Morgunblaðið - 24.05.1998, Síða 55

Morgunblaðið - 24.05.1998, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1998 5 5^ FÓLK í FRÉTTUM SUNNUDAGSMYNDIR SJÓNVARPSSTÖÐVANNA Stöð 2^12.25 Kærastínn er kominn - My Boyfriend’s Back, (‘93). Sjónvarpsmynd eftir leikarann Bob Balaban, sem sjá má þessa dagana á hvíta tjaldinu í nýjustu mynd Woody Allens, Deconstructing Harry, í Laugarásbíó. Maltin segir hana gamansama mynd með tónlistarívafi, yfir meðallagi. Stöð 2 ► 14.15 Spike Lee er um þessar mundir athyglisverðastur Iþeldökkra leikstjóra, bandarískra. Crooklyn, (‘94), fjallar um tónlistar- mann sem berst í bökkum með sína stóru fjölskyldu á áttunda áratugn- um. 2. Er forvitnileg þjóð- félagsádeila, vel leikin og gerð en ekki með bestu myndum skáldsins. Stöð 2^16.30 Hún lítur út fyrir að vera forvitnileg, sjónvarpsmyndin Rudy, (‘93), sem segir af unglings- ) pilti (Sean Astin), ekki miklum fyrir | mann að sjá, sem ætlar sér í ruðn- Iingslið í háskóla. Leikstjóri er David Anspaugh, sá hinn sami og gerði Hoosiers, ágæta íþróttamynd um körfubolta með Dennis Hopper. Ágætir leikarar koma einnig við sögu hér; Ned Beatty, Robert Prosky og Charles S. Dutton. Ebert karlinn hefur komist í sólskinsskap og gefur hvorki meira né minna en ★ ★★‘/2, og segir myndina heiðar- lega og ekki klisjukennda - þrátt fyrii- allt. Sýn ► 21.00 Franska sambandið - The French Connection, (‘75). Sjá umfjöllun annars staðar á síðunni. Stöð 2 21.00 Emma, (‘96), ★★★, er enn ein kvikmyndagerð sögu eftir bresku skáldkonuna Jane Austen. Þessi bók var einnig kvikmynduð fyrir skömmu í nútímabúningi undh' nafninu Clueless. Hér er sögu- þræðinum fylgt óbreyttum, um- hverfið veröld aðalsmanna á Bret- landseyjum á öndverðri síðustu öld. Gwyneth Paltrow fer vel með titil- hlutverk aðalsmeyjar sem gleymir eigin tilfinningalífi í í linnulausri hjónabandsráðgjöf. Með Gretu Scacchi og Toni Collette (Muricl’s Wedding). Sjónvarpið ► 22.40 Fnimsýning á sérlega foi’vitnilegri pólskri sjón- varpsmynd, Töfrar tala - Urok wszeteczny, (‘96). Fjallar um ungan hugsjónamann sem drýgh' lág laun fjölskyldunnar með því að taka að sér aukavinnu. Gerist íhlaupamaður hjá efnuðum eldri manni sem reynist hommi, og hugsjónirnar týna töl- unni. Leikstjórn í öruggum höndum Zanussis. Sýn ► 22.40 Eins og nafnið bendir til er Franska sambandið 2 - The French Connection 2, (‘75), framhald klassíkurinnar sem sýnd er fyrr um kvöldið. Hún stenst ekki samanburð við forverann en er engu að síður besta skemmtun og ein síðasta myndin sem hinn gamalkunni leik- stjóri, John Frankenheimer, lauk með sóma. Gene Hackman fer sem fyrr með hlutverk New York-lögg- unnar „Popeye“ Doyle, sem nú er komin til Marseilles til að hafa upp á höfuðpaur glæpagengisins sem myndin dregur nafn sitt af. Hann er leikinn sem fyrr af Femando Rey og hægri hönd hans af Bernard Fresson. Popeye lendh' í vondum málum, er handsamaður af óvinum sínum, íylltur af dópi en brýst úr haldi og undan eitrinu. Lokakaflinn, þar sem hann eltist við fjendur sína á tveimur jafnfljótum um hafnar- hverfi Marseille, er frumlegur og vel gerður. ★★14 Stöð 2 ► 23.25 Gamanmyndin Mistækir mannræningjar - Ruthless People, (‘86), fær ★★★ í Mynd- bandahandbók okkar Arnaldar frá ‘91. Þar segjum við m.a.: „Danny De Vito leikur eiginmann Bette Midler, sem hann vill feiga. Telur sig lukk- unnai- pamfíl er hún lendir í klóm mislukkaðra mannræningja, sem eru á hinn bóginn ekki jafn lánsamir. Yf- irgengileg, en uppákomumar litríkar og fyndnar. ★★★“. Sæbjörn Valdimarsson Löggan sem kennd var við Stjána bláa Sýn 21.00 Franska sambandið - The French Connection, (‘71) ★ ★★★, er ein af bestu löggu- og-bófamyndum allra tíma. Byggð á sönnum atburðum í lífi löggunnar „Popeye“ Doyle (Gene Hackman), sem var fræg- ur harðnagli í liði leynilöggna New York-borgar. Hann komst ásamt félaga sínum (Roy Scheider) á snoðir um stórfellt eiturlyfjasmygl frá Marseilles til New York en missti höfuðpaur- inn (Fernando Rey) útúr hönd- unum á sér. Harðsoðinn löggu- félagareyfari, hlaðinn spennu frá upphafi til enda með hrikaleg- asta bílaeltingaleik kvikmynda- sögunnar. Það atriði og myndin sjálf hefur verið fyrirmynd ótal lakari mynda. Hackman er ynd- islega grófur og ruddafenginn í hlutverki Popeye og uppskar Óskarsverðlaunin fyrir, og myndin hlaut ein fern önnur. M.a. sem besta mynd ársins og leikstjórinn og handritshöfund- urinn, William Friedkin og Ernest Tidyman, riðu heldur ekki tómhentir frá garði. Ef þú hefur góðan smekk, þá missir þú ekki af þessu.......... í dag er síðasti dagur glæsislegrar sýningar á gleraugnaumgjörðum frá l.a.fzyeworks Úrvalið er stórkostlegt og litirnir glæsilegir. Komdu og sjáðu Verslunin er opin frá kl. 13:00-17:00, léttar veitingar - SJAÐU - Laugaveg 40, sími 561 0075 * www.mbl.is BACK ROW OG CONTEMPORARYGROUP STANDA FYRIR II KVOLDSTUND MEÐ JERRY SEINFELD s / I HASKOLABIO Nú býðst einstakt tækifæri til að sjá og heyra hinn kunna skemmtikraft og sjónvarpsstjörnu Jerry Seinfeld á sviði. 8. og 9. júlí, kl. 20.00 og 22.00 Mario Joyner, sem er vel kunnur skemmtikraftur í Bandaríkjunum er í för með Seinfeld og kemur hann einnig fram. Miðasala í Háskólabíó frá 25. maí eftir kl.16.30 MISSIÐ EKKIAF EINSTOKU TÆKIFÆRI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.