Morgunblaðið - 30.05.1998, Síða 54
54 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
f AFi /MINN VAR ViTUR \ MA&UR, GRETTIR J / EINU SIKINI TÓK HANN/MIS\| HNÉ SÉR. OG SAGÐI■„VÓH-Jl „PÁB>erbí<r?\ LiTUft ór ; H<€GTAÐ/MJÖU<MFy«J« AOAF' DAOPA KCJ" / t>»NNHAFI ,—t E.KKI HA7=T OF jrf IP // AMIKIÞ'A MILU
j 1
I
CrVj /M7
ri n l
PAVÍS 2-5
Mér finnst svo gaman þegar horna- Það er einhver ólýsanleg tilfinning Ósigur!
boltakeppnistímabilið hefst! í loftinu.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Opið bréf til mennta-
málaráðherra
Frá fulltrúum námsmanna
í stjórn LÍN:
MENNTAMÁLARÁÐHERRA,
Bjöm Bjamason.
Síðastliðinn þriðjudag voru sam-
þykktar úhlutunarreglur fyrir
skólaárið 1998-1999 í stjórn Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna. Þar
var ákveðið í krafti meirihluta-
valds fulltrúa ríkisstjórnarinnar að
námsmenn fengju engar þær
kjarabætur sem aðrir hópar þjóð-
félagsins hafa fengið. Lánin hækk-
uðu einungis í takt við verðlags-
breytingar eins og þau gera raun-
ar alltaf. Á fundi stjórnar sjóðsins
greiddu fulltrúar námsmanna í
stjórn LIN að sjálfsögðu atkvæði
gegn framangreindri afgreiðslu og
lýsa furðu sinni á þeirri meðferð
sem kjaramál námsmanna hafa
fengið.
Síðastliðið vor voru gerðir
kjarasamningar í landinu sem
koma til með að skila töluverðum
kjarabótum til launafólks allt til
ársins 1999. Þar var einnig ákveðið
að frá og með síðastliðnum ára-
mótum væm lágmarkslaun í land-
inu 70.000 kr. Umræddar kjara-
bætur voru löngu tímabærar og
skref í rétta átt í kjaramálum þjóð-
arinnar. Ríkisstjórnin sýndi síðan í
verki nauðsyn hækkananna með
því að hækka allar bætur almanna-
trygginga og atvinnuleysisbætur í
takt við nýgerða samninga. í
kringum það var haldinn blaða-
mannafundur og hækkanirnar
veittar með pomp og prakt!
Kröfur námsmanna við endur-
skoðun úthlutunarreglna í ár voru
skýrar. Farið var fram á það að
námsmenn fengju sömu kjara-
hækkanir og aðrir hópar þjóðfé-
lagsins hafa fengið. Einnig var
gerð sú krafa að tekið yrði mið af
lágmarkslaunum í landinu við
ákvörðun frítekjumarks lánanna.
Niðurstaðan liggur nú fyrir - ekki
var hlustað á kröfur okkar og
kjarahækkunin var engin.
Þegar línurnar voru lagðar
varðandi endurskoðun úthlutunar-
reglna í vor var því ekki búist við
að á brattann yrði að sækja með
ofangreindar kröfur okkar. Að
okkar mati var það nánast forms-
atriði að fara fram á framan-
greindar hækkanir.
Það voru því mikil vonbrigði að
vilji menntamálaráðheiTa til að
taka undir kröfur okkar var ekki
fyrir hendi. Við fórum á þinn fund
þar sem gerð var grein fyrir kröf-
um okkar, en allt kom fyrir ekki.
Vert er að benda á að sam-
kvæmt nýsamþykktum úthlutun-
arreglum verða námslán fyrir ein-
stakling í leiguhúsnæði 57.600 kr.
á mánuði, óskertar. Það er hins
vegar borin von að fá óskert náms-
lán ef námsmaður vinnur í þrjá
mánuði á sumrin á lágmarkslaun-
um (3 x 70.000). Því það var líka
samþykkt að ef námsmenn vinna
Ásdís Benedikt
Magnúsdóttir Magnússon
Guðrún Ólafur
Gestsdóttir Kristinsson
fyrir meira en 185.000 kr. á ári
fara lánin að skerðast.
Ofangreind upphæð, kr. 57.600.-
er einnig lægri en atvinnuleysis-
bætur eru í dag. Eins og fólk veit
eru atvinnuleysisbætur hugsaðar
sem tímabundin neyðaraðstoð. I
eðli sínu eru þær bætur sú upphæð
sem talið er lágmark til að lifa af.
Námslán eru hins vegar hugsuð
fólki til framfærslu um nokkuiTa
ára bil og eru greidd til baka með
vöxtum og verðbótum. Auk þess
sem í lögum um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna nr. 21/1992, 3.
gr., segir:
„Miða skal við að námslán sam-
kvæmt lögum þessum nægi hverj-
um námsmanni til að standa
straum af náms- og framfærslu-
kostnaði meðan á námi stendur að
teknu tilliti til fjölskyldustærðar
námsmanns."
Þau svör sem helst hafa komið
frá fulltrúum þínum í stjórn Lána-
sjóðsins eru þau að það hafi sýnt
sig að námsmenn auki ráðstöfun-
arfé sitt með um allt að 10-15 þús-
und krónur á mánuði með vinnu.
Fulltrúar þínir virðast sammála
því að framfærslan sé of lág en það
sé allt í lagi því námsmenn geti
unnið með námi. Við spyrjum þig
því hvort það sé álit þitt að iðnnám
og nám á háskólastigi sé ekki full
virina?
Námsmenn vona að mennta-
málaráðherra gefi skýr svör um
stefnu ríkisstjórnarinnar í málefn-
um framfærslusjóðs íslenskra
námsmanna, LIN.
ÁSDÍS MAGNÚSDÓTTIR,
stúdentaráði HÍ,
BENEDIKT MAGNÚSSON,
Bandalagi íslenskra sérskólanema,
GUÐRÚN GESTSDÓTTIR,
Iðnnemasambandi íslands,
ÓLAFUR KRISTINSSON,
Sambandi ísl. námsmanna erlendis.
Alit efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskiiur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.