Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 5 7 í DAG BRIDS Unisjón (iurtmiiiiilur l'áll Arnarsoii Þrautin í dag er í tveimur liðum: Norður A 873 ¥ K3 ♦ Á754 * G764 Suður AÁD ¥ ÁG98542 ♦ K8 *ÁK SUÐUR verður sagnhafi í sex hjörtum án afskipta AV. Hvernig er best að spila: (a) Með spaða út? (b) Með laufi út? (a) Eftir spaðaútspil er eina hættan sú að gefa tvo slagi á tromp. Það er vandalaust að ráða við trompfjórlitinn í austur, en við spilaborðið gætu menn „gleymt" að gera ráð fyrir fjórlitunum í vestur og tek- ið strax á hjartakóng: Vestur A 10642 ¥ D1076 ♦ 963 *102 Norður ♦ 873 V K3 ♦ Á754 + G764 Austur + KG95 ¥ — ♦ DG102 * D9853 Suður + ÁD ¥ ÁG98542 ♦ K8 *ÁK Fyrirframlíkur á því að vestur sé með öll trompin eru ekki nema 5%, en eftir þögn AV í sögnum er stunguhætta hverfandi og rétt að gera ráðstafanir gegn þessari legu. Það er gert með því að spila út millispili að heiman (til dæmis áttunni) og láta hana svífa yfir ef vestur fylgir með smáspili. (b)Eftir útspil í laufi er þessi öryggisspilamennska ekki jafn freistandi. Einn möguleiki er að nota inn- komuna á tígulás strax til að svína spaðadrottningu. Ef hún heldur er hægt að spila trompinu af öryggi. En sennilega er önnur leið betri, þótt hún leiði ekki til vinnings hér. Þá tekur sagnhafi strax ÁK í laufi, síðan ás og kóng í hjarta og trompar lauf. Tilgangurinn er að reyna að fella lauf- drottninguna, svo ekki þurfi að svína í spaðanum. Ást er... 9-23 ... rétt efnasam- setning. TM Hofl U S P*t Ofl — all nghts reaorvod (o) 1998 Los Angeles Times Syndicate Arnað heilla QAÁRA afmæli - GULLBRÚÐKAUP. Á morgun, laugar- yUdaginn 29. ágúst, eiga Guðmundur og Fríða Norðdahl gullbrúðkaup, jafnframt verður Fríða níræð þann sama dag. Þau dvelja bæði á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Þau hjón- in bjóða í kaffi í Sunnuhlíð kl. 15-17 á afmælisdaginn. fyrvÁRA afmæli. í dag, föstudaginn 28. ágúst, verður sjö- I Utug Klara Kristjánsdóttir, Miðvangi 16, Hafnarfirði. Eiginmaður hennar Páll Þorkelsson varð sjötugur 10. apríl síðastliðinn. Af því tilefni bjóða börn þeirra til kaffisamsætis í Kiwanishúsinu Engjateig 11, Reykjavík sunnudaginn 30. ágúst kl. 15. r»/AÁRA afmæli. í dag, OUfóstudaginn 28. ágúst, verður sextugur Aðalgeir Gísli Finnsson, húsasmíða- meistari, Fjallalind 10, Kópavogi. Eiginkona hans er Lilja Margrét Karles- dóttir. Aðalgeir er að heim- an í dag. /»/\ÁRA afmæli. Þann OU30. júlí síðastliðinn varð Einar Fr. Malmquist sextugur. Hann tekur á móti gestum í Húsi aldr- aðra, Lundargötu 7, Akur- eyri, á morgun laugardag- inn 29. ágúst, milli kl. 16 og 19. £* /\ÁRA afmæli. Á morg- Ol/un, laugardaginn 29. ágúst, verður sextugur Agnar Þór Aðalsteinsson, bifreiðastjóri, Sléttalirauni 15, Hafnarfírði. Hann tek- ur á móti gestum í dag, fóstudaginn 28. ágúst, í Vík- ingasal Hótel Loftleiða, á milli kl. 17-20. p'/AÁRA afmæli. í dag, OUföstudaginn 28. ágúst, er fimmtug Erla Guðrún Hafsteinsdóttir, Heiðvangi 21, Hellu. Eiginmaður hennar er Garðar Jóhanns- son. Þau hjónin og börn þeirra taka á móti gestum í Hellubíó á afinælisdaginn eftir kl. 20.30. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættannót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrii-vara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynning- um og/cða nafn ábyrgð- armanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, Sent í bréfsíma 569-1329, sent á netfangið ritstj (ffimbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Rcykjavík. STJÖRNUSPÁ eftir Franccs llrakc MEYJA Afmælisbarn dagsins: Þú ert fjölhæfur og skapandi einstaklingw en átt erfítt með að náigast aðra. Þú ert fuligagnrýninn á sjálfan þig. Hrútur (21. mars -19. apríl) Á vissum augnablikum getur verið rétt að aðhafast ekkert því ef reynt er að hreyfa mál- um þá rekur allt í strand. Sýndu þolinmæði. Naut (20. apríl - 20. maí) e* Stattu á rétti þínum þegar að honum er sótt. Þar er aðeins um öfund annarra að ræða og þetta líður hjá ef þú sýnir festu. Tvíburar t ^ (21. maí - 20. júní) M Ef þú gengur fram af sjálfum þér mun líkami þinn mót- mæla á einn eða annan hátt. Það er óþarfi að fyrirgera heilsu sinni. Krabbi ^ (21. júní - 22. júlí) ^'tflte Það er engin ástæða fyrir þig til þess að bera ábyrgð á öll- um sem í kringum þig eru. Leyfðu því öðrum að njóta sín og sinnt þú þínu. LJón ^ (23. júlí - 22. ágúst) iW Þér finnst aðrir vilja ráðskast um of með þín mál. Veittu mótspyrnu og varastu tungulipurt fólk sem ekki ber hag þinn fyrir brjósti. Meyja (23. ágúst - 22. september) <Dii Forvitni þín leiðir þig á ókunnar slóðir þar sem óvænt verkefni bíða þín. Leyfðu sjálfstraustinu að njóta sín. 'tCTX (23. sept. - 22. október) <4 Það er oft betra að geyma hlutina hjá sér um stund heldur en að deila þeim strax með öðrum. Vertu þvi varkár í umgengni þinni við aðra. porðdreki 3. okt. - 21. nóvember) að getur reynst heilladrjúgt 5 eiga trúnaðarvin. Mundu imt að gera ekki meiri kröf- r til annarra en sjálfs þín. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) SiQ Það er eitt og annað sem þú þarft að velta fyrir þér og hugsa til enda. Taktu þér tíma því að flas er ekki til fagnaðar. Steingeit (22. des. -19. janúar) Þér finnst þú eiga erfitt upp- dráttar nú um stundir en líttu á björtu hliðarnar og þá mun koma í ljós að þú stend- ur vel að vígi. Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) Cíib Það er ekki gott að láta til- finningarnar hlaupa með sig í gönur. Veltu frekar vanda- málunum fyrir þér og flýttu þér hægt í leit að lausn þein-a. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þér er það óvænt ánægja hvað þú uppskerð fljótt ár- angur erfiðis þíns. Njóttu hans því þú átt allt gott skil- ið. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Innilegt þakklœti til barna, tengdabarna og barnabarna, allra vina og kunningja, sem glöddu mig á áttrœðisafmœlinu. Guð blessi ykkur öll. Heiðbjört Halldórsdóttir, Blönduósi. f[ HAFNARFJÖRÐUR Breytt landnotkun aðalskipulags að Hringbraut 4 í samræmi við gr. 18 og 25 í skipulagslögum nr. 13/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á landnotkun aðalskipulags á lóðinni Hringbraut 4, verslunarlandnotkun breytist í íbúðarsvæði. Á Hringbraut 4, þar sem er gamalt verslunarhúsnæði, komi fjölbýli með allt að 10 íbúðum. Tillagan er breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 1995-2015, sem staðfest var af umhverfisráðherra 23. desember 1997. Tillaga þessi var samþykkt af bæjarráði Hafnarfjarðar þann 20. ágúst og liggur hún frammi í afgreiðslu framkvæmda- og tæknisviðs að Strandgötu 6, þriðju hæð, frá 28. áaúst til 25. seotember 1998. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til bæjarstjórans í Hafnarfirði fyrir 9. október 1998. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkir henni. Sérstakur kynningarfundur verður tilkynntur á auglýsingatímabilinu. 21. ágúst 1998. Bæjarskipulag Hafnarfjarðar. NYJAR VORUR ■ CtlOISf B-YOUNG* & Cinde^ella Frábært úrval af buxum Ný sending- af kápum og pelsum Laiisavegi 83 • Sími 362 3244
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.