Morgunblaðið - 28.08.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 27
LISTIR
Islensk Disney-
lönd á Mokka
Morgunblaðið/Þorkell
EITT af Iíkönum Valgerðar Guðlaugsdóttur úr
myndröðinni „Þjóðgarðar" á Mokka.
Síðasta sum-
arkvöldið við
orgel Hall-
grímskirkju
NÍUNDU tónleikar í tónleikaröð-
inni Sumarkvöld við orgelið
verða í Hallgrímskirkju sunnu-
daginn 30. ágúst. Að þessu sinni
spilar Neithard Bethke,
dómorganisti í Ratzeburg í
Þýskalandi og eru þetta síðustu
tónleikarnir í þessari tónleikaröð
í sumar.
Á efnisskránni eru verk eftir
Clarke, Buxtehude, Bach, Al-
binoni, Cimarosa, Cherubini o.fl.
Auk þess leikur Bethke eigin
orgeltónlist. Tónleikarnir hefjast
klukkan 20.30 og er aðgangseyr-
ir krónur 800,-.
í kynningu segir, að Neithard
Bethke eigi að baki langan og lit-
ríkan feril sem kirkjutónlistar-
maður. Hann kom opinberlega
fyrst fram sem orgelleikari ellefu
LJÓSMYNDASÝNING verður opn-
uð í Ki-inglunni á torginu fyrir fram-
an verslunina 17 á laugardaginn. Þar
verða til sýnis verðlaunamyndir og
aðrar ljósmyndir úr ljósmynda-
keppni Vinnuskóla Reykjavíkur og
Hans Petersen sem fram fór nú í
sumar.
Á hverju sumri heldur Vinnuskól-
inn úti fræðslustarfí jafnhliða hefð-
bundinni vinnu. Tilgangur fræðslu-
starfsins er bæði að veita tilbreyt-
ingu frá erfiði hversdagsins og að
fræða nemendur um sögu, menn-
NEITHARD Bethke æfír sig á
orgel Hallgrímskirkju.
ára gamall og tók við fyrstu org-
anistastöðu sinni aðeins þrettán
ára. Námsferill hans lá um
Liibeck og Freiburg, þar sem
hann lærði kirkjutónlist, _
tónsmiðar og kórstjórn. Árið
1965 varð hann listrænn stjórn-
andi Kammerhljómsveitar hansa-
borganna Hamborg og Liibeck,
en frá árinu 1969 hefur hann
verið tónlistarsljóri við Dóm-
kirkjuna í Ratzeburg í Norður-
Þýskalandi.
ingu, vinnumarkaðinn og fleira. í
sumar tók Vinnuskólinn höndum
saman við Hans Petersen um að
halda ljósmyndakeppni í tengslum
við fræðslu- og tómstundastai'fíð.
Hans Petersen lagði til einnota
myndavélar, framköllun og stækkan-
ir vegna sýningar og kepptu ungling-
arnir saman í vinnuhópum. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri mun
opna sýninguna kl. 13. laugardaginn
29. ágúst ogveitir við það tækifæri
sigurhópnum í keppninni verðlaun.
Sýningin stendur til 12. september.
MYJVPHST
Mokka
LÁGMYNDIR
VALGERÐUR
GUÐLAUGSDÓTTIR
Opið verslunartíma. Til 9. sept.
VIÐ fyrstu sýn er eins og lág-
myndir Valgerðar Guðlaugsdóttur
séu litrík absti-aktmálverk, en þegar
nánar er að gáð kemur í ljós að þetta
eru líkön. „Þjóðgarðar" kallar hún
myndimar, líkön af görðum, sem
líkjast þó meir leikfangagörðum fyr-
ir tindáta en tillögum að raunveru-
legum skrúðgörðum. Á líkönunum
má sjá fjöll í smækkaðri mynd,
tjarnir, goshveri og fjöldann allan af
örsmáum eldspúandi gígum innan
um hraunfláka. Garðarnir eru ýmist
eins og franskir rókókó-skrúðgarðar
eða golívellir, fullkomlega óraun-
verulegir og fáránlegir, sambland af
íslenskum landslagsminnum og er-
lendri skrúðgarðahönnun. „Islensk
Disneylönd“, kallar Valgerður þjóð-
garða sína.
Mig minnir að það hafi verið
franskur heimspekingur, sem kom
hingað fyrh' nokkrum árum, og tal-
aði um það að þjóðgarðar og nátt-
úruverndarsvæði í Evrópu væru far-
in að snúast upp í andhverfu sína.
Þeir væru orðnh- að útivistarsvæðum
og skemmtigörðum, umki-ingdir bíla-
stæðum, tjaldstæðum, sjoppum og
hraðbrautum. Hugmyndin um þjóð-
garð sem ósnortna, upprunalega
náttúru væri mótsagnakennd í sjálfu
sér; þjóðgarðar eru varðveitt útstill-
ing á menningarbundnum hugmynd-
um okkar um hina einu sönnu,
óspilltu náttúru. Þjóðgarðar í Evr-
ópu eru táknmynd fyrir þau upp-
runalegu tengsl við náttúruna sem
Evrópubúar hafa glatað. Af þessu er
ljóst að garðar, hvort sem það eru
skrúðgarðar eða þjóðgarðar, bjóða
upp á margvíslegar pælingar varð-
andi samband menningar og nátt-
úru. Annar íslenskur listamaður sem
hefur kannað svipuð mið er Sigurður
Árni Sigurðsson, sem sýndi í Ingólfs-
stræti 8 í vor málverk af tilbúnu
landslagi.
Þjóðgarðalíkön Valgerðar eru
skemmtilegur útúrsnúningur úr
landslagsmyndahefð og þeirri ímynd
sem sköpuð er af landinu í gegnum
túristapóstkort. Hins vegai- er Val-
gerður of upptekin af því að leita sér
að stílrænum fyrirmyndum í minja-
gripakúltúr og smáskrani. Leikara-
skapur listamanna í kringum „kits“,
lágkúru og smekkleysu, er í sjálfu
sér orðinn klisjukenndur. Upphafn-
ing á smekkleysunni sem annars
konar fegurð er orðin frekar bragð-
dauf tugga. En þessi sýning er þó
það áhugaverðasta sem ég hef séð
frá Valgerði til þessa.
Gunnar J. Árnason
Lj ósmyndasýning
í Kringlunni
Gunnar Hersveinn og Margrét Sveinbjörnsdóttir fjalla um menntun
Blaðaukinn Menntun/að læra meira
fylgir blaðinu á laugardaginn.