Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐ FLYTJA
STÓR TRÉ - II
- Flutningur og gróðursetning -
í SÍÐASTA pistli
var farið nákvæm-
lega yfir það hvemig
á að undirbúa stór
tré fyrir flutning.
Undirbúningurinn
felst í því að róta-
skera plöntumar á
réttum tíma. Hér
verður haldið áfram
þar sem frá var horf-
ið og er nú komið að
því að flytja stóru
trén frá fyrri vaxtar-
stað yfir í nýju heim-
kynnin.
Sagt er að hættu-
legasti tíminn í h'fi
plantna sé einmitt í
flutningum. Því er um að gera að
vanda vel til verka. Þegar stór
tré em tekin upp er grafin renna
í kringum þau í þeirri fjarlægð
sem ræturnar vom skomar í.
Klippt er á allar stórar rætur
með átaksklippum. Þegar komin
er góð renna allt í kringum tréð
er því hallað á ýmsa vegu á með-
an skorið er undir hnausinn.
Þegar hnausinn er
tilbúinn og tréð
laust er trénu hall-
að til hliðar og
strigabút rennt
undir hnausinn. Þá
er trénu hallað í
hina áttina og
strigabúturinn
dreginn að hluta til
undan trénu
þannig að nú
stendur tréð á
striganum. Strig-
inn er svo hnýttur
saman á hornunum
ofan á hnausnum,
upp við stofn trés-
ins. Mikilvægt er
að striginn falli
þéttingsfast upp að
hnausnum, þannig
styður hann við
hnausinn og held-
ur betur raka á
rótunum. Þegar
um er að ræða
mjög stór tré get-
ur verið gott að
bregða hænsnaneti
utan um hnausinn
og tryggja þannig
enn frekar að hann
haldist í heilu lagi
á meðan á flutning-
um stendur.
Þegar tré em flutt milli staða
verður að gæta þess að yfirbygg-
ing þeirra verði ekki fyrir
hnjaski. Sár á berld, brotnar
greinar og annað slíkt gera trén
veikari fyrir og geta hreinlega
komið í veg fyrir að trén nái
nokkum tíma að dafna. Er þá
verr af stað farið en heima setið.
Ef trén era laufguð er mikilvægt
að breiða yfir þau á meðan á
flutningi stendur til að draga úr
útgufun um blöð plantnanna.
Jafnvel getur verið til bóta að
úða vatni yfir trén áður en breitt
er yfir þau. Yfirbreiðslan má alls
ekki vera úr glæm plasti, það
gerir illt verra. Hún þjónar í
raun tvennum tilgangi: Að
skyggja á plöntumar og skýla
þeim fyrir vindi.-Best er að flytja
stór tré á vorin áður en þau
laufgast eða á haustin um það
leyti sem þau fá haustlit eða em
búin að feíla laufið. Skemmdir af
völdum ofþomunar verða þá í
lágmarki. Einnig getur veðrið á
meðan á flutningi stendur gert
gæfumuninn. Brakandi þurrkur
getur orðið banamein trjáa þótt
hann haldi sjálfsagt lífinu í bú-
stofni bændastéttarinnar. Heppi-
legasta veðrið fyrir trjáflutninga
er skýjað, lygnt og smá rign-
ingarúði.
Sjálf gróðursetningin fer
þannig fram að graf-
in er ógnarstór hola.
Hún þarf að vera dá-
lítið rýmri en svo að
hún rúmi hnaus
plöntunnar. Áður en
plantan er sett í hol-
una er gott að setja í
hana ágætis slettu af
húsdýraáburði og
hræra hann saman
við moldina sem fyr-
ir er. Húsdýraáburð-
urinn ætti helst ekki
að komast í snert-
ingu við rætur plönt-
unnar því hann get-
ur brennt þær. Því
getur verið gott að
setja þunnt moldarlag ofan á
hræringinn í botni holunnar.
Trénu er því næst komið fyrir í
holunni þannig að það stendur
dálítið dýpra en það stóð áður.
Moldinni er nú mokað að
hnausnum og hún þjöppuð var-
lega til að tryggja að hvergi sé
loftrými við ræturnar. Eftir
gróðursetninguna er plantan
vökvuð vel og vandlega. í raun
er tæplega hægt að drekkja ný-
fluttum trjám.
Stór tré taka á sig talsverðan
vind. Uppbinding er því nauð-
synleg á meðan trén era að ná
rótfestu. Uppbindingar era af
margvíslegum toga og jaðrar við
trúarbrögð hvaða gerð menn
vilja nota. Sjálfsagt er einfaldast
að nota tvo tii þrjá góða staura
fyrir hverja plöntu og reka þá
niður í dálítilli fjarlægð frá stofni
plöntunnar. Þeir þurfa að ganga
talsvert djúpt niður í jarðveginn
til að eitthvað hald sé í þeim. Því
næst er plantan bundin þannig
upp að stofn hennar getur ekki
sveiflast til. Nota má gúmmí-
slöngur, gamlar nælonsokkabux-
ur eða strigaborða til að binda
plöntuna upp. Eftir tvö til þrjú
vaxtartímabil ætti rótakerfi
plöntunnar að vera það þroskað
að fjarlægja má uppbindinguna.
Ef vel er að verki staðið má
spara sér nokkur ár með því að
gróðursetja stór tré. Hitt er ann-
að mál að þegar stór tré era flutt
án undirbúnings verða þau fyrir
miklu áfalli og getur það tekið
þau nokkur ár að jafna sig eftir
slíkar hremmingar, ef þau þá
hreinlega deyja ekki drottni sín-
um.
Guðríður Helgadóttir,
garðyrkjufræðingur.
BLON
VIKUNMR
393. þáttur
l’mxjío Ágásta
BjörnsdóUir
UNNT er að flytja allstór grenitré, ef und-
irbúningur er réttur.
í DAG
VELVAKAJMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Góð reynsla af
Efamol
ÁSTÆÐA þess að ég
skrifa er að vekja athygli á
fæðubótaefninu Efamol
(kvöldvorrósaolía). Ég er
búin að starfa við hár-
greiðslustörf í 28 ár og var
farin að finna fyrir verkj-
um í liðamótum og þá
einkum í höndum og fót-
um. Var mér þá bent á að
taka inn Efamol kvöldvor-
rósaolíu ásamt Sinkvít.
Eftir ea. 2 vikna notkun
var ég farin að finna veru-
legan mun á líðan minni,
sem og á húð og nöglum.
Ég hélt því áfram að taka
þessi efni inn með góðum
árangri. Til þess að sann-
færa mig um það að það
væri Efamol sem hefði
þessi áhrif ákvað ég að
hætta að taka það inn um
tíma. Eftir nokkra daga
fóru þreytu- og liðamóta-
verkir að gera vart við sig
á nýjan leik. Síðan hef ég
tekið Efamol og Sinkvít
inn daglega sem fæðubót-
arefni. Einnig hef ég heyrt
um tilfelli þar sem Efamol
hefur hjálpað til við að
lækna slæma húð í andliti.
Ég er því sannfærð um að
Efamol gerir kraftaverk
við mörgum kvillum og vil
því með þessari grein
benda fólki á þessa vöru
sem eflaust hefur víðtæk-
ari vii-kni en rætt var um
hér. Að lokum vil ég þakka
starfsfólki Heilsuhússins
fyrir góða þjónustu.
Anægður viðskipta-
vinur Heilsuhússins.
Ólafur antiksafnari
ÁSTA hafði samband við
Velvakanda og er hún að
leita að Ólafi antiksafnara
sem er annaðhvort frá
Borgarnesi eða Akranesi.
Ásta lánaði Ólafi bók sem
heitir Marks, og er bókin
um antikmerki. Saknar
Ásta bókinnar sárt. Ásta
biður Ólaf um að hafa
samband í síma 553 8237.
Ættingja leitað
VELVAKANDA barst
eftirfarandi bréf:
„Ég hef lengi vitað að ég
er af íslenskum ættum og
mig hefur alla tíð langað
að vita eitthvað um ætt-
ingja mína hér.
Eg er fædd 1. júlí 1971 á
Nantucket-eyju. Ég er
dóttir íslenskættaðrar
konu. Amma mín giftist
ofursta í bandaríska hern-
um og var/er islensk.
Hann lagði stund á nám í
West Point. Móðir mín var
22 ára þegar ég fæddist,
ljóshærð, bláeygð og var í
framhaldsnámi í Banda-
ríkjunum. Faðir minn var
24 ára, uppruni hans er
ekki vitaður en talið að
hann sé af bresku bergi
brotinn.
Ég var ættleidd í okt.
1971 í Cambridge Massa-
chussetts. Ef einhver ætt-
ingi minn kannast við
þessa sögu og langar að
hafa samband við mig þá
er ég með E-mail heimilis-
fang hda71.hotmail.com
eða faxnr. 00-55-11-883-
2579.“
Helen Aden.
Dæmið ekki
ÉG er hneyksluð á grein
eftir Böðvar Böðvarsson
og Bjarneyju Sólveigu
Gunnarsdóttur sem ég las
í bréfum til blaðsins í
Morgunblaðinu í dag,
þriðjudaginn 25. ágúst. Ég
vil bara segja við þau, ég
skil ósköp vel að þeim líði
illa en fólk ætti bara að at-
huga hvað það er að gera
áður en það skrifar undir
fyrir aðra. Þau eru að tala
um refsingar í Asíu og Af-
ríku-löndum þar sem við-
hafðar eru hýðingar og af-
tökur. Við búum í kristnu
og siðuðu samfélagi hér,
þar sem líkamlegar pynt-
ingar og aftökur heyra
fortíðinni til. Enda verður
enginn betri manneskja
þótt henni sé refsað líkam-
lega. Það ætti að gera
meira af því að setja þá er
misstíga sig á lífsins braut
í endurhæfingu. Sagði
ekki frelsari okkar, dæmið
ekki svo þér verðið ekki
dæmd.
Sigrún Ármannsdóttir.
Tapað/fundið
Kvenúr í
óskilum
KVENÚR fannst fyrir ut-
an Iðnskólann í Reykjavík
17. eða 18. ágúst. Upplýs-
ingar í síma 557 5678.
Fjallahjól í óskilum
í Vogahverfi
BLEIKT og fjólublátt
fjallahjói fannst í Voga-
hverfi um miðjan júní.
Þeir sem kannast við það
hafi samband í síma
553 5254.
Dýrahald
Páfagaukur
týndist í Garðabæ
LJÓSBLÁR páfagaukur,
11 ára og grannur, týndist
sl. laugardag í Garðabæn-
um, frá Markarflöt 31.
Þeir sem hafa orðið hans
varir hafi samband við
Kolbrúnu í síma 565 6114.
Góð fundarlaun.
Grænn páfagaukur
týndist
GRÆNN páfagaukur með
gult höfuð týndist á milli
Reykjavíkur og Seltjarn-
arness fyrir rúmri viku.
Þeir sem hafa orðið hans
varir hafi samband í síma
561 9464.
SKAK
llinsjón Margeir
l’étiirsson
STAÐAN kom upp á alþjóð-
legu móti í Recklinghausen í
Þýskalandi í sumar. Alex-
ander Nenashev (2.625),
Úsbekistan, hafði hvítt og
átti leik gegn Georg Siegel
(2.540), Þýskalandi.
26. Hxe5! - Bxe5 27. Re7+
- Kh8 28. Hxd8 - Hxd8 29.
Rc6 - Bxg3 (Svartur tapar
manni þvi 29. - He8 gekk
ekki vegna 30. Dxf7. Nú
vinnur hvítur létt) 30. hxg3
- He8 31. Dfl - De6 32.
Kg2 - h5 33. Bxh5 - c4 34.
Bf3 - c3 35. Dd3 - Db3 36.
Bd5 - Db2 37. Df5 - De2
38. Dxf7 og svartur gafst
upp.
Joszef Pinter, sem var
fastur maður í ungverska
landsliðinu áður en Polgar-
systur, Leko og Almasi
komu til sögunnar, sigraði á
mótinu með 7 v. af 9 mögu-
legum. 2.-3. Aiterman, Isra-
el og Nenashev 6‘/2 v., 4.
Kiril Georgiev, Búlgaríu 5V2
v., 5. Siegel 414 v., 6.-7.
Luther og Mainka, báðh
Þýskalandi 4 v., 8.-9.
Skákkonurnar Kachiani,
Þýskalandi og Stefanova,
Búlgaríu 2V2 v., 10. Hen-
richs, Þýskalandi 2 v.
HVÍTUR leikur og vinnur.
HÖGNI HREKKVÍSI
~~3
„ ~7Yi/erf7ig er- 'cJap ?"
Víkveiji skrifar...
OPNUN Hvalfjarðarganga hef-
ur nokkuð verið til umræðu á
síðustu vikum eftir að biskup Is-
lands gerði athöfnina að umræðu-
efni á Hólahátíð nýverið. I Morgun-
blaðinu var haft eftir stjórnarfor-
manni Spalar „að aldrei hafi tíðkast
að prestur væri fenginn til að koma
við opnun samgöngumannvirkja,
hvorki við brýr, jarðgöng né veg-
spotta“. Þetta mun vera rangt og
hafa nokkur dæmi um slíkt verið
nefnd við Víkverja.
Árið 1974 var vegurinn yfir
Skeiðarársand opnaður við hátíð-
lega athöfn. Að lokinni eiginlegri
opnunarathöfn hófst dagskrá þjóð-
hátíðanefnda í Austur- og Vestur-
Skaftafellssýslum. Þar annaðist
Sigurbjöm Einarsson biskup hátíð-
arstund og bað hann meðal annars
fyrir mannvirkjunum á Skeiðarár-
sandi.
GAMLA gufan stendur alltaf
fyrir sínu, hugsaði skrifari einn
dag í vikunni er hann hlustaði frá
morgni og fram yfir miðjan dag á
Rás 1 á Ríkisútvarpinu. Fræðandi
þættir og þægileg tónlist, bæði sí-
gild og léttari, lét vel í eyrum við
heimilisstörfin. Trúlega eru alltof
margir sem missa af fjölbreyttu og
fræðandi efni þessarar stöðvar sem
sannarlega stendur fyrir sínu.
Upprifjun frá sjávarsíðunni,
björgunarafrek og sorgleg slys var
meðal efnis þennan dag. Það var
sérkennilegt að heyra frásögn af
togaranum Garðari, sem fyrir tæp-
um 70 árum var mesta fley íslenska
fiskiskipaflotans, og fletta svo
Morgunblaðinu tveimur dögum síð-
ar og sjá þá myndir og frétt um
kolmunnaafla nótaskips með nánast
sama nafni. Nú er nafnið Gardar en
sem fyrr er skipið meðal þeirra af-
kastamestu í flotanum.
IÞESSUM dálki í gær var meðal
annars fjallað um úrslitaleik bik-
arkeppninnar í knattspyrnu milli
Eyjamanna og Ólafsfirðinga, sem
fram fer á sunnudaginn. Ohætt er
að taka undir þau orð skrifara gær-
dagsins að þessi leikur getur orðið
hin besta skemmtun og fótboltanum
til framdráttar enda eigast við tvö
af toppliðum íslenskrar knatt-
spyrnu.
Síðustu ár hefur mikil stemmning
myndast fyrir og á þessari hátíð
sem bikarúrslitaleikur er. Svo verð-
ur öragglega um helgina því bæði
lið eiga dygga stuðningsmenn. Von-
andi átta vallargestir sig á því að
fótbolti er fjölskylduskemmtun þar
sem böm era stór hluti áhorfenda.
Áfengi og íþróttir eiga ekki samleið
og undantekningunum, sem sést
hafa á bikarúrslitaleikjum undan-
farinna ára, má gjarnan fækka.