Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 21 Rannsókn sprengitilræðanna 1 Kenya og Tansamu Tveir sakborningar til Bandaríkjanna Nairobi, New York. Reuters. ^ TVEIR sakborningar, grunaðir um aðild að sprengitilræðinu við bandaríska sendiráðið í Nairobi í Kenýa fyrr í þessum mánuði, höfðu í gær verið fluttir til Bandaríkj- anna og öðrum þeirra var birt ákæra alríkissaksóknara í New York. Flogið var með fyrri sakborning- inn, Mohamed Daoud Al-Owhali, sem einnig er kunnur undir nafn- inu Kahlid Salim Saleh Bin Ras- hed, frá Nairobi til New York í fyrrakvöld og honum birt ákæra í gær, þar sem hann er ásakaður um að hafa, ásamt öðrum, myrt af ráðnum hug þá 253, sem létu lífíð í tilræðinu, þar á meðal 12 Banda- íTkjamenn. Hann var ennfremur ákærður fyrir að taka þátt í skipulagningu tilræðisins sem hófst í marz. Til- ræðisdaginn, 7. ágúst, er hann sagður hafa kastað handsprengju að manni sem stóð vörð fyrir utan sendiráðið. Hinn sakbomingurinn, Mo- hammed Sadiq Odeh, var að sögn talsmanns alríkislögreglunnar fluttur til Bandaríkjanna í gær, þar sem hann verður einnig leiddur fyrir rétt. Odeh var handtekinn í Pakistan sama dag og tilræðið var framið. Hann var gómaður með falsað vegabréf á flugvellinum í Karachi en var svo framseldur til Kenýa. A blaðamannafundi sagði Janet Reno, dómsmálaráðherra Banda- ríkjanna, að handtaka Owhalis væri árangur af einni umfangs- mestu sakarannsókn sem Banda- ríkjamenn hafa staðið fyrir á er- lendri grundu. Hún upplýsti, að Owhali væri jemenskur ríkisborg- ari. Þjálfuðu Bandaríkjamenn menn Bin Ladens? Osama Bin Laden, auðkýfíngur- inn frá Saudi-Arabíu sem Banda- ríkjamenn hafa grunaðan um að standa að baki samtökum hryðju- verkamanna, þar á meðal þeim sem frömdu tilræðin í Kenýa og Tansaníu, sagði í viðtali, sém birt- ist í frönsku dagblaði í gær, að Bandaríkjamenn hefðu séð mönn- um sínum fyrir vopnum og þjálfað þá til að berjast í stríðinu í Afganistan gegn hersveitum Sovét- manna og þáverandi stjórnarher landsins. Þrír handteknir f S-Afríku Viðtalið tók France Soir við Bin Laden árið 1995, en frestaði birt: ingu þess að beiðni Bin Ladens. I því fullyrðir hann að bandarískir og pakistanskir liðsforingjar hafi þjálfað sjálfboðaliða sem gengu Bin Laden á hönd í bækistöðvum hans i Afganistan á níunda ára- tugnum. Reuters ÞESSI teikning var gerð af Mo- hamed Rashed Daoud Al- Owhali þegar honum var birt ákæra í New York í gær. Suður-afríska lögreglan upplýsti í gær, að hún hefði handtekið þrjá menn - einn karl og tvær konur - sem hugðust stíga um borð í flug- vél á flugvellinum í Höfðaborg og verið væri að yfirheyra þá í tengsl- um við sprenginguna í „Planet Hollywood“-veitingastaðnum í borginni á þriðjudag, sem kostaði einn mann lífið og slasaði 27. Reuters Kohl segist ætla að sitja út kjörtímabilið Berlín. Reuters. HELMUT Kohl, kanzlari Þýzka- lands, reyndi í gær að kveða nið- ur vangaveltur um að hann hygð- ist ekki sitja út allt næsta kjör- tímabil nái hann endurkjöri f þingkosningunum sem fram fara í Þýzkalandi eftir mánuð. Hér svar- ar hann spurningum fréttamanna í Berlín. Kohl vísaði því ákveðið á bug að hann hefði gert nokkurt sam- komulag um að víkja sæti á miðju kjörtímabilinu fyrir Wolfgang Schauble, þingflokksformanni Kristilegra demókrata (CDU), eins og dagblaðið Tagesspiegel, sem gefið er út í Berlín, hélt fram í gær. Samkvæmt frásögn blaðsins gerðu Kohl og Scháuble með sér samkomulag fyrir nokkrum vik- um um það hvenær leiðtogaskipt- in ættu að fara fram - að því gefnu að CDU héldi áfram um stjórnartaumana - og að innan flokksins væri nú verið að ræða hvort kunngera ætti þessi áform fyrir kosningarnar. „Það er ekkert samkomulag til, né neitt annað,“ Ijáði Kohl frétta- mönnum í Berlín, og endurtók að hann byði sig fram til að sitja heilt kjörtímabil til viðbótar. Hann sagðist alls ekki hafa í hyggju að ganga frá arftakamál- um sínum fyrir kosningarnar en sagðist geta hugsað sér að Schau- ble yrði kanzlaraefni CDU í kosn- ingunum 2002. Tagesspiegel hafði eftir ótil- greindum heimildarmönnum að Kohl hygðist sitja á kanzlarastóln- um meðan Þýzkaland gegnir for- mennsku í Evrópusambandinu á næsta ári og Scháuble tæki síðan við um aldamótin. Danska leyni- lögreglan und- ir smásjánni Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. „ÉG Á erfitt með að koma auga á að hér sé um eitthvert hneyksli að ræða,“ sagði Frank Poulsen fyrr- um dómari í viðtali við danska út- varpið í gær, er hann var spurður álits á nýlegum skjölum, sem sýna að í sex ár hélt danska leynilög- reglan, „Politiets efterretnings- tjeneste" eða PET, áfram að fylgj- ast með ferðum vinstrimanna eft- ir að hægristjórn lýsti því yfir 1968 að bannað væri að láta fylgj- ast með dönskum borgurum á grundvelli skoðana þeirra. Þegar Frank Jensen dómsmálaráðherra og jafnaðarmaður lýsti áliti sínu á þessum skjölum, sem hann lagði sjálfur fram fyrr í vikunni, kallaði hann þetta hneyksli, þar sem PET hefði farið á bak við þingið og lagði til að lokuð rannsóknar- nefnd kannaði starfsemi PET. Nú hefur hins vegar komið í ljós að lögreglan fylgdist með vinstrisinnum með vitund og vilja þingsins og bæði lögreglan og fleiri kjósa rannsókn fyrir opnum tjöldum. Það eru því fleiri sem álykta eins og Poulsen að málið sé vart hneykslismál er snúist um misbeitingu valds. Vangaveltur um hugsanleg lög- brot PET hafa verið viðvarandi síð- an í vor og um leið hefur hinn ungi dómsmálaráðherra sífellt þurft að vera að verja lögregluna og að- gerðir hennar, sem áttu sér stað þegar hann var smástrákur. Þegar hann lagði fram skjöl á mánudag- inn, sem sýndu að PET hafði vaktað lögleg stjórnmálasamtök, jafnvel þó stjórnin hefði lagt bann við slíku 1968 virtist honum létt. Nú var komin ástæða til að skipa lokaða nefnd. Öllum málum varð- andi PET yrði skotið til hennar og um leið slyppi ráðherrann við þess- ar fyrirspurnir. Og þar sem rann- sóknin átti að standa til 2001 var málið út úr heiminum um næstu framtíð. En málið horfir öðruvísi við nú þegar sýnt er af umræðu í þinginu og víðar að þingmönnum var ljóst og voru um leið samþykkir að lög- reglan hefði auga með þekktum vinstrisinnum. Á dögum kalda stríðsins þótti slikt ekki tiltökumál og yfirlýsing stjórnarinnar 1968 þótti ekki hindra slíkt. En 1974 ákvað yfirmaður PET að hætta þessu eftirliti með félögum í lögleg- um stjórnmálaflokkum og eftir því sem best er vitað hefur það ekki tíðkast síðan. Lausn Frank Jensen þykir ekki lengur jafngóð. Hvernig nú verður tekið á málinu er óvíst, þar sem svo margir eru andstæðir lokaðri nefndarrannsókn. Bent er á að hliðstæðar rannsóknir hingað til, til dæmis tamflarannsóknin svo- kallaða, sem snerist um misbeit- ingu ráðherravalds, hafi farið fram fyrir opnum tjöldumþ Það hafi jafnaðarmenn þrýst á um þá og því sé erfitt að sjá rök fyrir að annan hátt ætti að hafa á nú. En sjón- deildarhringurinn er annar úr ráð- herrastól en utan hans. Sitjandi ríkisstjórnir hafa sjaldnast löngun til opinna rannsókna. AF HVERJU VIÐ FÁUM HRUKKUR MEÐ ALDRINUM? Húbin missir smátt og smátt þann eiginleika ab framleiba Q10 - efnlb sem heldur húbinnl sléttrl. QIO kremlb frá Nlvea Visage - andlitskrem sem virkar. í fyrsta skipti er nú hægt ab fá QIO í nýja kremlnu frá Nivea Visage og húbln fær á ný þab sem hún þarfnast. NIYEA VISAGF www.nivea.jsh.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.