Morgunblaðið - 28.08.1998, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 7
FRÉTTIR
Menntamálaráðherra vill að lagt verði mat á vanda skólakerfísins vegna of fárra nýrra kennara
Pottaplöntu
Nokkur verðdæ
50%
qfsláttujr
Græna
þruman
11. kr. 299
Áður kr.jlúú"
Sértilboð
Ungpálmar
kr. 299, JM
Jukkur
kr. 399,-
Áður kr.-79T
Friðarlilja
kr.499,-
Áður kr.-895'
Ungpálmar
kr. 199,
Gróðurmold 61
kr. 159,-
ullpálmi,
kr. 999,
© (Mimarimövur
enn bætist við,
allt á 100, 200 og 300 kr.
Kentínapálmi
(Sá sterkasti)
kr. 1990,
Schefflera
(stór)
kr. 999,- 1
1/21.
Græna
þruman fylgir
Rósir á
löstudegi
10 stk.
kr. 799,-
BJÖRN Bjarnason menntamála-
ráðherra hefur þegar óskað eftir
tilnefningum í nefnd til að leggja
mat á vanda skólakerfísins vegna
þess að of fáir kennarar útskrifast
árjega. Hann vísar til sveitarfélag-
anna spurningum um hvort nauð-
synlegt sé að kennurum verði boð-
in hasrri laun vegna umframeftir-
spurnar eftir vinnuafli þeirra.
Björn sagðist hafa lýst viðhorf-
um sínum til kennaraskortsins ít-
arlega í grein í Morgunblaðinu 7.
ágúst sl. „Eg taldi að þetta væri
fyrirsjáanlegt að í ljósi þróunar
síðustu tveggja ára að menn þyrftu
að setjast niður og fara yfir málin.
Eg er að setja á laggirnar nefnd
með fulltrúum allra viðkomandi að-
ila til þess að meta þetta til lengri
tíma.“
Sveitarfélög hafa
fækkað í bekkjum
Frá nefndarskipun ráðherrans
var greint í Morgunblaðinu þann
1. ágúst sl. í frétt þar sem fram
kom að nefndinni væri ætlað að
meta hversu margra kennara
verði þörf í grunnskólum landsins
fram til ársins 2010 en of fáir út-
skrifíst árlega með kennarapróf.
Nefndinni sé ætlað að meta
þörf fyrir nýmyndun í kennara-
stétt, árlega þörf á endurnýjun að
meðaltali, kanna hversu stórt
hlutfall réttindakennara er við
réttindakennslu, hversu stór hluti
útskrifaðra kennara fer í kennslu
á hverju ári, þróun nemenda-
fjölda, aldursdreifingu í kennara-
stétt og hvaða áhrif hár meðalald-
ur hefur á fjölda stöðugilda.
Nefndinni er ætlað að skila
skýrslu um næstu áramót en í
henni sitja fulltrúar kennarahá-
Islenski fíkniefnasmygl-
arinn hugsanlega laus
úr lialdi eftir viku
Formleg
framsals-
beiðni enn
ekki borist
ÓLAFUR Bragi Bragason, fertug-
ur íslendingur, sem verið hefur í
haldi lögreglunnar í Karlsruhe í
Þýskalandi frá 23. júlí verður hugs-
anlega leystur úr haldi eftir viku
þar sem enn hefur ekki borist fram-
salsbeiðni frá Túnis að því Heinz
Weber, talsmaður þýska dómsmála-
ráðuneytisins, segir.
Vegna reglna sem gilda um fram-
salsbeiðnir geta þýsk yfírvöld ekki
haldið Ólafí lengur en 40 daga þar
sem brotið var ekki framið í Þýska-
landi og yfírvöld í Túnis hafa enn
ekki sent formlega beiðni um fram-
sal hans. Hann segir að íslensk yfir-
völd geti ekki hlutast til um framsal
nema því aðeins að viðkomandi
hefði brotið af sér þar í landi auk
þess sem Þjóðverjar telji mikilvægt
að staðið sé við framsalssamninga.
Ólafur Bragi er grunaður um að
hafa átt aðild að innflutningi á 1870
kg af hassi til Túnis og hafði al-
þjóðalögreglan Interpol þar í landi
leitað hans um langt skeið.
Fjaraði
undan trillu
BJÖRGUNARSVEITIN Al-
bert á Seltjarnarnesi var köll-
uð út snemma í gærmorgun til
að draga á flot trillu sem fjar-
aði undan við Akurey fyrir ut-
an Reykjavík. Var trillan
dregin út á flóðinu óskemmd
og eiganda hennar, sem var
einn um borð, sakaði ekki.
Þegar óskað eftir
tilnefningum í nefnd
skólans, Háskólans á Akureyri,
kennarasamtakanna og sveitarfé-
laganna.
Björn Bjarnason ítrekaði að
hann hefði áður bent á að það
blasti við að menn stæðu frammi
fyrir kennaraskorti. „Meðal ann-
ars hefur það gerst, eins og fram
hefur komið, að sveitarfélögin
hafa fækkað í bekkjum þannig að
þörfin er vaxandi og þetta þarf
ekki að koma neinum á óvart.“
Margt hefur
verið í vinnslu
Hann sagði að sams konar um-
ræður hefðu farið fram í fyrra en
hann hefði ekki talið þá tímabært
að setja á laggirnar nefnd til að
skoða framtíðarþróunina því þá
hefði verið unnið að breytingum
laga um Kennaraháskólann, sem
hafa tekið gildi núna, og úttekt á
kennaranáminu, sem liggi fyrir
núna „Margt hefur verið í vinnslu,
sem snertir þetta mál, og þess
vegna tel ég að það séu miklu betri
forsendur fyrir því núna að setjast
niður og átta sig á því til lengri
tíma.“
Bjöm var spurður hvort hann
teldi nauðsynlegt fyrir sveitarfé-
lögin vegna meiri eftirspurnar eftir
kennurum en framboðs að bjóða
kennurum hærri laun. „Sveitarfé-
lögin glíma við þennan vanda. Þau
hafa samið við kennara. Á vegum
ráðuneytisins starfa undanþágu-
nefndir og leiðbeinendur fara til
starfa í skólum ef það fást ekki
kennarar í skólana. Þetta kerfí
virkar allt lögum samkvæmt,“
sagði Björn Bjarnason.
Björn sagði að auðvitað væri
markmiðið að mennta sem flesta
kennara en lagaheimildir til að
leysa vanda vegna kennaraskorts
með ráðningu leiðbeinenda lægju
fyrir.