Morgunblaðið - 30.05.1998, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VESPAN
Sniðug til að
snattast á
A suðlægum slóðum eru létt bifhjól eitt al-
gengasta vélknúna farartækið fyrir utan
bíla. Hildur Einarsdóttir fjallar um þessi
farartæki sem eru til margra hluta nyt-
samleg, en meðal annars er hægt að flytja
á þeim heilu búslóðirnar.
Ljósmynd/Hildur Einarsdóttir
VESPURNAR á ítaliu eru geymdar á öruggum stað í nágrenni við heilaga guðsmóður.
FYRIR rúmum fimmtíu ár-
um setti ítalska fyrirtækið
Pontedera á markaðinn
mótorhjól sem hlaut fram-
leiðsluheitið Vespa. Hönnun þess var
á margan hátt sérkennileg. Líktist
það hvorki reiðhjóli, hlaupahjóli,
mótorhjóli, bíl né geitungi, þótt það
héti í höfuðið á því skorkvikindi en
var undarlegt sambland af þessu
öllu hvað varðaði útlit, hljóð og eig-
inleika. ítalir höfðu farið illa út
úr seinni heimsstyrjöki-
inni og var hjólið hann-
að með fátæka alþýð-
una í huga sem ekki
hafði efni á að kaupa
sér bíl.
Þessi tegund bifhjóla
er enn eitt algengasta
velknúna farartækið á
Ítalíu og víðar í Evrópu.
Hin síðari ár hefur
orðið gííúrleg sölu-
aukning á bifhjólum í
Evrópu og Bandaríkj-
unum. Það sem hefur
breyst er að fram-
leiðsluheitin eru fleiri
og mörg þeirra bera
japönsk nöfn eins og
Suzuki eða Yamaha.
Japanir hafa verið fyrirferðarmiklir
á þessum markaði enda salan mikil í
Asíu.
Þótt framleiðendurnir séu orðnir
fleiri þá höfum við hér á íslandi enn
tilhneigingu til að kalla létt bifhjól
vespur. A ensku er þessi tegund
hjóla nefnd „scooters" og hafa
sumir hér viljað kalla þau
skutlur.
Almenna notkun hér á
landi á tegundarheitinu
vespa má rekja tO þess
að hingað voru fluttar
inn nokkrar uppruna-
legar Vespur á sjötta
áratugnum. Hjólið náði
þó aldrei almennum vin-
sældum. Það voru helst
nokkrir sérvitringar sem
festu kaup á þessum far-
artækjum. Sáust þeir
bruna um berhöfðaðir
með skjalatöskurnar á
„Fólk kemur til mín til
að spyrjast, fyrir um
gripinn," segir Jór-
unn Kjartansdóttir,
húsmóðir og amma
í Grafarvoginum.
Morgunblaðið/RAX
Morgunblaðið/Asdís
MÓTORSENDLAR hafa tekið vespuna í sína þjónustu.
fótstiginu. Á köldum dögum lögðu
þeir ullarteppi yfir fæturna til þess
að þeim yrði síður kalt.
Léttum bifhjólum fjölgaði aftur á
götum Reykjavíkur síðastliðið sum-
ar. Ástæðan er einkum sú að fyrir-
tækið Mótorsendlai- sem tekur að
sér að fara erinda fyrirtækja og
stofnana notar þau í sendiferðum.
En nú eru menn ekki berhöfðaðir
lengur heldur eru allir með hjálma.
Innflytjendur hér á landi greina
aukinn áhugi á léttum bifhjólum en
til að mega aka þeim dugir bílpróf og
svo auðvitað skellinöðrupróf fyrir þá
sem eru orðnir fimmtán ára. Þeir
segja að enn sé það miðaldra fólk
sem sé í meirihluta kaupenda. „Þótt
töffurunum finnist hjólin að mörgu
leyti sniðug þá er viðkvæðið hjá
þeim: „Ég get ekki látið sjá mig á
svona hjóli,“ segir Ingvar Bjamason
hjá Merkúr, sem flytur inn hjól frá
japanska fyrii-tækinu Yamaha.
„Einn og einn töffari kaupir sér þó
svona hjól. Erlendis er aðal mark-
hópurinn ungt fólk. Það sést á bæk-
lingum frá framleiðendum.“
Sparneytin og viðhald auðvelt
Hvað er annars svona sniðugt við
skutlurnar? Af hverju völdu til dæm-
is Mótorsendlar þetta farartæki þeg-
ar þeir stofnuðu Mótorsendla? Við
spurðum Mumma sem vann að stofn-
un fyrirtækisins þessarar spurning-
ar.
„Við fengum tvo mótorhausa til að
kanna hvaða mótorhjól væru hent-
ugust fyrir okkar rekstur og þessi
hjól urðu fyrir valinu. Þau eru mjög
sparneytin, eyða ekki nema 2-3 lítr-
um á hundraði. Öll uppbygging
hjólsins er einfóld. Það er til dæmis
ekkert tölvustýringardót í þeim sem
gerir það að verkum að hjóhn bila
síður og viðhaldið er auðvelt. Þau
eru á breiðum dekkjum svo slitflöt-
urinn er stærri, dekkin endast því
betur,“ segir Mummi.
Kristinn Sveinsson hjá Suzuki um-
boðinu tekur undir þessar röksemdir
og segist vita af heimilisföður í Hafn-
arfirði sem fari til vinnu sinnar í
Reykjavík á skutlunni hvern einasta
dag, allan ársins hring. „Hann fyllir
tankinn fyrir tvö hundruð krónur og
dugir bensínið út alla vikuna og
sparar hann sér því umtalsverðar
fjárhæðir.“
Þegar Vespan var sett á markað í
fyrsta sinn var henni ætlað að þjóna
Hvað dreymdi þig í nótt?
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns
Mynd/Kristján Kristjánsson
DRAUMSINS Hulda dylur hug.
um ráðahag eða
ráðleysi fylgi
sinnuleysi og skil
skyldra (þegar þú
leist við var allt
farið burt) nema
tekið sé í
taumana, en
draumurinn er
þér til aðstoðar
að afstýra þeirri
óáran.
Draumur
„Rauðbleikr-
ar sólar“
Mér fannst ég
liggja á stokk úti
í móa og horfa á
borgina úr
fjarska. Allt í
einu lýsist him-
inninn upp með
svo björtu ijósi að
ég blindast um
tíma. Síðan finn
ég hvemig líkami
minn funhitnar
Tíminn líður trúðu mér
taktu vara á sjálfum þér
heimurinn er sem hálagler
hugðu að því sem eftirfer.
(Kristjln Frímann Gíslason)
í NÝAFSTÖÐNUM kosningum
voru oddvitar R- og D-hsta spurðir
af fréttamanni á kjördag um
drauma þeirra nóttina áður. Ingi-
björg Sólrún svaraði að sig hefði
ekki dreymt um nóttina en sagði
að þegar hún fékk sér lúr á kjör-
dag hefði sig dreymt mikið. Ámi
sagðist sofa vel og minntist ekki
drauma sinna. Hvað dreymdi þig í
nótt er mjög persónuleg spuming
ef grannt er skoðað því draumar
geta afhjúpað kjama mannsins
þeim sem draumfróður er og
glöggur á fólk. Draumar eru per-
sónuleg reynsla, þeir birta eðh
mannsins, afhjúpa vankanta hans
og veikleika en opinbera einnig
bestu eiginleika viðkomandi og
getu th góðra verka, þessa þætti
vill hver og einn væntanlega hafa
fyrir sig en geta miðlað öðrum af
þörf og löngun. Draumar geta því
verið vopn í pólitískri baráttu,
beittir sem tunga í persónulegu llfi
og til ills í meðförum óprúttinna
spekinga sem eira engu nema eig-
in hag. En sem persónuleg reynsla
geta draumamir stutt dreymand-
ann í réttum ákvörðunum, hjálpað
honum að greina kjamann frá
hisminu, lýst upp veg hans og vak-
ið honum sýn til framtíðar á þær
væntingar sem dagurinn í dag
blundar um. Hann getur greitt
genginn veg til skilnings á teknum
ákvörðunum og svipt hulunni af
röngum gerðum á grýttri leið
mannsins tii manns. Hvað þig
dreymdi í nótt er því spurning sem
ekki er sjálfsagt að svara hveijum
sem er þó saklaust sé spurt, því
draumurinn frá í nótt getur varðað
heill dreymandans og framtíð þar
sem spumig um skilgreiningu, for-
gangsröðun og skynsamlega sam-
vinnu ytri og innri afla býður þess
að vel sofinn maður vakni til með-
vitundar og sé vel vakandi um
þann vilja sem í draumi hans felst.
„Nólý“ sendir draum
Eg hafði fengið tvær hárauðar
blússur í afmælisgjöf frá dóttur
minni, ég fór í aðra þeirra og
fannst þá vera með þrjá banana í
hægri hendi. Einhver kona kom,
tók einn bananann, kreisti hann
svo hann spýttist yfir blússuna svo
hún var ónýt. Þá fór ég í hina
blússuna og einhver maður kom,
tók bananana og ætlaði að gera
sama og konan en honum tókst
bara að setja tvo bletti á blússuna,
þá tók ég bananana og sprautaði
úr þeim út um gluggann, þegar ég
leit við var allt farið í burt.
Ráðning
Draumurinn er hlaðinn táknum
frjósemi (blússurnar og banan-
arnir) en innihald hans gefur í
skyn að sú frjósemi fari á ein-
hvern hátt forgörðum (bananinn
skemmdi blússuna) eða sá undir-
búningur sem lagður er í ákveðið
mál skili sér ekki (banananum
sprautað út um gluggann).
Draumurinn gefur í skyn að þess-
þannig að sárs-
aukinn er óbæri-
legur, einhvers konar bruni en þó
sá ekki á líkama mínum. Þá átta
ég mig á því að ég var að upplifa
kj arnorkusprengingu og að ég
muni kafna af eiturgufum. Mér
leið vel og fannst þetta ekki slæm-
ur dauðdagi þangað til ég áttaði
mig á að ég var hætt að anda. Þá
rumskaði ég en síðan finnst mér
ég enn á stokkinum og himinninn
orðinn ljósblár og allt fullt af
rauðbleikum sólum, misstórum en
allar bjartar og svifu um rólega
og mér leið vel og virtist búin að
ná mér.
Ráðning
Við fyrstu sýn gæti draumurinn
virst sem eins konar framtíðarsýn
eða mynd af þeim hugsanlega
möguleika sem vofði yfir á tímum
kalda stríðsins en sú einföldun er
drauminum ekki þóknanleg. Hann
snýst um þig (horfði á borgina úr
fjarska) og þínar tilfinningar (fun-
hitnaði) sem blossa upp (kjarn-
orkusprengjan) án sýnilegs tilefn-
is (að því er virðist) en sem verð-
ur stórmál í þínum augum og
rumskar verulega við þér og þín-
um tilfinningum, svo rækilega að
þér er sem snúið á hvolf og það
sem var gott og gilt fykur út í
veður og vind en við tekur nýtt
skeið. Hvort þessi umbylting
tengist ástamálum skal ósagt látið
en sólirnar vísa til mikillar ham-
ingju og liturinn til kærleika.
•Þeir lesendur sem vifja fá
drauma sína birta og ráðna sendi
þá með fuiiu nafni, fæðingardegi
og ári ásamt heimilisfangi og dul-
nefni til birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaði
Kringlunni 1
103 Reykjavík