Morgunblaðið - 17.09.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998 27
Sænsku þingkosningarnar
Hugsjóna-
hungur fitar
kristilega
demókrata
Flest bendir til að kristilegum demókröt-
um muni ganga vel í sænsku þingkosning-
unum um næstu helgi, segir Sigrún
Davíðsdóttir, sem fylgist með kosninga-
baráttunni í Stokkhólmi.
FYLGISAUKNING Kristilega
demókrataflokksins vekur mesta at-
hygli á lokaspretti kosningabarátt-
unnar og flokksleiðtoginn Alf
Svensson er enn innblásnari en
venjulega af velgengninni. Skoðana-
kannanir benda til að flokkurinn
meira en tvöfaldi fylgi sitt miðað við
kosningarnar 1994, þegar hann rétt
skreið yfír lágmarkið, fari úr 4,1
prósenti og yfir tíu prósent. Flokk-
urinn hugnast kjósendum sem
hægri valkostur án stöðugs tals um
krónur og aura heldur um gildi, sem
ekki verða mæld í peningum. Meg-
ináherslan er á umönnun gamla
fólksins, enda er fylgið mest sótt til
fólks eldra en 65 ára auk þess sem
konur hafa löngum verið uppistaða
kjósenda flokksins. Viðbótaríylgið
virðist helst koma frá eldri kjósend-
um, sem áður hafa kosið Jafnaðar-
manna- eða Hægriflokkinn og sem
hungrar eftir öðru en dægurþrasi
og tölum.
Það hefur verið viðloðandi gagn-
rýni á Hægriflokkinn að hann sé
gjörsneyddur tilfinningu fyrir fé-
lagslegum málefnum og umhyggju
fyrir gamla fólkinu, fyrir einstæðum
mæðrum og ástandinu í úthverfum
sænskra borga, þar sem atvinnu-
leysi og innflytjendur setja svip á
lífið. Nýlega lét til dæmis Assar
Lindbeck prófessor í hagfræði, sem
er hallur undir Hægriflokkinn, svo
ummælt að flokkurinn sýndi enga
félagslega samúð. Carl Bildt leið-
togi Hægriflokksins hefur rejmdar
verið tíðrætt í kosningabaráttunni
um einstæðar mæður, úthverfin og
gamla fólkið, en innlifun hans þykir
ekki djúp.
Gamla fólkið með bleiurnar á
málsvara í Svensson
Alf Svensson nær allt öðrum tök-
um á þessu umræðuefni. „Þama
stóðu þau svo falleg með silfraða
lokka og lífreynsluna rista í andlit-
ið,“ segir hann þegar hann lýsir for-
eldrum sínum á kosningafundi. Það
er ekkert falskt eða tilgerðarlegt
við tal hans, sem breytist ekki í takt
við skoðanakannanir og hefur lítið
breyst í þau 25 ár, sem hann hefur
verið flokksformaður. Hann segir
frá þegar hann heimsótti móður
sína 93 ára, þar sem hún lá á lang-
legudeild eftir að hafa fengið slag
og gat sér enga björg veitt, þótt hún
væri enn klár í kollinum.
Móðirin hringdi eftir hjálp, en
bjöllumar gullu allt í kring, því að-
eins tvær hjúkrunarkonur voru á
vakt. Þegar önnur þeirra kom og
móðirin bað um fá aðstoð til að fara
á klósettið var svarið: „Jenny, þú
verður bara að pissa í bleiuna, því
við höfum ekki tíma.“ Svensson
gleymir ekki svipnum á móðurinni.
„Þetta var jafnmikil óvirðing við
hana eins og það hefði verið við okk-
ur öll,“ segir hann djúpri, hlýrri
röddu. Áheyrendur gleyma orðum
hans ekki strax.
Innblásin og hlýleg orð Svens-
sons ná einnig til margra jafnaðar-
manna, því eins og jafnaðarmenn
talar Svensson um velferðarkerfið,
en bara á allt öðrum og persónu-
legri nótum. Stefnuskrá kristilegra
er mjög lík stefnuskrá Hægriflokks-
ins þegar kemur að áþreifanlegum
atriðum eins og skattalækkun,
vinnumarkaðsmálum og umfangi
opinbera geirans, en boðskapurinn
er fluttur með áherslu á hið mann-
lega og á það sem mölur og ryð fær
ekki grandað. Þeir sem sakna hlýju
og hugsjóna í orðum Bildts og Gör-
an Perssons forsætisráðherra finna
það í orðum Svenssons.
Það sem skilur kristilegu
demókratana frá Hægriflokknum er
einkum útbreidd tortryggni á Evr-
ópusambandið. Einn af áköfum
ESB-gagnrýnendum í Hægri-
flokknum, Bjöm von Esch, sem
rekinn var úr þeim flokki, hefur nú
gengið til liðs við kristilegu
demókratana og verður að öllum
líkindum kjörinn. Alf Svensson tal-
ar ekki gegn ESB, en hefur viðrað
efasemdir sínar og sagst vilja hlusta
á vilja almennings.
I stjóm myndi hann vísast ekki
beita sér gegn ESB, en vera til með
að spyrja spuminga og leggja sig
fram um að túlka það sem hann
teldi vera vilja almennings. Og hann
hefur einnig látið svo ummælt að
hann muni láta meira til sín taka í
hugsanlegri hægristjórn en hann
gerði 1991-1994, sem skilja má sem
svo að honum þyki Hægriflokkur-
inn og Bildt hafa verið heldur ein-
ráðir þá.
Stuðningur kirkju-
og fríkirkjuhópa
Alf Svensson á rætur að rekja til
Jönköping í Smálöndum og þar er
einnig fylgi flokksins mest. Héraðið
einkennist af öflugum fríkirkju-
hreyfingum, sem um leið er sá jarð-
vegur, sem flokkurinn er sprottinn
upp úr. Þótt flokkurinn fengi aðeins
4,1 prósent við síðustu kosningai-
átti hann tíu prósenta fylgi í
Smálöndunum. Minnstur er stuðn-
ingurinn uppi í norðurhéruðunum,
þar sem Jafnaðarmannaflokkurinn
er alls ráðandi. Flokkurinn hefur
hangið á horriminni síðan hann var
stofnaður 1964. Alf Svensson, sem
var menntaskólakennari, hefur ver-
ið með frá upphafí og varð formaður
1973, en komst ekki á þing fyrr en
flokkurinn gerði kosningabandalag
við Miðflokkinn 1985. Það var ekld
fyrr en 1991 að flokkurinn fékk
þingmenn kjörna af eigin rammleik
er flokkurinn fékk 7,1 prósents
fylgi. „Loksins slepp ég við að heyra
að atkvæði til kristilegra sé til
einskis," segir Svensson.
Ef svo fer sem horfir er ljóst að
það mun fjölga mjög verulega í
þingflokki kristilegra, sem nú hefur
fimmtán þingmenn. Með tíu pró-
senta fylgi fengi flokkurinn ríflega
þrjátíu menn kjörna. Það hefur því
beint athyglinni að því hvers konar
lið muni bætast við þingheim. Allt
bendir til að andstæðingum kven-
presta muni fjölga og einnig and-
stæðingum fóstureyðinga, en bæði
málefnin setja enn mjög svip sinn á
umræður í kristilegum hópum í Sví-
þjóð.
Velgengni Kristilega demókrata-
flokksins gæti hugsanlega verið
dæmi um að þótt gömlu hægri- og
vinstrihugsjónirnar séu dauðar þá
eru kjósendur eftir sem áður haldn-
ir hugsjónahungri og vilja annað og
meira en tölur og staðreyndir.
Átökin í Kosovo
• •
Oryggisráð-
ið undirbýr
ályktun
Brussel. Reuters.
CHRIS Hill, erindreki Bandaríkja-
stjórnar í Kosovo-deilunni, átti fund
með sendiherrum í höfuðstöðvum
Atlantshafsbandalagsins (NATO) í
Brussel í gær. Onafngreindur heim-
ildarmaður Reuters hjá NATO lét
hafa eftir sér að öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna undirbyggi nú tillögu
að ályktun um ástandið í Kosovo-
héraði. Þar mun kveðið fastar að
orði en áður og ofbeldi serbneskra
öryggissveita í héraðinu fordæmt,
auk þess sem Slobodan Milosevic,
forseta Júgóslavíu, verði sett skýr
skilyrði sem honum verður gert að
uppfylla á næstu vikum. Markmið
ályktunarinnar er að sýna Milosevie
fram á að þolinmæði samfélags þjóð-
anna og NATO séu takmörk sett og
hugsanlega verði gripið til hernaðar-
íhlutunar.
Hill sagði viðræður standa yfir um
„ákveðna þætti í samkomulagi" en
tók hins vegar fram að stórsókn
Serba gegn skæruliðum Frelsishers
Kosovo og hinn mikli fjöldi flótta-
fólks í héraðinu, gerði samninga erf-
iðari en ella.
endist vel
Whirlpool gæða frystikistur
AFG053 134L Nettó H:88,5 B: 60 D: 68 Verð: 29.925 kr
AFG073 258L Nettó H:88,5 B: 95 D: 68 Verð: 36.955 kr
AFG093 320L Nettó H:88,5 B: 112 D: 68 Verð: 39.900 kr
AFG094 400L Nettó H:88,5 B: 134,5 D: 68 Whirlpool frystlkistur eru með læslngu á loki, Ijósi f lokl og aðvörunarbúnaði. Whirlpool gæða frystískápar Verð: 46.455 kr
AFG065 65L Nettó H:56,5 B: 52,5 D: 60 Verð: 36.000 kr
AFB427 130L Nettó H:85 B: 55 D: 60 Verð: 34.265 kr
AFB341 203L Nettó H:140 B: 59,2 D: 60 Verð: 49.875 kr
AFG343 283L Nettó H:180 B: 59,2 D: 60 Verð: 54.900 kr
Whirlpool frystiskápar eru með aðvörunarbúnaði. Öll verð eru stgr. verð
Umboðsmenn um land allt
Byggingavörudeild KEA
Einar Stefánsson
Eiis Guðnason
Eyjaradfó
Fossraf
Guðni Hallgrímsson
Hljómsýn
Kask - vöruhús
K/F Húnvetninga
K/F Borgfirðinga
K/F Héraðsbúa
K/F Þingeyinga
K/F V- Húnvetninga
K/F Skagfirðinga
K/F Vopnfirðinga
Akureyri Mosfoll Hellu
Búðardal Póllinn ísafirði
Eskifirði Rafmagnsverkstæði KR Hvolsvelli
Vestmannaeyjum Radiónaust Akureyri
Setfossi Rafborg Grindavík
Grundarfirði Rafbær Siglufirði
Akrancsi Rás Þoriákshöfn
Höfn Homafirði Skipavík Stykkishólmi
Blönduósi Skúli Þórsson Hafnarfirði
Borgarnesi Turnbræður Seyðisfirði
Egilsstöðum Valberg Ólafsfirði
Húsavík Viðarsbúð Fáskrúðsfirði
Hvammstanga Samkaup - Njarðvik Reykjanesbæ
Sauðárkróki Vopnafirði Blómsturvellir Hellissandi
Heimilistæki hf
SÆTUNI 8 SIMI 568 15 OO
http.//www.ht.ls
umboðsmenn um land allt