Morgunblaðið - 17.09.1998, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 17.09.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998 49 FRIÐRIK JON ÁSGEIRSSON JÓHANNSSON + Friðrik Jón Ás- geirsson Jó- hannsson var fædd- ur á Auðkúlu við Arnarfjörð 28. nóv- ember 1913. Hann lést á Vífilstaðaspít- ala 9. september síðastliðinn. For- eldrar hans voru Jóhann Jónsson, f. 14. júlí 1877, d. 8.júlí 1921, skip- stjóri og bóndi á Lónseyri og síðar Auðkúlu við Arnar- íjörð, og kona hans Bjarney Jóm'na Friðriksdóttir, f. 8. júní 1876, d. 16. febrúar 1952. Systkini Friðriks voru: 1) Jón Ásbjörn, f. 16.ágúst 1906, d. 7. september 1992, yfirlög- regluþjónn og síðar skattsjóri á Isafírði, kvæntur Oktavíu Gísla- dóttur hjúkrunarkonu. 2) Jens- ína Sigurveig, f. 5. ágúst 1907, d. 15. júní 1995, gift Guðjóni E. Jónssyni bankaútibússtjóra. 3) Bjarney Margrét, f. 21. septem- ber 1909, d. 4. október 1962. Fyrri eiginmaður Andrés Krist- jánsson bóndi og skipstjóri, seinni maður Brynjólfur Hanni- balsson bóndi og sjómaður. 4) Bjarni Jóhann, f. 10. október 1910, d. 28. júní 1970, yfirlög- regluþjónn og síðar útibússtjóri ÁTVR á Siglufirði, kvæntur Guðlaugu Þorgilsdóttur systur Sólveigar konu Friðriks. 5) Guðmunda, f. 28. september 1912, d. 31. júlí 1931, ógift og barnlaus. 6) Guðný, f. 15. júní 1916, d. 17. mars 1993, gift Kri- stjáni G. Sigurmundssyni fram- kvæmdastjóra. 7) Jónína Guð- munda, f. 27. nóvember 1917, d. 20. september 1993, gift Páli J. Briem bankaútibússtjóra. 8) Sigurleifur F.G., járnsmiður á ísafirði, f. 26. maí 1920, d. 2. apríl 1986, kvæntur Ingu S. Andrésdóttur Straumland. ÖIl eru því látin systkinin níu frá Auðkúlu og makar þeirra nema Páll og Inga. Hinn 29. ágúst 1936 kvæntist Friðrik Sólveigu Þorgilsdóttur, f. 29. ágúst 1912, í Bjarnarfoss- koti í Staðarsveit, d. 8. desem- ber 1965. Foreldrar hennar voru Þorgils Þorgilsson, f. 30. apríl 1887, sjómaður og bóndi í Innri-Bug í Fróðárhreppi, d. 17. nóvember 1975, og kona hans, Jóhanna Jónsdóttir, f. 4. júlí 1888, d. 22. febrúar 1977. Börn Friðriks og Sólveigar eru: 1) Guðmundur Jóhann, f. 27. nóvember 1934, d. 16. mars 1986, bifreiðastjóri. Fyrri kona hans var Svanhildur Þorbjöms- f. 2. apríl d. 3. ágúst 1975, og áttu þau fimm syni. Seinni kona hans var Ingi- Þ. Hinriks- dóttir, f. 28. októ- ber 1936. 2) Dista, f. 14. nóvember 1936, d. 16. desem- ber 1937. 3) Annie Bjargfeld, f. 30. mars 1939, d. 5. apríl 1985, sjúkra- liði, gift Jóni Ing- ólfssyni, málara, þau skildu, þau áttu þrjú börn. 4) Hrafn Vestfjörð, f. 9. maí 1940, dr. med., yfírlækn- ir, kvæntur Guðrúnu Marie Sæther Jónsdóttur kennara, og eiga þau fimm börn. 5) Kristján F.G., f. 26. október 1945, verk- smiðjusljóri, kvæntur Björk Bjarkadóttur fyrrverandi yfir- fangaverði og eiga þau tvö böm. 6) Bjarney Jónína, f. 26. ágúst 1948, skrifstofumaður, gift Magnúsi ThejH fyrrverandi bankamanni. Börn hennar með fyrrverandi sambýlismanni Grétari Guðmundssyni eru ijögur. 7) Jólianna Björk, f. 2. janúar 1951, kennari, gift Þórði Jóhannessyni kennara og eiga þau fjögur börn. 8) Gils, f. 6.janúar 1953, sjómaður, kvæntur Maríu Sveinsdóttur hjúkmnarfræðingi og eiga þau eitt barn. 9) Bjarni Ásgeir, f. 29. maí 1956, rafeindavirki og júdókappi, kvæntur Önnu Guð- nýju Asgeirsdóttur Iíffræðingi og eiga þau þrjú börn. 10) Guð- munda, f. 23. janúar 1958, d. 27.janúar 1958. Barnsmóðir Eva Laufey Eyþórsdóttir, f. 27. janúar 1918, d. 9. september 1957. Sonur þeirra er Allan Heiðar, f. 24. apríl 1937, tré- smiður, kvæntur Kristínu Jóns- dóttur og eiga þau fjögur börn. Af áttatíu og tveimur afkom- endum Friðriks era sjötíu og átta á lífi. Friðrik ólst upp á Auðkúlu og fór snemma að stunda sjó- mennsku. Hann var sjómaður frá Arnarfirði og ísafirði 1927-1934 og lögregluþjónn á Siglufirði 1934. Á varðskipum Landhelgisgæslunnar 1934- 1936 og fangavörður á Litla- Hrauni 1937-1946. Hann var trésmiður í Rvík og víðar 1946-1953 og starfsmaður Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi 1953-1985. títför Friðriks fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. dóttir, 1935, Ég vil í grein þessari minnast Friðriks J.A. Jóhannssonar eða Frikka eins og hann var oft nefnd- ur, sem lést á Vífilsstaðaspítala að morgni 9. september sl. Við erum venslaðir þannig að ég er kvæntur dóttur hans Jóhönnu sem Friðrik og kona hans Sólveig gáfu hjónun- um Bjarna bróður Friðriks og Guð- laugu systur Sólveigar til ættleið- ingar. Jóhanna ólst því upp hjá kjörforeldrum sínum Bjarna og Guðlaugu norður á Siglufirði en var þó í góðum tengslum við blóðfor- eldra sína og systkin sem bjuggu í Reykjavík. Jóhanna fluttist ásamt móður sinni til Reykjavíkur árið 1970 eftir lát Bjama föður síns og jukust þá samskipti hennar og Frið- riks en Sólveig var þá látin all- nokkru áður. Eg kynntist Friðrik snemma á 8. áratugnum og leiddu þau kynni til vináttu sem efldist og styrktist með árunum. Friðrik var hár og grannur og af- skaplega hjartahlýr maður. Þótt hann væri kominn nálægt sextugu er ég hitti hann fyrst sá ég að hann hefur verið vel að manni. A því fékk ég staðfestingu í sjötugsafmælis- veislu Friðriks en þá sagði Jón bróðir hans frá uppvaxtarárum þeirra systkina á Auðkúlu í Amar- firði. Ýmsar nauðsynjar voru þá ferjaðar á báti frá Bíldudal til Auð- kúlu. Þegar þær voru fluttar í land lét Friðrik sig ekki muna um að bera einsamall fullar olíutunnur frá borði því að hann var afrendur að afli. Friðrik var hógvær maður og aldrei minnist ég þess að hann hafi hreykt sér af kröftum sínum né verkum. Hann var mjög laghentur og starfaði við smíðar um árabil. Ég naut m.a. góðs af smíðakunnáttu hans er ég þurfti að skipta um alla gluggakarma í íbúð er ég átti. Að- stoð hans við það verk var auðfeng- in og smíðaði hann nýja glugga er við hjálpuðumst að við að setja í. Ekki vildi hann þiggja neinar greiðslur fýrir verkið. Friðrik las mikið, einkum bækui- um þjóðlegan fróðleik, ævisögur og ljóðabækur. Hann var ágætlega hagmæltur og orti bæði kvæði og tækifærisvísur. Ég læt hér fylgja með síðasta erind- ið úr ljóði Friðriks Bernskuminning úr Amarfirði: Dalurinn minn var draumaheimur dásamlegur fannst mér hann virtist eins og geislageimur glitrandi við sólroðann. Parégundiótalstundir upp til fjalla í klettaskor lék mér svo um grænar grundir geymd eru þar mín æskuspor. Hin síðustu ár bjó hann í þjón- ustuíbúð fyrir aldraða við Hverfis- götu og var þar gott að heimsækja hann. Hlýleiki hans var mikill og heilsaði hann og kvaddi alltaf með faðmlagi og kossi hvort sem í hlut átti karl eða kona og sérstaklega lét hann sér dælt við barna- og barna- barnabörnin. Við ræddum oft um og fóram með kveðskap og hló hann þá oft hjartanlega að hnyttn- um og kjamyrtum vísum en þær kunni hann að meta, enda húmoristi góður. Við ræddum líka oft um æsku- slóðir hans í Arnarfirði og hann sagði þá frá atburðum úr æsku sinni. Hann kunni vel að segja frá, var aldrei með neinn asa og ígrand- aði vel það er hann sagði. Hann hafði gott minni og mundi vel per- sónur og atburði. Ég skil vel þá sterku taug er tengdi hann við Arn- arfjörðinn enda frá einum Vest- fjarðanna sjálfur. Friðrik hélt þeim vestfirska sið að borða kæsta skötu á Þorláksmessu og undanfarin ár bauð hann öllum afkomendum sín- um ásamt mökum þeirra til skötu- veislu þennan dag. Friðrik var áhugasamur um íþróttir og sat hin síðari ár löngum framan við sjón- varpstækið til að fylgjast með þátt- um um það efni, bæði knattspymu og frjálsum íþróttum. Hann fylgdist stoltur með júdóferli Bjarna sonar síns sem náði að komast á verð- launapall á ólympíuleikum eins og flestir íslendingar vita. í júlí 1994 fóra börn Friðriks ásamt honum til æskustöðvanna en þangað hafði hann þá ekki komið í rúmlega 30 ár. Ég var með í þeirri för. Gaman var að fylgjast með Friðrik ganga í góða veðrinu um túnið á Auðkúlu. Hann kunni skil á öllum tóftarbrot- um og naut þess auðsjáanlega að vitja æskustöðvanna. Nú er hann fallin frá. Hann var síðastur eftirlif- andi þeirra systkina. Mér auðnaðist að kynnast mörgum þeirra en sum voru látin áður en ég tengdist ætt- inni. Friðrik og systkin hans misstu fóður sinn ung og þurftu snemma að standa saman í lífsbaráttunni. Aðstæður þeirra í uppvextinum hafa ábyggilega mótað samskipti þeirra sín á milli en það var eftir- tektarvert fyrir mig og fleiri er þeim kynntust hve mikil vinsemd og hlýja einkenndi samband þeirra alla tíð. Við sem eftir lifum vonum og vilj- um trúa því að Friðrik sameinist sínum ástvinahópi, sem látinn er, í bjartari heimi. Ég vil enda þessi skrif mín með broti úr ljóði Kahlil Gibrans, Spámanninum, um leið og ég votta börnum Friðriks og öðram afkomendum hans mína dýpstu samúð. Því að hvað er það að deyja annað en standa nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið? Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns? Aðeins sá, sem drekkur af vatni þagnarinnar, mun þekkja hinn vold- uga söng. Og þegar þú hefur náð ævitindin- um, þá fyrst munt þú hefja fjall- gönguna. Og þegar jörðin krefst líkama þíns, muntu dansa í fyrsta sinn. Þórður Jóhannesson. Það var alltaf gaman að heim- sækja Frikka afa. Hann var hress með eindæmum og ástúðlegur og bauð okkur alltaf hjai-tanlega vel- komin, en ekki bara með orðum. Um leið og stigið var inn á heimili hans fylgdi fjöldi kossa og faðmlaga í kjölfarið. Og þegar kveðjustund rann upp endurtók sagan sig. Við skemmtum okkur oft eftir á við að segja hvort öðru hve marga kossa okkur auðnaðist að fá. Fyrir rúmum tveimur árum var haldið ættarmót að Auðkúlu í Arn- arfirði. Mamma og pabbi komust ekki vegna veikinda pabba þannig að við systkinin fórum án þeirra. Það sem stóð upp úr eftir þetta vel heppnaða ættarmót var þegar við fengum afa til þess að fara með vís- ur eftir sjálfan sig í stóra tjaldinu. Hann var feiminn í fyrstu en svo streymdu glettnar vísur og hnyttn- ar frásagnir af vöram hans sem vöktu mikla kátínu meðal við- staddra. Hann sló í gegn! Afi var mikill húmoristi. Það kom vel í ljós einn daginn þegar Svava Man'a hitti hann af tilviljun í stræt- isvagni. Hann sat framarlega með kaskeitið sitt og varð starsýnt eins og fleirum á svertingja með all- skrautlega hárgreiðslu sem sat hin- um megin við ganginn. Eftir drykk- langa stund veitir maðurinn afa eft- irtekt og þeir horfa til skiptis hvor á annan. Loks snýr maðurinn sér eldsnöggt við, stendur upp, geiflar sig og grettir, hristir sig og hljóðar upp. Afa bregður fyrst í brún en tekur svo við sér og fer að skelli- hlæja. Maðurinn tekur undir og brátt allir farþegarnir í vagninum. Það var í alla staði yndislegt að vera í návist Frikka afa. Okkur þótti afskaplega vænt um hann og alltaf hlýjaði innilegur hlátur, hlý- legt bros og elskutal hans okkur um hjartarætumar. Elsku Frikki afi, þú verður alltaf hjá okkur, bæði í bænum okkar og hugskotum. Þú áttir hvfldina skiliffk " og við vitum að þú ert núna á góð- um stað. Bjami Jóhann, Svava María, Þóra Björk, Sólveig. í dag kveðjum við hann Friðrik frænda, sem er látinn 84 ára að aldri. Stóri glæsilegi systkinahópur- inn frá Auðkúlu í Arnarfirði er þannig sameinaður á ný, en sam- rýndari hóp var vart að finna. Lífið var ekki alltaf auðvelt hjá Friðriki og systkinum en erfiðleik--. arnir virtust veita þeim aukinn styrk og jákvæði. Þau áttu flest mjög auðvelt með að koma fyrir sig orði og vora margar vísur samdar - jafnt tvíræð- ar sem alvarlegra efnis. Því miður er þessi kveðskapur að mestu týnd- ur því minnst af honum komst á blað. Fyrir nokkram árum var haldið ættarmót á Auðkúlu. Friðrik var þá einn eftirlifandi af hópnum. Óg- leymanlegt verður hvað hann fyllt- ist miklum eldmóði er hann leiddi okkm- um æskustöðvarnar og sagði okkur frá hvemig lífið var í gamla daga, en hann gleymdi ekki prakk- arastrikunum. , Eftirlifandi ættingjum sendum við einlægar samúðarkveðjur. Guðlaug Brynja, Bryndís og Olafur Friðrik. t Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HANSÍNA GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, dvalarheimilinu Hrafnistu, Reykjavík, áður Ljósheimum 2, sem lést 10. september síðastliðinn, verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 18. sept- ember kl. 10.30. Friðrik Guðleifsson, Jóhanna Óskarsdóttir, Guðmundur Guðleifsson, Koibrún Bjarnadóttir, Sigurður Guðleifsson, Nína Guðleifsdóttir, Guðmundur Eyjólfsson, Unnur Brynjólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, ARNÞÓR GUÐNASON bifvélavirkjameistari, Lyngheiði 4, Selfossi, lést hinn 31. ágúst sl. Jarðsett var í kyrrþey að ósk hins látna. Elínborg Anna Kjartansdóttir, Nína Björg Knútsdóttir, Árni Valdimarsson, Sesselja Berndsen, Franz Jezorsky, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, BRAGI INGÓLFSSON, Heiðargerði 5, Húsavík, lést föstudaginn 11. september sl. Útförin fer fram föstudaginn 18. september nk., frá Húsavíkurkirkju, kl. 14.00. Guðrún Svavarsdóttir, Hulda Valdimarsdóttir, Herdís Bragadóttir, Marinó Önundarson, Elvar Bragason, Guðni Bragason, Rannveig Þórðardóttir, Bragi Marinósson, Arnar Marinósson, Valdimar Ingólfsson, Jón Ingólfsson, Dagný Ingólfsdóttir og aðrir aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.