Morgunblaðið - 30.05.1998, Page 2
2 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Davíð Oddsson forsætisráðherra um málefni Lindar hf.
Skynsamlegt að vísa
málinu til saksóknara
Þorkell
EVGENÍA Ignatíeva, dúx Verzlunarskólans, ásamt stoltum foreldrum
og systur. F.v. Nikolai Ignatíev, faðir Evgeníu, Lilia Ignatíeva, móðir
hennar, Evgenía og Olga, systir hennar.
Rússnesk stúlka dúx
í Verzlunarskólanum
DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra
telur þá ákvörðun bankaráðs
Landsbanka íslands að vísa málefn-
um Lindar hf. til saksóknara skyn-
samlega. „Hefði ég séð þessa
skýrslu á þeim tíma, og hefði mátt
ráða, hefði ég tekið slíka ákvörðun,"
sagði Davíð í viðtali við Stöð 2 í
gærkvöldi.
Hann sagðist ekki telja að staða
Finns Ingólfssonar viðskiptaráð-
herra hefði breyst undanfarna
daga, enda hefðu ekki komið fram
nýjar upplýsingar varðandi hlut-
deild hans í málefnum Lindar hf.
Davíð sagðist undrast það að
Sverrir Hermannsson, fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans, skyldi
segja frá innihaldi einkabréfs Dav-
íðs til hans í grein í Morgunblaðinu I
Morgunblaðið/Golli
Guðbjörg Hermannsdóttir.
Stúlkur
frá Akur-
eyri í efstu
sætum
GUÐBJÖRG Hermannsdóttir,
19 ára Akureyrarstúlka, var
kjörin fegurðardrottning Is-
lands á Broadway í gærkvöldi.
í öðru sæti varð Áshildur Hlín
Valtýsdóttir og var hún jafn-
framt kjörin vinsælust af kepp-
endum. Stúlkumar tvær sem
urðu í efstu sætunum eru báð-
ar 19 ára gamlar frá Akureyri
og nemendur í Verkmennta-
skólanum þar.
I þriðja sæti varð Ungfrú
Reykjavík, Lilja Karitas Lár-
usdóttir, 19 ára nemandi í
Verzlunarskóla íslands.
Ljósmyndafyrirsæta keppn-
innar var valin Eirún Steins-
son, 19 ára Reykvíkingur, nem-
andi í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti.
gær og með því væri Sverrir að
leggjast lágt, eins og hann komst að
orði.
í bréfinu kemur fram að Davíð
hafði upplýsingar um það, í febrúar
1996, að tap Landsbankans vegna
Lindar hf. væri áætlað 900 milljón-
ir. „Ég vissi það auðvitað eins og
allir aðrir, og það miklu fyrr, að tap
af Lind var gríðarlega mikið,“ sagði
Davíð. Upplýsingar sínar á þeim
tíma um það hversu mikið tapið
yrði, sagðist forsætisráðherra hafa
haft eftir heimildarmanni „sem gat
giskað á hvar þetta gæti endað.“
Davíð benti á að meginatriði þess
máls sem nú væri rætt væri ekki
það að tap hefði orðið, enda hefði
öllum verið það ljóst, heldur hvort
refsiverð háttsemi hefði verið fram-
in í tengslum við það tap.
Davíð staðfesti það sem fram hef-
ur komið í máli Sverris Hermanns-
sonar, að hann hefði ráðið Sverri að
segja af sér bankastjórastöðunni í
Landsbanka íslands. „Það höfðu
tveir bankastjórar sagt af sér, og
hverjum datt í hug, eins og málið
var vaxið, að Sverrir Hermannsson
hefði einn setið áfram sem banka-
stjóri."
Eins og sagt hefur verið frá í fjöl-
miðlum hefur Sverrir sagt sig úr
Sjálfstæðisflokknum en Davíð sagð-
ist vonast til að sú ákvörðun væri
tímabundin og að hann gengi aftur
til liðs við flokkinn.
Á Stöð 2 kom fram að Sverrir
hefði ekki útilokað framboð og hann
hefur lýst harðri andstöðu við nú-
verandi fiskveiðistjómunarkerfi.
Davíð var í viðtalinu spurður hvort
hann teidi sig hafa eignast pólitísk-
an andstæðing í Sverri. Davíð sagð-
ist ekki vita hvort svo væri, en benti
á að kvótakerfinu hefði verið komið
á af ríkisstjóminni sem sat
1983-1987. „Ég sat ekki í þeirri
ríkisstjórn sem kom því kerfi á, en
STAÐFESTING Hæstaréttar frá í
fýrradag á þeim úrskurði héraðs-
dóms að ákvörðun Lífeyrissjóðs sjó-
manna frá 1994 um að skerða lífeyri
þeirra sem hófu töku hans yngri en
65 ára hafi verið ólögmæt mun að
öllum líkindum hafa í för með sér á
annað hundrað milljóna króna út-
gjöld fýrir Lífeyrissjóð sjómanna,
að sögn framkvæmdastjóra sjóðs-
ins, Árna Guðmundssonar.
Árni segir niðurstöðuna hafa mik-
il áhrif á sjóðinn, því jafnvel þó að
málið sem úrskurðað var í nú hafi
verið mál eins einstaklings, hafi um
ég veit hins vegar um einn ráðherra
sem sat í þeirri ríkisstjórn. Hann
býr vestur á Einimel."
Dagur og ríkisfjölmiðill kosn-
ingasneplar R-Iistans
í viðtalinu var fjallað um gagn-
rýni forsætisráðherra á fréttaflutn-
ing Ríkisútvarpsins af nýafstöðnum
borgar- og sveitarstjórnarkosning-
um og viðbrögð starfsmanna Ríkis-
útvarpsins við henni. „Ég hef gam-
an af því að menn sem eru í hlut-
verki gagnrýnandans alla daga virð-
ast ekki þola að minnst sé á störf
þeirra," sagði Davíð meðal annars.
„Það væri nú þokkalegt fyrir frétta-
menn ef við stjórnmálamenn vær-
um svona innréttaðir, það mætti
ekki orðinu halla, það mætti ekki að
okkur finna.“
Davíð benti á að þjóðin öll hefði
fylgst með fréttaflutningi Ríkisút-
varpsins af kosningunum og því
væri varla þörf á að hann rökstyddi
gagnrýni sína frekar. Hann nefndi
þó að hann hefði fengið upplýsingar,
meðal annars frá ráðherrum, um
það með hvaða hætti fréttir hefðu
verið meðhöndlaðar hjá Sjónvarp-
inu, og að þær lýsingar væru ófagr-
ar.
Davíð sagðist telja að fréttamenn
á Sjónvarpinu, sem þekktu til máls-
ins, væru margir hverjir mjög
ósáttir við það hvernig „þessi vakt-
stjóri síðasta hálfan mánuð fyrir
kosningarnar", eins og Davið sagði
orðrétt, hafi staðið að málum. „Við
getum ekkert sagt varðandi Dag,
sem var bara kosningasnepill R-
listans, en það er ekki hægt að
breyta fyrirtæki í kosningasnepil
R-listans, sem rekið er af almanna-
fé, en það var gert,“ sagði forsætis-
ráðherra ennfremur í viðtalinu á
Stöð 2.
Morgunblaðinu tókst ekki að ná
tali af forsætisráðherra í gærkvöldi.
180 sjóðfélagar verið í sömu eða
svipuðum sporum og sá sem leitaði
réttar síns og sjóðurinn hljóti að
leiðrétta þeirra mál líka.
„Reyndar voru skerðingarnar
mismiklar eftir því hve gamlir menn
voru en á sínum tíma slógum við á
að þetta væru á annað hundrað
milljónir króna. Það sem breyttist í
Hæstarétti nú var að ríkið var sýkn-
að en það var talið meðábyrgt í und-
irrétti. Þannig að nú fáum við allan
skellinn en ríkið sleppur, sem í raun
ber ábyrgð á málinu frá upphafi,
með lagasetningunni frá 1981 þegar
ÁRANGUR Evgeníu Ignatíevu
sem er dúx Verzlunarskóla fs-
lands þykir einstakur. Hún
fluttist hingað til lands ásamt
foreldrum sínum og systur fyrir
sex árum. Þá talaði hún ekki
stakt orð í íslensku. Meðal verð-
launa sem hún hlaut nú voru
verðlaun fyrir framúrskarandi
árangur í íslensku en stúdents-
einkunnir hennar í íslensku
voru 10 og 9,5.
Evgenía fékk 9,64 í aðalein-
kunn. Hún hlaut auk verðlauna
fyrir hæstu aðaleinkunn verð-
laun fyrir bestan árangur í við-
skiptagreinum, fyrir frábæran
árangur í ensku, hæstu meðal-
einkunn í erlendum tungumál-
um í hagfræðideild, fyrir ein-
stæðan árangur í sögu og í ís-
lensku.
Að sögn Evgeníu þótti henni
frekar erfitt að flytjast hingað
á sinum tíma án þess að kunna
málið. „Ég gat ekki tjáð mig
eins og Islendingar, gat ekki
sextíu ára reglan var sett,“ segir
Gísli.
Aðspurður um hvenær þeir sjóð-
félagar sem málið snertir geti átt
von á leiðréttingum segir hann nið-
urstöðuna svo nýtilkomna að enn
hafi engar ákvarðanir verið teknar
um tímasetningar. „En þetta er
eitthvað sem þarf að ganga í sem
íýrst. Stjóm sjóðsins á eftir að hitt-
ast og ræða þessa niðurstöðu og
taka endanlegar ákvarðanir en það
hefur legið ljóst fyrir að þessi dóm-
ur myndi hafa áhrif á þennan hóp,“
segir Ami.
sagt það sem mér bjó í bijósti
og get það jafnvel ekki enn
þrátt fyrir að ég tali íslensku
eins og Islendingur. Mér þykir
líka enn auðveldara að mynda
tengsl við Rússa.“
Það fylgja því blendnar til-
finningar að ljúka Verzlunar-
skólanum, segir Evgenía. „Mér
finnst svo skemmtilegt að fást
við margar námsgreinar en nú
er komið að því að ég þarf að
sérhæfa mig.“ Stefnan er sett
á nám í viðskiptagreinum í
Harvard háskóla í Bandaríkj-
unum haustið 1999. í sumar
verður hún í Rússlandi hjá ætt-
ingjum sinum í Togliatti í
Rússlandi.
Foreldrar Evgeníu og systir
komu til íslands til að vera við
útskriftina en þau eru öll flutt
til Rússlands. Evgenía er ekki
að flytja frá íslandi fyrir fullt
og allt á næstunni og það gæti
jafnvel farið svo að hún dveldi
hér næsta vetur.
Eldsvoði
við
Fiskislóð
ELDSVOÐI varð í fiskvinnslu-
húsi fyrirtækjanna Sæborgai’
og Silfurborgar við Fiskislóð í
Reykjavík seint í gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliðinu í Reykjavík kom
eldurinn upp í öskutunnum sem
stóðu við húsvegg, gluggi
brotnaði vegna hitans og eldur-
inn barst inn um hann.
Vegfarandi tilkynnti um
brunann úr farsíma skömmu
fyrir klukkan ellefu og var
slökkviliðið komið á staðinn
fjórum mínútum síðar. Um hálf-
tíma tók að slökkva eldinn og
skemmdir urðu minni en á
horfðist.
Staðfesting á skaðabotaskyldu Lífeyrissjóðs sjómanna
Kostar sjóðinn á annað
hundrað milljónir króna
A® steun
Þórey Edda gaf sjálfum sér
góða stúdentsgjöf/Bl
Kvennalandsliðið í knattspyrnu
flækt í verkfallsaðgerðir/B4
Boltinn
á Netinu
SoJíÍ/JíJ
J ■■
www.mbl.is