Morgunblaðið - 06.03.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.03.1998, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LIU leggst eindregið gegn tillögum um kvótaþing Þrengir stöðu minni litgerða og landvinnslu ✓ x Stjórn LIU leggst gegn hugmyndum um kvótaþing og segir formaður samtaka út- gerðarmanna í samtali við Egil Ólafsson að tillögur fískverðsnefndar séu sniðnar að kröfum sjómanna. Sjómannasamtökin hafa hins vegar ekki lokið umfjöllun sinni um tillögurnar. I dag er fundur í samninga- nefndum allra sjómannasamtakanna og síðan verður fundur hjá sáttasemjara. STJÓRN Landssambands íslenskra útvegsmanna samþykkti ályktun á fundi í gær þar sem segir að megin- þungi tillagnanna gangi gegn hags- munum útgerðar og mun einkum þrengja stöðu smærri útgerðarfyrir- tækja og landvinnslu. ^ Kristján Ragnarsson, formaður LIU, segir að útgerðin sætti síg hins vegar við til- lögu um Verðlagsstofu skiptaverðs, en henni sé aftur á móti ætlað mjög víðtækt eftirlitshlutverk. Kristján sagði að tillögur nefndar- innar væru sniðnar að kröfum sjó- manna. Þetta væri nokkuð sérstakt og eins það að skoðanir útvegs- manna, sem ættu að vinna eftir þess- um lögum, skiptu ekki máli. „Við höfum alltaf andmælt þessum tillögum um kvótaþing. Þær komu fram fyrir fjórum árum og var þá hafnað og koma upp núna frá nefnd sem í sitja sömu menn og setti tillög- una fram. Menn láta að því liggja að þetta kvótaþing sé eitthvað hliðstætt við verðbréfaþing sem er algerlega rangt. í verðbréfaþingi mega menn eiga viðskipti utan þings og eru ekki bundnir af viðskiptum þar, en í þessu tilfelli eiga engar heimildh- að geta farið milli skipa nema um sé að ræða jöfn skipti eða innan sömu út- gerðar nema yfir kvótaþing. Að okk- ar mati ógnar þetta minni fyrirtækj- um og sé mjög í anda stórra fyrir- tækja og hvetji til sameiningar fyrir- tækja. Af því höfum við áhyggjur að þetta muni líka spilla fyrir fisk- vinnslunni sem átt hefur í góðu sam- starfi við útgerðina um nýtingu veiðiheimilda. Nú er lagt upp úr því að skera á þessi tengsl þannig að við teljum að fiskvinnslan getið orðið í ákveðinni hættu," sagði Kristján. Langt seilst í eftirliti Kristján sagði varðandi Verðlags- stofu skiptaverðs að þar væri nokk- uð langt gengið í eftirlitshlutverki, en þrátt fyrir það séu útvegsmenn tilbúnir til að sætta sig við hana. Þarna væri sett fram leið til að styrkja úrskurðarnefndina og það væri jákvætt. Hún væri fallin til að eyða tortryggni sem væri til staða milli sjómanna og útgerðarmanna. Kristján sagði að það mætti ekki gleyma því að sjómenn hefðu í mörg- um tilvikum óskað eftir að taka þátt í að afla skipi kvóta. Dæmi væri t.d. um bát á Suðurnesjum þar sem sjó- menn hefðu haft eina milljón í árs- Morgunblaðið/Golli FORYSTUMENN útgerðarmanna og sjómanna hafa verið í sviðsljós- inu undanfarnar vikur og í dag hittast þeir á ný á fundi hjá sáttasemj- ara. Á myndinni ræðast við fyrir framan myndavélarnar þeir Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, og Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafé- lags íslands. tekjur, en með því að auka aflamark hans hefðu tekjumar aukist upp í fjórar milljónir. Hann sagði að sjó- mannaforystan hefði lagt áherslu á að rjúfa tengsl milli útgerðar og fisk- vinnslu um kvótakaup og ef þetta yrði að lögum kæmi í Ijós hvaða af- Ieiðingar það hefði fyrir sjómenn og fiskverkafólk. „Okkur finnst þessi veiðiskylda byggjast á svolitlum misskilningi að setja hana á hvert ár 50%. Við hefð- um getað sætt okkur við að fram- selja ekki meira en 50% sem myndi virka með algerlega sambærilegum hætti gagnvart sjómönnum. Skip sem á eftir heimildir en bilar þegar fimm mánuðir eru eftir af fiskveiði- árinu glatar bæði veiðirétti og veiði- leyfi. Þetta teljum við að séu allt of ströng viðurlög.“ Breytt ákvæði um fækkun í áhöfn skilyrði fyrir samningum Kristján sagðist vera tilbúinn til að halda áfram viðræðum við sjó- menn um gerð nýs kjarasamnings. útvegsmenn hefðu þegar samþykkt að hækka lágmarkslaun sjómanna til samræmis við aðra. Þeir hefðu sömuleiðis samþykkt að hækka þeirra líftryggingu. Hann sagði að LÍÚ gerði það sem skilyrði fyrir undirskrift samninga að sjómenn féllust á kröfu útvegsmanna um að þeir myndu njóta ávinnings af því þegai- fækkað er í áhöfn skipa, en í dag fer allur ávinningurinn til sjó- manna. Kristján sagði að LÍÚ myndi ekki krefjast þess í upphafi viðræðna hjá sáttasemjara á morgun af fá að vita hvort sjómenn ætluðu að aflýsa verkfalli. Sjávarútvegsráðherra hefði sett þetta skilyrði og hann myndi væntanlega fylgja því eftir og ganga eftir svörum. Samtök fiskvinnslustöðva ætla að taka tillögurnar fyrir á stjórnarfundi í næstu viku. Arnar Sigurmundsson, formaður Samtakanna, sagði að stjórnin hefði árið 1994 fjallað um til- lögur um stofnun kvótaþings og lagst gegn þeim á þeirri forsendu að þingið dragi úr frekari hagræðingu í fiskvinnslu. Hann sagðist ekki geta svai-að því fyrir víst hvort stjórnin myndi halda sig við þessa afstöðu. Hann sagðist telja jákvætt ef stofn- un Verðlagsstofu skiptaverðs styrkti úrskurðarnefndina. Sjómenn með fund á morgnn Samninganefnd Fai’manna- og fiskimannasambandsins kom saman til fundar í gær. Guðjón A. Krist- jánsson, formaður sambandsins, sagði að nefndin myndi ljúka um- fjöllun sinni um málið í dag. Hann vildi ekki lýsa afstöðu sinni til tillag- ana nefndarinnar en minnti á að FFSÍ hefði ekki sett fram kröfu um kvótaþing eða Verðlagsstofu sjávar- útvegsins. Sambandið hefði sett fram kröfu um að veiðiskylda yrði hækkuð í 90%, en niðurstaðan væri 50%. Hann sagði að sjávarútvegsráð- herra hefði ekki sett nein skilyrði um hvenær sjómenn ættu að svara um afdrif verkfallsins. Sjómenn myndu taka þann tíma sem þeir þyrftu til að skpða málið. I dag er fundur í samninganefnd- um allra sjómannasamtakanna og siðan verður fundur hjá sáttasemj- ara. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru forystumenn þeirra margir óánægðir með það skilyi’ði sjávarútvegsráðherra að þurfa að aflýsa verkfalli áður en þeir hafa lokið við kjarasamning við útvegs- menn. Þeir óttast að útvegsmenn verði ekki viljugir til að fallast á kröfur þein-a um aðra hluti verði þeirra að sætta sig við frumvörp sjávarútvegsráðherra. Sú staða er hugsanleg að sjómenn fresti verk- falli og frumvörpin verði samþykkt á Alþingi, en ekki takist kjarasamn- ingar milli sjómanna og útgerðar- innar. Sjómenn eiga þá þann kost að boða að nýju til verkfalls til að fylgja eftir kröfum sínum, en það er tals- vert mikið mál fyrir Sjómannasam- bandið og Farmanna- og fiski- mannasambandið að boða til verkfall í öllum aðildarfélögum sínum. Ekki er sjálfsagt að slík verkfallsboðun verði samþykkt í félögunum þegar búið er að taka á aðalágreiningsmál- inu í lagafrumvarpi. Sá kostur er fyrir hendi að sjó- menn reyni að knýja á um samninga við útgerðarmenn nú þegar áður en þeir aflýsa verkfalli. Þar með eru þeir að taka þá áhættu að útvegs- menn reyni að koma í veg fyrir sam- þykkt frumvarpanna með því að hafna öðrum kröfum sjómanna. Efnahagslegur ávinn- ingur er af kvótaþingi AÐ MATI Þjóðhagsstofnunar er efnahagslegur ávinningur af því að koma á kvótaþingi. Þingið muni jafna aðstöðumun milli fyrirtækja eftir því hvort þau eiga mikinn eða lítinn kvóta. Þingið geti skapað hvata til sérhæfingar og hagkvæmni. Auk þess megi búast við að kostnað- ur við viðskipti með kvóta minnki. Samkvæmt drögum að frumvarpi um kvótaþing, sem nefnd sem sjáv- arútvegsráðherra skipaði samdi, eiga viðskipti um kvótaþing að fara í svokölluðum „svörtum kassa“, þ.e.a.s. kaupendur og seljendur munu leggja fram tilboð án upplýs- inga frá þinginu um önnur tilboð og án annarra skilyrða en að tiltaka tegund, verð, magn og gildistíma. Hægt er að skilyrða tilboð við ákveð- ið lágmarksverð. Þjóðhagsstofnun telur mikilvægt að undirbúa stofnun kvótaþings vel og bendir á reynslu af raforku- skyndimarkaðnum í Noregi og Bret- Iandi. Stofnunin bendir á að viss hætta sé á að reynt verði að spila með markaðsverðið. Bent er á að það geti verið misjafnt eftir fiskteg- undum hvernig verðið þróist. Búast megi við að viðskipti með innfjarðar- rækju, humar og hörpuskel verð strjál og það kunni að vera rétt að nýta sér heimild í frumvarpinu að undanþiggja viðskipti með aflaheim- ildir í þessum tegundum frá kvóta- þingi. Þjóðhagsstofnun telur að stofnun kvótaþings leiði til þess að skipta- verð til sjómanna muni hækka hjá útgerðum sem blandað hafa saman kaupum á aflaheimildum og kaupum á hráefni. Svokölluð tonn á móti tonni viðskipti verði sýnilegri. Það verði því ekki eins fýsilegt fyi’ir útgerðir að stunda þessi viðskipti og þar með sé líklegt að kvótaverð lækki, a.m.k. til skamms tíma. Stofnun kvótaþings komi til með að draga úr kostnaði útgerða við að finna mótaðila til að eiga viðskipti með kvóta. Það verði minni kostnað- ur við upplýsingaöflun. Hins vegar verði að gæta þess vel að reglur um eftirlit og samskipti við Fiskistofu geri þessi viðskipti ekki óþarflega þung í vöfum. Þjóðhagsstofnun segir að stofnun kvótaþings sé ólíkleg til að útrýma algerlega samningum um tonn á móti tonni. Hins vegar verði samn- ingsstaða sjómanna mun betri. Ekk- ert sé því heldur til fyrirstöðu að þriðji aðili komi að fjármögnun slíkra viðskipta og taki jafnvel áhættu af verðsveiflum á kvóta að einhverju eða öllu leyti á sig. Drög að frumvarpi um kvótaþing gera ráð fyrir að tilfærslur á afla- marki innan útgerðar þurfi ekki að fara um kvótaþing. Það sama á við þegar um bein skipti á aflaheimild- um er að ræða. „Það er hins vegar ljóst að töluvert af vinnslufyrh’tækjum sem eiga eng- an kvóta, en eru samt rekin með arði. Slíkir aðilai’ hafa raunar kvartað und- an ósanngjörnu forskoti hinna fyrr- nefndu. Kvótaþingið mun jafna þenn- an aðstöðumun að einhverju leyti, en ekki útiýma honum og skapar um leið þrýsting á vinnslufyrirtæki, sem eiga kvóta, til aukinnar framleiðni. Frá efnahagslegu sjónarmiði er þetta æskileg þróun, því víxlstyrkur milli greina leiða til þjóðhagslegrar óhag- kvæmni og framleiðsluþættir eru ekki nýttir ein vel og kostur er. Leiguliða- og tonn á móti tonni viðskipti hafa hvatt til þess að vinnslufyrirtæki framselji kvóta sinn til kvótalítilla útgerða. Afnám þess- ara möguleika munu draga nokkuð úr hvatanum til slíkra viðskipta og meira verður um að vinnslan nýti sínar aflaheimildir sjálf en áður. Ekki er víst að staða leiguliðanna muni versna svo mjög því verð á aflamarki mun lækka í kjölfarið og það verður minni fyrirhöfn og við- skiptakostnaður við að afla heimilda en áður. Kvótaþing skapar því hvata til aukinnar sérhæfingar og hag- kvæmni að því leyti,“ segir í áliti Þjóðhagsstofnunar. Ályktun stjdrnar útg’erðarmanna HÉR fer á eftir í heild ályktun stjórnar LIU, sem samþykkt var í gær: A fundi stjórnar LÍÚ í dag vai’ fjallað um skýrslu nefndar er sjáv- arútvegsráðherra skipaði til þess að fjalla um atriði tengd kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna. Að mati stjórnarinnar gengm’ meginþungi tillagnanna gegn hagsmunum út- gerðar og mun einkum þrengja stöðu smærri útgerðarfyrirtækja og landvinnslu. Það atriði í tillögum nefndarinn- ar, sem mestri röskun getur valdið, er lögbundið bann við frjálsum við- skiptum á veiðiheimildum. Þess í stað er miðað við lögboðið miðstýrt uppboðskerfi með veiðiheimildir sem útilokar bein viðskipti með aflamark. Þessi háttur mun auka kostnað útgerðar og einkum koma niður á starfsemi smærri útvegsfyt’- irtækja. Slíkur markaður mun rjúfa þau eðlilegu tengsl, sem eni víða milli útgerðar og fiskvinnslu, og þannig draga úr möguleikum land- vinnslu sem hefur átt undir högg að sækja. Stjórnin telur því að þessi tilhögun gangi gegn hagsmunum sjávarútvegsins og mælir eindregið gegn henni. Nefndin áréttai’ í áliti sínu mikil- vægi þess að frjáls verðmyndun verði áfram á sjávarafla með áhafn- arbundnum samningum um fisk- verð. Stjórnin tekur undir þetta sjónannið og getur því fyrir sitt leyti fallist á tillögui’ nefndarinnar sem miða að því að skapa öryggi og sátt um þessi viðskipti. Þótt gott sam- komulag sé um fiskverðsmyndun á öllum þon-a fiskiskipa eni fáein und- antekningartilvik hins gagnstæða. Asakanir um óréttmæta viðskipta- hætti örfárra aðila gi'afa undan starfsemi vel rekinna útgerðarfyi-ir- tækja. Ef stofnun Verðlagsstofu skiptaverðs getiu’ tryggt öryggi í þessum viðskiptum og eytt öllum gróusögum um misferli í viðskiptum útgerðarmanna og sjómanna, þá er tilvist hennar fyllilega réttmæt. Þriðji þáttur tillögunnar er að tvöfalda ái’lega veiðiskyklu fiski- skipa frá því sem er skv. gildandi lögum að viðlögðum missi veiðileyf- is og veiðiréttar. Stjórn LÍÚ er þeirrar skoðunar að fiskveiðistjórn- unarkerfið eigi fyi-st og fremst að miða við þarfir starfandi útgerða. Stjórnin getur því fallist á það sjón- ai-mið sem liggur til grundvallar til- lögu nefndarinnar en á formi tillög- unnar eru þó óviðunandi meinbugir. Stjórn LÍÚ bendir á að sama til- gangi má ná með takmörkun á framsali aflamarks um sama hund- raðshluta, án skaðlegra aukaverk- ana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.