.“
Páll Valsson, bókmenntafræð-
ingur, talar um hinn margfræga
dóm Jónasar Hallgrímssonar um
Sigurð og nefnist erindið „Að
yrkja sig út úr bókmenntasög-
unni“. „Ég ætla að skoða þennan
dóm frá annarri hlið en venjulega,
það er frá sjónarhorni Sigurðar.
Morgunblaðið/Golli
MINNINGARSTUND við bautastein Sigurðar Breiðfjörð í kirkjugarðin-
um við Suðurgötu á miðvikudag. Það var Rithöfundasamband Islands
sem minntist hans með þessum hætti og kvöldvöku í Gunnarshúsi.
Ég ætla að reyna að færa rök að
því að þessi dómur hafi verið
ósanngjam og hindrað skáld-
þroska Sigurðar. Síðan mun ég
velta upp ýmsum hlutum sem
tengjast þessum dómi og meðal
annars leiða rök að því að með
IMGAR
dagur
auglýsinga-
pantana er
9.mars
Laugardaginn 14. mars nk. gefur
Morgunblaðið út hinn árlega blaðauka
Fermingar, en um fjögur þúsund ung-
menni verða fermd i ár.
í blaðaukanum er að finna á einum
stað upplýsingar um það sem við kemur
undirbúningi fermingardagsins, viðtöl
við fermingarbörn og spjallað við þau
um undirbúninginn, áhugamál ogfleira.
Fjallað verður um fatnað, hárgreiðslu,
veisluna ásamt uppskriftum að mat og
kökum og skreytingum á fermingarborð-
ið. Þekktir íslendingar draga fermingar-
myndirnar upp úr pússi sinu, litið verður
á sögu fermingarmyndarinnar o.m.fl.
Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12.00 mánudaginn 9. mars.
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á söludeild sérauglýsinga
I síma 569 1139.
AUGLÝSINGADEILD
Sfmi 569 1111 • Bréfaslmi 569 1110 • Netfang augl@mbl.is
honum hafi Jónas skrifað undir
dánarvottorð Fjölnis."
í dag verður einnig opnuð í Þjóð-
arbókhlöðunni sýning á nokkrum
handritum Sigurðar og frumútgáf-
um verka hans, ásamt öðru fróð-
legu efni tengdu ritstörfum hans.
Fjáröflunar-
tónleikar í Lang-
holtskirkju
TÓNLEIKAR verða í Langholts-
kirkju sunnudaginn 8. mars kl. 20.30
og eru til styrktar byggingu Vallar-
kirkju í Svarfaðardal sem brann í
nóvember 1996. Á tónleikunum
munu Signý Sæmundsdóttir, Björk
Jónsdóttir og Eiríkur Hreinn Helga-
son syngja við undirleik Jóns Stef-
ánssonar og Svönu Víkingsdóttur.
Þórarinn Eldjám les upp og Júlíus
Daníelsson segir frá Vallarkirkju.
Það er söfnuður og velunnarar
Vallakirkju sem standað að tónleik-
unum. Aðgangseyrir er kr. 1.500.
Herranótt
sýnir Vorið
kallar
HERRANÓTT Menntaskólans í
Reykjavík frumsýnir leikritið Vor-
ið kallar eftir Frank Wedekind,
1864-1918, laugardaginn 7. mars
kl. 20.
Vorið kallar (Friihlings
Erwachen) er þriðja verk Frank
Wedekind, samið á árunum
1890-91. Það var fyrst gefið út á
bók og vakti strax mikla hneykslan
og varð mjög umdeilt. Það var því
ekki frumsýnt fyrr en fimmtán ár-
um síðar í Berlín. Verkið þótti
mjög opinskátt og fór svo að lok-
um að verkið var bannað. Árið
1912 var það aftur leyft til opin-
berra sýninga en þá í ritskoðaðri
útgáfu.
Oft er þögnin
eina svarið
í kynningu segir m.a.: „Leikrit-
ið fjallar um örlög ungs fólks sem
er að þroskast. Það leitar svara við
sjálfsögðum spumingum um lífið
og tilveruna. Spurningamar em
m.a. um ást, kynlíf, samkynhneigð,
fóstureyðingu og tilgang lífsins.
Oft og tíðum er þögnin eina svarið
sem það fær. Bilið sem skapast
milli kynslóðanna á þessum ámm
virðist óbrúanlegt.
Þrátt fyrir að leikritið hafi verið
skrifað sem ádeila á samfélagið
fyrir heilli öld á það enn fullt erindi
til okkar í dag.“
Með helstu hlutverk fara Hulda
Dögg Proppé, Wendla; Jóhannes
Benediktsson, Morits; og Þor-
steinn B. Friðriksson í hlutverld
Melkiors. En hann er formaður
Herranætur. Leikstjóri sýningar-
innar er Hilmar Jónsson. Aðstoð-
arleikstjóri Halla Margrét Jóhann-
esdóttir. Finnur Amar Amarson
er leikmyndahönnuður. Tónlistin
er eftir Margréti Örnólfsdóttur.
Fyrirhugaðar em a.m.k. átta
sýningar á næstu dögum.
Löffler nærfatnaður hentar
jafnt ungum sem gömlum,
Everest-fórum,
áköfu útivistarfólki og
þeim sem vinna útivinnu.
Löffler heldur
öllum heitum
og þurrum!
Hallgrímur
Magnússon
í hlíðum
Everest
Rétt lagskipting ullar og
gerfiefna hefur gert Löffler
nærfatnaðinn ómissandi
fyrir allt útivistarfólk. Næst
húðinni er polypropylen,
sem hleypir rakanum út og
heldur líkamanum þurrum.
Þar næst er einangrandi
ullarlag sem heldur á þér
hita í öllum veðrum.
iá
SPORTHUS
REYKJAVÍKUR
Laugavegi 44 • Sími 562 2477
www. Hn. Is/skatabudin
Snorrabraut 60 • 105 Reykjavík
SlmlSII 2030 -FaxSII 2031
Helldsöludreifing
Fæst I helstu sportvöruverslunum
um land allt