Morgunblaðið - 30.05.1998, Blaðsíða 62
-<* 62 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
„Legg mikla
áherslu á
hráefmð44
Sigríður Sunneva fatahönnuður rekur
fyrirtæki á Akureyri þar sem föt hennar
eru bæði hönnuð og framleidd. Birna
Anna Björnsdóttir hitti hana í herrafata-
versluninni GK í Reykjavík sem hún er
að hefja samstarf við.
HÚN ER lærð í Flórens á
ítab'u en hefur starfað
hér á landi frá árinu 1994
og sérhæfir sig í hönnun
á fötum úr íslensku hráefni. Um
þessar mundir er hún að hefja
samstarf við þau Gunnar Kristins-
son og Kolbrúnu Petreu Gunnars-
dóttur í herrafataversluninni GK
og munu föt hennar nú verða fáan-
leg þar.
íslensk föt,
íslenskt hráefni
Hvernig flíkur hannar þú og út
fi-á hverju gengurðu í starfi þínu?
„Eg legg mikla áherslu á hráefn-
ið og ég nota efni
sem er sprottið úr
jarðvegi okkar og
er það kraftmikið
og hánorrænt hrá-
, efni. I vinnu minni
legg ég mikið upp
úr því að ræturnar
séu íslenskar því
við erum Islending-
ar og hvert sem við
förum er mikilvægt
að ganga út frá
þeirri forsendu.“
Hún segir að vilji
íslenskur fatahönn-
uður hasla sér völl á
alþjóðlegum vett-
vangi sé einmitt
mjög mikilvægt að
hann vinni út frá
norrænum uppruna sínum og noti
sér þá sérstöðu sem honum fyígir.
„Við erum fámenn og allt hér er
mörgum sinnum smærra í sniðum
en í öðrum löndum en við höfum þó
viss séreinkenni og ákveðna sér-
stöðu og ef unnið er út frá henni
geta íslendingar vakið á sér at-
hygli og náð miklu betri árangri en
ella.“ Hún segir að vinna með hrá-
efni, sem er okkur svona nærtækt
eins og skinn og fiskroð, sé eitt af
því sem geti og hafi vakið á okkur
athygb. Víða erlendis er mikill
áhugi á fiskroði sem nýju og
spennandi efni í föt, en hér á Is-
landi hefur það verið notað í þó
nokkur ár og erum við Islendingar
því mjög framarlega á því sviði.
I hverju felst samstarf þitt við
verslunina GK? „Eg mun hanna
flíkur sem seldar verða í verslun-
inni. Eg hef mjög góðar væntingar
til þessa samstarfs, ég er hönnuður
og þau eru miklir hugmyndasmiðir
og saman getum við gert margt
sniðugt." Hún segir að með þessu
samstarfi muni hún nú reyna að
höfða meira til þess hóps sem er
nýjungagjarn og áhugasamur um
tísku. Hún telur það mjög spenn-
andi viðfangsefni
því hér á Islandi sé
mikil gerjun á sviði
fatnaðar og tísku.
Hún segir fólk sýna
mikla djörfung í
klæðaburði og þeir
straumar sem sjáist
hér séu oft langt á
undan þeim sem
sjást á götum úti
erlendis.
Ertu að hugsa
um að koma fram
með einhverjar nýj-
ungar og þá jafnvel
eitthvað sem hefur
ekki sést áður? „Ég
ætla að prófa
margar hugmyndir
og gera tilraunir
með að blanda saman ólíkum hug-
myndum og efnum. Það er t.d.
mjög spennandi að blanda saman
náttúralegum efnum og gerviefn-
um. Þá er hægt að hafa skinn og
endurunnið plast hlið við hlið í
sömu flík eða mokkaskinn og flís
eða jafnvel mokkaskinn og vatter-
að álefni. En það verður þó að
gæta þess að óvirða aldrei náttúru-
lega efnið þannig að útkoman verði
afkáraleg, en ég tel að það sé hægt
að gera þetta þannig að það komi
mjög skemmtilega út.“
LAXAROÐ er dæmi um
frumlegt íslenskt hráefni.
Morgunblaðið/Golli
SIGRIÐUR Sunneva ásamt Gunnari Kristinssyni í versluninni GK.
ÞESSI jakki er saumaður úr snöggklipptu SKYRTAN er úr laxaroði og geitaskinni.
lambsskinni.
Tískusýning í Iðnó
Hvar verður hægt að sjá þessar
nýju flíkur?
„Við munum halda tískusýningu í
Iðnó nú í lok júní þar sem við kynn-
um þessa nýju línu. Þetta era metn-
aðarfullar vörur, flíkumar eru sér-
stakar og ég legg mikið upp úr per-
sónulegum stíl, að flíkumar verði
hluti af sjálfum þér. Þetta era ís-
lenskar ílíkur þar sem merkja má
hið sterka, kalda, norræna en jafn-
framt era þær með nútímalegu ívafi
þar sem allt gengur og finnst mér
þánnig verið að leggja grunn að
hinni frjálsu en jafnframt dularfullu
framtíð."
Stendur til að markaðssetja vör-
ur þínar erlendis?
„Já, ég er með markaðssérfræð-
ing sem byrjaði að vinna í því
snemma á þessu ári að kynna fötin
mín í Bretlandi og stendur til að
kynna þau í fleiri löndum. Þetta er
svona rétt að byrja og hef ég fengið
jákvæð viðbrögð.“ Hún segir ísland
þykja spennandi land því það hafi
ímynd sem mjög þróað og nútíma-
legt samfélag sem sé jafnframt
hrátt, náttúralegt og framandi.
„Þetta eigum við Islendingar að not-
LAMBSSKINNIÐ er unnið
þannig að áferðin verður mjög
sérstök og glansandi.
færa okkur við nýsköpun og útflutn-
ing á afurðum okkar því áhuginn er-
lendis er svo sannarlega til staðar.“
AuLiii
þiónusta
Opið:
Mán.-fös. 8-21
Lau. 8-19
SUZL 10-19
Húsasmiðj
Fossaleyni 2
Grafarvogi
S: 586 2000
an
HÚSASMIÐJAN
Velkomin
i Morkma
ii
arrtré
HjartastemDqotur
Opnunartímar:
• Virkadagakl. 9-21
• Um helgar kl. 9-18
mm
Himalajabláeinir
GRÓÐRARSTÖÐIN
Hansarós
STJÖltNVGRÓF 18, SÍMISHI 4288. FAX SHl 2.
Sækið sumarið til okkar
Tvö ný fræðslurit komin:
„Gróðursetning“ og
„Ræktaðu garðinn þinn“
Hótaði forset-
um og Stern
43 ÁRA maður, sem hefur af-
plánað dóm fyrir að hafa í hótun-
um við Bandaríkjaforsetana Ron-
ald Reagan og Gerald Ford og
varaforsetann Nelson Rockefell-
er, hefur verið dæmdur í vist á
geðsjúkrahúsi eftir að hafa sent
Howard Stern morðhótanir.
Michael Lance Carvin var
handtekinn í síðasta mánuði og
dúsir núna á geðsjúkrahúsi í Suð-
ur-Karólínu. Carvin var dæmdur
fyrr í þessum mánuði eftir að
hafa gerst sekur um að senda
Stern sjö hótunarbréf og eina
bréfsprengju.
Hann var handtekinn árið 1975
fyrir að ráðast að Ronald Reagan
með leikfangabyssu og var um
sex ár í fangelsi eftir að hafa
einnig verið sakfelldur fyrir að
hafa í hótunum við Ford og
Rockefeller.