Morgunblaðið - 06.03.1998, Blaðsíða 60
*60 FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Háskólabíó hefur tekið til sýninga nýjustu kvikmynd Steven Spielbergs. Hún heitir Amistad og meðal
aðalleikenda eru Morgan Freeman, Anthony Hopkins, Nigel Hawthorne, Djimon Hounsou og Matthew McConaughey.
Gömlu og nýju dansarnir í kvöld og
annað kvöld. Tríó Þorvaldar leikur
ásamt söngkonunum Vordísi og Frigg.
íA(ceturgaunn
‘Dansfiús, sími 587 6080
Opið föstudags, laugardags- og sunnudagskvöld
Lifandi tónlist fyrir líflegt fólk
Sjáumst hress
Næturgalinn
DJIMON Hounsou leikur Cinque, foringja afrísku þrælanna.
Söguleg þræla-
uppreisn
ANTHONY Hopkins og Morgan Freeman ræða við Steven Spielberg.
Tappan (Stellan Skarsgárd) eru
slíkir baráttumenn en eini lögfræð-
ingurinn, sem þeir geta fengið til
liðs við sig, er ungur og lítilsmetinn
sérfræðingur í eignarrétti, Roger
Baldwin (Matthew McConaughey).
En þegar fram vindur sögunni
kemur í ljós hve djúpt ágreiningur-
inn um þrælahald ristir hjá Banda-
ríkjamönnum. Martin van Buren,
forseti Bandaríkjanna, (Nigel
Hawthorne) er að sækjast eftir
endurkjöri og í því skyni að styggja
ekki plantekrueigendur í Suður-
ríkjunum og spænsk yflrvöld beitir
hann sér fyrir því að úrskurði und-
irréttar er skotið fyrir sjálfan
Hæstai’étt Bandaríkjanna. Þá berst
þrælum liðsinni úr annam átt því
fyrrverandi forseti landsins, John
Quincy Adams, (Anthony Hopkins)
tekur að sér að vera málsvari
þeirra fyrir Hæstarétti.
Það er leikkonan og dansarinn
Debbie Allen, sem er manneskjan
á bak við myndina Amistad. Hún
keypti kvikmyndarétt að bók um
uppreisnina fyrir þrettán árum og
fór strax að ganga á milli áhrifa-
manna í Hollywood að leita sér lið-
sinnis við að festa söguna á filmu.
Hún segir að sér hafi fundist nauð-
synlegt að segja þessa sögu öllum
heiminum og bandarískri æsku.
Frá 1984 gekk hún milli manna í
leit að fjármagni og framleiðendum
en það var ekki fyrr en 1994 að hún
náði tali af Steven Spielberg, höf-
Danssmiðja flermanns Ragnars og Danssktíli Auðar flaralds
SÍdphöÍt 25. 105 Reykjarík (Z> 561 9797 & 561 7580
undi 6 af 20 mest sóttu kvikmynda
sögunnar. Það tók hana tíu mínút-
ur um að sannfæra Spielberg að
þessi kvikmynd ætti erindi á hvíta
tjaldið.
Þar með bættist sagan um
þrælaskipið Amistad í hóp E.T.,
Jaws, Jurassic Park, Schindler’s
List, Indiana Jones og allra hinna
myndanna sem þessi farsæli kvik-
myndaleikstjóri hefur komið nærri
frá því að hann hóf feril sinn fyrir
um það bil 30 árum.
Debbie Allen og Spielberg réðu
mann að nafni David Franzoni til
að skrifa handrit og þegar það lá
fyrir var farið að leita leikara. Spi-
elberg segir að Morgan Freeman
hafi verið sá fyrsti sem hann leitaði
til. Morgan var fenginn til að taka
að sér hlutverk hins svarta
Theodore Joadson en það er eina
skáldaða persónan í hópi aðalper-
sónanna. Markmiðið með því að
veita honum mikið vægi segja að-
standendurnir að hafi verið það að
leggja áherslu á þá þýðingu sem
barátta svertingja sjálfra hafði
varðandi það að binda enda á
þrælahald. Freeman er orðinn
„senior“ svartra leikara í Banda-
ríkjunum, óumdeildur eftir Driving
Miss Daisy, Shawshank, Unforgiv-
en, Seven og fleiri myndir.
Tveir af fremstu leikurum Bret-
landseyja, sir Anthony Hopkins og
Nigel Hawthoi-ne, (Sir Humphrey í
Já, ráðherra; Madness of King Ge-
orge) féllust á að leika Bandaríkja-
forsetana tvo sem tókust á um mál-
efni þrælauppreisnarinnar og unga
lögfræðinginn leikur Matthew
McOnaughey, sem er að verða
stjarna eftir leik í A Time to Kill og
Contact. Spielberg segir hins veg-
ar að af sinni hálfu hafí það alltaf
verið skilyrði þess að myndin yrði
gerð að réttur maður fyndist í hlut-
verk þrælaforingjans Cinque. Þann
mann fundu þau í Djimon
Hounsou, Afrikumanni frá Benín.
Hann hefur undanfarin ár leikið
smáhlutverk í nokkrum kvikmynd-
um og stjónvarpsþáttum vestan-
hafs en þegar ferill hans hófst í
skemmtiiðnaðinum var hann úti-
gangsmaður í París. Hann svaf á
bekk á almannafæri í París þegar
tískukóngurinn og ljósmyndarinn
Thierry Mughler uppgötvaði hann
og gerði að módeli hjá sér.
Fjölmargir þekktir aukaleikarar
leika í myndinni, svo sem David
Paymer, Pete Postlethwaite og
Svíinn Stellan Skarsgárd, að
ógleymdum Harry A. Blackmun,
háöldruðum dómara við Hæstarétt
Bandaríkjanna.
Morgan Freeman
. ' DANSHUSIÐ
Artún
Vagnhöfða 11, símar 567 4090 og 898 4160. fax 567 4092.
AMISTAD fjallar um upp-
reisn sem gerð var sumarið
1839 um borð í spænska
skipinu La Amistad, sem flutti
þræla frá Sierra Leone á vestur-
strönd Afríku, vestur um haf til
Ameríku.
Undan ströndum Kúbu brutu 53
hlekkjaðir þrælar sér leið úr lest-
um skipsins, náðu í vopn, tóku völd
um borð í skipinu og endurheimtu
þannig frelsi sitt. Undir stjórn
þrælsins sem Spánverjar kölluðu
Cinque (Djimon Hounsou) ætluðu
þeir sér að snúa skipinu til Afríku.
Afríkumennina brast þekkingu á
úthafssiglingu og því þurftu þeir að
reiða sig á aðstoð þeii-ra tveggja
skipverja sem eftir lifðu. En hvít-
ingjarnir reyndust ekki traustsins
verðir. A tveggja mánaða hrakn-
ingum á sjó bar þá óafvitandi langt
upp með austurströnd BandanTíj-
anna allt þar til bandaríski flotinn
náði til þeirra, færði í land og
ákærði fyrir morð og sjórán.
Þótt enn væru þá liðlega 20 ár
uns afstaðan til þrælahalds skipti
Bandaríkjamönnum í stríðandi
fylkingar vakti málið mikla athygh
í Bandaríkjunum. I fyrstu voru það
aðeins þeir sem börðust fyrir af-
námi þrælahalds sem tóku málstað
þrælanna. Theodore Joadson
(Morgan Freeman) og Lewis
ít
Anthony Hopkins
Matthew McConaughey
Djimon Hounsou
matseðill
... á stað þar sem allir gestir
eru tignir gestir ...
Opnum alla daga
Naustið Vesturgötu 8 - Sími 552 3030 & fax 561 7758
No Name andlit ársins
NONAME
..— COSMETICS '■
Snyrtivörukynning í dag kl. 14-18.
Silla förðunarfræðingur kynnir
og gefur ráðleggingar.
SPES, HÁALEITISBRAUT 58-60, SÍMI 581 3525
Frumsýning