Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 MORGUNB LAÐIÐ LISTIR SIGURSVEINN Magnússon og Sigrún Valgerður Gestsdóttir. Frá íslandi til Aserbaídsjan TÓNLISTARFÉLAG Hveragerðis heldur ljóðatónleika undir yfir- skriftinni „frá Islandi til Azerbaij- an“, laugardaginn 29. ágúst í Hveragerðiskirkju kl. 16. Einsöngvari á tónleikunum er Sigrún Valgerður Gestsdóttir og pí- anóleikari Sigursveinn Magnússon, en auk þess munu dætur þeirra Diljá og Ólöf leika með á fiðlu og selló í hluta af efnisskránni. Á tónleikunum verða sönglög eft- ir Hjálmar H. Ragnarsson, Ama Thorsteinsson, Tryggva Baldvins- son, Jón Þórarinsson, Jórunni Við- ar, Carl Nielsen, Ingunni Bjama- dóttur, Sigvalda Kaldalóns, Gi- acomo Puccini og Luciano Berio. Tónlistarfélag Hveragerðis festi nýlega kaup á hljóðfæri. Tónleik- arnir eru framlag flytjenda til að styðja þetta menningarátak. Allur aðgangseyrir tónleikanna rennur því óskiptur í flygilsjóð. Skúli, Hilmar og Stilluppsteypan á tónleikum SMEKKLEYSA hyggst á þessu ári gefa út fimm plötur með nýrri fram- sækinni spunatengdri tónlist. Þessi útgáfuröð er nefnist „Frjálst er i fjallasal" hófst á útgáfu geisladisks Skúla Sverrissonar og Hilmars Jenssonar „Kjár“. Þeir félagar halda tónleika sunnudaginn 30. ágúst í Tjamarbíói og einnig leikur þar hljómsveitin „Stilluppsteypa" Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30 og aðgangseyrir er 1000 kr. í kynningu segir m.a.: „Skúli _er einn þekktasti hljóðfæraleikari Is- lendinga í jazz og spunatengdri tón- list og hefur leikið um víða veröld m.a. með Allan Holdsworth, Arto Lindsey o.fl. Nýverið gaf ástralska plötufyrirtækið Extreme út fyrstu sólóplötu hans „Seremonie" sem hlotið hefur mikið lof gagnrýnenda. Hjá því fyrirtæki hefur hann leikið á þremur öðmm plötum með hljóm- sveitinni Mo Boma. Skúli starfar og býr í New York þar sem hann vinn- ur með ýmsum listamönnum og nú seinast lék hann á sólóplötu Chris Speed, plötu hljómsveitarinnar Pachora auk þess sem hann hefur nýlokið við gerð annarrar sólóplötu sinnar. Hilmar hefur flutt jazz og spunatónlist á íslandi sem og er- lendis og hefur starfað m.a. með Tim Berne, Leo Smith, Greg Bendi- an, Jim Black og að sjálfsögðu flest- um íslenskum jazzleikumm. 1995 gaf Jazzís út fyrstu sólóplötu hanns „Dofinn" sem Skúli meðal annarra lék á. Þó svo að þeir félagar hafi starfað saman um árabil er þetta einungis í þriðja skiptið sem þeir koma fram saman í dúó-formi. í Stilluppsteypu em; Heimir Björgúlfsson, Sigtryggur og Helgi Þórssynir, sem búsettir era í Hollandi. Þeir hafa spilað viða um heim og hlotið mikið lof fyrir. M.a. hituðu þeir upp fyrir Sonic Youth á tónleikum í Þýskalandi fyrr í sum- ar.“ Nýverið gaf hljómsveitin út sína tíundu plötu. Nýjar bækur • ÞRJÁR bækur ætlaðar erlend- um ferðamönnum sem koma til ís- lands eru komnar út; L’Islandais dans vos bagages - Notions élé- mentaires, Islándisch im Gepáck - Islándischer Sprachgnide og Porta- ble Icelandic - Icelandic phrase book. I bókunum em orð, orðasam- bönd og einfaldar setningar sem lík- legt er að ferðalangurinn þurfi að grípa til á ferðalaginu. Hægt er m.a. að fletta upp köflum um innkaup, ferðamáta, hótel, pósthús, skemmt- anir, vegaskilti, veitingahús og læknisþjónustu. Einnig em upplýs- ingar um afgreiðslutíma verslana og gagnleg heimilisfóng. Lýst er stuttlega helstu fram- burðarreglum íslenskunnar og farið nokkram orðum um íslenska mál- fræði. ítarlegt efnisyfirlit á hverju tungumáli er innan á kápubroti. I hverri bók er íslensk atriðisorða- skrá. Mál og menning gefur út. Bæk- urnar em prentaðar í Prentsmiðj- unni Odda hf. Auglýsingastofan XYZETA hannaði bækumar og gerði kápur. L’Islandais dans vos bagages - Notions élémentaires er 63 bls., Islandisch im Gepáek - Islándischer Sprachguide og Porta- ble Icelandic - Icelandic phrase book 61 bls. Bækurnar kosta 790 kr. Nýr söng- og leiklistarskóli TEKIÐ hefur til starfa nýr söng- og ieiklistarskóli í Reykjavík, sem hlotið hefur nafnið Sönglist. Skólinn er í eigu Ragnheiðar Hall og Erlu Ruthar Harðardóttur. Ragnheiður stundaði nám við Söngskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan sem söngkennari árið 1996. Hún kenndi hjá Söngsmiðjunni eftir út- skrift auk þess sem hún gegndi stöðu skólastjóra þar, síðasta kennsluár. Erla Ruth útskrifaðist sem leikkona frá The Guildford School of Acting and Dance árið 1987. Hún hefur unnið hjá Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og Leikfélagi Akureyrar ásamt ýms- um fijálsum leikhópum auk þess sem hún hefur kennt leiklist bæði í grunn- og framhaldsskólum og núna síðast hjá Söngsmiðjunni. f kynningu segir m.a., að Sönglist bjóði upp á ýmsa valkosti varðandi námskeið. Fyrst ber að nefna námskeið þar sem nemendur læra að syngja í hljóðnema. Lágmarksaldur er 11 ár. Ald- ursskipting er: 11-13 ára, 14-16, 17-19 og svo 20 ára og eldri. Einnig er um hópnámskeið að ræða og þá boðið upp á byrjendanámskeið og fram- haldsnámskeið. Áhersla er lögð á söngtækni, önd- un, tónfræði og allt það sem auðveldar fólki að ná RAGNHEIÐUR Hall og Erla Ruth Harðardóttir. betra valdi á söngnum. Loks er boðið upp á einka- tíma í söng ásamt undirleik. Sönglist er til húsa á Engjateigi 11. Kennsla hefst 1. september og er innritun þegar hafln. Nýjar bækur • SMÁSAGNASAFN fyrir grunn- skóla, Áfram Óli! í safninu eru fimmtán smásögur úr smásagna- samkeppni Samtaka móðurmáls- kennara sem efnt var til vorið 1997 1 tilefni af tuttugu ára afmæli sam- takanna. Fyrstu verðlaun hlaut Brynhildur Þórarinsdóttir, önnur verðlaun Emilía Baldursdóttir og þriðju verðlaun Úlfar Harri Elías- son. Aðrir höfundar sem eiga sögu í safninu em: Guðríður Lillý Guð- björnsdóttir, Elías Snæland Jóns- son, Kristín Heiða Kristinsdóttir, Jón Dan, Guðrún Geirsdóttir, Eðvarð T. Jónsson, Guðrún Rr. Magnúsdóttir, Guðjón Sveinsson, Eysteinn Björnsson, Fríða B. And- ersen og Hermann Stefánsson. „Sögurnar em fjölbreytileg lesn- ing fyrir 6.-10. bekk grunnskólans. Þær era fyndnar, sorglegar, æsileg- ar og uppbyggilegar og eiga það sameiginlegt að bregða upp lifandi myndum úr heimi barna og ung- linga. Ein söguhetjan fer á grenja- veiðar, önnur er keppnismaður í tennis, sú þriðja ástfanginn strákur sem ekki getur stunið upp orði við hina heittelskuðu," segir í kynn- ingu. Mál og menning gefur út. Bókin er í kiljubroti, prentuð í Danmörku og er 196 bls. Kápu og myndskreyt- ingu gerði Kristín Ragna Gunnars- dóttir. Verð 1.499 kr. • SMÁSAGNASAFNIÐ Hundamir í Þessalóníku eftir norska rithöfundinn Kjell Askildsen kom út á síðasta ári. Þetta eru sex smásögur. I kynningu segir: „Titill bókarinnar er dreginn af samnefndri smásögu sem fjallar um tvo hunda í borginni Þessalóníku á Grikklandi sem festast saman þegar þeir era að eðla sig og geta ekki losnað í sundur fyn- en allt er yfírstaðið. Þannig tákngerir höfundurinn ákveðna tegund sambanda milli fólks sem hangir saman án þess að vita almennilega hvers vegna ...“ Kjell Askildsen (f. 1929) hóf ferilinn árið 1953 með bókinni Heretter folger jeg deg helt hjem og hefur síðan verið afkastamikill höfundur og margverðlaunaður. Hann hlaut Bókmenntaverðlaun norskra bókmenntagagnrýnenda 1983 og 1992 og Ríkismálsverðlaunin norsku 1987. Einar Kárason rihöfundur þýðir Hundana í Þessalónikíu sem er önnur bók Askildsens sem kemur út á íslensku, því árið 1995 kom bók hans Síðustu minnisblöð Tómasar F. fyrir almennings sjónir í þýðingu Hannesar Sigfússonar skálds. Mál og menning gefur út. Bókin er gefin út í ritröðinni Syrtlur og kostar 1990 kr. Kápumynd er eftir Robert Guillemette. Laszlo Kreizler og félagar snúa aftur ERLENDAIl BÆKUR Spennu.saga „THE ANGEL OF DARKNESS" eftir Caleb Carr. Ballantine Books 1998. 756 síður. BANDARÍSKI rithöfundurinn Caleb Carr skrifaði fyrir nokkram árum eina athyglisverðustu og safa- ríkustu sakamálasögu sem gefin hefur verið út í langan tíma og kall- aði hana „The Alienist". Hún sagði af hópi manna í New York um síð- ustu aldamót undir stjórn sérvitr- ingsins og geðlæknisins Laszlo Kreizlers, sem eltist við einstaklega illskeyttan fjöldamorðingja, og lét Carr líta svo út að geðlæknirinn notfærði sér í fyrsta skipti ýmsar aðferðir sem í dag era í fullu gildi við rannsóknir á slíkum morðingj- um. Carr lýsti borgarlífinu í New York við síðustu aldamót ákaflega vel og skreytti spennufrásögnina með raunveralegum persónum, m.a. Teddy Roosevelt, sem var lögreglu- stjóri um stutt skeið í New York undir aldamótin. Útkoman var hinn besti reyfari. Carr hefur nú endurtekið leikinn með sögunni „The Angel of Dark- ness“. Að vísu kemur hann ekki jafnmikið á óvart og með fyrstu bókinni þvi hann fer talsvert inná sömu svið en hann á ýmislegt í pokahorninu til þess að gleðja með lesendur og sagan hans er firna- skemmtileg og hrollvekjandi í leið- inni. Hún er í senn eltingarleikur við tímann og spennandi réttar- drama, oft skopleg saga um hinn óvenjulega félagsskap sem þátt tek- ur 1 eltingarleiknum, sagnfræðileg- ur sálfræðitryllir og upplýsandi út- tekt á þeirri gerð afbrotakvenna sem hún lýsir; þessi bók inniheldur í rauninni allt það sem fullnægt getur þörfum þeirra sem gera miklar kröfur til spennusagna. Allar sömu aðalpersónurnar og vora í „The Aiienist" snúa aftur í „The Angel of Darkness". Laszlo Kreizler er sem fyrr þungamiðjan í hópnum, einskonar sambland af Sherlock Holmes og Sigmund Freud, dularfull og mögnuð persóna sem vill skilja og rannsaka og brjóta til mergjar óeðlið á bak við þá glæpi sem hann rannsakar. Sögumaður- inn er götustrákurinn Steve Tagg- ert, sem vinnur á heimili Kreizlers ásamt einkaþjóni hans, hinum trygglynda svertingja Cyrus. Þá er hin snaggaralega Sara Hamilton sem fyrr í þessum hópi, einnig fylli- byttan Moore, æskuvinur Kreizlers og blaðamaður við The New York Times. Hópinn fylla síðan rann- sóknarlögreglumennirnir^ og bræð- urnir Marcus og Lucius Isakssynir, sem hafa einstaklega skarpa athygl- isgáfu og era óhræddir við að reyna nýjar leiðir í glæparannsóknum. Libby Hatch Málið sem þeir hafa með höndum er hið skelfilegasta. Kornabarni er rænt í New York og móðirin leitar á náðir Kreizlers, sem hefur brátt upp á barnaræningjanum. Það er hjúkrunarkona, Libby Hatch, við eitt af sjúkrahúsunum í New York og í ljós kemur að fjöldi ungbarna á sjúkrahúsinu hefur látið lífið á und- anförnum misserum á meðan þau vora í umsjá hennar. Af ástæðum sem alltof flókið yrði að rekja hér getur Kreizler og hans fólk ekki snert við henni fyrr en hann hefur byggt upp sakamál gegn henni og í þeim tilgangi ferðast hann úr borg- inni á gamlar heimaslóðir konunnar og kemst að ýmsu miður fallegu úr fortíð hennar. Carr hefur kynnt sér sögusviðið og sögutímann til hins ýtrasta og notfærir sér hvoru tveggja listilega sem bakgrann sögunnar. Að vísu er bókin ríflega 750 blaðsíður að lengd og stundum er ekki laust við að teygist á frásögninni þegar mætti herða á henni í staðinn. En smáat- riðalýsingar Carr þjóna tilgangi því honum er sérstaklega í mun að skapa trúverðugan heim og gefa næsta ótrúlegi'i fléttunni raunveru- leikablæ. Hann lýsir af jafnmiklu öryggi höllu Vanderbilts í New York og aðstæðum öreiganna við höfnina og hverju öðru sem verður á vegi Kreizlers í leit hans að svari við þessari eilífðarspurningu: Hvað er það nákvæmlega sem gerir menn að glæpamönnum og sér- staklega jafn svívirðilegum og Libby Hatch? Sagan gerist þegar glæparann- sóknir eru á mjög frumstæðu stigi miðað við það sem nú þekkist og Carr hefur sérstakt dálæti á að kynna nýjar aðferðir til sögu sem í dag eru alkunnar. Carr kemur því svo fyrir að einn frægasti lögfræð- ingur Bandaríkjanna á öldinni, Cl- arence Darrow, þekktastur fyrir að vinna hin svokölluðu Aparéttarhöld, verður verjandi Libbyar, þá ungur lögfræðingur frá Chicago. Carr ger- ir hann að mjög litríkum karakter, sem verður einskonar persónugerv- ingur nýrra starfsaðferða í réttar- salnum þar sem aðalmálið er að draga úr trúverðugleika vitnsins. í allt er hér hin besta afþreying á ferðinni sem lesendur fyrri bókar- innar ættu ekki að láta framhjá sér fara. Öðram yrði akkur í að kynnast sögum Carrs. Arnaldur Indriðason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.