Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 58
58 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
db ÍÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
SALA OG ENDURNÝJUN
ÁSKRIFTARKORTA
HEFST ÞRIÐJUDAGINN
1. SEPTEMBER
5 LEIKFELAG J
REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHUSIÐ
eftir Jim Jacobs og Warren Casey.
I kvöld fös. 28/8, uppselt,
fös. 28/8, aukasýning, kl. 23.30,
lau. 29/8, kl. 16.00, uppselt,
lau. 29/8, uppselt,
lau. 29/8, aukasýning kl. 23.30,
sun. 30/8, uppselt,
fim. 3/9, fös. 4/9, lau. 5/9, örfá
saeti laus, sun. 6/9, fim. 10/9,
fös. 11/9, nokkur sæti laus.
n í wtn
eftir Marc Camoletti.
Lau. 12/9, fös. 18/9, lau. 19/9.
Miðasalan er opin daglega
frá kl. 13—18 og fram að
sýningu sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónustá.
Sími 568 8000 fax 568 0383.
KaffilftkhfKih
Vesturgötu 3
I HLAÐVARPANUM
SUMARTÓNLEIKARÖÐ
KAFFILEIKHÚSSINS
„Bossa-nouveau“
Dansleikur með Tenu Palmer og Joáo
fös. 28. ágúst kl. 22 laus sæti
„Lrf manns“
eftir Leoníd Andrejev
lau 29. ágúst kl. 22 laus sæti
Matseðill sumartónleika
Indverskur grænmetisréttur að hætti
Lindu, borinn fram með ristuðum
sesamfræjum og fersku salati
^ — og í eftirrétt: „Ovænt endalok". y
Miðas. opin 15—18 alla virka daga
Miðap. allan sólarhringinn i
s. 551 9055. Netfang: kaffíleik@isholf.is
Gamanleikrit i leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
fös. 28/8 kl. 21 UPPSELT
lau. 29/8 kl. 21 UPPSELT
fim. 3/9 kl. 21
Miöaverö kr. 1100 fyrir karla
kr. 1300 fyrir konur
Vöröufélagar Ll fá 30% afslátt
Sýnt í fslensku óperunni
Miðasölusími 551 1475
f s ú p u n n i
lau. 29/8 kl. 20 UPPSELT
lau. 29/8 kl. 23.30 UPPSELT
lau. 5/9 kl. 20 UPPSELT
lau. 5/9 kl. 23.30 örfá saeti laus
fim. 10/9 kl. 20 örfá sæti laus
fös. 11/9 kl. 20 UPPSELT
fös. 11/9 kl. 23.30 örfá sæti laus
ucrandTaX\<a0
Tónleikar og danssýning
fös. 28/8 kl. 20.30 örfá sæti laus
fös. 28/8 kl. 23.30
sun. 30/8 kl. 20.30
Ath. aðeins þessar þrjár sýningar
Forsala hafin
fyrir september:
Rommí, Leikhússport
Miðasala opin KL12-18
Úsóttar pantamr seldar ðagt
Miðasökisim!: S 30 30 30
Mjöll Hólm og Skúli
verða á léttu nótunum
á Mímisbar.
-þín saga!
MYNDBÖND
Hörmungar á
N or ður-írlandi
Boxarinn
(The Boxer)___________________
D r a m a
★★★
Framleiðsla: Jim Sheridan og Arthur
Lappin. Leikstjórn: Jim Sheridan.
Handrit: Jim Sheridan og Terry Ge-
orge. Aðalhlutverk: Daniel Day-Lew-
is og Emily Watson. 109 mín. Irsk.
CIC myndbönd, ágúst 1998. Bönnuð
börnum innan 12 ára.
ÍRSKI leikstjórinn' Jim Sheridan
hefur nú um nokkurra ára skeið
einbeitt sér að kvikmyndum sem
fjalla um ástand-
ið á Norður ír-
landi. Myndir
hans eru alvar-
legar, pólitískar,
persónulegar og
mikilvægar. Eft-
ir fjórtán ár í
fangelsi fyrir
hryðjuverk,
lendir Danny
Flynn (Day-Lewis) milli stríðandi
fylkinga innan IRA. Brugðið er upp
svipmyndum af sem flestum hliðum
átakanna í kringum friðarviðræður
síðustu ára. Atburðarásin er einföld
saga um ástir í meinum, en myndin
fjallar í raun og veru almennt um
kaþólska Ira sem búa í stríðshrjáðri
Belfastborg. Allir hafa sitt persónu-
lega sjónarhom á átökin við Bret-
ana. Pólitík og hugsjónir víkja alltaf
fyrir tilfinningum einstaklinga sem
allir hafa misst og meiðst í lang-
vinnri borgarastyrjöld sem ætlar
engan endi að taka. Myndir Sher-
idans eru ómetanleg gægjugöt inn í
heim nágranna okkar á Irlandi, sem
svo erfitt er að skilja.
Guðmundur Ásgeirsson
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Sambíóin sýna bandarísku gamanmyndina „Mafia!“ þar
sem tekist er á við skipulagða glæpastarfsemi á sama hátt og beitt var í
myndunum „Naked Gun“, „Airplane!“ og „Hot Shots!“, en myndin er gerð
af sömu aðilum og stóðu að þeim myndum.
Mafían tekin á beinið
LEIKSTJÓRINN Jim Abrahams ræðir málin við Lloyd Bridges og
Marisol Nichols meðan á tökum stóð.
JAY Mohr leikur soninn Anthony sem er mikil stríðshetja.
LLOYD Bridges leikur Vinc-
enzo Cortino, hinn miskunnar-
lausa en klunnalega guðföður í
valdamikilli glæpafjölskyldu.
Hann sagði það hafa komið veru-
lega á óvart að í flestum kvik-
myndanna hafi söguþráðurinn ver-
ið ansi líkur, en hann hafi ávallt
verið um heiður, fjölskylduna og
svik. Þarna stæði þó myndin „The
Godfather" upp úr þar sem hún
væri eftirminnilegust.
Lloyd Bridges lést 10. mars síð-
astliðinn eftir að tökum á „Mafia!“
lauk, en hann hafði þá leikið í rúm-
lega 140 kvikrnyndum og sjón-
varpsmyndum á ferli sem spannaði
yfir sextíu ár. Synir hans eru þeir
Jeff Bridges og Beu Bridges sem
báðir hafa skapað sér nafn í kvik-
myndaheiminum líkt og pabbinn.
Lloyd Bridges hefur nokkrum
sinnum áður unnið með Jim Abra-
hams, en hann lék í „Airplane!" og
„Hot Shots!“-myndunum. Meðal
síðustu myndanna sem hann lék í
var „Blown Away“ þar sem hann
lék á móti syni sínum Jeff.
Jay Mohr hlaut mikið lof fyrir
hlutverk sitt í myndinni „Jerry
Maguire", en þar lék hann ósvífinn
umboðsmann íþróttamanna. Næsta
mynd sem Mohr leikur í er myndin
„Suicide Kings“ og verður hann
þar í félagsskap með þeim
Christopher Walken og Denis Le-
ary, en áður hefur hann leikið á
móti Jennifer Aniston í myndinni
„Picture Perfect".
Frumsýning
HINN ungi og saklausi
Vincenzo Cortino er
hrakinn frá heimili sínu
á Sikiley og þvingaður til
að synda til Ameríku þar sem hann
elst upp og verður höfuð valdamik-
illar glæpafjölskyldu. Lloyd
Bridges fer með hlutverk hins
ófyrirleitna en klaufska guðfóður,
sem á efri árum gerir sér grein fyr-
ir því að hann verður að afsala
völdum til annars hvors sona sinna,
hins geðhvarfasjúka Joey (Billy
Burke) eða stríðshetjunnar Ant-
hony (Jay Mohr). Sterk tryggða-
bönd innan fjölskyldunnar, valda-
barátta og vægðarlaus svik eru svo
þungamiðjan í þeirri skopádeilu
sem myndin er.
Handritshöfundur og leikstjóri
myndarinnar er Jim Abrahams,
sem á að baki myndirnar „Airpla-
ne!“, „Top Secret!“, „Hot Shots!“,
„Hot Shots! part Deux“, „The
naked Gun: From the Files of
Police Squad!“, „The Naked Gun 2
1/2: The Smell of Fear“, „Naked
Gun 33 1/3: The Final Insult“ og
„Ruthless People". Abrahams seg-
ir að það séu raunverulega þrjár
forsendur fyrir skopádeilum á borð
við „Mafia!“. í fyrsta lagi þurfi
myndin að eiga rætur í ósvikinni
kvikmyndagrein og svo sannarlega
séu til margar myndir sem byggj-
ast á starfsemi mafíunnar. „í öðru
lagi er svo spurningin um hvort
þessar myndir taki sjálfar sig al-
varlega og svo sannarlega gera það
allar þessar myndir. Með örfáum
undantekningum er ekki að finna
neinn húmor í þessum myndum í
eigin garð. Þannig að ef maður
finnur kvikmyndgrein sem tekur
sjálfa sig alvarlega þá er kominn
grundvöllur fyrir skopádeilu ef
enginn annar hefur gert það. I
þriðja lagi verður maður svo auð-
vitað að finna eitthvað kvikmynda-
fyrirtæki til að borga brúsann."
Hugmyndina að myndinni segist
Abrahams hafa fengið þegar hann
var að lesa gagnrýni um sjón-
varpsmynd sem kallast „The Last
Don“, en sammerkt með gagn-
rýnendunum var spurningin um
hvernig hægt væri að gera enn
eina myndina af þessu tagi og
spurningin væri hvenær einhver
myndi gera grín úr þessu öllu sam-
an. Handritshöfundar myndarinn-
ar ásamt Abrahams eru Greg Nor-
berg og Michael McManus sem
unnu með Abrahams að „Hot
Shots!“-myndunum og segir McM-
anus að nauðsynlegt hafi verið að
horfa á fjölda mafíumynda auk
heimildarmynda um mafíuna áður
en ráðist var í gerð handritsins.
Dolly Parton glorhungruð
KASTLJÓSIÐ beinist nú að nýju að Dolly
Parton ef marka má viðtökur sem nýjasta
breiðskífa hennar, „Hungry Again“ eða
Hungruð aftur, hefur fengið hjá gagn-
rýnendum vestanhafs.
„Ég hef aldrei verið spenntari eða búið
yfír svona mikiili sköpunargáfu,“ sagði
söngkonan, sem er 52 ára, í samtali við
USA Today. „Mér líður eins og ég sé að
byrja seinni hálfleik og að hann verði
betri en sá fyrri.“
Eftir nokkurra ára lægð hefur hún
samið 37 ný lög og tekið þau upp með
rokksveit. Þá skrifaði hún nýlega undir
samning við markaðsskrifstofu William
Morris uin að leika í kvikmyndum. „Ég er
orðin alveg glorhungruð," segir hún.