Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Góð glæpasaga úr Reykjavík INGVAR E. Sigurðsson og Nanna Kristín Magnúsdóttir sem Óli og Dísa. í umsögninni segir, að sagan af sambandi Óla og Dísu sé mjög hrífandi og átakanleg og að leikur Nönnu Kristínar sé tilþrifamest- ur og mjög sannfærandi. KVIKMYJVPIR llúskólalifú, Kringluhíó, Borgar- bíó og IVýja bfó. SPORLAUST ★★★ Leikstjóri: Hilmar Oddsson. Fram- leiðandi: Jóna Finnsdóttir. Hand- ritshöfundur: Sveinbjörn I. Baldvinsson. Tónlist: Hjálmar H. Ragnarsson og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Aðalhlutverk: Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Þrúður Vilhjámsdóttir, Dofri Her- mannsson, Ingvar E. Sigurðsson og Nanna Kristín Magnúsdóttir. Tónabíó. 1998. Eflaust bjuggust fáir við að Hilmar Oddsson yrði eftir stór- virkið „Tár úr steini“ næstur ís- lenskra kvikmyndaleikstjóra til þess að koma með glæpamynd. Það varð nú samt og sannar Hilm- ar með kvikmyndinni „Sporlaust" að hann er mjög fjölhæfur leik- stjóri. Sagan segir frá vinahóp ung- menna í Reykjavík með misjafnan bakgrunn. Daginn eftir teiti sem þau halda til heiðurs sundmeistar- anum í hópnum, uppgötva þau lík í íbúðinni. I örvæntingu sinni losa þau sig við líkið, en komast brátt að því að þau eru alls ekki laus allra mála. Handritið er um margt mjög vel skrifað hjá Sveinbirni I. Bald- vinssyni. Fléttan er ekki sérlega frumleg né flókinj en stenst samt og er spennandi. Áhorfendur ættu að muna að taka vel eftir öllum smáatriðum. Þar sem honum tekst best upp, og reyndar ein- staklega vel, er í persónusköpun- inni. Þessi vinahópur nær strax til áhorfandans, og er sagan af sam- bandi Óla og Dísu mjög hrífandi og átakanleg. Það er þó ekki sjálf- gefið að svo mjög ólíkar persónur skuli vera vinir eftir tvítugt, en ekki ómögulegt og Sveinbirni tekst að láta þau mynda sannfær- andi heild sem gefur myndinni dýpt. Sum atriði mættu vera sterkari. Atriðið þar sem Dísa er í yfirheyrslu, gefur efni til að vera mjög átakamikið, þar sem Nanna Kristín og Jóhann Sigurðarson, sem Dísa og rannsóknarlöggan, hefðu fengið tækifæri til að láta virkilega til sín taka, en Dísa gefst of fljótt upp. Mér finnst persón- urnar heldur ekki sýna líkleg við- brögð rétt í bláendann á mynd- inni. Það sem skiptir þó mestu máli er að yfir heildina hefur Sveinbjörn skrifað skemmtilegt handrit. Það er spennandi, með aðlaðandi persónum og hæfilegri dýpt. Hvað viljum við meira í glæpamynd? Leikarahópurinn er sérlega skemmtilegur og það verður seint sagt um hann Hilmar að hann kunni ekki að stýra leikurum. Samleikurinn er hreint út sagt frábær, og allir leikararnir standa sig mjög vel. Eg vil samt sérstak- lega nefna Nönnu Kristínu sem leikur ungu móðurina Dísu. Leik- ur hennar er tilþrifamestur, mjög sannfærandi og það verður sann- arlega gaman að sjá hana gera meira gott eftir að hún lýkur leik- listarnámi. Hin aðalhlutverkin bjóða kannski upp á minni tilþrif. Guðmundi Inga tekst samt mjög vel að tjá angistina sem grípur Gulla. Þrúður er sannfærandi sem Ella, saklaus stúlka sem allt geng- ur í haginn og er áttavillt þegar vandræðin skella á. Ingvar klikkar ekki frekar en vanalega í hlutverki undirmálsmannsins Óla, sem dreymir um betra líf en tekst ekki að losna undan fortíðinni. Dofra tekst líka að gera skemmtilega persónu úr Bogga „Herkúlesi hol- ræsanna" sem mætti vera metnað- armeiri. Furðulegustu hlutverkin fá Jóhann Sigurðarson og Kjartan Bjargmundsson en þeir leika lögg- una og bófann. Þar sem lítið er um glæpamál og -myndir á íslandi er fyrirmynd þeirra að vissu leyti sótt í erlendar kvikmyndir. Rann- sóknarlöggan sem vinnur allan sólarhringinn, gengur í létt hall- ærislegum jakkafótum, borðar í bílnum, er yfirlætislegur en góður inni við beinið. Kjartan leikur Mikka glæpamann sem kann ekki annað, er hálfgert fífl og ansi skoplegur. Báðir standa þeir sig vel, og Kjartan setur skemmtileg- an svip á myndina. Öll tæknileg hljóð- og mynd- vinnsla er vel unnin. Enda vita ís- lenskir kvikmyndagerðarmenn að íslendingar fara ekki lengur í bíó bara af því að myndin er íslensk, heldur gera gæðakröfur. í sam- bandi við förðun, þá fannst mér undarlegt hversu líkið lét lítið á sjá eftir ýmsar hamfarir. Hilmar stýrir öllu af öryggi og fag- mennsku eins og af honum er við að búast, en hann hefði samt mátt nota einstaka þekkingu sína á myndmáli meira; stíllinn hefði mátt vera sterkari og er ekki laust við að tónlistin hífi sum atriðin upp. Hjálmari H. Ragnarssyni tekst mjög skemmtilega til við tónsmíð- ar sínar. Tónlistin er einstaklega lifandi og fjölbreytt; bæði hressi- leg og mjög falleg á köflum. Þá mætti sérlega nefna atriðið þegar Birta litla brennir sig. Þar tekst honum einstaklega vel að túlka ör- væntingu móðurinnar. Eitt stemmningarstefið minnir á lagið í „The Simpsons" þáttunum. Það er þó ekki eins og virkar mjög vel. Lög Þorvalds Bjarna í upphafi og enda myndarinnar eru mjög gríp- andi, sérstaklega „Weekender“, og færa yfir mjög viðeigandi stemmningu. Það er gaman að horfa á ís- lenska mynd sem er svo sérstak- lega vel unnin á allan hátt. Hér eru miklir fagmenn að verki. „Sporlaust“ ætti að höfða til allra aldurshópa og því er um að gera að standa upp úr þægilega sjón- varpsstólnum og drífa sig í bíó. Hildur Loftsdóttir MYNDIR Hönnu Kristínar á sýningunni í Hafnarborg eru allar af Stefaníu dóttur hennar. Stefanía FYRSTA einkasýning ljósmynd- arans Hönnu Kristínar Gunn- arsdóttur verður opnuð laugar- daginn 29. ágúst á kaffistofu Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar. Um er að ræða lokaverkefni Hönnu Kristínar úr framhalds- námi hennar í heimildaljós- myndun í Stockport College, Bretlandi en áður lagði hún stund á portrettyósmyndun hjá Barna- og fjölskylduljósmynd- um. Myndirnar eru allar af Stef- aníu sem er eins árs gömul dóttir Hönnu Kristínar og eig- inmanns hennar. Sýningin ber jafnframt nafn litlu fyrirsæt- unnar. I kynningu segir: „Myndirnar lýsa lífi Stefaníu og um leið minu þar sem við eru saman öll- um stundum", segir Hanna Kristín um ljósmyndirnar sem allar eru unnar á vatnslitapapp- ír (Polaroid Transfer). Myndirnar voru fyrr í sumar á sýningu í Viewpoint, ljós- myndagalleru í Manchester. Sýningin í Hafnarborg stend- ur til 14. september. Nýjar bækur • UMDEILDAR fjölskyldur: Sein- færir/þroskaheftir foreldrar og börn þeirra er eftir Rannveigu Traustadóttir og Hönnu Björgu Sig- urjónsdóttur. Ritið fjallar um fjölskyldur þar sem foreldrarnir, annað eða bæði, eru seinfærir eða þroskaheftir. Þessum fjölskyldum fer fjölgandi og málefni þeirra koma í vaxandi mæli til umfjöllunar félags- og heilbrigð- isþjónustustofnana. Hér á landi hef- ur skort þekkingu, upplýsingar og reynslu í að veita þessum fjölskyld- um þjónustu og stuðning. Ritinu er ætlað að bæta úr brýnni þörf fyrir auknar upplýsingar á þessu sviði. Ritið skiptist í fimm kafla. Fyrsti kaflinn er inngangur sem skýrir bakgrunn og tilgang ritsins. I öðrum kafla er yfirlitsgrein um erlendar rannsóknir um fjölskyldur þar sem foreldramir eru seinfærir/þroska- heftir og hvers konar aðstoð og stuðningur hefur reynst þeim best. Þriðji kaflinn byggist á rannsókn höfunda um íslenskar fjölskyldur þar sem foreldramir eru seinfærir eða þroskaheftir. Fjórði kaflinn er skrifaður af félagsráðgjafa sem greinir frá reynslu sinni af því að vinna með fjölskyldur þar sem for- eldrarnir eru seinfærir. I fimmta og síðasta kaflanum er yfirlit yfir hand- bækur, upplýsingarit, fræðilegar greinar og rannsóknir. Markmiðið með þessum kafla er að hjálpa þeim sem vilja leita sér frekara efnis og upplýsinga á þessu sviði. Ritið er ekki síst hugsað fyrir fag- fólk sem tengist þessum fjölskyld- um í starfi sínu en mun jafnframt gagnast öðrum sem hafa áhuga á hagnýtum og fræðilegum upplýsing- um. Útgefandi er Félagsvísindastofnun Háskóla íslands. Ritið er 71 bls. og kostar 1.200 kr. Um dreifingu sér Háskólaútgáfan Skyggjumót í Gallerí Fold SUSANNE Christensen opnar sýningu á höggmyndum í baksal Gallerís Foldar við Rauðarár- stíg, laugardaginn 29. ágúst kl. 15. Sýninguna nefnir listakonan Skyggjumót. Susanne er fædd 1956 í Dan- mörku. Hún stundaði mynd- höggvaranám í Grikklandi, en hefur ennfremur farið í náms- ferðir til Nýja-Sjálands og ítalfu. Síðustu árin hefur hún búið á Is- landi ásamt eiginmanni sfnum Einari Má Guðvarðarsyni mynd- höggvara. Þetta er 7. einkasýning Sus- anne, en að auki hefur hún tekið þátt í mörgum samsýningum. Hreinn og Eg- ill í Fiskinum HREINN Friðfinnsson og Egill Sæbjömsson opna sýningu í Fiskin- um, galleríi að Skólavörðustíg 22c, laugardaginn 29. ágúst. Sýningin verður opin alla daga milli kl. 14 og 18 og stendur til 10. september. Á sýningunni sýna þeir afrakstur veiðiferðar. Egill hefur starfað í eitt ár að myndlist eftir að hafa lokið námi við Myndlista- og handíðaskóla íslands og Hreinn er einn af upphafsmönn- um SÚM-hópsins. Hann hefur búið í Amsterdam til fjölda ára og sýnt víða í gegnum tíðina. I innra rými Fisksins verða sýnd- ar jafnhliða sýningunni heimildar- myndir um mannlíf, list og vísindi. Vefur gallerísins er: http://this.is /icthys. VERK eftir Susanne. Gallerí Fold er opið daglega frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-17 og sunnudaga frá kl. 14- 17. Sýningunni lýkur 18. septem- ber. „Líf mannsu endurtekið í Kaffileik- húsinu í TILEFNI Menningarnætur í Reykjavík frumsýndi Kaffileikhúsið í Hlaðvarpan- um sýninguna „Líf manns“ sem byggð er á leikriti eftir rússneska rithöfundinn Le- oníd Andrejev (1871-1919). Vegna mikiliar aðsóknar verður önnur sýning á verk- inu laugardaginn 29. ágúst kl. 22. Þessi sýning er jafn- framt síðasta sýningin á verkinu. BRYNJA sýnir pennateikningar í Galleríi Hár og list. Penna- teikningar Brynju BRYNJA Ámadóttir opnar sýn- ingu á pennateikningum laugar- daginn 29. ágúst kl. 14 í Gallern Hár og list, Strandgötu 39 í Hafnarfirði, hjá Halla rakara. Þetta er áttunda einkasýning Brynju. Hún hefur haldið nokkr- ar einkasýningar og tekið þátt í samsýningu. Sýningunni lýkur 17. september og er opin frá kl. 9-18 á virkum dögum, en um helgar frá kl. 14-18. -------------- Orlowitz hjá Oper- unni ANDRE Orlowdtz heldur söngnám- skeið á vegum Islensku óperunnar í húsnæði Operunnar dagana 8.-12. september. Þetta er í þriðja skipti sem Operan gengst fyrir námskeiði með honum. Fjöldi söngvara, sem sótt hafa „masterclass" hjá Orlowitz hér heima, hefur sótt einkatíma hjá honum í Kaupmannahöfn, þar sem hann er búsettur. André Orlowitz er fæddur í Pól- landi og nam við Tónlistarháskól- ann í Gdansk. Framhaldsnám stundaði hann á Ítalíu. Hann hefur sungið í öllum helstu óperuhúsum Evrópu og haldið tónleika í öllum heimsálfum. Píanóleikari á námskeiðinu er Elisabeth Brodersen. ------♦♦♦------ Roj Friberg sýnir í Nor- ræna húsinu SÝNING á verkum sænska mynd- listarmannsins Rojs Fribergs verður opnuð laugardaginn 29. ágúst kl. 15.00. í sýningarsölum Norræna hússins og verður hann viðstaddur opnun sýningarinnar. Sýningin er samstarfsverkefni Listasafnsins í Hjprring í Danmörku, Listasafns Færeyja, Listasafns Akureyrar og Norræna hússins. Roj Friberg er fæddur 1934 í Uddevalla í Svíþjóð. Hann sótti menntun sína til Valands Konstskola í Gautaborg. Roj Friberg er mjög fjölhæfur listamaður og vinnur á breiðu tæknisviði málverks, grafík- lista og innsetninga. Einnig hefur hann gert leiksviðsmyndir, útilista- verk og myndskreytingar. Roj Friberg hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýn- ingum. Helstu listasöfn Svíþjóðar eiga verk hans og hann hefur hlotið opinberar viðurkenningar. Sýningarskrá með greinum um listamanninn fylgir sýningunni. Sýn- ingin verður opin kl. 14-18 alla daga nema mánudaga og stendur hún til 27. september.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.