Morgunblaðið - 30.05.1998, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 21
ERLENT
Morðið
á Palme
óleysan-
legt?
LITLAR líkur þykja á, að
nokkru sinni takist að leysa
morðið á Olof Plme, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, eftir að
hæstiréttur landsins hafnaði
kröfu saksóknara um að
Christer Pettersson yrði
ákærður aftur. Telja sænskh-
fjölmiðlar að málið allt sé mikill
álitshnekkir fyrir réttarkerfíð í
landinu. í Svíþjóð er unnt að
ákæra fyrir morð í allt að aldar-
fjórðung eftir að glæpurinn var
framinn og lögreglan ætlar að
halda áfram leit sinni að morð-
ingjanum. Aftonbladet sagði
hins vegar, að líklega væri
sannleikurinn sá, að aldrei yrði
neinn dæmdur fyrir morðið á
Palme.
Goldwater
látinn
BARRY Gold-
water, fyrr-
verandi öld-
ungadeildar-
þingmaður
fyrir Arizona
og af mörgum
kallaður faðir
hinnar nýju
hægristefnu í
Repúblikana-
flokknum bandaríska, lést í
gær 89 ára að aldri. Goldwater
var frambjóðandi repúblikana í
forsetakosningunum 1964 og
tókst þá á við Lyndon B. John-
son. Beið hann mikinn ósigur,
sigraði aðeins í sex ríkjum,
Arizona og fímm suðurríkjum.
Hugmyndir hans um minni rík-
isumsvif sigruðu hins vegar
með Ronald Reagan 1980.
Börn varin
fyrir auglýs-
ingum
ÞÝSK þingnefnd hefur komist
að þeirri niðurstöðu, að vernda
þurfi börn fyrir auglýsingaflóð-
inu, sem að þeim er beint.
Hvetur hún fjölmiðla og aug-
lýsingaiðnaðinn til að setja
ákveðna staðla um auglýsingar
af þessu tagi og bendir á, að nú
reyni sumir fjölmiðlar að snið-
ganga gildandi lög um þetta
efni. Til dæmis sé brotið bann
við auglýsingum í barnaþáttum
með því að kalla þá „fjölskyldu-
þætti“.
Varað
við þenslu
í Finnlandi
HÆTTAN á þenslu í fínnsku
efnahagslífi jókst í gær þegar
birtar voru tölur, sem sýndu,
að hagvöxturinn á síðasta ári
eða frá mars til mars hafði ver-
ið 8%. Var hann sérstaklega
mikill í byggingariðnaði eins
og sést á því, að íbúðabygging-
ar jukust hvorki meira né
minna en um 48% á fyrsta árs-
fjórðungi miðað við sama tíma
fyrir ári. Vegna væntanlegs
myntbandalags og minni hag-
vaxtar í Þýskalandi og Frakk-
landi getur fínnski seðlabank-
inn ekki brugðist við með
vaxtahækkun. Viðbrögðin
verða því að felast í auknu að-
haldi í ríkisfjármálum.
Goldwater
Uppistand vegna mengunar af völdum kjarnorkuúrgangs í Þýzkalandi
Ráðherra í vanda
Bonn. Reuters.
ANGELA Merkel, umhverfismála-
ráðherra Þýzkalands, gaf í gær fyr-
irmæli um nýja athugun eftir nýjar
fregnir um að geislavirk efni hafí
lekið úr farmi af kjarnorkuúrgangi.
Þýzkir fjölmiðlar hafa að undan-
fórnu greint frá mengun af völdum
úrgangs í Þýzkalandi, og varðar
málið flutning úrgangs frá orkuver-
um til endurvinnslustöðva og aftur
til baka til geymslu í Þýzkalandi.
Stjórnarandstaðan reyndi fyrr í
vikunni að fá samþykkt vantraust á
Merkel vegna mengunarmálsins, en
hún slapp með skrekkinn. Hún
hafði fullyrt að ráðuneyti hennar
hefði engar skýrslur fengið um
mengun af völdum flutnings á úr-
gangi í Þýzkalandi, en tímaritið Der
Spiegel segir í gi’ein, sem enn er
óbirt, að Alþjóða kjarnorkumála-
stofnunin í Vín hafí gefíð þýzka um-
hverfisráðuneytinu upplýsingar um
mengaða farma þegar árið 1985.
Grænfriðungar lokuðu í gær leiðinni
að kjarnorkuverinu í Brunsbuettel í
Þýzkalandi með gámi og á borðum
sem grænfriðungar settu upp mátti
lesá: Engin lausn! Geislavirkni. Þú
ert búin að vera!
Reuters
ÞE6A R ■ STÆRÐir ■ SKI PTI r ■ r 1Á l .1
NÝ 0G STÆRRI 204 STK. PAKKNING
KEMUR Á MARKAÐ 1. JONÍ .
NicotmellMint
2 '«9 nicotin.
204 tyggcgummi
TAKTU Á TÓBAKINU
m
wgBRmBUHmm,
VwMMS*
TYGGÐU NICOTINELL
Nicotinell tyggigúmm! er lyt sem er notað sem hjálparefni til þess að hætta reykingum. Aðeins má nota lyfið ef reykingum er hatt.
Pað inniheldur nikótfn sem losnar úr því þegar tuggíð er, frásogast f munninum og dregur úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum
er hætt. Tyggja skal eitt stykki f einu, hægt og rólega, til að vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbundinn en ekki má
tyggja fleiri en 25 stk. á dag. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en I 1 ár. Nicotinell fæst með ávaxta- og piparmyntubragði og
I 2 styrkleikum, 2 mg og 4 mg. Nikótfnið I Nicotinell getur valdið aukaverkunum, s.s. svima, hðfuðverk, ógleði og hiksta. Einnig ertingu
I meltingarfærum. Bðrn yngri en 15 ára mega ekki nota Nlcotinell tyggigúmml án samráðs við lækni. Barnshafandi konur og konur
með barn á brjósti eiga ekki að nota nikðtfnlyf. Sjúklingar með hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota Nicotinell án þess að ráðfæra
sig við lækni. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á fylgiseðli sem fylgir lyfinu. Varúð - Geyma skal lyfið þar sem börn ná ekki till