Morgunblaðið - 17.09.1998, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Góður
gangur við
Búrfells-
línu 3A
FRAMKVÆMDIR hafa gengið vel
við Búrfellslínu 3A eftir að samn-
ingar tókust í vinnudeilunni milli
rússneska fyrirtækisins
Technopromexport og íslenskra
stéttarfélaga fyrir viku eftir
þriggja daga vinnustöðvun.
Að sögn Þorsteins Hilmarsson-
ar, upplýsingafulltrúa Landsvirkj-
unar, voni 83 möstur af 253 kom-
in upp í gær eða um þriðjungur
mastranna. Annar aðili sér um að
strengja rafmangslínurnar og eru
komnir 10 km af 94 km. Sagði
hann að sú vinna væri hins vegar
ekki hafín að fullu.
Þorsteinn sagði að þrátt fyrir
þriggja daga vinnustöðvun i síð-
ustu viku væri vonast til þess að
Iinan yrði tilbúin fyrir miðjan des-
ember. Upprunalega hefði verið
áætlað að verkinu lyki um miðjan
nóvember, en verkið hefði hafíst
síðar bæði vegna þess að
Technopromexport hefði verið
Iengur að koma sér fyrir á Islandi
og sending frá framleiðsluland-
inu, Úkraínu, á stáli í möstrin
hefði tafíst.
Morgunblaðið/Emil Þór
VINNA við Búrfellslfnu 3A gengur vel. Hér er verið að ganga frá einu mastrinu á Hellisheiði.
Ofsaakst-
ur um
borgina
á bifhjóli
LÖGREGLUNNI í Reykja-
vík mistókst að stöðva öku-
mann bifhjóls, sem ók á ofsa-
hraða um götur austurborg-
arinnar um eittleytið í fyrri-
nótt.
Ökumaðurinn sinnti ekki
stöðvunarmerkjum lögreglu,
sem hugðist hafa afskipti af
honum. Jók hann ferðina og
ók yfir nokkur gatnamót gegn
rauðu ljósi á ofsahraða áður
en hann hvarf lögreglunni
sjónum. Skráningarnúmerum
hjólsins náði lögreglan samt
niður og því verður auðvelt
verk að hafa uppi á eiganda
hjólsins eða umráðamanni
þess.
Vitað er að eigandinn hafði
verið sviptur ökuréttindum
ævilangt, en ekld er vitað
hvort hann hafí verið við
stjórnina í umræddu tilviki.
Málið er til rannsóknar hjá
rannsóknardeild lögreglunnar
í Reykjavík.
Deilur milli stjórnar og skólastjóra Garðyrkjuskólans
Skólastjórinn hefur
látið af störfum
SAMKOMULAG hefur verið gert
milli Grétars Unnsteinssonar, skóla-
stjóra Garðyi’kjuskólans í Reykjum
í Ólfusi, og landbúnaðarráðuneytis-
ins um að hann láti af störfum skóla-
stjóra og taki við störfum skrifstofu-
stjóra í landbúnaðarráðuneytinu.
Að sögn Guðmundar Bjamasonar
landbúnaðarráðherra hafa að und-
anfömu staðið yfír viðræður milli
ráðuneytisins og skólastjórans um
að hann láti af störfum skólastjóra
um næstkomandi áramót og nú hafi
náðst um það samkomulag.
„Astæðan fyrir þessari breytingu
er m.a. sú að þarna hafa verið sam-
starfserfiðleikar milli skólastjórans
annars vegar og allmargra kennara
og annarra starfsmanna skólans
hins vegar. Auk þess hafa verið erf-
iðleikar í samskiptum skólastjóra og
fulltrúa í atvinnugreininni. Til þess
að ná niðurstöðu og sátt í málinu
gengu aðilar til þessa samkomulags.
Fer til starfa í ráðuneytinu
Samkomulagið felur í sér að
Grétar láti af störfum 1. janúar 1999
og taki þá við stöðu skrifstofustjóra
í landbúnaðarráðuneytinu á sviði
garðyrkjumála. Til að byrja með fer
hann í fjölmörg sérverkefni sem
m.a. tengjast ritun sögu skólans,
koma upp minjasafni um garðyrkj-
una í landinu og skráningu skjala-
safns. I framhaldi af því fær hann
verkefni sem falla undir þetta svið
og eru hér innan ráðuneytisins.
Ég vil taka fram að Grétar hefur
unnið afar gott starf í þá áratugi
sem hann hefur starfað sem skóla-
stjóri. Skólinn ber þess merki að
þarna hefur verið gott og merkilegt
starf unnið undir forystu Grétars.
Hann hefur haldið áfram þeirri
öflugu uppbyggingu sem hófst með
skólastjórn fóður hans, sem hann
tók við af. Ráðuneytið metur þetta
starf mikils,“ sagði Guðmundur.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins á þetta mál sér nokkuð
langan aðdraganda. A síðasta ári
sldpaði landbúnaðarráðuneytið
skólanefnd yfir skólann og vonaðist
það til að sú ráðstöfun gæti leyst þá
samstarfserfiðleika sem verið hafa
innan skólans. Sú tilraun mistókst.
Tómas Árnason um reikning ríkisendur-
skoðanda til Seðlabankans
Margir í bankanum
vissu um reikninginn
TÓMAS Árnason, fyrrverandi
seðlabankastjóri, segir að margir
þáverandi starfsmenn Seðlabanka
Islands hafí vitað að reikningur fyr-
ir endurskoðun barst bankanum
undirritaður af Sigurði Þórðarsyni
og Halldóri V. Sigurðssyni heitnum,
þáverandi ríkisendurskoðanda, og
að reikningurinn hafí einnig verið
ræddur í bankaráði.
Þetta sagði Tómas í gær í fram-
haldi af þeim ummælum Sigurðar
Þórðarsonar í greinargerð hans til
forsætisnefndar Alþingis 9. septem-
ber að hann hafi aldrei persónulega
sent Seðlabankanum reikning.
„Ég er þess vegna hissa á Sigurði
að segja þetta,“ sagði Tómas Arna-
son í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Mér finnst líka einkennilegt
að Sigurður skuli vera á launum hjá
Búnaðarbankanum, hann er for-
stöðumaður stofnunar sem á að
endurskoða Búnaðarbankann. Þetta
finnst mér vera afskaplega sér-
kennilegt, svo ekki sé meira sagt,“
segir Tómas og telur auðvelt að
upplýsa málið með því að skoða
reikninga og hvort launin hafi verið
greidd Sigurði persónulega.
Tómas vildi einnig leggja áherslu
á að fyrrverandi ríkisendurskoðandi
féllst á þá málsmeðferð Seðlabank-
ans að reikningurinn var endur-
sendur að athuguðu máli enda
grandvar í öllum störfum. „Ég er
þess fullviss að hann mun aldrei
hafa fengið greiðslu fyrir endur-
skoðunarstörf stofnunarinnar."
Evrópsk flug-
félög fá tilboð í
árekstravara
BANDARÍSKA rafeindafyrirtækið
AlliedSignal hefur gert 20 flugfélög-
um, einkanlega í Evrópu, tilboð í
árekstravara í flugvélar þeirra. Alls
hafa þessi félög um 200 flugvélar í
rekstri. Skylt verður að hafa
árekstravara í flugvélum í Evrópu
frá ársbyrjun árið 2000. Er þar átt
við vélar sem taka 30 farþega eða
fleiri og vega yfir 15 tonn.
Um er að ræða vélar af gerðun-
um Fokker, Saab 340 og ATR 72,
svo dæmi séu nefnd og eru Flug-
leiðir meðal þessara félaga. Verð á
árekstravara samkvæmt tilboðinu
er kringum 8 milljónir króna.
Leifur Magnússon, framkvæmda-
stjóri flugflota- og öryggissviðs
Flugleiða, upplýsti Morgunblaðið í
gær um að fyrirtækið hefði skrifað
Flugmálastjórn til að kanna hvort
skylt verði að hafa slíka árekstra-
vara í flugi á jaðarsvæðum í Evr-
ópu, til dæmis við flug við ísland,
Færeyjar og Grænland þrátt fyrir
umrætt skilyrði sem samþykkt hef-
ur verið innan Flugöryggissamtaka
Evrópu og ísland er aðili að. Ekki
hefur enn borist svar við fyrir-
spurninni en Leifur segir árekstra-
vara hugsaða til viðvörunar flug-
mönnum þar sem flugumferð sé
þétt.
Ekki rætt um undanþágur
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri
segir að gert sé ráð fyrir því að
reglur Flugöryggissamtaka Evrópu
séu yfirleitt teknar upp hérlendis án
undantekninga og segir það ekki
hafa verið rætt sérstaklega hvort til
greina komi að heimila undanþágu
frá ákvæðinu um árekstravara.
Árekstravarar eru nú þegar um
borð í millilandaþotum Flugleiða.
Flugleiðir eiga þrjár Fokker 50
flugvélar sem leigðar eru Flugfélagi
íslands.
SVAVAR Stefánsson, húsvörð-
ur í Sléttuvegi 15-17, sópar
vatninu út úr húsinu.
Morgunblaðið/Goíli
HÉR bendir Svavar á það sem gaf sig þannig að vatn flæddi í íbúðir
og sal í húsinu svo að stórtjón hlaust af.
Milljónatjón vegna vatnsleka
MIKLAR skemmdir urðu í hús-
eignum við Sléttuveg 15-17 í
Reykjavík þegar vatnsinntak fór
í sundur snemma í gærmorgun.
Sex íbúðir skemmdust auk
sameiginlegs 150 fermetra saiar.
Slökkviliðið í Reykjavík var kvatt
á staðinn og fékk Vatnsveituna
til að loka fyrir vatnið. Talið er
að vatnið hafi streymt um ganga
og gólf í um klukkustund áður en
skaðans varð vart. Rörið sem fór
í sundur er 63 millimetra svert
og var þrýstingur um 3,5 til 4 kg
á fersentimetra þegar það fór í
sundur. Nam vatnsyfirborðið við
læri þegar að var komið. Fulltrúi
Tryggingar hf. sem mat tjónið í
gær taldi það nema um þremur
til fimm milijónum króna.
Hjá Vatnsveitunni fengust þær
upplýsingar að hugsanleg orsök
fyrir lekanum væri sú að tengi í
rörinu hefði verið sett vitlaust
saman þegar gengið var frá
pipulögnum í húsinu. Það var
byggt árið 1992.