Morgunblaðið - 28.08.1998, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 28.08.1998, Qupperneq 40
.40 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Hulda Soffía Arn- bergsdóttir fædd- ist í Borgarnesi 8. ágiíst 1927. Hún lést 20. ágúst síðastliðinn á Landspítalanum. Foreldrar hennar voru Ambergur Stef- ánsson, bifreiðastjóri í Borgarnesi, f. 9.10. 1897, d. 19.12. 1990, og Þorgerður Hall- mundsdóttir, f. 13.10. 1899, d. 9.4. 1990. Systir hennar, Elsa Fríða Arnbergsdótt- ir, er búsett í Borgar- nesi, Elsa giftist Gísla Sumarliðasyni. Hulda Soffía giftist Þorvaldi Þorvaldssyni bifreiðarstjóra, frá Þóroddsstöðum í Hrútafirði, hinn 12. nóvember 1949. Börn þeirra eru fjögur: Þorvaldur, f. 22.10. Mamma mín. Ur hveiju vildir böli bæta, brosið var sem skin af sól, Vildir hugga, verma og kæta, veita hrjáðum líkn og skjól. Göfugt allt og gott þú kenndir, góða elsku mamma mín,- bættir allt og blíðu sendir. Björtust allra’ er minning þín. (Þuríður Briem.) Þín dóttir, Gróa María. Ástkær elskuleg systir mín er lát- in. Minningar liðinna ára hrannast upp. Hulda fæddist og ólst upp í Borgamesi, við systur nutum örygg- is og ástríkis góðra foreldra. Ti\yggð hennar við æskuslóðirnar var mikil, þar átti hún sínar æskuminningar og * þaðan voru hennar betu vinkonur, Eria og Hulda Daníelsdætur. Hulda vann hjá Mjólkursamlagi Borgfirð- inga í nokkur ár, einnig við verslun- arstörf hjá Versluninni Borg, Borg- arnesi, þá ók hún vörubifreið í vega- vinnu fyrir föður okkar um tíma. Stundaði nám í Húsmæðraskólanum á Blönduósi, lærði fata- og kjóla- saum á Akranesi. Systii- mín var mikil hannyrða- kona og má segja að allt léki í hönd- um hennar, saumaði hún og prjónaði nánast allt á fjölskyldu sína og aldrei féll henni verk úr hendi. Bókband sem hún lærði var henni hugleikið, batt hún inn fjölda bóka, var víðlesin og unni bókmenntum. Þá starfaði hún um 10 ára skeið á Kjarvalsstöð- '' um. Hennar mesta gæfuspor í lífinu var er hún giftist 12. nóvember 1949, Þorvaldi Þorvaldssyni bifreiðastjóra 1950, kona hans er Ragnheiður Júlíus- dóttir. Synir hennar eru Heiðar og Aron Freyr. Þorgerður, f. 31.1. 1952, gift Jóni Helgasyni, börn þeirra eru Eiríkur, Þorvaldur og Sara Huld. Arnbergur, f. 20.11. 1956, kvæntur Hönnu Margréti Geirsdóttur. Dóttir hans: Hulda Soffía. Börn hennar: Pétur og Harpa. Sonur þeirra: Oddur Elí. Gróa María, f. 17.10. 1960, gift Ingólfi Garðarssyni. Börn þeirra eru Bjargey, Andri, Guðrún María og Hulda Soffía. Útför Huldu Soffíu fer fram í Bústaðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. ættuðum frá Þóroddsstöðum í Hrút- afirði. Þau byi’juðu sinn búskap sama ár á Háteigsveginum, byggðu síðan hús í Bústaðahverfi, fluttu þangað 1953, bjuggu þar til ársins 1970 er þau fluttu í nýbyggt hús sitt í Grundarlandi í Fossvogi. Þau hjón byggðu sér sumarbústað í Grímsnes- inu, þar var þeirra sælureitur með börn, tengdabörn og barnabörn sér við hlið, hún naut ferðalaganna var náttúrunnandi og mikil ræktunar- og blómakona. Eiginmaður og fjölskylda var það sem systir mín lifði fyrir. Eg veit að barnabörn hennar sjá sárt á eftir ömmu sinni. Hulda systir mín var vel gefin kona og vildi allt fyrir alla gera, vandamál voru henni óþekkt. Eg á eftir að sakna þín mikið, elsku systir, sakna hringinganna sem voru mér svo kærar, eins voru ferðir þín- ar til Borgarness okkur svo kær- komnar. Vil ég þakka þér fyrir vin- áttu og tryggð við mig og fjölskyldu mína sem aldrei bar skugga á. Eiginmanni, börnum, tengdabörn- um og barnabörnum votta ég mína dýpstu samúð, þið hafið misst svo mikið. Megi allar góðu minningarnar sem þið eigið um góða eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu styrkja ykkur í sorginni og ylja ykk- ur um ókomin ár. Elsa Arnbergsdóttir. Elsku amma mín. Það er erfitt að hugsa til þess að þú sért farin. En ég veit að þú verður alltaf hjá mér í hug- anum, amma, og ég veit að þú munt alltaf fylgjast með mér. Eg er þakklát fyrir að hafa átt þig sem ömmu, þú varst alltaf til staðar ef eitthvað var að, svo skilningsrík og ljúf. Það var alltaf gaman að koma til þín amma, þú hafðir alltaf mikið að segja og ávallt var ég velkomin til þín. Það sem einkenndi þig, amma, var þolinmæði, og alltaf vildir þú gera eitthvað fyiár aðra, en vildii’ helst ekki þiggja neitt sjálf. Eitt er víst að frá þér hef ég lært að sælla er að gefa en að þiggja. En dýrmætasta gjöf sem ég hef fengið á ævinni er að hafa átt ömmu með hjarta úr gulli. Hvll í friði. Bjargey. Þegai- ég heyrði lát móðursystur minnar Huldu Ambergsdóttur komu upp í huga mér góðar minningar um góða frænku sem reyndist mér ætíð vel. Dvaldi ég á heimili hennar í fjóra vetur er ég stundaði nám í Reykjavik. Þar var mér tekið sem einum af fjöl- skyldunni. Frá þeim tíma á ég Ijúfar minningar um frænku mína og henn- ar fjölskyldu sem endi'anær. Fyrir þetta vil ég þakka að leiðarlokum. Þorvaldi og fjölskyldu votta ég mína dýpstu samúð. Guð blessi ykk- ur öll. Arnar Már Gíslason. Ég lifi’ og ég veit, hve löng er mín bið, ég lifi’, unz mig faðirinn kallar. Eg lifi’ og ég bið, unz ég leysist í frið, ég lifi sem farþegi sjóinn við, unz heyri ég, að Herrann mig kallar. Ég dey og ég veit, nær dauðann að ber, ég dey, þegar komin er stundin, ég dey, þegar ábati dauðinn er mér, ég dey, þegar lausnin mér hentust er og eilífs lífs uppspretta’ er fundin. (Þýð.Stef.Thor.) Hún Hulda Soffia er gengin á vit feðra sinna. Þai' kvaddi kona er gædd var miklum mannkostum. Kynni mín af henni hófust fyrir aðeins fimm árum er ég hóf sambúð með syni hennar Lalla. Mér er í fersku minni hvað þau hjón tóku mér strax af mikilli hlýju og vinsemd, sem haldist hefur allar götur síðan. Það er alltaf erfitt að ætla að setja í fáeinar línur þær minningar er með manni búa. Þó vil ég geta þess hvað það var hressandi að heimsækja Huldu. Hún var ævinlega tilbúin að ræða hvað sem var, en hjartfólgnust voru henni þó fjölskyldan hennar, barnabörnin, ættmenni og dýrin sem búa hjá fjölskyldunni. Hún bjó yfir þeim mannkærieika sem allir gætu verið stoltir af. Glaðlyndi og hlýja einkenndi viðmót hennar og ævin- lega kvaddi hún með þessum orðum, „líði ykkur vel“. Sorgin er mikil og á svona stund- um finnum við hvað við megum okk- ar lítils. Hafðu þökk fyrir innihalds- ríka samveru. Far í Guðs friði. Ragnheiður. HULDA SOFFÍA ARNBERGSDÓTTIR MARGRÉT LEÓSDÓTTIR + Margrét Leósdóttir fæddist á ísafirði 22. júní 1914. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði 11. ágúst síðastliöinn og fór útför hennar fram frá fsa- fjarðarkirkju 22. ágúst. Okkur verður söknuður og tregi efst í huga, þegar góðir samborgarar okkar hverfa skyndilega yfir móðuna miklu, jafnvel þegar þeir hafa að fuilu skilað því ævistarfi, sem til verður ætlazt af þeim. ísafjörður, eins og mörg önnur samfélög, átti því láni að fagna að þar ólst upp kjam- mikil aldamótakynslóð, sem hefur lagt mikið af mörkum til að móta samfélag okkar, en hefur síðan látið komandi kynslóðum eftir að njóta ávaxta verka sinna. Margrét Leósdóttir tilheyrði þess- ari kynslóð. Við eigum ekki eftir marga innfædda Isfirðinga frá henn- ar tíma en hún fæddist á Isafirði þann 22. júní 1914. Margrét var dóttir Leós Eyjólfssonar söðlasmiðs og kaup- manns á Isafirði og Kristínar Hall- dórsdóttur, konu hans. Hún var yngst átta systkina, átti sex albræður og einn hálfbróður, sem allir eru látnir. Það er margt, sem gerir fólk minn- 'I isstætt, en af flestum verður Grétu Leós minnzt fyrir alþýðlegt viðmót og velvild í garð samborgara sinna. Hún var stolt af uppruna sínum þar með talið götu æskuáranna, Hrann- argötunni. Hún kallaði sig því gjarn- an Hrannargötupúka eins og við hin, sem ólumst upp við þessa götu, sem var full af góðu fólki í öllum húsum. Lokaár heimsstyrjaldarinnar síð- ari varð mikið örlagaár fyrir Grétu. Þá batzt hún tryggðaböndum þeim manni, sem hún hefur staðið sem klettur við hlið ávallt síðan. Sá maður var Jóhann Júlíusson, bóndasonur úr Fljótavík, sem átti eftir að jsýna og sanna, að hann átti erindi til Isafjarð- ar. Ég hef fylgzt með Jóhanni síðan ég var strákiingur, frá því fyrsta skiptið Gunnvöru, sem bar nafn sam- nefnds útgerðarfélags, var hleypt af stokkunum. Undir forystu Jóhanns stækkuðu skipin og félagið efldist. Um áratugi átti ég farsæl viðskipti við fyrirtæki Jóhanns og félaga hans. Hann var um árabii stjórnarmaður í Félagi vestfirzkra skreiðarframleið- enda, sem síðar varð ísfang. Er gott að hugsa til þeirra ára í samstarfi með Jóhanni. Eg met hann mikils fyrir stórhug hans, óbilandi bjart- sýni, hreinskiptni og heiðarleika. Fyrir allt það vil ég þakka honum á þessari kveðjustund eiginkonu hans. Jóhann og Gréta eignuðust tvo syni, Leó, sem nú er starfandi ijósmyndari í Austurríki, og Kristján Guðmund, sem er framkvæmdastjóri útgerðar- fyrirtækisins Gunnvarar hf. Auk þess gengu þau Jóhann og Gréta í fóður- og móðurstað systurdóttur Jóhanns, Jónínu Olöfu. I langri atvinnusögu þeirra hjóna hafa skipzt á skin og skúrir eins og jafnan vill verða, þótt leiðin lægi hægt og bítandi upp á við og fram á veginn. Þegar betur fór að ganga var það víðs fjarri, að Gréta Leós færi að miklast af velgengninni eða telja sig yfir aðra hafin þess vegna. Nei, hún var enn sama alþýðustelp- an eins og á uppvaxtarárunum í Hrannargötunni. Vinkona Grétu reyndi einu sinni að stiíða henni með hvað hún væri orðin rík, þegar Júlíus Geirmundsson fiskaði sem mest. Hún bar ekki á móti ríkidæminu, en það fælist í þeim lífsgildum, sem hún mæti mest. Margrét Leósdóttir kveður þenn- an heim rík af kærleika til sinna nán- ustu og velvild til allra samborgara sinna, sem eftir standa og þakka henni langa og góða samfylgd. Þér Jóhann, gamli vinur, og öllum ástvinum þínum færi ég innilegar samúðarkveðjur. Megi hin heiðbjarta mynd af Margréti Leós varðveitast um alla framtíð í hjarta ykkar. Guð veri með ykkur. Ólafui' B. Halldórsson. JON GUÐMUNDUR BERNHARÐSSON + Jón Guðmundur Bernharðsson fæddist á Akureyri 21. september 1930. Hann lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur hinn 20. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Sigur- björg Jónsdóttir, f. á Litlu-Háeyri og Bernharð Helgason, f. á Hólum í Eyja- fírði. Hann var tví- kvæntur. Fyrri kona hans var Bryndís Stefánsdóttir frá Traðargerði á Húsavík. Þau eignuðust fimm börn. Þau eru: 1) Jóna Björg, gift Yngva Þór Loftssyni. Böm þeirra em: Bryndís, Guðrún Ragna og Þor- steinn. 2) Stefán Ingi, kvæntur Guðrúnu Snæbjömsdóttur. Böm þeirra era: Hörður Ingi, Þórdís Elsku pabbi, þar sem við fengum ekki tækifæri til að kveðja þig langar okkur að gera það hér. Okkur þótti mjög vænt um þig og söknum þín sárt en erum þakklát fyrir þann tíma sem við fengum að njóta samveru þinnar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Hvíldu í friði, elsku pabbi. Bernharð Smári og Bryndís Þóra. Tengdafaðir minn, Jón Guð- mundur Bernharðsson, lést langt um aldur fram hinn 20. ágúst síð- astliðinn. Kynni mín af honum hófust fyrir þrjátíu árum þegar fjölskylda hans bjó á Þinghóls- brautinni og við Jóna Björg felld- um hugi saman. Á þessu árabili hafa starfsvettvangur og aðstæður Jóns verið margbreytileg. Hann rak byggingarfyrirtæki á Húsavík og síðan var hann matsveinn á millilandaskipum og ferðaðist um heimsins höf. Hann þurfti síðan að láta af störfum vegna heilsubrests og við tóku erfíðar sjúkrahúslegur og endurhæfing. Þótt honum þætti hlutskiptið erfitt tók hann því með aðdáunarverðu hugrekki og reyndi að laga sig að breyttum aðstæðum. Hann heimsótti ætt- ingjana og létti undir með akstri fyrir þá ef þurfti. Hann lærði á tölvu til að stytta sér stundir bæði til gamans og vegna starfa sinna sem gjaldkeri húsfélagsins að Vallarási 2. Jóni var mikilvægt að hitta íjöl- skylduna sína og hafði þann hátt- inn á að halda dýrðlegar matar- veislup á jólum og við önnur tæki- færi. I sumar tók hann upp þráðinn eftir nokkurt hlé og bauð börnum og barnabörnum til veislu á þann hátt sem honum einum var lagið. Vegna góðrar kunnáttu í matar- gerð leituðum við oft til hans eftir ráðleggingum og uppskriftum, sem jafnharðan voru gefnar án þess að þurfa að fletta þeim upp. Alla tíð sýndi Jón þeim verkefn- um sem við fengumst við mikinn áhuga. Hann fékk því oft fyrstur fréttirnar ef eitthvað nýtt var á döfinni og oftar en einu sinni urðu hvatningarorð hans til þess að auð- velda okkur ákvarðanatöku. Eftirminnilegt er þegar hann heimsótti okkur til Kanada haustið 1995, og þá sem fyrr færandi mat- fóng og gjafir handa börnunum. Jón var ekki fyrr kominn en hann var farinn að taka þátt í heimilis- haldinu og barnapössun. Til að fylgja barnabörnunum eftir lét hann sig ekki muna um að fara í Yrsa og Jón Ingi. 3) Bernharð Smári. 4) Bryndís Þóra, gift Sören Sigurðssyni. Dætur þeirra em: Helga og Ingibjörg. 5) Guðrún Katrín, gift Garðari Jóhann- essyni. Seinni kona Jóns var Steinunn Sigurbjörg Valdi- marsdóttir sem lést 1985. Eftirlifandi systkini hans era 1) Anton Helgi, f. 1926, k. Katrínu Þorvalds- dóttur. 2) Guðrún Dóra, f. 1928. Jón starfaði lengst af við múrverk en í seinni tíð sem matsveinn á skipum Sambands- ins^ Utför Jóns Guðmundar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. langar hjólreiðaferðir um nágrenn- ið og hafði þá ekki komið á hjól í áratugi. Nú þegar leiðir skilur og söknuð- ur gerir vart við sig er okkur Jónu og börnunum efst í huga þakklæti fyrir allar ánægjulegu samveru- stundirnar sem við áttum. Þær munu lifa áfram um ókomna tíma og verða okkur til huggunar. Blessuð sé minning Jóns Bern- harðssonar. Yngvi Þór Loftsson. Nú héðan á burt í friði ég fer, ó, faðir, að vilja þínum, í hug er mér rótt og hjartað er af harminum læknað sínum: sem hézt þú mér Drottinn, hægan blund ég hlýt nú í dauða mínum. (M. Luther.) Við kveðjum þig með söknuði, elsku afi, og þökkum fyrir tímann sem við áttum með þér. Hvíl í friði. Hörður, Þói'dís og Jón Ingi. Okkar kynni byrjuðu árið 1993. Þá stóð til að klára lóðarfram- kvæmdir kringum fjölbýlishúsið okkar. Sem áhugasamir íbúar höfð- um við báðir ákveðnar skoðanir á hvernig ætti að haga þar málum. Vorum við ekki alltaf sammála. Stuttu seinna tók Jón að sér að vera gjaldkeri húsfélagsins okkar og gegndi hann því trúnaðarstai'fi, með miklum sóma, til dauðadags. Þar sem undii'ritaður hefur verið formaður þessa sama húsfélags lengur en hann vill muna varð sam- starf okkar mun meira þar eftir. Smám saman breyttust samskipti okkar frá því að einkennast af gagnkvæmri virðingu hvor fyrir öðrum í vináttu. Þegar Jón bankaði uppá hjá okk- ur eða ég hjá honum var erindið oftast eitthvað sem varðaði húsfé- lagið. Það var venjulega afgreitt á innan við fimm mínútum. Síðan tók við spjall, vítt og breitt um lífið og tilveruna sem stóð í mun lengri tíma. Höfðum við báðir mum meiri áhuga á þeim efnum. Hitt varð þó samt að gera. Hin síðari ár átti Jón við vaxandi heilsuleysi að stríða. Slíkt setur alltaf sitt mark á menn. Þetta átti ekki við jaxl eins og hann. Dáðist ég alltaf að æðruleysi hans og hug- rekki í þeirri baráttu. Barngóður var hann mjög. Nutu börnin mín góðs af því. Osjaldan var sprellað við þau og að þeim rétt eitthvað góðgæti, á eftir. Okkur finnst erfitt að ganga um sameignina í húsinu okkar, vitandi það að við eigum ekki eftir að sjá hann Jón okkar aftur. Öllum aðstandendum vottum við hjónin innilega samúð okkar. Blessuð sé minning þessa heiðurs- manns. Ágúst Óskar Sigurðsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.