Morgunblaðið - 24.05.1998, Qupperneq 50
50 SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA í DAG
Sönnun anda
og kraftar
Sr. Heimir Steinsson
segir m.a.: Hugvekja
dagsins verður að
sinni hin síðasta á
þessum vettvangi úr
----------------7----
minni hendi. Eg
þakka fjölda lesenda
margháttuð vinsamleg
viðbrögð árið um
kring. Lifíð heil.
í FYRRA bréfi sínu til Korintu-
manna mælir Páll postuli á þessa
leið við söfnuðinn: „Orðræða mín
og predikun studdist ekki við
sannfærandi vísdómsorð, heldur
við sönnun anda og kraftar" (1.
Kor. 2.4). - Einni viku fyrir hvíta-
sunnu hæfir vel að vitna til
greindra orða. Fyrsta guðspjall
þessa Drottinsdags kveður mjög
við sama tón. - Jesús sagði: „Þeg-
ar hjálparinn kemur, sem ég
sendi yður frá föðurnum, sann-
leiksandinn, er út gengur frá föð-
umum, mun hann vitna um mig“
(Jóh. 15:26). Hyggjum nú að því í
ljósi þessara ummæla, hvemig
kristnir menn öðlast trú sína og
varðveita hana.
Kirlya Krists
Kristinn maður sagði eitt sinn:
„Ég tryði ekki guðspjöllunum, ef
vitnisburður kirkjunnar ekki
sannfærði mig“. - Ef vér viljum
réttiíega tala um vitnisburð
heilags anda, verðum vér að
byija á því að ígrunda vitnisburð
kristilegrar kirkju. Því að ef þú
trúir í sannleika því sem felst í
fagnaðarerindinu um Jesúm
Krist, hverju er þetta þá fremur
að þakka en því, að kirkjan
kallaði þig til trúar, tók þig sem
móðir í skaut sitt, meðan þú enn
varst bam að aldri, ól þig upp og
fræddi þig um hinn mikla leynd-
ardóm guðhræðslunnar?
Kirkjan fékk oss Heilaga ritn-
ingu í hendur, en ritningin hefur
að geyma Guðs sáluhjálplega orð
til vor. Kirkjan meðtók ritning-
una í árdaga frá guðspjallamönn-
um og postulum, og fyrir meðal-
göngu kirkjunnar er ritningin til
mín komin.
Kirkja Krists var stofnuð á
hvítasunnudag með þeim atburði,
að heilagur andi kom yfir læri-
sveinana. Kirkjan er þannig far-
vegur andans. Kristnir menn
tryðu ekki kirkjunni, tiyðu ekki
guðspjöllum ritningarinnar, ef
heilagur andi sannfærði þá ekki í
samvizkunni og í hjarta þeirra.
En þeir búa að „sönnun anda og
kraftar" og þess vegna trúa þeir.
Að allir séu
þeir eitt
Annað guðspjall þessa Drott-
insdags er að finna í 17. kapítula
Jóhannesar guðspjalls, versunum
20 til 26. Guðspjallið hefúr að
geyma fyrirbæn Jesú. Hann bið-
ur fyrir lærisveinum sínum og
segir meðal annars:
„Ég bið ekki einungis fyrir
þessum, heldur og fyrir þeim,
sem á mig trúa fyrir orð þeirra,
að allir séu þeir eitt, eins og þú,
faðir, ert í mér og ég í þér, svo
séu þeir einnig í okkur, til þess að
heimurinn trúi, að þú hefur sent
mig.“
Eitt af máttarverkum heilags
anda er að sameina kristna menn.
Um vora daga hefur andinn eflt
svonefnda „samkirkjulega hreyf-
ingu“ víða um veröldina. Fræði-
legar umræður eiga sér stað milli
kirkjudeilda, og sameiginlega
eiga kirkjurnar hlutdeild að
guðsþjónustum hver með annarri.
Fyrri alda átök þoka nú fyrir vin-
semd og bróðurþeli.
Samkirkjulega hreyfingin hefur
styrkt stöðu kristinna manna í
heiminum. I stað þess að ganga
sundruð til leiks fylkir heims-
kirkjan nú liði og geysist í vax-
andi mæli fram með einu
samþykki. Þannig hefur bæn Jesú
um einingu lærisveinanna verið
heyrð í ríkari mæli um vora daga
en áður var öldum saman. í þessu
tilliti skynjum vér því máttarverk
heilags anda í kirkjusögulegri
þróun samtíðar vorrar.
Kristin bæn í kærleika
Vér höfum í dag velt því fyrir
oss, hvemig kristnir menn öðlast
trú sína og varðveita hana. Návist
heilags anda er undirrót þess fer-
ils. Kirkjan flytur oss boðskap
trúarinnar, innblásin af andanum.
Eining kirkjunnar er máttugur
vitnisbm-ður um lifandi trú krist-
inna manna nú á dögum.
Síðari ritningarlestur þessa
Drottinsdags samkvæmt fyrstu
textaröð flytur oss frekari fróð-
leik um framangreind efni: „Verið
því gætnir og algáðir til bæna.
Umfram allt hafið brennandi kær-
leika hver til annars, því að kær-
leikur hylur fjölda synda. Verið
gestrisnir hver við annan án
möglunar. Þjónið hver öðrum með
þeirri náðargáfu, sem yður hefur
verið gefin.“ (1. Pét. 4:7-10).
Bænin er uppspretta trúar í
hugskoti einstaklingsins. Bænin
er farvegur Guðs heilaga anda inn
að hjartarótum vorum. Viljir þú
eignast trú og rækta hana með
þér, ráðlegg ég þér að leggja
stund á bænina í einrúmi og í
guðsþjónustunni í samfélagi
safnaðarins. Kirkjan býr yfir
margs háttar gjöfum þér til
handa. En engin þeirra kemur
þér að haldi, nema þú iðkir bæn-
ina og bjóðir Guði með þeim hætti
velkominn inn í einrúm sálar
þinnar.
Samfélag kristinna manna er
vettvangur kærleikans. Kærleik-
urinn grær við uppsprettulindir
bænarinnar. Þegar vel tekst til, er
söfnuðurinn heimahagi elskunnar.
I guðsþjónustu safnaðarins verð-
um vér eitt í Kristi.
Lokaorð
Nú er rétt ár liðið frá því ég hóf
að skrifa sunnudagshugvekjur
hér í Morgunblaðinu. Hugvekja
dagsins verður að sinni hin
síðasta á þessum vettvangi úr
minni hendi. Ég þakka fjölda les-
enda margháttuð vinsamleg
viðbrögð árið um kring. Það kom
mér strax í upphafi þægilega fyrir
sjónir, hve margir fylgdust með
skrifum þessum og létu í ljós
skoðanir sínar á því, sem hér fór
fram. Ritstjórum og starfsmönn-
um Morgunblaðsins þakka ég fyr-
ir samvinnuna og óska þeim góðs
á ókomnum tíma.
Að viku liðinni rennur upp
þriðja stórhátíð kirkjuársins,
hvítasunnan, hátíð heilags anda,
fæðingardagur kristinnar kirkju.
Vel fer á því, að við ljúkum sam-
skiptum í sama mund og þau
hófust fyrir ári, lesandi minn góð-
ur, á þeim miklu tímamótum i
sögu allra manna, er kirkja Krists
hóf feril sinn á jörðu. Ég árna þér
heilla á hvítasunnunni. Sömuleiðis
bið ég þér blessunar á sumri kom-
anda. Hvernig sem ástatt er fyrir
þér og þínum, fel ég þig almáttug-
um Guði á vald, honum sem held-
ur öllum hlutum í hendi sér. Lifðu
heil(l).
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Lögregluaðgerð
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi:
„Ég var stödd á bílnum
mínum, Toyotu ‘97, við
Austurberg 6, 8. apríl kl.
20 um kvöldið. Búið var að
loka öllu alls staðar. Þar
sem ég er kemur lögreglu-
maður inn og spyr hver
eigi þennan bíl og biður
um skráningarvottorð.
Hann segir að annar bíll á
stæðinu sé með sama nú-
mer og minn bíll. Ég taldi
það ekki mitt mál þar sem
ég var á nýjum bíl og hafði
ekki kíkt í skráningarskír-
teinið síðan bíllinn var
keyptur. Lögregluþjónn-
inn var einn á ferð og vildi
hann taka númerin af bíln-
um og gerði það en ég stóð
eftir sem strandaglópur
því ég bý í Grindavík. í
vandræðum mínum
hringdi ég í Toyota-um-
boðið og talaði þar við
indælan mann, Boga að
nafni. Brá hann skjótt við
og kom með annan bíl
handa mér svo ég kæmist
heim, og tók hinn bflinn
niður í umboð svo hægt
væri að skipta um númer
daginn eftir. Mistökin voru
hjá bifreiðaeftirlitinu en
enginn hafði tekið eftir því.
Ég vil senda þakklæti mitt
til Boga hjá Toyota-um-
boðinu fyrir frábæra og
lipra þjónustu og spyr
jafnframt hvort lögreglu-
maður sem er einn á ferð
megi framkvæma svona
aðgerð, þurfa ekki tveir
lögregluþjónar að vera
saman í svona aðgerðum?
Kristín.
Af hverju Blönduós?
ÉG hef ekkert á móti
flóttamönnum sem koma
hingað til landsins, en af
hverju var Blönduós valinn
fyrir flóttamennina sem
koma frá Jógóslavíu? Það
voru um 40 manns á at-
vinnuleysisskrá fyrir
Þekkir
einhver
mennina?
ÞEKKIR einhver
mennina á þessari
mynd? Hún er tek-
in af H(allgrími)
Einarssyni á Ak-
ureyri. Að öllum
líkindum öðru
hvoru megin við
síðustu aldamót.
Vinsamlegast
hafið samband við:
Svein Jónasson í
síma 551-4139, á
kvöldin.
stuttu og er mikið atvinnu-
leysi á Norðurlandi vestra.
Fróðlegt væri að vita hvað
á að bjóða flóttamönnun-
um upp á í atvinnumálum.
Margír staðir á landinu
bjóða upp á meiri atvinn-
umöguleika. Fjölmiðlar
mættu athuga þetta mál
betur.
Norðlendingur.
Raunveruleg
skinka óskast
BRESKUM ferðamönnum
sem dvöldu hjá mér sl.
sumar fannst íslenska
skinkan sem ég bar á
morgunverðarborðið bæði
torkennfleg og bragðlaus.
Þeir sögðust vanir skinku
sem líktist þunnum kjöt-
sneiðum og raunverulegt
kjötbragð væri af. En það
sem ég bar á borð fannst
þeim líkjast soðnu,
pressuðu mauki sem gæti í
raun verið hvað sem er.
Þegar þeir fóru með mér
út að kaupa i matinn rák-
ust þeir á það sem kallast
raftaskinka, en verðið var
2-3 sinnum hærra en það
sem kallast brauðskinka.
Ekki þarf að taka fram að
útlendingunum blöskraði
verðið. Eftir þetta vaknaði
hjá mér spuming sem fróð-
legt væri að fá svör við frá
þeim sem til þekkja: Hvað
er það í raun og veru sem
við erum að kaupa undir
heitinu „skinka“? I sumum
stórmörkuðum er til ódýr-
ari skinka en hjá kaup-
manninum á hominu, en
hún er eins og vatnsblönd-
uð og eftir því allt að þvi
bragðlaus. Getur einhver
upplýst einfaldan neytanda
hvað það er í raun sem við
erum að kaupa undir heit-
inu „skinka"? Geta t.d.
Neytendasamtökin upplýst
umþað?
Neytandi.
Merki ITC-
samtakanna
HILMAR safnari, sem
vantaði merki frá ITC-
samtökunum, getur haft
samband við Sigurbjörgu í
síma 554 3774.
Ánægð með
forsetafrúna
ÁSTA hafði samband við
Velvakanda og vfldi hún
lýsa yfir ánægju sinni með
forsetafrúna. Segir hún
það yndislegt hversu vel
hún hafi náð sér eftir veik-
indin og hversu fallega hún
klæði sig. Það beri enginn
skautbúninginn eins vel og
hún, hún sé stolt okkar
allra.
Ásta.
Sammála
„Unglingi“
ÉG vil taka undir það sem
„Unglingur“ skrifaði í Vel-
vakanda þriðjudaginn 19.
maí og er ég innilega sam-
mála honum. Vil ég að
unglingar fái góða umfjöll-
un hjá fjölmiðlun sem öðr-
um.
Þriðji unglingurinn.
VELVAKANDA
barst eftirfarandi:
„Varðandi skrif ,Áhuga-
manneskju um bútasaum“
í Velvakanda 20. mai sl. vil
ég taka fram að gífurleg
ánægja var með sýninguna
sem verslunin Virka hélt á
bútasaumsteppum 20
kvenna. Vitað er að fólk
kom allt að 3 sinnum til að
sjá sýninguna. Það er auð-
lesið að .Áhugamanneskja
um bútasaum" hefúr ekki
mikið vit á bútasaumi.
F.h. Virku,
Helgi Axelsson.
Dýrahald
Kettling vantar
heimili
9 VIKNA kettlingur,
svaitur og brúnn, kassa-
vanur, óskar eftir góðu
heimili. Upplýsingar í síma
5873228.
Kettlingar
fást gefins
KETTLINGAR, kassa-
vanir, fást gefins. Upplýs-
ingar í síma 568 7367.
Kettlingar
fást gefins
Kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma
586 1485.
Víkverji skrifar...
SÍÐASTA vika maímánaðar, sem
í hönd fer, geymir ýmsa sögu-
lega viðburði. Sauðárkrókur, sem
nú hefur gengið í eina sæng með
öðrum sveitarfélögum í fögrum
Skagafirði (utan einu), fékk kaup-
staðarréttindi 24. maí árið 1947.
Sjálfstæðisflokkurinn, sem margir
telja burðarásinn og kjölfestuna í
íslenzkum stjórnmálum, var
stofnaður 25. maí árið 1929 með
samruna íhaldsflokksins og Frjáls-
lynda flokksins. H-dagurinn, þegar
þjóðin tók upp hægri akstur en
lagði af vinstri akstur, bar upp á 26.
maí árið 1968, er því tvítugur í vik-
unni.
Fyrsti biskup kristinna manna á
Islandi, Isleifur Gissurarson (hins
hvíta), var vígður 26. maí árið 1056,
og sat sem slíkur til ársins 1080.
Þetta _er því stór dagur í kristn-
isögu íslendinga. - Orðið biskup er
reyndar komið úr grísku og og
merkir umsjónarmaður, hirðir.
Þessir maídagar geyma og hin
dapurlegu tíðindin. Hinn 29. maí
árið 1947 flaug farþegaflugvél á
Hestfjall í Héðinsfirði rneð hörmu-
legum afleiðingum. Eggert Ólafs-
son drukknaði 30. maí árið 1786.
BLIKKBELJAN, svonefnd af
mörgum, það er heimilisbíllinn
okkar, minn og þinn, gegnir býsna
stóru hlutverki sem samgöngutæki í
víðfeðmu og strjálbýlu landi okkar.
Samt sem áður þykir ýmsum við
hæfi að gera lítið úr fyrirbærinu. Og
stöku sérvitringur sér hinn illa með
hom og hala í ökutækjum lands-
manna.
Bílar menga, segja menn, rétti-
lega, og setja upp aðfinnslu- og
spekingssvip. Sama gildir um
fjölmargt, máski flest, í heimi
nútímamannsins, ekki sízt fiski-
skipaflotann og fiskibræðslumar,
svo stór, séríslenzk fyrirbæri séu
nefnd. Gott ef að mannldndin meng-
ar ekki ein og sér, sem og fleiri teg-
undir lífrfkisins, umhverfi sitt.
Nú er gott og blessað að berjast
gegn mengun. Og blikkbeljur fram-
tíðarinnar nýta efalítið rafmagn
og/eða lítt mengandi vetni. En mikil
væri sú framför ef hver og einn
mengunarmalandi einstaklingur
gerði hreint fyrir eigin durum, á lóð-
um og lendum, bæði fólk og fyrir-
tæki; talaði í verkum - en sparaði
orðin.
xxx
SKRIFANDI um blikkbeljur þá
borga þær, eða eigendumir,
drjúgt í landssjóðinn. Víkverji las
stuttan pistil eftir Jónas Þór Stein-
grímsson, framkvæmdastjóra Bíl-
greinasambandsins. Þar segir að
ríkið fái hvorki meira né minna en
rúmar 25 milljarða króna á ári úr
buddum bfleigenda, umfram þá
skatta sem þeir og bfllausir borga
með öðram hætti.
Þessir 25 milljarðar króna, sem
blikkbeljur mjólka í ríkissjóðinn,
sundurliðast þannig: 1) Virðisauka-
skattur og vöragjöld 8 milljarðar
króna, 2) Skattar í verði benzíns 10
milljarðar króna og 3) bifreiðagjöld
2 milljarðar króna. Nú er spáð 20%
aukningu í innflutningi nýrra bfla
og sú viðbót ein og sér, sem í kjölf-
ar fylgir, gefur ríkissjóði einn millj-
arð tfl viðbótar í vöragjöldum og
virðisaukaskatti, sem vonandi verð-
ur nýtt í eitthvað gagnlegt en ekki í
braðl.
Veltan í kringum bílatryggingar,
bflaviðgerðir og bílatengda þjón-
ustu margs konar skilar einnig
drjúgum peningi í rfldssjóðinn og
sveitarsjóði.
ÞAÐ SEGÐI vissulega til sín ef
hin mjólkandi blikkbelja i lands-
sjóðinn væri skorin niður við trog
sérvizkunnar. Annað mál er að tekj-
ur hins opinbera, sem koma beint
frá bifreiðaeigendum og umferðinni,
mætti nýta betur í þágu öryggis í
umferðinni; í betri vegi og fyrir-
byggjandi aðgerðir, kennslu og
merkingar. Ennfremur til þess að
tengja betur saman landshluta og
atvinnusvæði. I því sambandi má
nefna göng mflli Siglufjarðar (um
Héðinsfjörð) og Ólafsfjarðar, sem
era forsenda sameiningar sveit-
arfélaga við utanverðan Eyjafjörð -
og í Eyjafirði öllum.