Morgunblaðið - 24.05.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
einbýlishús eða raðhús væri 70-100
þúsund krónur. Ef tekið er mið af
því að endumýja þurfi lagnir
jafnhliða verður kostnaðurinn mun
hærri.
Hinn kosturinn til að draga úr
slysahættu af völdum heita vatnsins
er miklu ódýrari; algeng hitastýrð
blöndunartæki kosta frá 10-30
þúsund krónum í byggingavöru-
verslunum. Einar Þorsteinsson segist
hiklaust mæla með því að hitastýrð
blöndunartæki séu sett við alla
baðstaði og telur að með góðu
viðhaldi sé það nægileg slysavöm.
„Samkvæmt þeim upplýsingum sem
við höfum verða slysin fyrst og
íremst við baðstaði og þar er því
brýnast að koma í veg fyrir að fólk
noti of heitt vatn,“ segir hann.
„Sjálfvirkum, hitastýrðum
blöndunartækjum fylgir hins vegar
sá galli að einstreymislokar í þeim
vilja gefa sig eftir 1-3 ár. Þess vegna
þurfa þau viðhald. Það er ekki dýrt
viðhald, en það þarf að fara fram
reglulega," segir Einar. „Bilaður
einstreymisloki heitavatnsmegin
getur leitt til þess að kalda vatnið
streymi yfir í heitavatnsrörin og þá
er vatnið súrefnisríkt og heitt og
getur komist í ofna og valdið
ofnatæringu. Því þarf að taka tækin
frá, hreinsa þau og skipta um loka á
nokkurra ára fresti.“
Einar segir að samkvæmt bygg-
ingareglugerð sé byggingaefn-
issölum skylt að láta skrásetja
hitastýrð blöndunartæki og eiga
vottorð útgefin af Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins, þar sem kveðið
er á um notkunarforsendur. „Ákvæði
reglugerðarinnar eru hins vegar
marklaus varðandi blöndunartæki
eins og mörg önnur byggingarefni,“
segu- Einar. „Aðstæður á íslandi eru
sérstakar hvað varðar efnin og
hitann í hitaveituvatninu og erlendar
prófanir miða aldrei við það.
Hitaveituvatnið okkar fer verr með
blöndunartæki en annað vatn, bæði
vegna efnanna, hitans og þrýst-
ingsins, sem er víða nokkuð hár.“
Vönduð hitastýrð blöndunartæki
hafa brunaöryggi svo ekki er hægt
að fá heitara vatn úr þeim en um 40-
50 gráður án þess að ýta sérstaklega
á öryggishnappinn. Til þess segir
Einar að þurfi kunnáttu sem börn
innan við fjögmra ára hafa ekki, en
böm á þeim aldri eru fórnarlömb
flestra brunaslysa.
Umræðan um slys í heitu vatni
hérlendis á sér að mati Einars
hliðstæðu í umræðum sem fram fóru
fyrir um það bil 10-20 árum um
brunaslys af völdum rafmagns.
„Rafmagnið var mikill slysavaldur
og það voru gerðar miklar ráðstaf-
anir til að draga úr þeirri slysahættu
með því að gera kröfur um
útsláttarrofa. Nú eru brunaslys af
völdum rafmagns tiltölulega sjald-
gæf en brunaslysum af völdum
vatnsins hefur farið fjölgandi," segir
Einar Þorsteinsson og telur að
næstu ár þurfi að gera svipað átak til
þess að bæta aðstæður á íslenskum
heimilum og koma í veg fyrir
brunaslys vegna heits vatns.
SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1998 25
EINANGRAÐ ÞAK- OG VEGGEININGAKERFI
og vegg samlokuei
FtREsafe
THERMALSfl/g
HYGIENES^
Ilpcb^
COLORCOAT HP200
&-vlA^iuffiCONFIDEX^
Kingspan
H ö n n ii n fyrir
n y j ii ö I d
ningar
Bygg
30-100 mm
Ki
an einangrun
grunargildi.
Stál eða ál yfirborðsklæðning
f Rannsóknarstofnun
Inaðarins
af Brunamálastofnun (Flokki 1)
jnd fermetrar uppsettir á íslandi
mkvæmt^N BS ISO 9002:1994
\
BUIIDJNG PRODUCTS
Kingspan Building Products Limited.
Greenfield Business Park No.2, Greenfield, Holywell,
Flintshire N. Wales CH8 7HU, UK.
Telephone: (01352) 716100. Fax: (01352) 712444
VERKVER
Smiðjuvegur 4b -200 Kópavogur I
Sími 567 6620 • Fax 567 6627
SIEMENS
gttMMMMN Bgj
(Berðu saman verð, gæði og þjónustu.)
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4
105 Reykjavík
Sími: 520 3000
www.tv.is/sminor
Við kiósum Siemens!