Morgunblaðið - 30.05.1998, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 30.05.1998, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 59 FÓLK í FRÉTTUM Ekkert mál að skíra SJÓNVARPÁ LAUGARDEGI ÚRSLIT í borgar- og sveitar- stjórnarkosningum reyndu nokk- uð á fréttastofur um síðustu helgi og lítið um aðrar fréttir en þær sem snertu úrslit í helstu byggðarlögum. Unnið hefur ver- ið að því undanfarið að sameina byggðarlög og skíra upp á nýtt og hefur verið gengið fram í þessum skírnarmálum meira af dugnaði en viti, svo að við liggur að enginn viti lengur með neinni vissu hvernig landinu hefur verið skipt í héruð. Ber þar allt að sama brunni, að nöfn sem hafa gilt um staði í þúsund ár og skemur eru nú lögð niður eftir að hafa þróast og mótast í aldanna rás, en í staðinn tekinn upp ein- hver ónefni, sem eiga sér litla stoð í landshátt- um, eins og ekk- ert mál sé að skíra. Staður hét Böggvisstaðasandur og er mikill ættbogi kominn þaðan. En nafnið var langt og smám saman tók Dalvík við án þess að nokkur skipaði svo fyrir. Nú eru komnir nýir herrar, sem hamast við að sameina byggðir af því þeir ráða ekki við að halda landinu í byggð. Og þessa sameiningarsúpu sína þurfa þeir að skíra. Ein útkoman var Árdalsvík. Enga stund tók að ákveða þetta nafn. Pað var eins og Ríó-tríóið væri að yrkja. Og svo er fólk að hlusta á niðurstöð- ur úr kosningum til sveitar- stjórna. Það gæti í sumum tilfell- um verið statt í Finnmörk ef snarvitlaus og drýgindaleg nýöldin er ekki búin að breyta því nafni. Á endanum gæti nýöld- in átt það til að breyta nafninu á íslandi, af því það stendur óþarf- lega þvert á enska lágmenningu. Ekkert óvænt kom í ljós þegar talið var upp úr kjörkössunum, ef tekið er mið af stærstum hluta skólakerfís landsmanna og þeirri linnulausu innrætingu, sem þar á sér stað. Gleggsta dæmið um hana mátti sjá á niðurstöðunni á Húsavík og í ríki Lúðvíks heitins Jósepssonar. Suður-Þingeyingar eru vel gerðir menn og báru áberandi af öðrum Islendingum um síðustu aldamót. Síðan hefur margt gerst í heiminum og m.a. kenna franskir fræðimenn að vinstra æðið á öldinni beri ábyrgð á dauða hátt í hundrað milljóna manna utan styrjalda. Að sama skapi hefur atgervinu hnignað eitthvað á Húsavík ef tek- ið er mið af úrslitum kosninga. Þar kemur tvennt til. Fjörutíu ára uppeldi í skóla og löngun til að vera áfram taldir gáfaðastir manna. Úrslitin í Reykjavík sættu engum tíðindum. Menn- ingin tröllrfður flestum opinber- um byggingum og dansflokkar frá Afríku skeiða um leikhússvið- in í samræmi og samhljóma við hin frægu Tansaníufræði. Það fer enginn að gera þann fjanda- fagnað að sigra í kosningum í menningarborg eins og Reykja- vík, sem ætlar að auki að verða háborg Evrópu. Og þótt eitthvað sé verið að hrella vinstri menn með útstrikunum hefur það ekk- ert að segja, enda hefur hinn pólitíski mórall verið settur í Bandaríkjunum, þar sem Clinton og Hillary hafa verið orðuð við svokallað Whitewater-mál. Hverju eru menn þá eiginlega að fárast yfir hér í sjálfu kotríkinu? Nei, vinstri menn eru sko í full- um rétti með öll sín mál sam- kvæmt tískunni. Merkilegt var að heyra í for- ustufólki flokkanna að loknum kosningum. Kannski ekki vegna þess að það upplýsti hvað það ætl- aði að gera. En það drap á ýmsa athyglisverða hluti. Forustukona kvennalistans, sem lýsti því yfir í sjónvarpi á dögunum, að hún væri svo svakalega menntuð að helstu liljur á kommavellinum fölnuðu, fagnaði sigri R-listans ákaflega, eins var með Sighvat, sem veit ekki hvað varð af Alþýðuflokkn- um. Margrét var róleg og kurteis enda veit hún hverja hún þarf að höggva. Halldór, sem hefur næst- um bjargað flokki sínum heilum frá villum fyrrverandi fonnanns, gat þó ekki stillt sig um að benda á að lítið færi fyrir sigii R-listans ef Framsókn hefði ekki verið með. Þetta er að vísu misskilning- ur vegna þess að R-listinn sagði sig frá öllum flokkum fyrir kosn- ingar. Þeir Valdi K. og Alli eru því einir á báti, en vonandi kemur Sigrún aftur. Forsætisráðherra gaf svo ríkisfréttastofunum inn í lokin. Það var þarfur lestur. Hann sagði einfaldlega sem satt var að þær hefðu talað síðasta kjörtíma- bil eins og aðeins einn aðili kæmi að borgarmálum. En þær hrista þetta af sér með þögninni. Mann- skæður rógur og undirmál geta haldið öfgamönnum við völd ein- hvern tíma vegna þess að menn eru hræddir. Það er augljóst að þeir sem eru yfirmenn á ríkisfjöl- miðlum eru hræddir við eitthvað. Ný plata með tónlist úr Titanic ► í BYRJUN ágúst kemur út ný geislaplata með tónlist úr stór- myndinni Titanic. Þar verða írsku lögin sem spiluð voru neð- anþilja á skipinu, lagið „Nearer My God to Thee“ eða Hærra minn Guð til þín sem skipshljóm- sveitin lék þegar skipið var um það bil að sökkva og „Titanic Suite“ sem leikið verður af stórri sinfóníuhljómsveit. Fyrri geislaplatan sem kom út um leið og myndin hefur selst í rúmum 20 milljónum eintaka um allan heim og í 6 þúsund eintök- um hérlendis. Vinsældir plöt- unnar eru ekki síst vegna flutn- ings Celine Dion á laginu „My Heart Will Go On“ og er það einnig að finna á sólóplötu söng- konunnar „Let’s Talk About SONGKONAN Celine Dion á ekki lítinn þátt í vinsældum fyrri plötunnar úr myndinni Titanic. Love“. Hefur hún selst í rúm- lega 10 þúsund eintökum hér- lendis. Kenneth Branagh Embeth Davidtz Robert DoDaryl Hannah Robert Duvs Tom Berenger ■Wms- Akureyr- ingar á höfuð- borgar- svæðinu AKUREYRINGAKVÖLD var haldið í félagsheimili Kópavogs á dögunum en eins og titillinn gefur til kynna voru það Akureyringar búsettir á höfuð- borgarsvæðinu sem hittust og gerðu sér glaðan dag. Kvöidið hófst með for- drykk og forrétt en aðalréttur kvölds- ins var heilgrillað lamb sem kokkar kvöldsins, þeir Jakob Om Haraldsson og Matthías Þórarinsson, sáu um að mat- reiða utan dyra. Skemmtiatriði voru af ýms- um toga, farið var með gam- anmál, karlmenn í bleikum kjólum sungu rokkaðar útgáf- ur af vinsælum vögguvísum auk þess sem heiðursgestur kvöldsins, fréttahaukurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson, skilgreindi hinn dæmigerða Akureyr- ing sem greinilega er enginn venjulegur Islendingur. Það kom svo í hlut hljóm- sveitarinnar Hunangs að halda uppi stuðinu fram eft- ir nóttu og tók „gamli“ söngvari sveitarinnar, Karl Orvarsson, nokkur lög. Það voru því dansþreyttir og sælir norðanmenn sem yf- irgáfu kaupstaðinn Kópa- vog síðla nætur. PIPARKOKIJKALLINN MYND EFTIR ROBERT ALTMAN '"“***• Sv!í - BYGGTÁSÖGU EFTIR JOHN GRISUAM Mskólabíó Einstæður viðburður 1 íslensku tonlistar- og kirkjulifi i \KOB Örn Haraldsson og lambið fagmannlega. FORRÉTTURINNsem bor- •nnvarframvarrækju- oflnÍm eryiífle^rann oiam mannskapinn. DAVÍÐ Jóhannsson og Áin'^ heiðursgestumkvolds! ^und. Elínu Svemsdóttur og » B Erni Rúnarssyni sendiheir Akureyrar. v Voces Thules flutja Þorlákstíðir é' í Kristskirkju Landakoti á fornum eyktartímum Hvítasunnudag kl. 18 og 24. Annan í hvítasunnu kl. 12,18 og 20. Flytjendur: Eggert Pálsson, Einar Jóhannesson, Eiríkur Hreinn Helgason, Guðlaugur Viktorsson, séra jakob Rolland, séra Kristján Valur Ingólfsson, Sigurdur Halldórsson og Sverrir Guójónsson. Þorlákstíóir voru sungnar heilögum Þorláki til dýróar frá ca. 1300-1550. f Handritin voru síóar geymd í stofnun Árna Magnússonar í Kaupmannahöfri, / ] A n en komu nýlega heim og varóveitast nú í Stofnun Árna Magnússonar í rey kjaíík Reykjavík, þar sem þau verða sýnd frá 1. júní. , ■ ■_■ A O 16.MAI-7. JUNI ÍDDO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.