Morgunblaðið - 17.09.1998, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
210. TBL. 86. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Stjdrnmálaástandið í Albaníu
Berisha hvetur til
allsherj armótmæla
Tirana. Reuters.
FATOS Nano, forsætisráðherra
Albaníu, sagði á fréttamanna-
fundi á skrifstofu sinni í Tirana í
gærkvöld að stjórn sín nyti enn
stuðnings almennings sem rétt-
kjörin ríkisstjórn landsins. Hann
ítrekaði ásakanir sínar á hendur
Sali Berisha, leiðtoga stjórnar-
andstöðunnar, þess efnis að hann
hefði reynt að ræna völdum í
átökunum um helgina.
Berisha, sem er fyrrverandi
forseti Albaníu, hafði áður lýst
vanþóknun sinni á þeirri fyrir-
ætlan ríkisstjórnarinnar að
draga höfuðpaura meintrar
valdaránstilraunar fyrir dóm-
stóla. Hann hvatti stuðnings-
menn Lýðræðisflokksins til þess
að safnast saman í höfuðborg-
inni, Tirana, á morgun, föstu-
dag, og sýna andstöðu sína við
stjórnina.
Stjórnvöld virtust í gær hafa
tögl og hagldir í Tirana. Mót-
mælendur höfðu skilað tveimur
skriðdrekum, sem þeir tóku
traustataki um helgina, og
vopnaðir öryggisverðir voru
ekki lengur sjáanlegir við
höfuðstöðvar Lýðræðisflokksins.
Sjö hafa týnt lífí og 76 særst í
átökum vegna mótmælanna í Al-
baníu en þau hófust þegar Azem
Hajdari, þingmaður Lýðræðis-
flokksins, var myrtur á föstudag.
Clinton segist
ekki íliug’a afsögn
Washington. Reuters.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti hvatti almenning og Banda-
ríkjaþing í gær til að hætta að velta sér upp úr smáatriðum um
samband hans við Monicu Lewinsky. Fréttamenn fengu í gær
fyrsta tækifærið til að beina spurningum til forsetans eftir að
skýrsla Kenneths Starrs um Lewinsky-málið var birt, er Clinton
kom fram á blaðamannafundi með Vaclav Havel, forseta Tékk-
lands, sem nú er í opinberri heimsókn til Bandaríkjanna.
Forsetinn sagði aðspurður að
hann hefði ekki í hyggju að segja af
sér. Hann sagðist enn vera fullfær
um að stjórna landinu og fullyrti að
það væri vilji bandarísku þjóðarinn-
ar. Nýjustu skoðanakannanir benda
til þess að svo sé. í könnun sjón-
varpsstöðvarinnar CBS og New
York Times í gær naut Clinton
stuðnings 62% aðspurðra, og meiri-
FYLGISMENN Lýðræðisflokksins í Albaniu söfnuðust saman til mótmælafundar í Tirana í gær.
mælenda heldur mynd af Azem Hajdari, sem myrtur var á föstudag, á loft.
Reuters
Einn mót-
hlutinn kvaðst andvígur því
að þingið höfðaði mál til
embættismissis á hendur
honum.
Chnton neitaði að svara
því hvort nákvæmar lýsing-
ar á kynferðislegum sam-
skiptum hans og Monicu
Lewinsky í skýrslu Starrs
væru sannleikanum sam-
kvæmar, og sagðist ekki
vilja „flækjast í öll smá-
atriði málsins á þessari
stundu". Hann vildi heldur
enga skýringu gefa á fullyrðingu
sinni í janúar sl. um að þau hefðu
ekki átt í kynferðislegu sambandi.
Ákvörðun tekin í dag um birt-
ingu myndbands
Dómsmálanefnd fulltrúadeildar
þingsins mun á fundi sínum í dag
skera úr um hvort gera eigi mynd-
bandsupptöku með vitnisburði
Clintons fyrir rannsóknarkviðdómi
Starrs opinbera. Demókratar hafa
barist hart gegn birtingu mynd-
bandsins, en repúblikanar krefjast
þess að það verði gert opinbert, þar
sem mikilvægt sé, að bandaríska
þjóðin geti sjálf dregið ályktanir um
hvort Clinton hafi framið meinsæri.
Demókratar eru í minnihluta í
dómsmálanefndinni.
Að því er bandarískir fjölmiðlar
greindu frá í gær mun myndbandið
sýna að forsetinn hafi verið reiður og
þóttafullur við yfh'heyrsluna og gefið
loðin svör við spurningum saksókn-
arans. Stuðningsmenn forsetans
munu óttast að myndbandsupptakan
kunni að grafa undan þeirri ímynd
sem Clinton hefur reynt að skapa
síðustu daga um að hann sé fullur
iðrunar, og að hún verði notuð í áróð-
ursskyni af andstæðingum hans.
Reuters
VACLAV Havel, forseti Tékklands, flyt-
ur ávarp á blaðamannafundi með Bill
Clinton Bandaríkjaforseta í gær. Havel,
sagði meðal annars að það myndi taka
Rússland áratugi að komast á réttan kjöl,
en hann óttaðist þó ekki afturhvarf
til Sovéttímans.
Skýrt var frá því í gær að þegar
hefði einn þingmaður demókrata,
Gene Taylor, skrifað undir ályktun
Bobs Barrs, þingmanns repúblik-
ana, um að höfðað verði mál til
embættismissis á hendur forsetan-
um. Taylor hefur ekki viljað tjá sig
um málið.
ETA-
skæruliðar
leggja niður
vopn
Madríd. Reuters.
ETA, aðskilnaðarhreyfing
Baska, lýsti í gær yfir „varan-
legu og algjöru" vopnahléi sem
taka á gildi í dag. Skæruliðarn-
ir hétu því að láta af öllum of-
beldisverkum en þeir hafa
orðið yfir 800 manns að bana
síðustu þrjá áratugi.
Vopnahlésyfirlýsingar frá
hreyfingunni, sem binda mundi
enda á áratuga blóðbað í
Baskalandi, hefur verið vænst í
nokkrar vikur. Stjórnvöld á
Spáni vöruðu við því í gær-
morgun að ETA hefði í hyggju
að lýsa yfir „fölsku vopnahléi"
og hvöttu almenning til ár-
vekni.
Flokksmenn Tsjernomyrdms í ráðherraembætti
Rúblan fellur en Jelt-
sín segir botninum náð
Moskvu. Reuters.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands,
greindi Helmut Kohl, kanslara
Þýskalands, frá því í gær að allt
væri að færast í eðlilegt horf í Rúss-
landi eftir efnahagsþrengingar síð-
ustu vikna. Jeltsín tilnefndi þrjá
nýja aðstoðarforsætisráðherra í
gær og eru þeir allir samflokks-
menn Tsjernomyrdíns, fyrrverandi
forsætisráðherra.
Haft var eftir Alexander Shjokín,
nýskipuðum aðstoðarforsætisráð-
herra, að greiði Alþjóðagjaldeyiás-
sjóðurinn ekki aðra útborgun lána í
október, samkvæmt samningi frá
því í júlí, geti stjórninni orðið
nauðugur einn kostur að prenta
peningaseðla. „Án aðstoðarinnar
gæti ekki aðeins reynst erfitt að
gi-eiða vangoldin laun og lífeyri,
heldur einnig aðrar skuldir," sagði
Shjonkín í gær.
Orð hans eru ekki talin til þess
fallin að auka traust almennings á
ráblunni. Gengi hennar féll um 30%
í gær og er nú 14-16 rúblur gagn-
vart einum Bandaríkjadollar á göt-
um Moskvu, eða um helmingi lægra
en það var við upphaf efnahags-
kreppunnar fyrir mánuði.
Tveir félagar Shjokíns úr Rúss-
neska fósturjarðarflokknum voru
auk hans tilnefndir aðstoðarforsæt-
isráðherrar í gær. Þeir eru Vladímír
Ryshtkov, sem er varaforseti neðri
deildar rússneska þingsins og verð-
ur nú að auki ábyrgur fyrir félags-
málum, og Vladímír Búlgak sem
mun stjórna iðnaðar- og fjarskipta-
málum. Borís Fjodorov mun hafa
sagt af sér ráðherraembætti í gær,
að því er New York Times greindi
frá, en hann hefur verið aðstoðar-
forsætisráðherra frá því í vor og
beitt sér fyrir umbótum í efnahags-
málum.
■ Lykilmenn Gorbatsjovs/24
Mamma
með
*
í
slaginn
Stokkhólmi. Morgunblaðið.
„MÆÐUR gegna mikilvægu
þjóðfélagshlutverki," segir
Karin Persson og fullyrðir að
mæður, sem hafi ráð á og
tækifæri til að vera heima hjá
börnum sínum fram að þriggja
ára aldri, eigi að gera það.
Þessi orð lét hún falla í samtali
við sænskt blað sem svar við
fullyrðingu sonar síns, Görans
Perssons, forsætisráðherra
Svía og leiðtoga jafnaðar-
manna, um að heimavinnandi
húsmæður legðu ekkert af
mörkum til þjóðfélagsins og
ættu því ekki að njóta sérstaks
stuðnings.
Bæði Hægriflokkurinn og
Kristilegi demókrataflokkurinn
í Svíþjóð leggja áherslu á að
styðja eigi við alla foreldra með
barnabótum, en ekki að greiða
sérstaklega niður barnagæslu,
þar sem það mismuni for-
eldrum. Niðurgreiddir gæslu-
taxtar eni hins vegar stefnumál
jafnaðarmanna i kosningunum
og rökstuðningur forsætisráð-
herra var sá að þessi mismun-
un væri sjálfsögð, þar sem úti-
vinnandi mæður legðu fram
sinn skerf til þjóðfélagsins,
meðan þær heimavinnandi
gerðu það ekki.
Persson hefur nú beðið
heimavinnandi húsmæður af-
sökunar á ummælum sínum,
sem þóttu með eindæmum
klaufaleg.
■ Hugsjónahungur/27