Morgunblaðið - 24.05.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1998 15
ÍÞRÓTTIR
Baggio og Bergomi aftur
í landsliðshóp ítala
Cesar Maldini, landsliðsþjálfari
ítala, valdi Roberto Baggio og
Giuseppe Bergomi í landsliðshóp-
inn fyrir HM sem hefst í Frakk-
landi 10. júní. Bergomi, sem er 34
ára, hefur ekki leikið með lands-
liðinu í sjö ár og Baggio ekki síðan í
september í fyrra. Það var hins
vegar ekki pláss í liðinu fyrir Gian-
franco Zola, sem leikur með Chel-
sea, eða Pierluigi Casiraghi hjá
Lazio.
Alessandro Del Piero, framherj-
inn snjalli hjá Juventus, meiddist í
úrslitaleik Evrópukeppninnar og
verður að hvíla sig næstu tíu daga.
Hann er í landsliðshópnum og ef
hann verður ekki orðinn góður 2.
júní mun Maldini velja annan í hans
stað.
McCoist
ekki með
Skotum
ALLY McCoist er ekki í skoska
landsliðshópnum sem Craig
Brown, landsliðsþjálfari, valdi.
Liðið spilar tvo vináttulandsleiki við
Kolombíu og Bandaríkin í lok
mánaðarins til undirbúnings fyrir
HM í Frakklandi. McCoist, sem er
35 ára, hefur átt fast sæti í lands-
liðinu undanfarin ár.
22 leikmenn eru í hópnum og er
hann þannig skipaður:
Markverðir: Jim Leighton (Aber-
deen), Andy Goram (Rangers) og
Neil Sullivan (Wimbledon).
Varnarmenn: Tom Boyd (Celtic),
Christian Dailly (Derby), Matt
Elliott (Leicester), Colin Hendry
(Blackbum), Tosh McKinlay (Celt-
ic), David Weir (Hearts), Derek
Whyte (Aberdeen), Colin Cald-
erwood (Tottenham).
MiðvallEirleikmenn: Graig Burley
(Celtic), John Collins (Mónakó),
Scot Gemmill (Nott. Forest), Paul
Lambert (Celtic), Billy McKinlay
(Blackburn) og Jackie McNamara
(Celtic).
Framherjar: Scott Booth (Dort-
mund), Simon Donnelly (Celtic),
Gordon Durie (Rangers), Darren
Jackson (Celitc) og Kevin Gallacher
(Blackbum).
Skotar em í riðli með Brasilíu, Nor-
egi og Marokkó á HM í Frakklandi.
Halldór
komst ekki
í 8-manna
úrslit á HM
í þolfimi
HALLDÓR B. Jóhannsson, ís-
landsmeistari í þolfími, varð í
8. sæti af 40 keppendum í
undankeppni HM sem fram
fór í borginni Catania á
Sikiley um sl. helgi. Sjö efstu
úr undankeppninni kepptu til
úrslita ásamt heimsmeistar-
anum, sem tók ekki þátt í
undankeppninni, og munaði
því aðeins liársbreidd að
Haildór kæmist í úrslit.
Jóhanna Rósa Ágústsdóttir
keppti f kvennaflokki og
hafnaði í 26. sæti af 42 þátt-
takendum í undankeppninni.
Ungverska sveitin sem
kom hingað til iands og sýndi
á íslandsmótinu í vor varð
heimsmeistari í liðakeppni.
„Það er yndisleg tilfmning að
vera kominn aftur í landsliðið,"
sagði Baggio sem varð þriðji
markahæsti leikmaður ítölsku
deildarinnar - gerði 22 mörk fyrir
Bologna. Bergomi er eini landsÚðs-
maðurinn sem enn er að og var í
heimsmeistaraliðinu frá 1982. „Ég á
Gigi Simoni, þjálfara Inter, það að
þakka að ég skuli vera enn í góðri
æfingu. Ég vona að leikreynsla mín
komi til með að nýtast okkur í
Frakklandi," sagði Bergomi.
ítalska liðið er þannig skipað:
Markverðir: Angelo Peruzzi
(Juventus), Gianluca Pagliuca (Int-
er Milano) og Gianluigi Buffon
(Parma).
Varnarmenn: Fabio Cannavaro
(Parma), Alessandro Costacurta
(AC Milan), Paolo Maldini (AC Mil-
an), Alessandro Nesta (Lazio),
Moreno Torricelli (Juventus),
Giuseppe Bergomi (Inter Milan) og
Gianluca Pessotto (Juventus).
Miðvallarleikmenn: Demetrio Al-
bertini (AC Milan), Dino Baggio
(Parma), Luigi Di Biagio (AS
Roma), Angelo Di Livio (Juventus),
Roberto Di Matteo (Chelsea),
Francesco Moriero (Inter Milan)
og Sandro Cois (Fiorentina)
Framherjar: Alessandro Del Piero
(Juventus), Christian Vieri (Atlet-
ico Madrid), Filippo Inzaghi
(Juventus), Fabrizio Ravanelli
(Olympique Marseille) og Roberto
Baggio (Bologna).
Pflukastarar til
Danmerkur
LANDSLIÐIÐ í pflukasti er á
förum til Danmerkur, þar sem
liðið mun taka þátt í Norður-
landamótinu sem hefst í Vejle
á Jótlandi 27. maí. Liðið er
skipað tíu pflukösturum, sem
hafa æft vel fyrir mótið. Anna
Kristín Bjarnadóttir og
Kristína Sigurðardóttir skipa
A-lið kvcnna, Jóna Holm og
Unnur Reynisdóttir B-Iiðið.
Jóhannes Haröarson, Þorgeir
Guðmundsson, Óli Sigurðsson
og Kristinn Þór Kristiusson
skipa A-lið karla, Hallgrfmur
Egiisson, Friðrik Diego, Krist-
inn Magnússon og Þröstur
Ingvarsson, B-liðið.
Hraðari en Pentium 11/300
Hraðari en Pentium II/Eitthvað
Hve hratt er hratt?
Óbreytt, er Power Macintosh G3/266 tvöfalt hraðvirkari en tölva sem notar 300 MHz Pentium II-örgjörva.
Það er ekki skoðun einhverra manna úti í bæ, heldur niðurstaða prófana sem tímaritið BYTE gerði;
BYTEmark benchmark program. Því er engin furða að Power Macintosh G3-tölvumar slái met í sögu Apple,
hvað söluhraða varðar.
Power Macintosh G3/266
mm
Compaq 5100/PII 300
9.01
4.26
Hraðari á öllum hraða
BYTEmark-próíúnin sannar að Power Macintosh G3/266 og Power Macintosh G3/233-tölvurnar vom næstum
tvisvar sinnum hraðvirkari en Compaq 4860/PII 333 og Compaq 5100/PII300, í hliðstæðum samanburði.
Og svo er PowerBook G3-fartölvan aðeins 80% hraðvirkari en nokkur önnur fartölva sem fæst.
„G3-tölvumargjörsigruðu300-MHzPentium II-tölvurnar á afgerandi
hátt í BYTEmark-prófununum... Þegar öllu er á botninn hvolft,
eru Power Macintosh G3-tölvurnar einnig sigurvegarar í verði. “
BYTE-tímaritið, Janúar 1998
Virtar prófanir
BYTE er virt og óháð tímarit í fremstu röð, sem sérhæfir sig í piófunum á mismunandi tölvuumhverfi, stýri-
kerfum, áhöldum o.fl. Tímaritið hefúr þróað BYTEmark-prófið* sérstaklega til að meta umhverfi tölvukerfa.
http://www.byte.com/bmark/bdoc.htm
Verð frá 189-900,- kr.stgr.
Apple-umboðið
Skipholti 21, 105 Reykjavik, sími: 511 5111
Netfang: sala@apple.is Veffang: http://www.apple.is