Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 55 Smáratorgi 1 Skeifunni 13 Norðurtanga 3 200 Kópavogi 108 Reykjavík 600 Akureyri 510 7000 568 7499 462 6662 Reykjavíkurvegi 72 220 Hafnarflöröur 565 5560 Holtagörðum v/Holtaveg 104 Reykjavfk 588 7499 Smáratorgi 1 Skeifunni 13 Noröurtanga 3 200 Kópavogi 108 Reykjavfk 600 Akureyri 510 7000 568 7499 462 6662 Reykjavíkurvegi 72 220 Hafnarflöröur 565 5560 Holtagöröum v/Hoitaveg 104 Reykjavfk 588 7499 Léttir meöfœrilegir viöhaldslitlir. Avallt fyrirliggjandi. Góö varahlutaþjónusta. Frá Eysteini Ó. Jónassyni: GRÉTAR Einarsson skrifaði ítar- lega grein í Sunnlenska fréttablaðið 19. ágúst seni hann nefnir „Undar- leg og ósveigjanleg afstaða Selfoss- kirkju“ og síðan birtist sama grein í Morgunblaðinu laugardaginn 22. ágúst undir nafninu „Tónlist og Selfosskirkja". í lok greinarinnar segir svo: „Ég skora á forsvars- menn Selfosskirkju að gera grein fyrir máli sínu hér á síðum þessa blaðs. Þeirra er að útskýra þær reglur sem þeir sjálfir hafa sett og fylgja svo ósveigjanlega eftir.“ Þrátt fyrir að hvergi komi fram hvemig Grétar tengist máli þessu, nema hvað hann segir: „Þar sem undirritaður kannast nokkuð við málavöxtu þessa“ ... „Það skal tekið fram að undirritaður sá ekki um- rædda frétt“, þá geri ég þá undan- tekningu í þessu tilfelli að svara slíkum bréfum, þ.e. þeim hluta sem snýr að forsvarsmönnum Selfoss- kirkju. En að öðru leyti fjallar grein Grétars mest um grein sem Smári Ólason, kennari við Tónskóla þjóðkirkjunnar, skrifaði í Morgun- blaðið hinn 9. ágúst. Forsaga þessa máls, eins og það snýr að mér sem formanni sóknar- nefndar, er sú að rétt fyrir hádegi þriðjudagsins 21. júlí sl. hringir kirkjuvörður í mig og spyr hvort það sé ekki örugglega rétt hjá sér munað að sóknarnefndin hafi sam- þykkt að ekki skyldi flutt tónlist af hljómflutningstækjum í kirkjunni við kirkjulegar athafnir. Ég sagði honum sem var, að þetta hefði tvisvar komið til umræðu á þeim sjö árum sem ég hef verið í sóknar- nefndinni, í bæði skiptin eftir mjög svo óheppilegan hljómtækjaflutn- ing við kirkjulegar athafnir þar sem innihald texta var í algen-i andstöðu við kristilegan boðskap. Ég tjáði honum jafnframt að trú- lega hefði ekki verið gerð nein bók- un þar um, þar sem sóknarnefnd teldi að skýrar reglur giltu í hinni lútersku kirkju um tónlistarflutn- ing við kirkjulegar athafnir. Sókn- arnefndin styddi því prestinn og organistann í þvi að fara eftir regl- unum til þess að koma í veg fyrir fleiri „slys“ af fytrgreindu tagi. Það var síðan seint sama kvöld, nokkr- um mínútum eftir að ég kom heim úr ferðalagi, að væntanleg brúður og frændi hennar knúðu dyra og sögðu mér frá því að til hefði staðið að hann og annar til flyttu tvö lög (að þvi að mér skildist frumsamin) við athöfnina, sem vera átti næsta laugardag, en flytjendurnir tveir hefðu forfallast vegna jarðarfarar og hefðu því drifíð í því að setja lög- in á geisladisk til þess að hægt yrði að flytja þau þannig. Þau orðuðu það sem svo að þetta ætti að vera brúðargjöf til væntanlegra brúð- hjóna en nú neitaði kirkjuvörður flutningi af geisladiskum við at- höfnina. Fram kom í máli þeirra að þau hefðu haft samband m.a. við prófast og biskup, svo að gi-einilegt var að á ýmsu hafði gengið þann daginn. Ég spurði hvort ekki væri hægt að miðla málum, fyrst örlögin hefðu gripið svona óheppilega inn í hjá tónlistarmönnunum, og spila geisladiskinn í væntanlegri brúð- kaupsveislu. Það kom alls ekki til greina og fékk ég að vita það að þetta yrði að afgreiðast strax því að annars þyrfti að hafa samband við alla væntanlega brúðkaupsgesti og tilkynna um flutning á athöfninni. Ég bað þau að gefa mér frest til há- degis næsta dags til þess að kanna málin, enda komið langt fram yfír venjulegan háttatíma og safnaðar- presturinn í sumarfríi. Einnig út- Tónlist í Selfosskirkju skýrði ég það fyrir þeim að það væri alfarið í höndum þess prests sem sæi um athöfnina hvað honum fyndist tilhlýðilegt við sína athöfn og skyldi ég hafa samband við sr. Kristin Á. Friðfinnsson sóknar- prest í Hraungerðisprestakalli um málið, en hann hafði verið beðinn um að sjá um athöfnina í Selfoss- kirkju. Þau gátu þó ekki látið það ógert að hóta mér því að þetta færi sko í fjölmiðlana ef það leystist ekki samkvæmt þeirra höfði. Og þeim tókst það svo sannarlega með að- stoð Stöðvar 2 og Grétars. Ég náði tali af sr. Kristni strax að loknum morgunþætti hans á Út- varpi Suðurlands og sagðist hann ekki hafa vitað af þessum tónlistar- flutningi af geisladiski fyrr en morguninn áður og þar sem hann vissi um viðhorf sóknarprestsins vildi hann ekki brjóta þá hefð í okk- ar kirkju og myndi sjálfur taka að sér að ræða málin við væntanleg brúðhjón strax fyrir hádegið. Að- spurður sagðist hann vita að annað lagið væri úr kvikmyndinni Titanic en vissi ekki um hitt. Prófastur okkar, sr. Úlfar Guðmundsson, sem leysti sóknarprest okkar af í sum- arfríi hans, hringdi sídegis sama dags og kvaðst alveg samþykkur viðbrögðum okkar, en til þess að leysa málin á farsælan hátt, myndi hann leyfa afnot af kirkju sinni á Eyrarbakka, ef þau vildu ekki nota kirkjur sr. Kristins í Hraungerðis- prestakalli. Vegna orða Grétars: „Brúðhjónin voru að vonum afar óánægð og furðu lostin yfir afstöðu forsvars- manna Selfosskii-kju“ og: „Það eru forsvarsmenn Selfosskirkju sem valda þessari uppákomu með af- stöðu sinni,“ vil ég minna á orð brúðarinnar í sjónvarpsviðtali dag- inn fyrir brúðkaupið: „Presturinn var að vísu búinn að segja mér frá því hérna í vor, að hann væri frekar hlynntur því að það væri lifandi tónlist, þannig að ég talaði þá við biskupsstofu og fékk að vita að það væri bara á valdi þess prests sem væri með athöfnina hvernig henni væri háttað." Engin furða að þau yrðu furðu lostin og hvað þá eftir að á fyrra ári var þeim bent á að ekki væri viðeigandi að flytja dægurlag í stað skírnarsálms við skírn barns þeirra. Þess má geta að af og til koma upp þau tilfelli að vinir eða vanda- menn látinna manna senda tónlist á hljóðsnældum eða geisladiskum sem þeir óska eftir að leikin verði við útför viðkomandi eins og virðist hafa komið fyrir ættingja Grétars fyrir rúmu ári. Um það segir hann: „Aðstandendum var meinað að flytja tónlist af geisladiski sem nán- asti vinur hins látna hafði sent og óskað efir að yrði fluttur sem hinsta kveðja sín. Þarna var gróflega mis- boðið tilfinningum og óskum að- standenda látins manns.“ Ég verð að viðurkenna að þarna, og víða annars staðar í grein sinni, finnst mér greinarhöfundur ekki gera greinarmun á hinni kristilegu at- höfn sem fram fer í kirkjunni, hvort heldur er við jarðarfarir eða brúð- kaup, og á þeim samkomum sem fram fara í framhaldi slíkra at- hafna. Ég þykist vita að Grétar sé mér sammála um að ekki sé verið fyrir steinsteypu. Á undan timanum i 100 ár. r. rviiMiiimvwwu w Ármúla 29, sími 553 8640 FYRIRLI66JANDI: 6DLFSLIFIVÉLRR - RIPPER ÞJÖPPUR - DJELUR STEYPUSR6IR - HRJERIVÉLRR - SR6RRBLÖB - Villui framlellsla. að leika aðsenda tónlist fyrir hinn látna heldur fyrir aðstandendur. I fæstum tilfellum á slík tónlist við í þein-i kristilegu athöfn sem beiðni kirkjunnar um blessun fyrir brúð- kaupi er, eða þegar Drottni er falið að taka á móti látnum ástvini. Að sama skapi ætti tónlist sem til- einkuð eru brúðhjónum að vera flutt í þeirri gleðiathöfn sem haldin er eftir að beiðni um blessun Guðs hefur farið fram, með sama hætti og aðrar hamingjuóskir og gjafir era afhentar. Munum að kirkjuat- höfnin er bænarstund og sálmarnir sem þar eru fluttir eru hluti bænar- innar, ekki tónleikar. Málið er nefnilega það að þegar kirkjunnar menn fara að gera undantekningar á fyrrgreindum hlutum er engin furða þótt leikmenn ruglist í rím- inu, líkt og hjónin sem ætluðu að láta flytja lag sem hafði, eins og Grétar orðar í grein sinni, „tilfinn- ingalegt gildi fyrir brúðhjónin" en texti lagsins (bænarinnar) byrjar svona: „Please release me let me go, for I don’t love you any more.“ Skyldi Grétar ekki vera sammála mér um að slík bón hefði mátt bíða þar til athöfninni í kirkjunni væri lokið? Vegna þess misskilnings sem m.a. kemur fram í greininni: „St- arfsmenn Selfosskirkju brugðust hins vegar tveimur sóknarbörnum sínum alvarlega vegna hégómlegs smáatriðis í reglum Selfosskirkju, reglum sem eru þeim greinilega heilagar," bendi ég á að við erum ekki að setja hégómlegar reglur, heldur veigrum okkur við að breyta út af þeim reglum sem hin lúterska kirkja hefur sett sér. Læt ég hér að lokum, honum og öðrum, sem ekki til þekkja, til glöggvunar, fylgja ör- stutta þýðingu úr bókinni: Manual on the liturgy Lutheran Book of Worship eftir Philip H. Pfatteicher og Carlos R. Messerli sem útleggja mætti sem: Handbók um helgisiði (tíðagerð) Lúterstrúar bók varð- andi tilbeiðslu, þar sem fjallað er um tónlistarflutninginn við brúð- kaupsathafnir (bls. 347-348): „Giftingarathöfnin er tilbeiðslu- athöfn og tónlistin þarf þess vegna að vera vel og tilhlýðilega valin. Hún ætti að vera vönduð og text- arnir eiga að endurspegla lof drott- ins, staðfastan kærleik Krists fyrir kirkju sinni sem og undirstaða og fyrinnynd fyrir kærleika og trú- mennsku hjónabandsins, ákall um nærveru og blessun Guðs.“ Og eftir upptalningu á ýmsum dæmum um útfærslu tónlistar seg- ir: „Alltaf þegar tónlist er notuð við athöfnina, hvort sem um er að ræða hljóðfæraleik eða söng, á hún að vera vönduð og ekki þeirrar teg- undar að hún skyggi á raunveruleg- an tilgang athafnarinnar með hversdagslegheitum eða væmni...“ EYSTEINN Ó. JÓNASSON, formaður sóknarnefndar Selfosskirkju. ◦dida Ulpur Töskur Iþróttaskór x rasjl Æfingagallar Fleece peysur Barnagallar Elnstscrsta Iferslunin 444PKIR Ármúla 40 - Símar 553 5320 - 568 8860 Hef opnað lækningastoíu á Sjúkrahúsi Suðurlands Sérgrein: Almennar skurðlækningar, oífituaðgerðir og meltingarfærasjúkdómar (maga- og ristilspeglanir). Tímapantanir í síma 4821300. Sveinn Sveinsson, yfirladknir ShS. Ulpa fyrír straka og stelpur. Litur dökkblár. Vönduð úlpa með áfastrí flíshettu. 8-10- 12- 14 og 16 Verð aðeins:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.