Morgunblaðið - 30.05.1998, Page 16
16 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Afmælishátíð á
Laugalandi
Morgunblaðið/Silli
í KYNNINGUNNI sýndu
menn sig meðal annars
utan á húsi.
Sjötíu ára
afmælis Slysa-
varnafélags-
ins minnst
Húsavík - Kvennadeild Slysa-
vamafélagsins og björgunar-
sveitin Garðar á Húsavík
minntust á veglegan hátt 70
ára afmælis Slysavarnafélags-
ins með kynningu og sýningu á
starfsemi félaganna.
Þar var sýndur tækjabúnað-
ur björgunarsveitarinnar og
notkun fluglínutækja, sig utan
á húsi og köfun. Einnig voru
bornar fram veitingar í húsi fé-
laganna, Nausti.
Kvennadeildin, en formaður
hennar er Hrönn Káradóttir,
minntist 60 ára afmælis á síð-
asta ári en björgunarsveitin
Garðar, formaður Jón Fr. Ein-
arsson, heldur upp á 40 ára af-
mæli á næsta ári. Segja má að
Garðar sé afkvæmi kvenna-
deildarinnar, en gott samstarf
hefur verið milli þessara félaga
þótt þau starfi hvort í sínu lagi.
Hellu - Við lok nýliðins skólaárs
var fjörutíu ára starfsafmælis
Laugalandsskóla í Holtum minnst
með veglegum hátíðahöldum í skól-
anum. I tilefni afmælisins var hald-
in sýning á verkum, starfí og námi
nemenda auk þess sem verk tólf
listamanna, sem allir hafa stundað
nám í Laugalandsskóla, voru til
sýnis. Skólanum bárust margar
gjafir og kveðjur, m.a. tölvubúnað-
ur og myndbandstökuvél.
Að skólanum á Laugalandi
standa sveitarfélögin milli Þjórsár
og Ytri-Rangár, Ásahreppur og
Holta- og Landsveit. Upphaf
skólasetursins má rekja til Ung-
mennafélagsins Ingólfs í Holta-
hreppi sem formlega var stofnað
2. ágúst 1908. Félag þetta kom
víða við í félags-, íþrótta-, ræktun-
ar- og menningarmálum byggðar-
lagsins. Meðal fyrstu verkefna var
að gera sundlaug sem hlaðin var
úr torflmausum og í var veitt vatni
úr Nefsholtslaugum. Þessi frum-
stæða torfsundlaug var notuð til
kennslu og sundiðkana um langan
aldur, en árið 1936 var byggð ný
laug úr steinsteypu. Hún var 7 x
15 metrar að stærð og var í notk-
un fram til 1993. Eftir að nýja
sundlaugin komst í gagnið hófst
umræða hjá ungmennafélögum og
ýmsum fleirum um að æskilegt
væri að reisa einnig samkomuhús
á staðnum. Réðst Holtahreppur í
samvinnu við Umf. Ingólf og
Kvenfélagið Einingu með styrk
frá Iþróttasjóði í byggingu þess
og var það fullgert 1946. Þótti að
því mikil framför, en í því var 9 x
13 metra salur og stórt leiksvið.
Undir sviðinu var komið fyrir bún-
ingsklefum og steypiböðum fyrir
sundlaugargesti. Þetta hús var
síðan um langan aldur notað sem
samkomuhús og félagsheimili fyr-
ir íbúa Holtahrepps og fleiri og
síðar einnig sem leikfimihús eftir
að skóli var settur á Laugalandi.
Eftir miðja öldina voru að renna
upp nýir tímar í skólamálum víða
um land, heimavistarskólar voru
að koma til sögunnar. Ráðamenn í
hreppunum milli fljótanna hófu
viðræður um sameiginlegan
heimavistarskóla, gengið var til
samninga og skólanum valinn
staður á Laugalandi. Árið 1957
var ráðist í byggingu skólahúss en
fyrsta skólasetning var 9. desem-
ber 1958. Fyrst um sinn var 10 til
14 ára nemendum kennt til skiptis
í tveim deildum, eldri og yngri og
voru um 20-30 nemendur í hvorri
deild. Heimavistarskóli starfaði
sem slíkur í 10 ár, en fljótt kom í
ljós að húsið var of lítið fyrir starf-
semina sem fór vaxandi með
hverju árinu. Þá var víða farið að
draga úr heimavistarhaldi og í
stað þess efldur skólaakstur í
dreifbýli.
Nýjar stórframkvæmdir
Gamla samkomuhúsið á Lauga-
landi fullnægði ekki kröfum tím-
ans um aðstöðu til leikfimikennslu
og annarra íþróttaiðkana og sama
mátti segja um sundlaugina sem
var orðin gömul og þótti of lítil.
Samþykkti skólanefndin árið 1977
að stefna bæri að því að reisa ný
íþróttamannvirki við skólann.
Framkvæmdir hófust 1981, hluti
var tekinn í notkun 1983, íþrótta-
salur 27 x 15 metrar komst í gagn-
ið 1987 og ný sundlaug 1994.
Grunnskólinn á Laugalandi er nú
svo vel búinn að húsnæði og allri
aðstöðu að til fyrirmyndar má
telja. Á það jafnt við um bóklegar
og verklegar greinar sem og
íþróttir. Þá er í skólanum mötu-
neyti, kennaraíbúðir og fjöldi sala
til fundar- og félagsstarfa auk
samkomuhalds. Sl. vetur voru 79
nemendur í skólanum, 10 kennar-
ar auk Sigurjóns Bjarnasonar
skólastjóra, fjölda starfsmanna,
bflstjóra og skólanefndarmanna.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
VÆNTANLEGIR nemendur skólans, börnin á leikskólanum á Laugalandi, færðu skólanum táknræna gjöf, eina trjáplöntu frá hverju barni.
r TL
L « wm • i ® So
Morgunblaðið/Sig. Fannar
BRAUTSKRÁÐIR nemendur Fjölbrautaskóla Suðurlands á vorönn 1998.
Fjölbrautaskóli
Suðurlands
100 nem-
endur
brautskráð-
ust í vor
Selfossi -100 nemendur braut-
skráðust í vor frá Fjölbrauta-
skóla Suðurlands, þar af 63 stúd-
entar. 21 nemandi brautskráðist
af tveimur brautum.
Brautskráningin fór vel fram
og að vanda var það kór skólans
undir sljórn Jóns Inga Sigur-
mundssonar sem skemmti gest-
PÉTUR Runólfsson, stúdent af
eðlisfræðibraut og náttúru-
fræðibraut, náði bestum heild-
arárangri stúdenta.
um með söng sínum. Flestir út-
skrifuðust af náttúrufræðibraut
eða alls 19 nemendur, viðskipta-
braut og félagsfræðibrautir
koma næst á eftir. Bestum heild-
arárangri náði Pétur Runólfsson,
stúdent af eðlisfræðibraut og
náttúrufræðibraut. Pétur fer nú í
sumar í fjórða sinn til keppni í
stærðfræði erlendis fyrir hönd
íslands.
Alls hófu 612 nám í dagskóla,
60 í öldungadeild og 27 skráðu
sig til náms á Litla-Hrauni, ekki
luku allir prófum en affóll voru
samkvæmt venju. Það kom fram
í máli Örlygs Karlssonar aðstoð-
arskólameistara að í vor lauk
34. starfsönn skólans. Örlygur
sagði að skólinn yrði 17 ára í
haust, búinn að slíta barnsskón-
um og bráðum fengi hann bíl-
próf.
Anægðir kennar-
ar, góður skóli
Hornafirði - Kennarar í Nesja-
skóla í Hornafirði hafa í maímán-
uði undirbúið námsferð til Banda-
ríkjanna nú eftir skólaslit. Alls
fara 11 kennarar í þessa ferð og
er tilgangurinn að kynna sér
kennsluhætti fyrir yngri börn.
Ekki hefur verið mikið um að
kennarar frá Hornafirði fari í
starfsferðir, en að sögn kennara í
Nesjaskóla eru Bandaríkjamenn
framarlega í kennslu raungreina
og stærðfræði og alltaf gott fyrir
kennara að fara og kynna sér
aðra skóla og kennsluhætti.
Hyggjast þeir safna að sér náms-
efni fyrir Nesjaskólann, svo sem
bókum og öðru slíku. Að auki
munu þeir kynna hvað Island hef-
ur upp á að bjóða og þá aðallega
Hornafjörður.
Bæjarsjóður Homaljarðar og
Vonarsjóður styrkja kennarana
til fararinnar.
Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjörnsdóttir
GLAÐIR nemendur Nesjaskóla í Hornafirði.