Morgunblaðið - 28.08.1998, Blaðsíða 68
Mem£d
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 6691181 T?AQ'T’TTr» A r'TTT? OQ ÁnTTQT' 1 OOQ
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRh KAUPVANGSSTRÆTI1 í1 Uö 1 UJJALtU1\, Zö. AuUöl lt»yö
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Slys kosta þjóð-
ina 20-30 millj’-
arða árlega
SLYS á íslandi kosta milli 20 og 30
milljarða króna á ári hverju. Kostn-
að vegna umferðarslysa má áætla
15 til 18 milljarða og sjóslys kosta
þjóðina 3,2 til 4,3 milljarða. Á nor-
rænu slysaþingi, sem lýkur í
Reykjavík í dag, kom fram að vönd-
uð skráning slysa er grundvöilur
þess að hægt sé að grípa til árang-
ursríkra forvarnar.
I erindi Brynjólfs Mogensens
læknis kom fram að um 60 þúsund
íslendingar slasast árlega og sagði
hann kostnað vegna þessa ekki
minni en 20 milljarða króna og jafn-
vel talsvert hærri. Hann sagði nú
unnið að því á sjúkrahúsum og
heilsugæslustöðvum að koma upp
samræmdri skráningu slysa, m.a.
með skráningarkerfinu Sögu frá
Gagnalind hf. og svokölluðu
NOMESKO greiningarkerfi.
Marta Skúladóttir, frá Hagfræði-
stofnun Háskóla Islands, sagði
stofnunina hafa reiknað út kostnað
við sjóslys og væri hann á bilinu 3,2
til 4,3 milljarðar króna. Meirihluti
hans er vegna lækniskostnaðar og
tryggingabóta ýmiss konar en um
þriðjungur lendir á fórnarlömbum
slysanna, m.a. tekjutap.
Þá kom fram í máli Ragnars
Ai’nasonar, prófessors við Háskóla
Islands, að kostnaður við umferðar-
slys er á bilinu 2,7 til 3,8% af þjóð-
arframleiðslu sem ætla má að sé 15
til 18 milljarðar króna. Hann sagði
umferðarslysum hafa fjölgað en
fækkað hlutfallslega miðað við fjölg-
un bíla og eknar vegalengdir.
■ Færri hafa/12
--------♦-♦-♦------
Samherj’i
hagnast um
% millj’arð
Sótt um veg’na
515 leiðbeinenda
BEIÐNIR um undanþágur vegna
leiðbeinenda í grunnskólum eru
515 það sem af er árinu. Sigurður
Helgason, skrifstofustjóri í
menntamálaráðuneytinu, segir að
miðað við hljóðið í skólastjórum
stefni í að beiðnimar verði fleiri í
ár en í fyrra, þegar 601 beiðni
barst.
Sigurður sagði að nefhd sú sem
fjallar um undanþágubeiðnimar
hefði þegar afgreitt 353 umsóknir.
265 umsóknir vora samþykktar en
80 hafnað, flestum vegna þess að
menntun hlutaðeigandi var metin
ófullnægjandi.
Ekki liggur fyrir hvemig beiðn-
irnar 515 skiptast milli landshluta
en í fyrra bárast 122 umsóknir frá
Norðurlandi eystra, 92 frá Vest-
fjörðum, 76 frá Suðurlandi 73 frá
Norðurlandi vestra, 70 frá Austur-
landi, 65 frá Reykjanesi og 28 úr
Reykjavík.
Sigurður sagði að í fyrra hefðu
umsóknir vegna leiðbeinenda í
grannskólana í Reykjavík gjarnan
verið vegna sérgreinakennara, t.d.
tónmenntakennara, frönsku-,
sænsku- og norskukennara í
grannskóla. Nú bæri svo við að far-
ið væri að sækja um leyfi til
ráðuneytisins vegna leiðbeinenda
til umsjónarkennslu í bekkjum.
■ Þegar óskað/7
Morgunblaðið/RAX
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra eftir fund formanna stjórnarflokkanna
Morgunblaðið/Arnaldur
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra talaði ekki við HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra kemur
blaðamenn að loknum fundinum. af fundi í Ráðherrabústaðnum £ gær.
Gígur í
góðviðri
FERÐAMENN hafa getað virt
fyrir sér náttúrufegurðina við
Mývatn í vikunni. Ferðalangar
haga gjarnan ferðum sínum eftir
veðri og sú var reyndin í sumar
því framan af sumri var lítil um-
ferð um Norður- og Norðaustur-
land þar sem kalt var í veðri og
sólarlitið. Sólin hefur hins vegar
glatt menn þar um slóðir í ágúst.
Ferðamannastraumur jókst um
leið og hlýnaði í veðri og bændur
náðu loks að heyja, að sögn
heimamanna við Mývatn.
HAGNAÐUR Samherja hf. á
fyrstu sex mánuðum ársins var
rúmlega hálfur milljarður króna, en
allt síðasta rekstrarár var hagnað-
ur sjávarútvegsfyrirtækisins rúm-
lega 200 milljarðar króna.
Þetta er um það bil tvöfalt meiri
hagnaður en verðbréfafyrirtæki
höfðu spáð og er batnandi afkoma
fyrirtækisins rakin til hagnaðar af
erlendri starfsemi í stað verulegs
taps í fyrra.
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, telur horfur fyrir
árið í heild viðunandi, en bendir á
að á alþjóðamörkuðum séu ýmsar
sviptingar, sem geti haft áhrif á ís-
lenskan sjávarútveg.
■ Viðsnúningur á erlendri/19
Gagnleg umræða
verið um bankamálin
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
og Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra ræddu um fyrirhugað
brotthvarf Guðmundar Bjamason-
ar, umhverfis- og landbúnaðarráð-
herra, úr ríkisstjórninni og einka-
væðingarmál í Ráðherrabústaðnum,
á fundi sem lauk seint í gærkvöldi.
Á fundinum vora einnig Geir H.
Haarde fjámálaráðherra og Finn-
ur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra. Halldór sagði að þessi
mál yrðu rædd frekar á ríkisstjóm-
arfundi í dag og eftir þann fund
gæfi iðnaðar- og viðskiptaráðherra
út yfirlýsingu.
Aðspurður hvort sátt væri milli
Halldórs og forsætisráðherra um
ráðherramálið sagði Halldór, sem
verið hefur erlendis, að það mál
væri í höndum Framsóknarflokks-
ins en ekki samstarfsflokksins og
um það væri full sátt.
Halldór ræddi við þingmenn
Framsóknarflokksins um ráðherra-
skiptin í gær. „Um það er í sjálfu
sér ekki meira að segja að sinni.
Það verður þingflokksfundur hjá
okkur á morgun [í dag] og þar mun-
um við ræða málið frekar," sagði
Halldór.
Aðspurður um samstöðu í röðum
þingmanna Framsóknarflokksins
um hvaða leið yrði farin í ráðherra-
málinu sagði Halldór að sér sýndust
ýmsir kostir koma til greina.
Halldór sagðist ekki taka inn á
sig gagnrýni um að Framsóknar-
flokkurinn hefði farið of geyst í
bankamálinu.
„Eg tel að þessi umræða sem hef-
ur átt sér stað um bankamálin hafi
verið afar gagnleg. Við höfum ekki
tekið neina ákvörðun en við höfum
hins vegar farið til viðræðna við að-
ila. Það ætti öllum að vera ljóst að
það er forsenda frekari ákvarðana,"
sagði Halldór.
Islandsflug hefur
Húsavíkurflug
ISLANDSFLUG ákvað í gær að
hefja áætlunarflug milli Reykjavík-
ur og Húsavíkur og verðm- farin ein
ferð að kvöldlagi sex daga vikunnar.
Flogið verður á ATR sem er 46 sæta
flugvél og verður fyrsta ferðin á
þriðjudagskvöld. Ekki verður flogið
á laugardögum.
Ómar Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Islandsflugs, segir að
áætlunin sé sett fram í samráði við
heimamenn og talið að ein ferð
myndi duga. Sagði Ómar að erfítt
hefði verið að koma þessu fyrir þar
sem vetraráætlun félagsins var til-
búin. Farið verður frá Reykjavík
klukkan 20.30 og til baka frá Húsa-
vík klukkan 21.45. Ómar sagði
ákvörðun félagsins óháða því hvort
Mýflug hefji flug en félagið hefur til-
kynnt þau áform. Ómar telur leiðina
vart til skiptanna.
Auk Húsavíkurflugsins verður sú
breyting með vetraráætlun að tekin
verður upp þriðja ferðin á dag til
Vestmannaeyja og verða þá tvær
ferðir með 19 sæta Domier vél og
ein með ATR vélinni. Þá verður
fjölgað ferðum á Egilsstaði í tvær
virka daga.
íslandsflug flutti 110 þúsund far-
þega á einu ári, á tímabilinu frá 1.
júlí í fyrra þegar áætlunarflug var
gefið frjálst en áætlað hafði verið að
flytja um 112 þúsund farþega.