Morgunblaðið - 30.05.1998, Side 12

Morgunblaðið - 30.05.1998, Side 12
12 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Árangur sameinaðra framboða borinn saman við árangur 1994 Garðabær 1998 1994 |A 11,6% Grindavík 19981 1994 J 40,7% A 25,0% Akureyri 1998 F 22,6% 1994 |A 11,7% Akranes Austur-Hérað 1998 1994Ly 1998 1994 |A 12,1% á Egilsstöðum 1994 Borgarbyggð 1998 L 40,1% 1994 | A 17,8% Dalvík S 24,4% 1998 | 19941 i 24,9% ~~| Austur- 1998 H 30,7% Skaftafellss. 19941 l 29,2% j á Höfn í Hornafirði 1994 Arborg 1998 1994v 1,9% I á Selfossi 1994 Sandgerði K 52,0% 1998 L 1994 [ K 48,6% Firðir (Austum'ki) 1998 F 52,7% 1994 Nesk.st.:G 57,4% Eskifj.:A 18,6%, G 15,5% Reyðarfj.:G 30,5% Ölfus 1998 Þ 28,5% 1994 | í 12,5% Vopnafjörður 1998 1994 jH G 25,5% S 33,0% Stykkis- 19981_________________ hólmur 19941 H l Snæfellsbær 1998 S 26,4% 19941 A 21,6% Skagafjörður 19981 S 19,4% 1994 |a 10,9% f§ áSauðárkróki 1994 Siglufjörður 1998 1994 Seyðisfjörður 1998 1994 Reykjanes- 1998 bær 1994 Mosfellsbær 1998 Kópavogur ísafjarðarbær Húsavík 1994 |A 9.1% 1998 1994 | A 16,0% 1998 1994 [ A 18,3% 1998 1994| A 14,3% Bolungarvík 1998 R 46,6% 1994 |A 11,7% j Vestmanna- 1998 eyjar 1994 V 41,1% Seltjarnarnes Reykjavík Ólafsfjörður Vesturbyggð 1998 S 39,2% 19941 A 18,3% Félagshyggjufram- boð og niðurstöður kosninga 1994 Á MEÐFYLGJANDI töflu eru teknar saman kjörtölur sam- eiginlegra félagshyggjufram- boða í sveitarfélögum landsins og þær bornar saman við at- kvæðatölur flokkanna sem að framboðunum standa í kosn- ingunum 1994. I sumum sveitarfélaganna er ekki um fyllilega sambærilegar tölur að ræða vegna samein- ingar sveitarfélaga frá kosn- ingunum 1994. Til samanburðar við at- kvæðatölur framboðsins í Aust- ur-Héraði eru atkvæðatölur á Egilsstöðum 1994. Til saman- burðar við A-Skaftafellssýslu eru atkvæðatölur frá Höfn í Hornafirði 1994, tölur úr Nes- kaupstað, Eskifirði og Reyðar- fírði eru bornar saman við gengi félagshyggjuframboðs- ins í sameinuðu sveitarfélagi á fjörðunum. Á sama hátt er Ár- borg borin saman við Selfoss og Skagafjörður við Sauðár- krók. FRÉTTIR AKRAR í Kambódíu eru víða enn með jarðsprengjum og hafa margir örkumlast eftir að þeir stigu á sprengjur. Guðbjörg Pálsdóttir kennari eftir ferð sína til Kambódíu Nauðsynlegt að skoða heiminn í heild sinni .. Morgunblaðið/ Anna M.Þ. Ólafsdóttir GUÐBJORG Pálsdóttir á námskeiði með kennurum í Kambódíu. JARÐSPRENGJUR, Kambó- día, stríð, ónothæfir akrar og limlest fólk kemur ekki fyrst upp í hugann þegar námskeið fyrir kennara í grunnskólum og framhaldsskólum eru annars vegar. Pað er þó engu að síður umfjöllun- arefni á námskeiðum sem Guðbjörg Pálsdóttir, kennari í Háteigsskóla, kemur til með að annast. Heldur hún námskeiðin í ágúst, annars veg- ar fyrir grunnskólakennara á veg- um endurmenntunardeildar Kenn- araháskóla Islands og hins vegar fyrir framhaldsskólakennara á veg- um Endurmenntunarstofnunar Há- skóla Islands. En í hvaða samhengi setur hún þessi fjarlægu efni þegar íslenskt skólakerfi er annars vegar? „Mér finnst nauðsynlegt að við hér á Islandi skoðum heiminn í heild sinni og það hvernig allir bera ábyrgð. Kambódía er dæmi um fjar- lægt land en þar hefur ríkt stríð í 30 ár og allt starf þjóðfélagsins hefur verið lamað og þarfnast uppbygg- ingar. Það starfar meðal annars af jarðsprengjum sem lagðar hafa ver- ið í slíku magni að það er erfitt að forðast þær og gera þær mönnum erfitt fyrir um að nýta akra, byggja hús og slíkt. Skólar hafa ekki starfað um ára- bil og þess vegna hafa ekki útskrif- ast stúdentar og háskólar eru nafn- ið eitt. Margir hafa dáið eða slasast í stríðsátökunum og margir eru ör- kumla eftir að hafa stigið á jarð- sprengjur. Þjóðin þarfnast marg- háttaðrar aðstoðar til að rétta sig við og geta orðið starfhæf á ný.“ Koma okkur við þótt fjarlægir séu „Þessir hlutir koma okkur við þótt fjarlægir séu. Heimurinn er að skreppa saman og við þurfurn að skyggnast á bak við þá atburði sem leiða til svona stríðsástands. Þar koma aðrar þjóðir við sögu, bæði þær sem eiga í stríði, þær sem út- vega stríðandi aðilum vopn og þannig mætti lengi telja. Það getur skipt máli í framtíðinni að við ger- um okkur grein fyrir þessu sam- hengi öllu og þess vegna koma þess- ir hlutir okkur við. Og það er líka svo í þessum löndum að það er ekki nóg að menn hafi húsnæði, vegi, skóla og annað sem þjóðfélagið byggist uppá ef þegnunum er gert ókleift að nýta þessi gæði. Þess vegna er líka nauðsynlegt að skyggnast bak við atburðina og reyna að greina þá,“ segir Guðbjörg en hún átti þess kost að ferðast til Kambódíu um síðustu páska til að kynna sér þessi efni sérstaklega. Námsgagnastofnun gaf út bókina Heimshorna á milli - þróunarlönd eftir Þórdísi Sigurðardóttur árið 1996. Guðbjörg vann ásamt Þórdísi verkefnabók fyrir 8.-10. bekk við þá bók. Guðbjörg bendir á að atburðir, átök, deilur og annað sem hefur áhrif á samskipti þjóða geti alltaf komið upp. Hún minnir einnig á þátttöku Islands í varnarbandalagi og að nauðsynlegt sé að í skólakerf- inu sé gerð grein fyrir samhengi í samskiptum þjóða nánast um allan hnöttinn því nánast alls staðar geti einhver áhrif þeirra komið fram. Þetta eigi ekki síður við um umfjöll- un um umhverfismál sem séu vax- andi í skólum. En í hvaða náms- greinum eru þessi efni kennd? Kemur við sögu í mörgum námsgreinum „Það er kannski vandamálið að skólakerfíð gerir ekki ráð fyrir sér- stökum tímum fyrir umhverfismál, þróunarmál, stöðu norðurs og suð- urs og svo mætti lengi telja. Þessi efni snerta hins vegar mjög margar námsgreinar, bæði samfélagsgrein- ar og raungreinar. Kennarar taka upp þessa málaflokka í húmanísku fögunum og það eru oft tækifæri til að ræða þá á opnum dögum, þema- vikum og slíku starfi sem flestir skólar bjóða uppá á hverjum vetri. Þessi efni koma víða fyrir og gera þarf ráð fyrir þeim í námskrá og gera ráð fyrir heildstæðri kennslu þessara málaflokka.“ Eiga umhverfismál og þróunar- mál erindi við grunnskólanema? „Já, þau eru hluti af þessu stóra samhengi sem við búum við og ég verð æ meira vör við áhuga bæði barna og unglinga fyrir þessum efn- um. Þau vita ýmislegt sjálf, hafa farið víðar, hafa átt samskipti við fólk frá fjarlægum slóðum og nú eru oft nýbúar í bekkjardeildunum. Allt þetta ýtir undir að við tökum þessi mál skipulega upp.“ Þegar er byrjað að bóka á nám- skeiðin áðurnefndu sem haldin verða í ágúst. En í lokin er rétt að spyrja Guðbjörgu hver ástæðan hafi verið fyrir för hennar til Kambódíu? Safnaði efni fyrir kennaranámskeið „Það kom þannig til að Hjálpar- stofnun kirkjunnar bauðst að senda fulltrúa með hjálparstofnun dönsku kirkjunnar í námsferð til Kambódíu og var markmiðið annars vegar að kynna sér jarðsprengjur og áhrif þeirra á fólkið og lífið í landinu og hins vegar almennt ástandið þar. Mér bauðst að fara í þessa ferð og styrkur fékkst frá Kennarasam- bandi íslands, Hinu íslenska kenn- arafélagi og menntamálaráðuneyt- inu og auk þess var Anna Margrjet Ólafsdóttir, fræðslufulltrúi Hjálpar- stofnunar, með í för. Markrnið ferðarinnar hjá mér var að safna efni til að geta haldið þessi námskeið fyrir kennara og til að nýta sjálf í kennslunni. Á námskeið- unum mun ég einkum segja frá því sem ég fræddist um í ferðinni og setja fram hugmyndir um hvernig taka má þessi efni fyrir í skólunum. Einnig munu koma gestafyrirlesar- ar á námskeiðið fyrir framhalds- skólakennara," segir Guðbjörg Pálsdóttir að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.