Morgunblaðið - 28.08.1998, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 28.08.1998, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Jeltsín að missa tökin KAUP OG SALA GJALDMIÐLA STOÐVUÐ I RUSSLANDI Seðlabankinn í Rússlandi stöðvaði kaup og sölu gjaldmiðla í gær þegar leit út fyrir að gengi rússnesku rúblunnar myndi hrapa niður úr öllu valdi Daglegt gengi á millibankamarkaði í Moskvu Staða rúblunnar gagnvart bandaríkjadollar (Viðsnúinn ás, rúblur lyrir hvern dollar) 7,5 8,0 23. mars Jeltsin rekur Tsjemomyrdin forsætisráðherra og alla rikisstjóm hans 24. apríl Dúman samþykkir loks skipun Kíríjenkós i embætti forsætisráðh. 12. maí Kolanámumenn hefja mótmæli vegna ógreiddra launa 13. igúst George Soros, alþjóðlegur fjáríestir, hveturfíússa til að fella gengi rúblumar 17. ágúst fíússland leyfir gengis- fellingu rúblunnar 13. júlí Erlendar lánastofnanir (IMF og fleiri) heita fíússlandi láni upi rúma 22 milljarðt 20.JÚII IMF lætur fíússa fá fyrstu 4,8 milljarðana afláninu 23. ágúst Jeltsm rekur ríkisstjórn Kiríjenkós og tilnefnir Tsjernomyrdín sem starfandi fors.ráðherra 27. ágúst Kaup og sala gjaldmiðla stöðvuð til að forðast | algerí hrun rúblunnar 5 12 26 2 9 16 23 2 10 16 23 30 6 13 22 27 5 12 18 25 1 Jartúar Febrúar Mars Apríl Maí 8 15 22 29 6 13 20 27 3 10 17 24 Júní Júlí Ágúst Reuters ÓÐAVERÐBÓLGA hefur gripið um sig í Rússlandi og fékk þessi gamla kona lítinn afgang eftir innkaup sín í gær í Sankti Pétursborg. Efnahagskreppa er skollin á í Rússiandi, sú versta frá hruni Sovét- ríkjanna árið 1991. Ovissa ríkir ekki ein- ungis um úrlausnir í efnahagsmálum, segir Davíð Logi Sigurðsson, heldur hrannast upp óveðursský í stjórnmál- um landsins og virðist ekki útilokað að dagar Borís Jeltsíns sem for- seta séu senn taldir. LJÓST er að skipun Viktors Tsjemomyrdíns í embætti forsætis- ráðherra hefur alls ekki haft róandi áhrif á rússneska fjármálamarkaði heldur einmitt hið gagnstæða. Áhrifa af efnahagslegu öngþveiti í Rússlandi síðustu daga er þegar tekið að gæta annars staðar, ekki síst í nágrannaríkjunum. Seðlabanki Rússlands virðist kominn í þrot og jafnframt lítur út fyrir að rússnesk stjómvöld megi vænta minni samúð- ar erlendis frá en áður því banda- rískir og evrópskir ráðamenn eru sammála um að ekki komi lengur til greina að dæla fjármunum í Rússa enda væri það eins og að kasta pen- ingum í botnlausa hít. Rússar verði að leysa eigin efnahagsvanda. Seðlabankinn í Rússlandi setti bann við öllum viðskiptum með er- lenda gjaidmiðla í gær vegna ótta um að gengi rússnesku rúblunnar félli niður úr öllu valdi. Á miðviku- dag hafði bankinn bannað skipti á rúblum og dollurum en í þetta sinn var gengið enn lengra og eru þessar ráðstafanir algert einsdæmi á rúss- neskum peningamarkaði. Líkja menn ástandinu nú við hið efna- hagslega hrun Indónesíu sem varð þess valdandi að Suharto forseti var hrakinn frá völdum eftir að óeirðir höfðu brotist út. Bankakerfið gjaldþrota? Það er reyndar samdóma álit fréttaskýrenda að Borís Jeltsín, for- seti Rússlands, hafí gjörsamlega misst stjóm á málum. Hefur forset- inn ekki látið sjá sig í Kreml undan- fama tvo daga, hann er talinn heilsulaus og rúinn trausti og spumingin virðist ekki hvort hann láti af embætti áður en árið er úti heldur hver taki við stjómar- taumunum af honum. BANDARISK þingnefnd íhugar nú að senda breskum stjómvöldum reikning vegna björgunaraðgerða á McKinley-fjalli í júnímánuði þar sem tveimur breskum hermönnum var bjargað með aðstoð þyrlu. Var kostnaður sá mesti sem um getur í sögu björgunaraðgerða í Alaska-ríki. Björgunaraðgerðirnar, sem tóku fjóra daga, kostuðu u.þ.b. 220.000 dollara eða rúmlega 15 milljónir ísl. kr. Hinn geysihái kostnaður varð vegna aftakaveðurs en vegna þess urðu björgunarþyrlur margoft frá að hverfa áður en rofaði til þannig að tækifæri gafst tii að sækja menn- ina tvo. Var kostnaðurinn næstum því þreföld sú upphæð sem eytt var í björgunaraðgerðir á öllu síðasta Ríkisstjóm Jeltsíns tilkynnti 17. ágúst síðastliðinn að hún ætlaði að láta gengi rúblunnar fljóta, binda enda á markaðsviðskipti með skammtíma ríkisbréf auk þess sem 90 daga greiðslustöðvun erlendra skulda var ákveðin. Þessar róttæku aðgerðir komu í kjölfar tímabils þar sem reynt var að halda gengi rúblunnar stöðugu og leitast var við að stoppa í göt efnahagslífsins með aðstoð tveggja lánveitinga frá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF). Ríkisstjóminni mistókst hins vegar að koma nauðsynlegum efnahags- umbótum í gegnum Dúmuna, neðri deild rússneska þingsins og hvarf þá tiltrú innlendra og erlendra fjár- festa út í veður og vind. ári við McKinley-fjall. Sagði Jim O’Toole, talsmaður þingnefndar um orkumál og náttúruminjar, að sennilegt væri að farið yrði fram á endurgreiðslu vegna björgunarinn- ar því McKinley fjall væri ólíkt öðr- um að því leytinu til að það væri af- ar illkleift og sannarlega engin sunnudagsgöngutúr að ganga á það. Auknar kröfur væru því gerðar um að fjallgöngumenn sem kæmu sér í vandræði greiddu fyrir þá aðstoð sem þeir hlytu. Talsmaður breska vamarmála- ráðuneytisins kvaðst ekki hafa heyrt um endurgreiðslukröfur Bandaríkjamanna og sagði að ráðu- neytið myndi bregðast við slíkum kröfum er þær bærust. Vitað var að gengi rúblunnar myndi falla eftir aðgerðirnar 17. ágúst en fjármálasérfræðingar rík- isstjórnarinnar vonuðust til þess að þeim tækist að koma í veg fyrir að rúblan félli niður fyrir 9,5 gagnvart Bandaríkjadollaranum. Þessar von- ir bmgðust hins vegar algerlega á mánudag þegar menn kepptust við að selja rúblur sínar og kaupa doll- ara, og gengu rússneskir bankar harðast fram í þeirri viðleitni til að bjarga eigin skinni enda skulda þeir umtalsverðar fjárhæðir erlendis. Er samt sem áður talin hætta á að þeir verði gjaldþrota komi ríkisaðstoð ekki til. Verðhrun rúblunnar á þriðjudag var hið mesta í fjögur ár og var gengi hennar gagnvart dollaranum 7,86 við lok viðskipta þann daginn. Seðlabankinn sagðist í fyrradag ekki geta gert meira til að styrkja rúbluna en bankinn hefur eytt 9 milljörðum Bandaríkjadala undan- fama tvo mánuði til að styrkja gengi rúblunnar gagnvart dollaran- um, þar af 1,8 milljarða dala síðan 17. ágúst. Skelfing breiðist út Óvænt ferð Tsjernomyrdíns til Simferapol á Krímskaga í fyrradag þar sem hann hitti Michel Cam- dessus, framkvæmdastjóra IMF, var af sumum talin vísbending um að Rússar óttuðust að IMF myndi neita að standa í skilum með næstu greiðslu, upp á næstum fímm millj- arða Bandaríkjadala, sem tengist aðstoð sjóðsins upp á rúmlega 22 milljarða Bandaríkjadala sem Rúss- ar tryggðu sér fyrr í sumar. IMF á hins vegar útistandandi um 20 millj- arða Bandaríkjadala hjá Rússum og mögulegt er að sjóðurinn komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé annað hægt í stöðunni en halda áfram greiðslum til Rússa. Almenningur í Rússlandi hefur reynt að losa sig við rúblur, annað- hvort með því að kaupa vörur fyrir þær eða með því að kaupa dollara. En skelfing hefur ekki aðeins grip- ið um sig meðal almennings í Rúss- landi heldur hefur hún jafnvel náð út fyrir landamæri Rússlands því viðskiptavinir Rigas Kormerc- banka í Lettlandi, sem er fjórði stærsti banki landsins, streymdu í gær í bankann til að taka peninga sína út. Var talið að þeir óttuðust hversu há lán bankinn ætti útistandandi í Rússlandi en líkur aukast stöðugt á því að þau lán muni aldrei fást endurgreidd. Fréttaskýrendur töldu reyndar flestir að bankakerfíð í Lettlandi myndi standa af sér þetta áhlaup en einhverjir bankanna í landinu voru þó taldir í hættu. í raun voru fréttaskýrendur sam- mála um að efnahagsástand allra ríkja á þessu svæði væri háð fram- vindu mála í Rússlandi. Jafnvel bankar í Sviss og Þýskalandi hafa orðið fyrir áfóllum vegna ástandsins í Rússlandi og tilkynnti Credit Suis- se Group í gær að bankinn sæi fram á 250 milljóna dollara tap vegna hrunsins þar. Jeltsín strengjabrúða? Atburðarásin hefur verið mjög hröð og alger óvissa ríkir um fram- haldið. Alls kyns samsæriskenning- ar eru nú á kreiki, auk orðróms um afsögn Jeltsíns, og tengist sú vin- sælasta brottrekstri Kíríjenkós sem talinn er sanna áhrif manna eins og auðkýfingsins Borís Berezovskys sem nýtti sér erfiðleika í efnahags- málum og veika stöðu Jeltsíns til að koma til valda ríkisstjórn sem væri honum vinsamlegri. Berezovsky studdi Jeltsín fjár- hagslega í síðustu forsetakosning- um og hann er nátengdur bæði Tatjönu, dóttur Jeltsíns, og Valent- ín Júmashev, einum helsta ráðgjafa hans. Mun Berezovsky lítt hafa kunnað við umbótastefnu Kíríj- enkós og viljað tryggja eigin fjár- málahagsmuni. Sá hann einnig tækifæri til að græða ótæpilega á gjaldmiðlabraski. Líkur á að Tsjemomyrdín taki við af Jeltsín er einnig mikið til um- ræðu en talið er að hann eigi litla möguleika ef kosið verður eftir tvö ár eins og til stendur. Hins vegar stæði hann betur að vígi ef Jeltsín færi frá nú og boðað yrði til kosn- inga því þá myndi Tsjemomyrdín njóta þess að vera starfandi forseti. Ekki er ólíklegt að efnahagsólg- una, að minnsta kosti umfang henn- ar, undanfarna daga megi m.a. rekja til þessarar gífurlegu óvissu sem ríkir í stjórnmálum Rússlands. Enginn virðist vita hver er við stjórnvölinn í Kreml, hvort Jeltsín sé nú einungis strengjabrúða auð- kýfínga og hvað gerist þegar og ef hann fer frá. Rannsaka fjáröflun Als Gores JANET Reno, dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna, hefur fyrirskipað nýja rannsókn á fjáröflun Als Gores, vara- forseta Bandaríkj- anna, fyrir Demókrata- flokkinn. Símtöl, 45 talsins, sem Gore mun hafa átt við stuðningsmenn á skrifstofu sinni verða skoðuð sérstaklega í þetta sinn. Að rannsókninni lokinni mun Reno skera úr um hvort skipaður verði sérstakur saksóknari sem rannsaki frek- ar fjáröflun varaforsetans í Hvíta húsinu. Sprengjutil- > ræði í Uganda FJÓRAR sprengjur hafa sprangið í langferðabifreiðum í Uganda í þessari viku, að sögn blaðsins New Vision, nú síðast í rútu sem var á leið frá Kigali í Rúanda til Kampala. 32 hafa látist í tilræðunum en skæru- liðar úr Þjóðfrelsisher Úganda hafa lýst þeim á hendur sér. Fjarstýrðar jarðsprengjur JAPANSKIR vopnaframleið- endur hyggjast þróa nýja gerð jarðsprengna með fjarstýr- ingu, að sögn tímaritsins New Scientist, þannig að þær springi ekki sjálfkrafa þótt stigið sé á þær. Slíkar sprengj- ur falla ekki undir alþjóðalegt samkomulag um bann við framleiðslu og notkun jarð- sprengna, sem kennt er við Ottawa. Samtök sem berjast gegn notkun jarðsprengna segja fyrirætlun Japananna aðeins tilraun til þess að kom- ast í kringum Ottawa-sam- komulagið. Jarðskjálfti í Kína JARÐSKJÁLFTI sem mæld- ist 6,6 á Richters-kvarðanum skók Xinjiang-hérað í norð- vestur hluta Kína í gær. Engar fréttir höfðu bárust af tjóni en hin opinbera jarðskjálftavakt sagði ráðlegt að bíða frekari frétta frá héraðinu. Banvæn sinnepsolía ELLEFU manns að minnsta kosti og um 500 manns hafa lagst inn á sjúkrahús í Nýju Delhi, höfuðborg Indlands, undanfama daga, eftir að hafa neytt mengaðrar sinnepsolíu. Sinnepsolía er mikið notuð við matargerð í austur- og norður- hluta Indlands. Kosið í Belize ÞINGKOSNINGAR fóra fram í gær í Belize, smáríki við Karíbahafsströnd Suður- Ameríku og fyrrverandi bresk nýlenda. Kjörsókn var mikil, en kosningabaráttan einkennd- ist af spillingarásökunum og deilum um mikla skattbyrði. Dýrasti björgunarleiðangurinn í Alaska fhuga að krefjast endurgreiðslu Los Angelcs. The Daily Telegraph. Janet Reno
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.