Morgunblaðið - 28.08.1998, Síða 6

Morgunblaðið - 28.08.1998, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 MORGUNB LAÐIÐ FRÉTTIR Ljósmyndir/Oddur Sigurðsson ÞESSI hunangsfluga komst í feitt á valmúa í garði Odds í Breiðholtinu. Gott sumar fyrir skordýr og skordýraljósmyndara sumar var gósentíð fyrir skor- kvikindi af ýmsum gerðum ekki síður en sóldýrkendur. Fyrir Odd Sigurðsson jarð- fræðing sem tekur ljósmyndir af agnarsmáum skordýrum úti í náttúrunni voru aðstæðurnar líka kjörnar og hér á siðunni sjást nokkrar þeirra mynda sem hann hefur tekið á undan- förnum tveimur mánuðum, ým- ist í Blesugróf eða garði si'num í Breiðholti. Oddur, sem einnig hefur gert mikið af því að taka landslags- myndir úr lofti, segir að smá- myndefni hafí löngum heillað sig. „Eg datt ofan í þetta fyrir tíu árum þegar maður bauð mér notaða makrólinsu til kaups fyrir lítið. Þetta hefur heillað mig meira og meira eft- ir því sem ég sé meira af því. Fjölbreytnin í formi og litum er endalaus og þó að ég hafi skoð- að náttúruna frá öllum endum og köntum þá fínnst mér þetta einhver stórkostlegasti hlutinn af henni. Kannski er það vegna þess að þetta er svo smátt að það birtist mönnum ekki og þorri fólks vill ekki skoða það nánar,“ segir hann. TVÍVÆNGJA spígsporar á þistli í Blesugróf. Þistillinri dregur alltaf að sér nokkrar tegundir skordýra, sérstaklega fiðrildalirfur og húsflugur, að sögn Odds. Endalaus fjölbreytni í formi og litum VEÐURBLÍÐAN á Suðurlandi í Eins og að þurrka út rauða litinn úr regnboganum Oddur segir að til þess að taka svona myndir þurfí helst að vera sólskin og logn eða því sem næst. „Ég tek einungis myndir úti í hinni lifandi nátt- úru og það er endalaus þolin- mæðivinna að liggja yfír mó- tívunum, því þau eru svo sann- arlega ekkert að sitja fyrir heldur skreppa til og frá.“ Tækifæri til skordýramynda- töku hafa verið óvenjumörg í sumar en að sögn Odds getur komið heilt sumar án þess að hann fínni góðan dag til þess arna. Segja má að það sé annað hvort eða í ljósmyndun Odds. Þegar hann er að taka myndir af jöklum, fjöllum og ám úr fjarlægð fínnst honum hann aldrei komast nógu langt í burtu frá myndefninu en þegar litlu kvikindin eru hinumegin við linsuna kemst hann aldrei nógu nálægt. „Mig langar alltaf lengra í aðra hvora áttina,“ segir hann. Oddur tekur helst skordýra- myndir í Blesugrófínni, Elliða- árhólmanum og þar í kring og svo í garði sínum í Seljahverfi. Hann segir þetta bestu staðina, af þeirri ástæðu að þar sé ekki mikið eitrað fyrir skordýrum. „Það er skelfílegur hlutur sem viðgengst víða hérna, þessi eit- urhernaður. Mér fínnst það svolítið eins og ef maður færi að þurrka út rauða litinn úr regnboganum," segir hann. Þegar myndir eru teknar af íslenskum skordýrum, sem eru flest af gráu, brúnu eða svörtu gerðinni, er mikilvægt að um- hverfíð sé litríkt. Nú þegar dregur að hausti dvínar fjöl- breytnin í litunum í gróðrinum, svo skordýraljósmyndarar draga sig í hlé og fara að láta sig dreyma um gott sumar að ári. BLAÐLÝS á bleikri rós í Breiðholti. Úrgangurinn frá blaölúsum er næstum hreinn sykur, sem dregur að sér geitunga sem lifa á honum.' Þannig er það ekki blómið sjálft, sem geitungarnir sækja í, heldur úrgangur blaðlúsanna. SVEIFFLUGA tekur stefnuna á fjalldalafífil í Blesugróf. Sveifflugur, sem eru fjölbreyttur ættbálkur, eru flestar röndóttar og hafa þann eiginleika að geta verið kyrrar í loftinu eins og þyrlur. „Þessi sveiffluga á vanda til að leggja vængina aftur þegar hún situr og þá sjást ekki rendurnar á henni. Þess vegna hef ég reynt að ná mynd af henni á flugi til þess að sjá randamynstrið," segir Oddur. SVEPPAFARALDUR meðal flugna á hvönn í Blesugróf. Flugurnar eru allar dauðar en að sögn Odds enda allar flugur sem drepast af sveppnum Entomophthora muscae f þessari stellingu, með vængi og lappir útsperrt. „Sveppurinn blómstrar með hvítum gróberum út á milli liðanna á afturbolnum og þegar gróberarnir eru orðnir þroskaðir þá springa þeir og dreifa grói í kringum sig.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.