Morgunblaðið - 06.03.1998, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 06.03.1998, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998 53 ► i i ...J ] j I I :) J I I 1 I ;i ] j i i i I FRÉTTIR Vinnum með eldri borg- urum - ekki fyrir þá í Kópavogi eru uppi ný viðhorf í öldrunar- málum. Sigurbjörg Björgvinsdóttir for- stöðumaður sagði Guðrúnu Guðlaugsdótt- ur frá þessum viðhorfum og félagsstarfí aldraðra í Kópavogi. „ÞROSKASKEIÐI ellinnar eru engin föst takmörk sett og gamall nýtur sín vel meðan hann gegnir skyldum sínum og virðir dauðann að vettugi. Af þessu leiðir að ellin reynist jafnvel djarfari en æskan.“ Þannig fórstu Marcúsi Túllíusi Cicerói orð fyrir margt löngu, en hann dó 45 fyrir Krist. Ekki verðui- annað séð en oi'ð hans eigi jafnvel við í dag. í Kópavogi verður nú senn haldin ráðstefna þar sem þessi orð eru nánast yfirskrift. Ráðstefnan nefnist „Hrafnaþing“ og hún er haldin til þess að vekja athygli á nýjum viðhorfum í öldr- unarmálum. Þær kenningar sem þarna verða settar fram eru byggðar á þeirri reynslu sem feng- ist hefur í starfi með öldruðu fólki í Kópavogi. Sigurbjörg Björgvins- dóttir hefur ásamt fleirum haft með höndum undirbúing fyiir þessa ráðstefnu, en hún er for- stöðumaður Gjábakka og Gull- smára, þar sem félags- og tóm- stundastarf aldraðs fólks í Kópa- vogi fer fram. Ætti að vera ein samfella „Líf okkar ætti að vera ein sam- fella, þar sem upphafið, meginkafl- inn og lokakaflinn væru í full- komnu jafnvægi. Það er viður- kennd staðreynd að þeir einstak- lingar sem slitna aldrei úr sam- bandi við æðaslátt samfélagins og taka þátt í skapa eigið umhverfi og örlög eldast betur og með meiri reisn en ella,“ sagði Sigurbjörg Björgvinsdóttir í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins. „Það vill enginn sitja aðgerðarlaus með hendur í skauti á hvíldarbekk í kvöldhúminu og bíða þess að ævisólin hnigi til viðar, svo hátíð- lega sé til orða tekið. Til þess að koma í veg fyrir slíka þróun teljum við, sem látum okkur varða velferð eldra fólks í Kópavogi, að til séu nokkur góð ráð. í fyrsta lagi teljum við rétt að vinna með eldra fólki en ekki fyrir það. í öði-u lagi þá förum við ekkert ,;með“ eldra fólkið, heldur með því. I þriðja lagi er markmið starfsem- innar að endurhæfa og viðhalda andlegu og líkamlegu atgervi. Að öllu þessu vinnum við mark- visst en kannski örlítið ómeðvitað af þeim sem í starfinu standa. Til dæmis þurfa eldri borgarar að sækja sér matinn sjálfir á matar- tíma, velja hvað þeir vilja borða og horfast í augu við valið. Með því er tvennt unnið, þeir hreyfa sig við að sækja matinn sinn, þeii' hugsa við að velja og taka ábyrgð á valinu. Markviss uppbygging Öll námskeiðin okkar eru mark- visst uppbyggð til að viðhalda ákveðnum þáttum líkama og/eða sálar. Ég get nefnt hér námskeið í leikfimi sem er byggt upp til að þjálfa vöðva og stoðkerfi líkamans. Myndlistin, perlusaumurinn, tauvinna og leirvinna eru dæmi um námskeið til að viðhalda styrk handa og stuðla að því að hugur og hönd vinni saman. Kóræfingar og framsagnamámskeið eru til að styi-kja öndun og talfæri. Það er mjög mikilvægt að fá nóg súrefni. Nefna má líka tungumálakennslu, gönguklúbba og jóga, sem allt mið- ar að markvissri uppbyggingu. Hugmyndafræðin gerir ráð fyrir því að það verði engin líffræðileg breyting á einstaklingi þegar hann verður sjötugur. Við höfum líka lagt metnað okkar í að vera með sem fjölbreytt og vandað efni þeg- ar við höfum verið ýmsar samkom- ur. Við höfum t.d. fengið til liðs við okkur leikara, sagnfræðinga, hjúkrunarfræðinga og nú síðast voru hjá okkur söngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir og Helga Þórarins- dóttir fiðluleikai-i. Hugmyndafræð- in gerir ekki ráð fyrir því að eldri borgarar séu einsleitur hópur þar sem öllum henti eitthvað sérstakt, heldur sé hér þverskurður af þjóð- félaginu sem hefur ólík markmið og ólíkar væntingar og mismun- andi hæfileika. Sigurbjörg Björgvinsdóttir í Kópavogi var grunnur að fé- lags- og tómstundastarfi aldraðra lagður fyrir all nokkrum árum. Til dæmis hefur frístundahópurinn Hana nú starfað í fimmtán ár. Það má segja að hægt hafi verið að fylgja eftir þeirri hugmyndafræði sem bæjaryfirvöld lögðu áherslu á fyrir tæplega fimm árum, þegar hið glæsilega félagsheimili Gjá- bakki var opnað. Með tilliti til þeirrar reynslu sem fengist hefur af starfinu í Gjábakka þótti rétt að nú væri kominn tími til að kynna þá hugmyndafræði sem unnið er eftir meðal þeirra sem starfa að öldrunarmálum á landsvísu. Því ákváðu bæjaryfirvöld að boða til ráðstefnu þann 7. mars í hinu nýja félagsheimili eldri borgara í Gull- smára 13. Að ráðstefnunni standa einnig Félag eldri borgara í Kópavogi og frístundahópurinn Hana nú. Þar á, eins og fyrr sagði, að kynna þessa hugmyndarfræði sem hér hefur lítillega verið sagt frá. Á ráðstefn- una eru allir velkomnir sem hafa áhuga á málefnum eldri borgara meðan húsnám leyfir. Opið hús í leikskólum í Bakkahverfí í LEIKSKÓLUNUM Arnar- borg, Bakkaborg og Fálka- borg, sem allir eru í Bakka- hverfi í Breiðholti, verður opið hús nk. laugardag 7. mars. Leikskólarnir verða opnir sem hér segir: Fálkaborg frá kl. 10-12, Amarborg frá kl. 11- 13 og Bakkaborg frá kl. 12- 14. Tilgangur með opnu húsi er að gefa fólki tækifæri á að skoða leikskólana og kynna sér starfsemina sem þar fer fram. Undanfarin ár hafa leikskól- arnir verið með opið hús sinn daginn hver en með því að sameinast um dag er verið að gera fólki auðveldara fyrir að fara á milli leikskóla og skoða hvað er í boði á hverjum stað, segir í fréttatilkynningu. Gjaldeyrisþjónusta allan sólarhringinn í Leifsstöð FYRIRTÆKIÐ The Change Jroup Iceland ehf., sem sérhæfir ág í gjaldeyrisþjónustu fyrir ferða- nenn, opnar nýtt útibú í Flugstöð ^eifs Eiríkssonar föstudaginn 6. nars nk. Gjaldeyrirsþjónustan verður opin illan sólarhringinn í komusal flug- itöðvarinnar og mun þessi þjónusta 'æntanlega nýtast bæði erlendum farþegum við komuna til landsins og Islendingum sem eru á leið til út- landa. Hægt verður að panta gjald- eyi-i sem afhendist við brottför. Útibúið er hið fjórða _sem The Change Group opnar á íslandi en fyrsta útibúið var opnað í Upplýs- ingamiðstöð ferðamála, Banka- stræti 2, í júní 1995. Framkvæmda- stjóri er María Guðmundsdóttir. AÐALFUNDUR 1998 Aðalfundur Vaka hf. verður haldinn í húsnæði félagsins að Ármúla 44 í Reykjavík, föstudaginn 13. mars 1998 og hefst kl. 16.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins. 2. Önnur mál löglega upp borin. Reikningar félagsins ásamt dagskrá fundarins og endanlegum tillögum, liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis, viku fyriraðalfund. Að loknum aðalfundi verða bornarfram léttar veitingar og starfsemi félagsins kynnt nánar. Vaki hf. ÁRMÚLI 44 - 108 REYKJAVÍK - (SLAND SImi: 568 0855 - Fax: 568 6930 - E-mail: vaki@vaki.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.