Morgunblaðið - 28.08.1998, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 53
FRETTIR
FRA setningu 28. Kiwanisþings umdæmisins Island-Færeyjar sem sett var í Seljakirkju.
200 fulltrúar sóttu
umdæmisþing Kiwanis
28. UMDÆMISPING Kiwanisum-
dæmisins Ísland-Færeyjar var
haldið dagana 21.-23. ágúst í
Reykjavík. Um 200 fulltrúar frá
klúbbum umdæmisins sóttu þingið.
Þingsetning fór fram í Selja-
kirkju þar sem sr. Valgeir Ástráðs-
son flutti Kiwanisfólki hugvekju,
ávörp fluttu innlendir og erlendir
gestir þingsins. Að lokum söng
Barnakór Kópavogs nokkur lög við
mikla hrifningu Kiwanisfóiks.
Auk hefðbundinna þingstarfa var
fulltrúum frá Barnaspítala Hrings-
ins afhent fjögur mjög fullkomin
sjónvarpstæki að gjöf til spítalans.
Gjöf þessi er afrakstur söfnunar
sem Kiwanishreyfíngin stóð fyrir
starfsárið 1997-1998 með framlög-
um frá Kiwanisklúbbum og stuðn-
ingi frá Japis og Sam-myndböndum.
Á þingið mættu þrír erlendir
gestir David Hoderman, stjórnar-
maður í heimsstjórn, Thor Heved-
ing frá Noregi og Eero Kitsing frá
Eistlandi. Erlendu gestirnir voru
mjög hrifnir af umdæmisþinginu,
góða veðrinu og landi og þjóð.
Söfnunarfé K-dags
varið til Geðhjálpar
Á þinginu var samhljóða sam-
þykkt að verja söfnunarfé næsta K-
dags, sem verður 10. október, til
Geðhjálpar sem er samtök fólks
með geðsjúkdóma, aðstandenda
þeirra og áhugafólks um geðheil-
brigðismál. Ingólfur H. Ingólfsson,
framkvæmdastjóri Geðhjálpar
ávarpaði þingið og þakkaði Kiwan-
ismönnum þeirra stuðning til geð-
verndarmála en á núvirði hafa
Kiwanismenn afhent söfnunarfé frá
K-dögum að upphæð um 150 millj-
ónir til geðverndarmála. Söfnunar-
FRÁFARANDI umdæmisstjóri Björn Ag. Siguijónsson t.v. og verð-
andi umdæmisstjóri Georg Þór Kristjánsson t.h., á milli þeirra er
Sæmundur Sæmundsson.
AFHENDING gjafa til Barnaspítala Hringsins. Á myndinni eru Ásgeir
Haraldsson, yfirlæknir Barnaspftalans, og Dóra Guðbjartsdóttir,
formaður markmiðanefndar.
Kúmendag*ar
í Viðey
KÚMENIÐ í Viðey er löngu full-
þroskað og síðustu forvöð að sækja
sér birgðir fyrir veturinn. Þægileg-
ast er að koma með plastpoka og
skæri og klipa sveipina af jurtinni.
Kúmenið er mest meðfram veginum,
sem liggur efth' eynni miðri, en
einnig víða annars staðar. Öllum er
velkomið að nýta sér þetta, segir í
fréttatilkynningu.
Næsta helgi verður hin næstsíð-
asta í Viðey á þessu sumri með
skipulagðri dagskrá. Á laugai'dag
verður tveggja tíma gönguferð um
Vestureyna. Hún hefst við kirkjuna
kl. 14.15. Gengið verður framhjá
Klausturhól, um Klifíð, Kattarnefið á
Eiðinu og yfir í Vesturey. Þetta er
ein skemmtilegasta gönguleiðin í
Viðey, margt að sjá og mikil saga.
Þai'na eru t.d. Áfangar, listaverk R.
Serra, sem kynnt verður sérstakelga
í þessari ferð. Einnig eru þarna
steinar með áletrunum. Gangan tek-
ur um tvo tíma.
Á sunnudag kl. 14 messar sr.
Hjalti Guðmundsson í Viðeyjar-
kh'kju. Dómkórinn syngur og Mar-
teinn H. Friðriksson dómorganisti
leikur á orgelið. Eftir messu verður
svo staðarskoðun. Þá verður kirkjan
sýnd, einnig fornleifagröfturinn og
margt söguríkt þar í nánd. Loks
verður Stofan sjálf skoðuð. Staðar-
skoðun er flestum auðveld, krefst
ekki langrar göngu og þar er margt
áhugavert fýrir augað. Ferðir hefj-
ast kl. 13. Sérstök ferð með kirkju-
gesti verður kl. 13.30.
Ljósmyndasýningunni lýkur um
þessa helgi, en hjólaleigan og hesta-
leigan verður áfram til staðar, sem
og veitingar í Viðeyjarstofu.
----------------
Málþing um
heilbrigðisstörf í
friðargæslu
MÁLÞING um heilbrigðisstörf í
friðargæslu verður á morgun, laug-
ardag, frá kl. 10-17, í Borgartúni 6,
Reykjavík. Málþingið er haldið af ís-
lenskum læknum og hjúkrunarfræð-
ingum sem hafa verið við friðar-
gæslu í Bosníu á vegum Sameinuðu
þjóðanna og NATO, með þátttöku
breskra og norskra friðargæsluliða.
Málþingið nýtur stuðnings utan-
ríkisráðuneytisins og Félags Sa-
meinuðu þjóðanna á Islandi.
Ungir framsdknar-
menn
Stuðningur
við Siv
FRAMKVÆMDASTJÓRN Félags
ungra framsóknarmanna hefur sent
frá sér eftirfarandi ályktun þar sem
lýst er yfir stuðningi við Siv Frið-
leifsdóttur sem ráðherra:
„Framsóknarflokkurinn er á tíma-
mótum því framundan er uppstokk-
un ráðherraembætta og trúnaðar-
starfa í kjölfar brotthvarfs Guð-
mundar Bjarnasonar úr stjórnmál-
um. Verði niðurstaðan sú að skipa
nýjan ráðherra lýsir framkvæmda-
stjórn SUF yfir fullum stuðningi við
að Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi
formaður SUF, verði næsti ráðherra
flokksins. Slík ráðstöfun væri í sam-
ræmi við það markmið SUF að efla
hlut yngri kynslóðarinnar í stjórmál-
um svo og jafnréttisáætlun flokksins.
Siv Friðleifsdóttir hefur sýnt styrk
og ábyrgð í störfum sínum innan
þingsins og utan og að hún er kraft-
mikill stjórnmálamaður sem hefur
metnað og hæfileika til að takast á
við krefjandi verkefni fyrir hönd
framsóknarmanna.
SUF skorar því á formann flokks-
ins og þingflokk að nýta það sjaldgæfa
tækifæri sem felst í því að velja ung-
an, öflugan stjórnmálamann til ráð-
herrastarfa. Betra tækifæri til þess að
styrkja flokkinn er vandfundið."
------------------
Síðasta sýningar-
helgi Siggu-
bæjar
BYGGÐASAFN Hafnarfjarðar býð-
ur nú um helgina til síðustu sýning-
arhelgar Siggubæjar, sem stendur
við Hellisgötu, fyrir vetrarlokun.
Siggubær er eini upprunalegi „bær-
inn“ sem upþi stendur í Hafnarfirði
af þeim veggjalágu húsum er aðeins
höfðu glugga á göfiunum.
Siggubær var byggður árið 1902 af
Erlendi Maiteinssyni sjómanni sem
þar bjó á tæpum 20 fermetrum
ásamt þriggja manna fjölskyldu
sinni. Dótth’ hans, Sigríður, sem jafn-
framt vai' síðasti íbúi hússins, erfði
bæinn og bjó þar nær alla sína ævi.
Bærinn er lýsandi fyrir verka-
manna- og sjómannaheimili í Hafn-
arfirði á fyrrihluta þessarar aldar og
er hann gestum opinn á laugardag
og sunnudag frá kl. 13.
fénu verður varið til uppbyggingar
á framtíðarhúsnæði Geðhjálpar að
Túngötu 7 í Reykjavík.
Umdæmisþinginu lauk með loka-
hófi sem Kiwanisfólk hélt á Hótel
Sögu þar sem margt var um mann-
inn og skemmtun hin besta.
Afmælishátíð
Samvinnuhá-
skólans á
Bifröst
AFMÆLISHÁTÍÐ Samvinnuhá-
skólans verður haldin á Bifröst á
morgun, laugardag, kl. 15. Hátíðin er
haldin í tilefni af því að 80 ár eru lið-
in frá því að Samvinnuháskólinn í
Reykjavík hóf göngu sína og 10 ár
eru liðin frá því að kennsla á há-
skólastigi hófst við skólann á Bifröst.
Afmælishátíðin hefst með dag-
skrá í hátíðarsal skólans. Þar munu
meðal annars flytja ávörp Björn
Bjarnason menntamálaráðherra,
Páll Skúlason rektor Háskóla ís-
lands, Jónas Guðmundsson rektor
Samvinnuháskólans og nokki'ir að-
standendur Samvinnuháskólans.
Ólafur Magnús Magnússon og Sig-
ríður Óðinsdóttir flytja tónlist milli
ávarpa.
Kynnt verður ný aðstaða upplýs-
ingamiðstöðvar, endurnýjaður
tölvubúnaður skólans og Stofnun
Jónasar Jónssonar frá Hriflu. Boðn-
ar verða skoðunarferðir um svæðið.
Boðið verður til kaffisamsætis að
dagskrá lokinni. Allir eru velkomnir
á þessa afmælishátíð.
Aðalfundur
Skógræktar-
felagsins á
Hvolsvelli
AÐALFUNDUR Skógræktarfé-
lags íslands verður haldinn á
Hvolsvelli dagana 28.-30. ágúst.
Á fundinum verður m.a. skoðað-
ur glæsilegur árangur í Land-
gi-æðsluskógrækt en þar hefur
Skógræktarfélag Rangæinga stað-
ið hvað fremst í flokki, segir í
fréttatilkynningu. Undanfarin ár
hefur félagið árlega unnið að gróð-
ursetningu 200-300 þúsund
skógarplantna en þar hefur verið
beitt öflugum aðferðum við upp-
græðslu sands og hrauna.
Dagskrá fundarins er fjölbreytt
að vanda, m.a. halda Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrverandi forseti, og
Ólafur Örn Haraldsson þingmaður
fyrirlestra. Þá verður fjallað um
stefnumörkun félagsins og ýmis-
legt annað sem tilheyrir hefð-
bundnum aðalfundarstörfum.
Aðalfund Skógræktarfélags Is-
lands sækja hátt í 200 manns en
öllum félagsmönnum í skógi-æktar-
félögum er velkomið að sitja fund-
inn og hlýða m.a. á fróðleg erindi.
GYM
fyrir alla
Við bjóðum eitt fjölbreyttasta
tækjaúrval landsins
þjáifara
09
Opið hús helgina
29.-30. ágúst
frá kl. 10-17
Kynnum nýjan meöliruaklúbb
GYM - 80
Ouaantur glaöningui* fyrir þa
sem skrá sig iyv'w múnnðmnot
» Kynningartímar í
• spinning
• kickbox
• body pump
• eróbikk
EAS
Kynning á EAS
fæðubótaefnum
Kynnum einnig
einkaþjálfaranám ISSA
Suðurlandsbraut 6 (bakhús),
sími 588 8383, fax 568 7Q17.