Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 47 ( ( i ( 1 i i í i 3 i i i i ( 1 i ( 1 i i ( i 3 i í í SIG URBJORG SIG URJÓNSDÓTTIR + Sigurbjörg Sigurjónsdóttir fæddist á Sandi í Aðal- dal 19. febrúar 1904. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Húsavík 14. ágúst síðastliðinn og fór út- för hennar fram frá Einars- staðakirkju í Reykjadal 22. ágúst. Elsku Sigurbjörg frænka. Þú ert þá farin til fjarlægra landa og von- andi ertu sæl á þeim leiðarlokum. Eg vil þakka þér fyrir frænka mín að ég fékk að dvelja á Litlu-Laug- um í fjögur sumur eftir að ég var níu ára. Það var gaman að vera þar við heyskapinn og reka kýr. Síðar var alltaf upplifun að koma til Litlu-Lauga og í stofuna sem var svo hefðbundin þrátt fyrir að ein- hverjar breytingar hafi þar orðið með árunum. Þar er til dæmis enn bekkurinn sem pabbi smíðaði á sín- um tíma. Laugafell er nánast á sama bæjarstæðinu og á milli bæj- anna er nú trjágarður, sem var mikil viðbót við gamla garðinn á Litlu-Laugum. Eg man það enn hve stórhuga ákvörðun mér þótti það á þeim árum, þegar þið systk- inin þrjú og Dagbjört kona Áskels byrjuðuð að girða af svæðið á milli Litlu-Lauga og Laugafells og setja niður fyrstu plöntumar þar, en nú eruð þið öll fallin frá. Þegar ég dvaldi á Litlu-Laugum var hægt að lesa úrval barnabóka þar. Var það vegna þess að barna- skóli var þar á veturna og var Dag- ur skólastjóri, en þú sást um hús- haldið. Hjá þér kynntist maður mikilli reglu þar sem matmálstímar voru á ákveðnum tímum dags og matvendni var ekki vel liðin, enda varst þú mjög góð matargerðar- kona og hinn gamli íslenski matur var mjög í hávegum hafður hjá þér. Þar kynntist ég líklega fýrst ábrystum, þá notaðist þú mikið við ber, rabarbara og fjallagrös. Mat- argerð þín mótaðist einnig af kynn- um þínum af Englandi, þangað sem okkur þótti þú á þeim tíma fara mjög oft. Eftir eina Englandsferðina bauðstþú áströlskum nema við Há- skóla Islands til sumardvalar og man ég vel eftir samræðum ykkar Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingui’ fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.- is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem við- hengi. Auðveldust er móttaka svokall- aðra ASCII ski’áa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-texta- skrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar grein- ar um sama einstakling tak- markast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Til- vitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnamöfn sín en ekki stuttnefni undii’ greinunum. og Dags á ensku. Naust þú þeirra samræðna mjög mikið því þannig áttir þú kost á að halda enskukunn- áttu þinni við. Þar sem hann hafði þá þegar náð mjög góðu valdi á ís- lensku gat ég einnig talað við hann á því máli. Var hann gjarn á að spyrja um tilurð orða og málshátta og annars sem sögu þjóðarinnar til- heyrði, kom þá í hlut heimilisfólks- ins að skýra það út. Kynntist ég þá vel hvað þú og Dagur voruð vel að ykkur í íslensku og bókmenntum þjóðarinnar. Fyrir einu ári heimsótti ég um- ræddan Ástralíubúa, John Stanley Martin, sem nú hefur látið af störf- um sem prófessor við háskóla í Melbourne. Vinnur hann enn að fræðistörfum og hefur haft mikið samband við íslendinga þar síðan þeir fóru að koma þangað. Gaf ég honum útskorna gestabók með mynd af Litlu-Laugum með burst- unum sínum þrem, auk þess sem ég gaf honum loftmynd af Laug- um. I annarri heimsókn sinni til Litlu-Lauga var hann undrandi á þeim breytingum sem orðið hefðu á Laugum, en hann var þó ennþá meira undrandi á því sem gerst hefði þar síðan. Þar sem hann mundi eftir því þegar þið byrjuðuð að gróðursetja tré í nýja garðin- um, þá veitti hann trjáræktinni þar sérstaka athygli, en plönturn- ar voru orðnar að stórum trjám og bæjarstæðið orðið hið glæsileg- asta. Það sem honum þótti helst vera óbreytt voru gömlu skólahús- in í burstastílnum, en þau voru byggð í landi foreldra þinna og fósturforeldra fóður míns. John fannst hann aldrei geta fullþakkað þér dvöl sína á Litlu-Laugum og í símbréfi frá honum fer hann um þig viðurkenningarorðum og er þér mjög þakklátur vegna kynna sinna af þér og fyrir allar þínar móttökur. Geri ég mér grein fyrir því nú að sá andi sem var ríkjandi á Litlu- Laugum í þá daga sem ég dvaldi þar hefur náð að móta mig og bý ég að því enn í dag. Auk heimsókna minna í Litlu-Laugar síðan ég var þar í sveit, en þær voru alltof fáar, þá hefur þú heimsótt pabba og mömmu, systkini mín og fjölskyld- ur okkar hér fýrir sunnan. Höfðum við öll mikla ánægju af þeim heim- sóknum og eftir fráfall pabba hafði mamma einnig mjög gaman af heimsókn þinni og þá heimsóttirðu svo marga ættingja þína hér. Þá hafði ég og fjölskylda mín mjög gaman af ferðalagi okkar með þér í Mývatnssveit um árið og þá var ekki þreytu eða elli á þér að sjá þrátt fyrir háan aldur. Fór ekki á milli mála að þú kunnir að meta þetta góða land þegai’ náttúran skartar því fegursta sem hún á og þar ríkir eintóm blíða og kyrrð. Þér hlotnaðist sú gæfa að kynn- ast öðru þjóðfélagi þegar þú varst enn ung og það var ekki algengt að fólk færi til útlanda. Það hefur náð að móta þig og jafnframt kennt þér að meta heimahagana, en til þeirra hefur þú einnig borið með þér blæ- brigði þeirrar menningar sem þú kynntist í Englandi á árum áður. Við fjölskyldan óskum þess að friðsæld megi fylgja þér og blessuð sé minning þín. Þinn frændi Om Gislason. HEIDIM. HALLDÓRSSON + Heidi M. Hall- dórsson fæddist 5. apríl 1980. Hún lést af slysförum 9. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Þórhallur Hall- dórsson, f. 27.10. 1952 og Sue Snyder Halldórsson, f. 12.3. 1955. títför Heidi fór fram í Fort Wayne í Bandaríkjunum 13. ágúst. Lífið er stutt, já stundum sorglega stutt, en það get- ur einnig verið Ijúft. Það er eins og farfugl- inn góði, sem tyllir sín- um tám á landið okkar en er hér aðeins skamma stund. Svona kom elsku litla ljúfan okkar til íslands. Síðast kom hún til að vera í stóra afmælinu hennar ömmu sinnar, minnar góðu vinkonu. Ég bið góðan guð að geyma þig, elsku Heidi, og styrkja for- eldra þína og ömmur. Andrea Oddsteinsdóttir. ÞORÐURINGVI SIGURÐSSON + Þórður Ingvi Sigurðsson fæddist á Borgarhóli á Seyðisfirði 29. janúar 1930. Hann lést á heimili sínu 4. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 11. ágúst. Hjartkær og góður vinur vor er brott kallaður. Slíkt kom reyndai’ ekki á óvart, svo mjög sem mis- kunnarlaus barátta við marga lífs- hættulega sjúkdóma varð hans hlutskipti. Af mikilli karlmennsku barðist hann, en hver sigrar kallinn með ljáinn? Þórður var bráðvel gefinn og staðföst trú á almættið var honum styrkur í þessari orrustu. Biblían var hans bók og ræddum við oftsinnis um trúmál en í ein- manaleik sínum ræddi hann títt við mig símleiðis og ekki voru skop- skynið og gáskinn horfinn, þrátt fyrir allt. Rafn, sambýlismaður minn og Þórður voru nánir vinir til margra ára. Rafn andaðist fyrir nokkrum árum. Eftir fráfall Rabba urðu hin platónsku vináttubönd meiri okkar í milli. Skömmu fyrir ferð mína út á land, sem tók 12 daga, hafði Þórður tal af mér og vildi keyra mig að leiði vinar síns Rabba. Hann hafði þá orð á því, að við hlið Rabba vildi hann gjama hvíla, þegar sú stund kæmi. Ekki rættist sú ósk hans. Síðustu ár átti Þórður því láni að fagna að njóta umhyggju og að- stoðar æskuvinkonu sinnar og sambýliskonu um langt skeið. Það má segja með sanni að óeigingjörn umhyggja Guðbjargar Eiríksdótt- ur (Löllu) hafi reynst Þórði ómet- anleg. Ég kveð þig, Tóti minn, með ljóðlínum úr uppáhaldslagi okkar þriggja, Rabba, þínu og mínu, Amazing Grace: Eg trúi á ljós sem lýsir mér álífogkærleika, á sigm’ þess sem sannast er og sættir mannanna. Innilegai- kveðjur til ykkar allra. Kristín Þorleifsdóttir. LEIFUR SIG URÐSSON + Leifur Sigurðs- son rafvirkja- meistari fæddist á Akranesi 22. júlí 1929. Hann lést á Landspítalanum 19. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaða- kirkju 27. ágúst. Með þessum fáu orðum vil ég kveðja Leif Sigurðsson, raf- virkjameistara, sem ég kynntist fyrst í námi mínu og síðar sem samstarfsmaður við Iðnskóla Reykjavíkur árin 1995-1997. - Leifur vann alla sína ævi við raf- virkjun og hafði því víðtæka þekk- ingu og yfirsýn á þeim efnum. Leið- sögn hans og áherslur um raf- virkjastarfið, miðuðust ekki endi- lega við að kenna fákunnandi sveini það nýjasta og mest spennandi varðandi tækni og framfarir innan greinarinnar, heldur hitt að temja sér vandvirkni, snyrtimennsku og ekki hvað síst varfærni gagnvart þeim hættum sem óhjákvæmilega geta íylgt þessu starfi. Hann var óspar á að minna mann á nauðsyn þess að fara gætilega, sérstaklega við vinnu í straummiklum töflum þar sem oft má litlu muna að illa geti farið. En það var fleira en góð tilsögn sem einkenndi þennan ágæta meistara. Leifur var nefnilega með afbrigðum skemmtilegur og glað- lyndur maður sem kunni vel að koma fyrir sig orði. Á kaffistofunni var það alltaf hann sem hélt uppi mesta gríninu. Þar tókst honum einnig manna best að svara fyrir sig og setja hlutina í spaugilegt samhengi. Hans hnyttnu athuga- semdir báru vott um góðan húmor en í þeim efnum bar Leifur tví- mælalaust höfuð og herðar yfir aðra samstarfsmenn! Leifur hafði hin síðari ár þurft að glíma við veikindi sem háðu honum í starfi en fyrir rúmu ári hafði hann loks losnað undan þeim eftir að hafa gengist undir aðgerð sem heppnaðist vel. En þá tóku sig upp önnur og alvarlegri veikindi sem hann náði því miður ekki að yfir- stíga. Þessir ei’fiðleikar gátu þó ekki náð að yfirbuga þá miÚu bjartsýni og léttu lund sem voru hans aðalsmerki. Þegar ég hitti hann síðast nú í vor, var hann hinn hressasti og byrjaður að leggja drög að sínum árvissu ferðalögum í sumar- húsin þar sem hann kaus að eyða fríum sín- um ásamt fjölskyld- unni. Þeir voru fáir stað- irnir á landinu sem Leifur hafði ekki náð að heimsækja en einn þeirra var mín heima- byggð, Rauðisandur vestur á fjörðum. Þangað var hann stað- ráðinn í að komast hið fyrsta, helst strax í sumar og heilsa upp á mig í leiðinni. En nú hafa leiðir skyndilega skilið og Leifur er lagð- ur af stað í annað og lengra ferða- lag. Kynni okkar urðu því miður ekki löng í árum talið. En það voru sannarlega forréttindi að fá þó tækifæri til að starfa með þessum skemmtilega meistara og njóta hans vönduðu tilsagnar. Fyrir það er ég þakklátur og kveð vin minn Leif Sigurðsson með virðingu og söknuði. Eftirlifandi konu og börn- um votta ég mína dýpstu samúð. Sveinn E. Tryggvason. Við leiðarlok er kveðjustundin nístandi sár. Þannig er hún hjá öll- um sem þekktu Leif Sigurðsson, þótt sárust sé hún hjá Maríu, dætr- um, tengdasonum og barnabörnum. Leifur var mjög mikið fyrir sína fjölskyldu, hann vildi hafa hópinn sinn sem mest í kringum sig. Oft talaði hann um hve heppinn hann var þegar hann kynntist Maríu sinni. Þau voru sannanlega heppin að eiga hvort annað. María og Leif- ur byggðu sér sumarbústað í Vest- urhópinu, það var þeirra unaðsreit- ur. Við hjónin urðum þeirrar ánægju njótandi að dvelja þar oft með þeim og voru það sannkallaðar sælustundir sem aldrei gleymast og erum við innilega þakklát fyrir. En nú er Leifur fluttur í annan bústað þar sem birtan og kærleikurinn ráða ríkjum. Þar tekur hann á móti vinum og vandamönnum af sinni al- kunnu rausn þegar okkar tími kem- ur. Elsku María, við biðjum guð að vera með þér og fjölskyldu þinni. Við vitum að sólin á eftir ná að skína í gegnum það dimma ský sem nú grúfir yfir. Leifur, við kveðjum þig með söknuði. Oddný (Lóa) og Benedikt. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, JÓRUNN BACHMANN, Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, áður Egilsgötu 15, Borgarnesi, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju laugar- daginn 29. ágúst kl. 14.00. Sigríður Bachmann, Haukur Bachmann, Kristín Einarsdóttir, Guðmundur Bachmann, Gerða Arnleif Sigursteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Jarðarför ástkærrar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, HLÍFAR ÞÓRARINSDÓTTUR, Naustahlein 6, Garðabæ, fer fram frá Fossvogskirkju í dag, föstudaginn 28. ágúst, kl. 13.30. Þórarinn Ólafsson, Marta Bjarnadóttir, Geir Ólafsson, Ingibjörg Bjarnardóttir, Ragnar Ólafsson, Matta Rósa Rögnvaldsdóttir og fjölskyldur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.