Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 17
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
BJARNI Stefánsson, formaður SIL, með myndarlegan minkayrðling.
Kína er einnig stórkaupandi
loðskinna, þai- væru efnahagserfið-
leikar líka og í öðrum Asíulöndum
væri ástandið einnig ótryggt. Hvað
varðar refaræktina sagði Arvid að
hún myndi sennilega ganga betur.
Bæði væri ekki eins mikið framboð
af refaskinnum og minkaskinnum
og refaskinnin væru notuð meira í
eftirlíkingar, þau væru oft klippt
og lituð.
Pað kom fram á fundinum að
loðdýraræktendur óska eindregið
eftir að sitja við sama borð og aðr-
ar búgreinar hvað leiðbeininga-
þjónustu varðar.
Samtök sveitarfélaga í Norðurlandskjördæmi vestra
Möguleikar á fjarkennslu
á háskólastigi kannaðir
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
FULLTRÚAR á þingi Sambands sveitarfélaga í
Norðurlandskjördæmi vestra á Blönduósi.
Blönduósi - Samtök sveitarfélaga í
Norðurlandskjördæmi vestra héldu
sitt sjötta ársþing á Blönduósi um
síðustu helgi. Atvinnuþróunarmál,
fjarkennsla á háskólastigi, yfirtaka á
málefnum fatlaðra og breytt kjör-
dæmaskipan voru meðal helstu mála
ársþingsins.
Ágúst Þór Bragason, forseti bæj-
arstjórnar á Blönduósi, var kjörinn
formaður samtakanna til næstu
tveggja ára og tekur hann við því
embætti af Birni Sigurbjörnssyni á
Sauðárkróki.
Framsöguerindi um málefni fatl-
aðra, byggðaþróun og breytingar á
kjördæmaskipan voru flutt og auk
þess ávörpuðu Páll Pétursson félags-
málaráðherra og Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, þingið. Meðal
helstu ályktana þings SSNV voru
þær að beina til stjórnar SSNV að
kanna nú þegar möguleika á því að
hefja fjarkennslu á háskólastigi í
kjördæminu í samstarfi við háskóla í
landinu.
Einnig fól þingið stjórn samtak-
anna að vinna að samningi við félags-
málaráðherra um yfirtöku á málefn-
um fatlaðra og tryggja jafnframt
nægilegt fjármagn til verkefnisins.
Einnig var samþykkt að boða til
aukaþings innan tveggja mánaða þar
sem tekin yrði frekari afstaða til
málsins. Þing SSNV ályktaði einnig
um það að kjördæmið verði ekki
klofið í tvennt þegar kemur að því að
ákveða stærð kjördæma og beindi
þessari eindregnu ósk til kjördæma-
og kosningalaganefndar.
'Á'
Btýantar
Boxy strokleður
Afgreiðslutími tii
2. september:
Mán.-fös: 09-20
Laugardaga: 10-18
Sunnudaga: 12-18
Komdu með gamla nagaða stubblnn binn og
bú færð nýjan skrúfblýant i staðfnn! tBnn á manni
Foröist troónin.g og kaupið
skólavöruynar um helgina.
14, ílmLJi a n ''Hm ( U b \ 1 \
1 u 11