Morgunblaðið - 28.08.1998, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 11
FRÉTTIR
Hemingway býður leið-
sögumönnum í stórafmæli
HINN þekkti stangaveiðimaður og
rithöfdndur Jack Hemingway var á
Islandi fyrir skemmstu, dvaldi hér við
veiðar í ýmsum ám í þrjár vikur og
hélt síðan af landi brott til annarra
veiðilendna. Hann var m.a. í nokkra
daga við Laxá í Leirársveit og þar
sitja eftir tveir leiðsögumenn, Jón
Oddur Guðmundsson og Eiríkur Þor-
láksson með heimboð frá honum og
boð í 75 ára afmælisveislu hans sem
haldin verður í október næstkomandi.
„Þetta er besti karl og hefur ver-
ið hjá okkur í nokkur ár. Það er
skrýtið miðað við hversu lengi hann
hefur stundað ferðalög og flugu-
veiði hversu stutt er síðan hann
uppgötvaði Island. Það eru ekki
nema fjögur ár síðan hann kom
fyrst, en honum hefur gi-einilega
líkað lífið hér því hann hefur komið
reglulega síðan og staldrað lengi
við. Hann var til að mynda þrjár
vikur núna og renndi m.a. I
Fnjóská, Rangárnar og ég held í
Laxá í Aðaldal auk Laxár í Leirár-
sveit. Hann lifir af því að ferðast
um, veiða og skrifa síðan um
reynslu sína í hin ýmsu blöð,“ sagði
Jón Oddur í samtali við Morgun-
blaðið. Hemingway, sem er sonur
hins heimskunna rithöfundar Er-
nests Hemingways, veiddi ágætlega
í íslensku ánum að þessu sinni.
Mætti með farmiða
„Hemingway hefur oft verið að
tala um að bjóða okkur Eiríki heim
og ítrekað það á hverju sumri. Við
höfum þakkað kurteislega fyrir en
síðan ekki hugsað meira um það. I
sumar mætti hann hins vegar með
farmiða og afhenti okkur. Við þurf-
um að vísu að koma okkur frá New
York og heim til hans í Idaho, en við
setjum það ekki fyrir okkur. Við
verðum úti allan október, mest við
silungsveiðar í Idaho, en við vonumst
einnig til að komast til Washington
State til að veiða stálhaus. Þetta er
allt skipulagt og að frumkvæði Hem-
ingways," sagði Jón Oddur.
Jón sagðist enn fremur reikna
með því að afmælisveislan yrði hin
glæsilegasta, enda skildist sér að
gestir yrðu eitthvað um 500 talsins.
Þar yrðu ýmsir, búast mætti við ein-
hverjum stjömufansi sem tengdist
dóttur hans, Mariel Hemingway,
sem er þekkt leikkona. „Buzz Aldrin,
sá sem kom á hæla Neils Arm-
strongs á tunglið, verður þarna líka
að mér skilst.“
„Hemingway er búinn að upplifa
margt og þetta er að mörgu leyti
stórmerkilegur karl,“ segir Jón
Oddur, „hann er svo forfallinn í
veiðidellunni að með ólíkindum má
heita. Hann hefur sagt okkur margt
af því og annað höfum við lesið í
æviminningum hans. Hann segir til
dæmis frá því er hann var sendur í
njósnaleiðangur á bak við víglínuna
í Frakklandi í síðari heimsstyrjöld-
inni. Hann þurfti að stökkva í fall-
hlíf og í annarri hendinni var byss-
an, en í hinni flugustöngin. Hann
þurfti að skrökva því að yfirboðara
sínum að hann væri með einhver
loftnet í stangarhólkinum. Svo var
karlinn að kasta hér og þar þegar
færi gafst og einu sinni er hann var
niðursokkinn í veiðiskapinn hrökk
hann upp við að þýskur herflokkur
var kominn fast að honum. En hann
hafði verið með fóður sínum í
Frakklandi fyrir stríð og kunni því
frönsku. Hann gat því kjaftað sig út
úr vandræðunum!
JACK Hemingway og Jón Oddur Guðmundsson með fallegan smálax
við Laxfoss í Laxá í Leirársveit.
EIRÍKUR Þorláksson og Jón
Oddur Guðmundsson með fína
veiði úr Laxá á dögunum.
Hjörleifur Guttormsson
Opnar heima-
síðu á Netinu
HJÖRLEIFUR Guttormsson al-
þingismaður hefur opnað heimasíðu
á Netinu undir heitinu Grænn vett-
vangur en nafnið vísar til starfa hans
að umhverfismálum.
Á vefsíðunum er að finna heimild-
arsafn um umhverfismál auk blaða-
greina. Einnig fæst í gegnum heima-
síðuna yfirlit um öll þingmál og ræður
höfundar á Alþingi síðastliðin 10 ár.
Slóðin að heimasíðu Hjörleifs er:
http:/Avww.althingi.is/hjorlg/.