Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Agæt veiði í lok kvótaárs ÞAÐ VAR verið að landa úr Skarfinum GK-666 þegar frétta- maður Morgunblaðsins kom við á bryggjunni. I þessum túr voru þeir með 68 tonn af Austfjarða- miðum, mest þorsk. Að sögn Sæ- mundar Halldórssonar skip- stjóra lönduðu þeir 50 tonnum 12. ágúst á Hornafirði, þá voru þeir með þorsk að tveimur þriðju hlutum. „Við förum aftur austur, við erum búnir að taka fjóra túra fyrir austan eftir sum- arfríið sem við tókum frá miðj- um júlí fram yfir verslunar- mannahelgi. Við erum með 9,5 tonn af hlýra sem er gullið þessa dagana enda utan kvóta og fæst mjög gott verð fyrir hann. Þá erum við með 2,5 tonn af lifur úr þessum líka stólpafiski. Þetta er síðasti túrinn á þessu kvótaári því nú löndum við næst í sept- ember.“ Sj ávarútvegsskóli SÞ settur í dag SJÁVARÚTVEGSSKÓLI Samein- uðu þjóðanna verður settur í fyrsta sinn í dag í Sjávarútvegshúsinnu að Skúlagötu 4, kl. 16:30. Að því til- efni mun Halldór Ásgrímsson, ut- anríkisráðheiTa, ávarpa fyrstu nemendur skólans sem koma frá Úganda, Mósambík og Gambíu. Nemendur sem hingað eru komnir til að stunda nám við skól- ann eiga það sammerkt að vera frá Meira alið af sæeyra TALSVERÐ aukning hefur verið í eldi sæeyrna í Ástralíu sem rekja má til mikilla rann- sókna sem gerðar hafa verið á ræktun þeirra. Vonast er til að - framleiðslan geti náð eitt þús- und tonnum um aldamótin. Kílóverð sæeymakjöts er ná- lægt 120 áströlskum dollurum, á meðan lifandi dýr í skelinni ganga kaupum og sölum á 55 ástralska dollara kílóið. Að- eins tvær tegundir þein-a 200 mismunandi undirílokka sæeyma em nýttir til mann- eldis og leiða Ástralir fram- leiðsluna með 60% heims- markaðarins. löndum þar sem mikilvægi veiða er umtalsvert og fer vaxandi og áhrif alþjóðlegs umhverfis á þróun era mikil. Nemendurnir hafa allir þeg- ar hlotið háskólamenntun og era með töluverða starfsreynslu innan þessa geira í heimslöndum sínum, þar sem þeir munu einnig starfa að náminu hér loknu. Mikilvægi sjávarafurða aukist f fréttatilkynningu frá Hafrann- sóknastofnuninni segir að verslun og viðskipti með sjávarfang hafi aukist mikið á undanfömum áram og hvað mest í þróunarlöndunum. I mörgum tilfeOum séu útflutnings- tekjur þeirra vegna fiskafurða nú orðnar meiri en tekjur af útflutn- ingi ýmissa hefðbundinna nýlendu- vara en í þeim flokki era t.d. kaffi, te, gúmmí og tóbak. Útflutningur fisks frá þróunarlöndunum beinist í vaxandi mæki til ríkja innan EB og Bandaríkjanna sem geri strang- ar kröfur um meðferð afla við veið- ar og vinnslu og einnig um nýting- arstefnu. Forstöðumaður skólans er Tumi Tómasson fiskifræðingur sem áður starfaði hja Veiðimálastofnun og einnig um áraraðir í sunnanverðri Afríku. Stjórn skólans skipa Jakob Jakobsson, fonnaður, Guðrún Pét- ursdóttir, Pétur Bjarnason, Hjör- leifur Einarsson, Björn Dagbjarts- son og Guðbrandur Sigurðsson. Háttsettur vopnaeftirlitsmaður lætur af störfum í Irak Sakar SÞ um að stefna vopnaeftirliti í hættu Samcinuðu þjóðunum. Reuters. SCOTT Ritter, einn helsti vopna- eftirlitsmaður Sameinuðu þjóðanna í Irak, hefur sagt upp störfum og gagnrýnt framkvæmd vopnaeftir- litsins harðlega. I bréfi er hann rit- aði Richard Butler, yfírmanni vopnaeftirlits SÞ, á miðvikudag er hann ómyrkur í máli gagnvart ör- yggisráðinu, Bandaríkjastjórn og framkvæmdastjóra SÞ. Ritter er 37 ára gamall og hefur verið yfir þeim hópum vopnaeftir- litsmanna er reynt hafa að rann- saka vopnabúr Iraka. Hann segir í bréfi sínu að UNSCOM, nefnd á vegum SÞ er hefur yfirumsjón með afvopnun Iraka, hafi breytt um eðli á þeim sjö árum er hann hefur starfað fyrir hana. Nefndin láti til- raunir Iraka til að trufla störf vopnaeftirlitsmanna óáreittar og öryggisráðið hafi ekki uppi neina tilburði til að framfylgja eigin ályktunum. Heimildir herma að skoðanir þær er Ritter viðrar í bréfinu eigi sterk- an hljómgrunn meðal margra reyndra starfsmanna UNSCOM, sem telji vopnaeftirlit í hættu vegna stöðugs yfirgangs Iraka og stuðnings Rússa, Kínverja og Frakka í öryggisráðinu við sjónar- mið þeirra. Að undanförnu hafa borist fregn- ir um að Bandaríkjastjórn hafi margsinnis hvatt Butler til að halda aftur af vopnaeftirlitsmönnum þar sem að Bandaríkin hafi ekki verið reiðubúin að beita hervaldi til að tryggja öryggi þeirra. Era þessar ásakanir nú til rannsóknar hjá bandarískri þingnefnd. Ritter segir ennfremur í bréfi sínu að sú ákvörðun öryggisráðs- ins að „gera lítið úr“ því að Irakar hafi hætt samstarfi við vopnaeftir- litsmenn sé greinileg vísbending um að ráðið hafi hvorki vilja né getu til að framfylgja eigin ákvörðunum. Þá sakar hann Kofi Annan framkvæmdastjóra SÞ og sérlegan fulltrúa hans í Irak, ind- verska stjórnarerindrekann Prakash Shah, um _að gerast mál- pípur sjónarmiða Iraka. Nýlegar tillögur Kofis um breytt fyrir- komulag vopnaeftirlits telur hann stórhættulegar og jafngilda því að eftirlit verði haft _ með eftirlits- mönnum að kröfu Iraka. Að mati Ritters sé hættulegra að láta líta svo út fyrir að vopnaeftirlit sé í gangi heldur en að hætta eftirliti alfarið. James Foley, talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins, sagði í gær að hann harmaði ákvörðun Ritters og að stjórnvöld væru sam- mála honum í því að halda bæri eft- irliti áfram. Irakar fögnuðu í gær afsögn Ritters og sögðu hann njósnara með tengsl við bandarísku leyni- þjónustuna CIA og þá ísraelsku, Mossad. Reuters Bonnie orðin að hitabeltisstormi Wilmington. Reuters. IBÚI í Wilmington í Norður-Kar- ólínu tínir saman hluti úr bifreið sinni efdr að fellibylurinn Bonnie hafði fellt hlyn nágrannans þannig að farkosturinn skemmdist. Svo mikið dró úr krafti felli- bylsins í gær að veðurfræðingar í Bandaríkjunum úrskurðuðu hann hitabeltisstorm. Gríðarleg úr- koma var í Norður-Karólínu í gær og flóðahætta var enn mikil. Bonnie felldi víða tré og raf- magnsstaura og 1,2 milljónir manna voru án rafmagns á aust- urströnd Bandaríkjanna vegna stormsins. Mjög dró úr vindhraða Bonnie eftir að hún náði austurströnd Bandaríkjanna á miðvikudag. Hann var að meðaltali um 100 km á klukkustund í gær. Veður- fræðingar búast við því að Bonnie gangi af sama krafti yfir Virginíu-ríki í dag. Lítið tjón hefur orðið á mann- virkjum og húsum og íbúar Norður-Karóhnu eru allir óhultir, þótt hálf milljón manna hafi þurft að yfirgefa heimili sín vegna stormsins. Bill Clinton, forseti Banda- rikjanna, lýsti því yfir í gær að ríkið myndi veita íbúum Norð- ur-Karólínu fjárhagsaðstoð vegna skemmdanna sem Bonnie olli. Austurríkismenn líta ESB- aðild jákvæðari augum HLUTFALL þeirra Austurríkis- manna, sem eru ósáttir við aðild Austurríkis að Evrópusambandinu (ESB), hefur fallið veralega að undanförnu. Sífellt fleiri Austur- ríkismenn sjá fleiri kosti en galla við aðildina. Þetta kemur fram í niðurstöðum skoðanakönnunar Spectra-stofnunarinnar í Linz, sem birtar vora í austurríska dag- blaðinu Der Standard í gær. I samanburði við niðurstöður sambærilegrar könnunar, sem gerð var meðal Austurríkismanna fyrir rúmu ári, komu í ljós veruleg- ar breytingar á afstöðu fólks til ESB-aðiIdarinnar. Nú telja 44% þjóðarinnar að inngangan í sam- bandið, sem gekk í gildi 1. janúar 1995, hefði verið heillaríkt spor. í marz í fyrra voru aðeins 30% þess- arar skoðunar. í samræmi við þetta fækkaði þeim, sem töldu ESB-inngönguna hafa verið „ranga ákvörðun", úr 43% þá í 31% nú. 20% aðspurðra voru nú þeirrar skoðunar, að ESB-aðiIdin hafi reynzt hagsmunum landsins til framdráttar frekar en dragbítur á þá. Þetta hlutfall var aðeins 12% í fyrra. En 31% Austurríkis- manna telur enn, að aðildin hafi haft meiri ókosti en kosti í för með sér, sem er lítil breyting frá í fyrra, þegar 33% voru á þessari skoðun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.