Morgunblaðið - 06.03.1998, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Fyrri frumsýningin verður í
kvöld, föstudagskvöld, en
þar sem tveir hópar barna
koma við sögu verður önn-
ur frumsýning annaðkvöld. Auður
Bjarnadóttir er leikstjóri og stjóm-
ar hún nú í fyrsta sinn hjá Leikfé-
lagi Akureyrar, en Guðmundur Óli
Gunnarsson er hljómsveitarstjóri.
Rúmt ár er frá því að Leikfélag
Akureyrar sýndi síðast í Sam-
komuhúsinu, en því var lokað á
liðnu ári og hafa umfangsmiklar
endurbætur verið gerðar innan-
dyra, m.a. sett ný sæti, sviði breytt
og útbúin hljómsveitargryfja. Nýir
litir og form prýða nú þetta gamla
og virðulega hús, en það var byggt
árið 1906.
Söngleikurinn Söngvaseiður var
frumsýndur á Broadway í New
York fyrir tæpum fjörutíu árum, í
nóvember 1959, og gekk uppfærsl-
an í þrjú ár samfellt, en sýningar
urðu hartnær 1.500 talsins. Sex ár-
um eftir frumsýninguna á Broad-
way var gerð geysivinsæl kvik-
mynd byggð á söngleiknum sem
hreppti öll helstu Óskarsverðlaun-
in árið 1965, en Julie Andrews og
Cristofer Plummer fóru með aðal-
hlutverkin í myndinni.
Vann hug og
hjarta barnanna
Söngvaseiður er byggður á æv-
intýrale^gri ævi austurrískrar konu,
Maríu Agústu Kurscher sem gaf út
endurminningar sínar, Söguna af
Trapp-fjölskyldusöngvurunum, ár-
ið 1949. María fæddist í lest milli
Salzburg og Vínar 26. janúar árið
1905, hún missti móður sína ung og
ólst upp hjá ströngum fóðurbróður
sínum. Komst hún í kynni við
jesúítaprest og snerist til kaþólskr-
ar trúar á námsárum sínum og
ákvað í kjölfarið að gerast nunna
og helga ævi sína trúariðkunum.
Skömmu eftir að María hóf
reynslutíma sinn í klaustrinu var
hún ráðin barnfóstra til Georgs von
Trapps, kapteins, ekkjumanns og
sjö þama fóður.
Börnin eru óstýrilát, kæra sig
lítið um nýjar og nýjar bamfóstrur
og fínna upp á ýmsu til að gera
Maríu lífið leitt. En með glaðlyndi
og tónlistargáfu tekst henni þó að
vinna hug þeirra og hjarta og áður
en yfir lýkur bráðna fleiri hjörtu,
því þau María og Georg ganga í
hjónaband. Fjölskyldan bjó í Aust-
um'ki í skugga þeirra ógna sem
stöfuðu af vaxandi gengi nasismans
á millistríðsámnum. Fjölskyldan
flúði landið og settist að í Banda-
ríkjunum þar sem María og bömin
fóm í hvert söngferðalagið á fætur
öðm, einnig setti María á stofn
sumartónlistarskóla og síðar hóf
hún rekstur skíðahótels í Vermont.
Fljótlega eftir að Sagan um
Trapp-fjölskyldusöngvarana kom
út leituðu kvikmyndafyrirtæki í
Hollywood eftir því að kaupa rétt-
inn til að kvikmynda söguna, en
Maríu gast ekki að hugmyndum
kvikmyndarisanna og neitaði öllum
tilboðum úr þeirri áttinni. Þýsk
mynd var gerð eftir sögunni árið
1956 og varð feykivinsæl, en María
lét snuða sig í samningum og bar
lítið úr býtum. Sú saga endurtók
sig bæði hvað varðar söngleikinn
og kvikmyndina, þótt María væri
góðum gáfum gædd og legði allt
sitt traust á algóðan guð var hinn
harði heimur viðskiptanna ekki sá
vettvangur sem hún kunni að feta
sig á.
Tónlistin í Söngvaseiði er eftir
Richard Rodgers, söngtextamir
eftir Oscar Hammerstein annan og
þeir Howard Lindsey og Russel
Crouse sömdu leikhandritið. Flosi
Olafsson þýddi verkið á íslensku.
Féll fyrir bíómyndinni
Fjöldi listamanna kemur við
sögu í uppfærslu Leikfélags Akur-
eyrar þar sem söngvarar, leikarar
og hljóðfæraleikarar stilla saman
strengi. Félagið hefur fengið til liðs
við sig gesti með reynslu á leiksviði
og í tónlistarsölum í Reykjavík og
erlendis frá, en nýtur auk þess
styrkra krafta norðlenskra lista-
manna og má nefna að fimm söng-
Morgunblaðið/Kristján
FÖNGULEGUR barnahópur Georgs von Trapps sem í fyrstu fann upp á ýmsu til að gera Maríu lífið leitt, en
með glaðlyndi sínu og tónlistargáfu vann hún hug þeirra og hjarta.
Söngvaseiður í endur-
bættu Samkomuhúsi
Leikfélag Akureyrar
opnar Samkomuhúsið
að nýju með viðamikilli
sýningu á einum vin-
sælasta söngleik allra
tíma, Söngvaseiði, (The
Sound of Music). Mar-
grét Þóra Þórsdóttir
fylgdist með æfingum.
konur sem þátt taka í sýningunni
hafa hlotið menntun sína í Tónlist-
arskólanum á Akureyri.
Þóra Einarsdóttir óperusöng-
kona fer með aðalhlutverkið, barn-
fóstruna Maríu, og er þetta í fyrsta
sinn sem hún starfar með Leikfé-
lagi Akureyrar, en hún fór á síð-
asta hausti með eitt aðalhlutverk-
anna í óperunni Cosi fan tutte.
Þóra starfaði aðallega í Bretlandi á
síðasta ári, þar sem hún fór m.a.
með hlutverk Pamínu í uppfærslu
Opera Factory á Töfraflautunni á
40 sýningum.
„Það hefur verið ævintýralegt að
fylgjast með þessu öllu smella sam-
an og þetta er að verða alveg heil-
mikil fæðing,“ segir Þóra, en auk
stífra æfinga, þar sem sýningin
hefur smám saman verið að taka á
sig mynd, hafa iðnaðarmenn verið
á þönum um allt hús, að breyta og
bæta, mála, smíða og teppaleggja.
„Með góðum vilja hefur samstarfið
gengið vel, allir leggja sig fram að
gera bæði húsið og sýninguna sem
best úr garði,“ segir Þóra.
Aður hefur hún einungis sungið
óperuhlutverk og segir að hún hafi
beðið um smá umhugsunarfrest áð-
ur en hún sló til og tók að sér að
syngja og leika aðalhlutverkið í
þessum sívinsæla söngleik. „Mun-
urinn er minni en ég hélt, raddbeit-
ingin er svipuð, en stíllinn aðeins
með öðrum hætti og það er nýtt
fyrir mér að fara með taltexta. Það
er ekki óalgengt að ópeimsöngvar-
ar fari með hlutverk í söngleik og
það er virkilega gaman að spreyta
sig á þessu formi,“ segir hún og
kveðst full tilhlökkunar að takast á
við þetta verkefni.
Þóra er ung að árum og segist
því ekki muna eftir kvikmyndinni
sem sló svo rækilega í gegn á sjö-
HINRIK Ólafsson og Þóra Einarsdóttir í hlutverkum von Trapps og
Maríu, en bæði starfa þau nú í fyrsta sinn með Leikfélagi Akureyrar.
—
NASISTARNIR, Jónsteinn Aðalsteinsson og Jón Júlíusson, í hlutverk-
um sínum.
unda áratugnum. „Ég sá þessa bíó-
mynd aldrei og missti af allri
stemmningunni í kringum hana.
Ég stóð alltaf í þeirri meiningu að
þetta væri ósköp væmin bíómynd.
Þegar Trausti Olafsson leikhús-
stjóri hafði samband við mig vegna
þessa hlutverks ráðlagði hann mér
endilega að sjá bíómyndina á
myndbandi og það er skemmst frá
því að segja að ég gjörsamlega féll
fyrir henni. Þetta verk er alls ekki
væmið, í því er djúpur undirtónn
og þama er fjallað um stjórnmála-
ástand þess tíma auk þess sem
greint er frá lífshlaupi Maríu sem
var mjög ævintýralegt," segir
Þóra. Tónlistina í verkinu segir
hún einnig létta og skemmtilega að
sínu mati, lögin séu létt og grípandi
en samt ekki þannig að hún verði
leið á þeim.
Draumahlutverk
„Þetta er draumahlutverk, það
er gaman að túlka Maríu, hún er
afskaplega góð og fylgir ævinlega
eigin sannfæringu og er alltaf að
gefa af sjálfri sér, hún leitar eftir
vilja guðs og vill lúta honum,“ segir
Þóra og bætir við, að æfingatíminn
hafi verið einstaklega skemmtileg-
ur enda allt gengið eins og í sögu
undir styrkri stjórn Auðar leik-
stjóra. „Það hefur verið mjög gef-
andi að starfa með öllu þessu fólki,
ekki síst bömunum sem öll em
hæfileikarík og skemmtileg, þau
em yndisleg hvert og eitt og virki-
lega gaman að kynnast þeim,“
sagði Þóra sem auk þess að æfa
hlutverkið hefur á sama tíma verið
að æfa og syngja með Sinfóníu-
hljómsveit Islands og er einnig að
undirbúa ljóðatónleika með Helgu
Bi-yndísi Magnúsdóttur píanóleik-
ara sem þær ætla að efria til bæði á
Akureyri og Reykjavík og kannski
víðar. „Mér finnst best að hafa
mörg jám í eldinum, hafa nóg að
gera.“
Hinrik Ólafsson starfar einnig í
fyrsta sinn með LA en hann fer
með hlutverk Georgs von Trapps.
Hrönn Hafliðadóttir og Jóna Fann-
ey Svavarsdóttir em einnig nýir
kraftar hjá félaginu, Hrönn fer með
hlutverk abbadísarinnar og Jóna
Fanney leikur Lísu, elstu dóttur
von Trapps. Ungur Akureyringur,
Hjalti Valþórsson, þreytii’ frum-
raun sína á leiksviði í hlutverki
bréfberans Rolfs, kærasta Lísu.
Fjöldi bama tekur
þátt í sýningunni
í hlutverkum bamanna verða
þær Unnur Helga Möller og Inga
Bára Ragnarsdóttir sem skiptast á
um að leika Lovísu, Ingimar
Davíðsson leikur Friðrik, Hildur
Þóra Frankh'n og Helga Valborg
Steinarsdóttir leika og syngja
Birgittu til skiptis, Mörtu leika og
synga þær Helga Margrét Clarke
og Rakel Hinriksdóttir, Kurt leika
þeir Vilhjálmur B. Bragason og
Baldur Hjörleifsson til skiptis og
yngstu dótturina, Grétu, munu
Audrey Freyja Clarke og Erika
Mist Amarsdóttir leika til skiptis.
Rósa Kristín Baldursdóttir
söngkona verður í hlutverki Elsu
Schröder barónessu, keppinauts
Maríu um hylli von Trapps, Aðal-
steinn Bergdal leikur og syngur
Max Detweiler, Þráinn Karlsson
verður í hlutverki Frans, einka-
þjóns von Trapps, og Guðbjörg
Thoroddsen leikur frú Scmitt ráðs-
konu hans.
Þrjár söngkonur af Norðurlandi,
Hildur Tryggvadóttir, Sigrún Arn-
grímsdóttir og Þuríður Vilhjálms-
dóttir, verða í hlutverkum nunna og
aðalskvenna, en aðrir sem þátt taka
í sýningunni em Jónsteinn Aðal-
steinsson, Jón Júlíusson, Marinó
Þorsteinsson og Manfred Lemke.
Sýning Leikfélags Akureyrar á
Söngvaseiði er unnin í samvinnu
við Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands og munu 14 hljóðfæraleikar-
ar leika á sýningum undir stjórn
Guðmundar Ola Gunnarssonar.
Hákon Leifsson útsetti tónlistina,
Ingvar Bjömsson hannar lýsingu
og Messíana Tómasdóttir er höf-
undur leikmyndar og búninga.