Morgunblaðið - 17.09.1998, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Fjórir þing-
menn stofna
Þingflokk
óháðra
Þingflokkur óháðra var stofnaður í gær af
þremur fyrrverandi þingmönnum Alþýðu-
bandalagsins og óháðra og einum þing-
manni sem kjörinn var á þing fyrir hönd
Kvennalista í síðustu alþingiskosningum.
FRETTIR
Morgunblaðið/Ásdís
MEÐLIMIR hins nýja þingflokks kynntu stofnun hans á blaðamannafundi í gær.
í BRÉFI til forseta Alþingis í
gær segja fjórmenningarnir að
þessi ákvörðun tengist breyttum að-
stæðum í íslenskum stjórnmálum,
þar sem þeir flokkar sem þeir hafí
boðið sig fram fyrir eða í samstarfi
við, hafi nú horfið frá því að efna til
framboðs í eigin nafni og á grund-
velli eigin stefnu í komandi alþingis-
kosningum. Þingmennirnir hafi því
ákveðið að starfa saman í þingflokki
og sé þessi ákvörðun tekin í samráði
við varamenn þeirra.
Þeir þingmenn sem um ræðir eru
Hjörleifur Guttormsson, 4. þing-
maður Austurlands, Kristín Ást-
geirsdóttir, 14. þingmaður Reykja-
víkur, Steingrímur J. Sigfússon, 4.
þingmaður Norðurlands eystra, og
Ógmundur Jónasson, 17. þingmað-
ur Reykjavíkur. Auk þeirra voru á
stofnfundinum í gær Guðrún
Helgadóttir, varaþingmaður í
Reykjavík, Þuríður Backman, vara-
þingmaður á Austurlandi, Árni
Steinar Jóhannsson, varaþingmað-
ur í Norðurlandi eystra, og Svan-
hildur Kaaber, varaþingmaður í
Reykjavík.
Þingflokkurinn hefur ekki skipt
með sér verkum, en það verður gert
innan tíðar. Hjörleifur Guttormsson
stýrði fundinum í gær sem aldurs-
forseti hópsins. Hann sagði að á
stofnfundinum hefði verið farið yfir
þau mál sem augljóslega væru
framundan hjá þingflokki í stjórn-
arandstöðu, eins og skipan í nefndir
og annað slíkt, sem ganga þyrfti frá
áður en til þings kæmi innan hálfs
mánaðar, í samvinnu við aðra flokka
í stjórnarandstöðu. Þá hefði einnig
verið farið yfir efni sem tengdust
þingmálum og undirbúningi þing-
starfa. „Við erum mjög bjartsýn
með starfið framundan í þessum
HÁHYRNINGURINN Keikó er nú
farinn að éta 60 kíló af fiski á dag og
er búist við því að hann muni verða
farinn að éta allt að 75 kíló þegar
sjórinn í Klettsvík fer að kólna fyrir
alvöru. Fylgst er náið með hvalnum
og sagði Beveriy Hughes, stjórn-
andi Keikó-stofnunarinnar, að hegð-
un hans hefði breyst mjög frá því
sem var í sædýrasafninu í Newport
í Oregon.
„Honum gengur vel að laga sig að
nýju umhverfi, matarlystin er góð,
hann kannar kvína og hér eru allir
ánægðir," sagði Hughes. „Fyrsta
daginn hafði hann - fastað og
skammturinn hefur smám saman
verið aukinn. Nú étur hann 60 kíló.“
Að sögn hennar eru nánar gætur
hafðar á hvalnum og meðal annars
fylgst með honum 20 mínútur á
klukkustund fjóra tíma á hverjum
degi.
„Hann er farinn að gera hluti,
sem við höfum aldrei séð áður, og
við þurfum að bæta nýjum orðum í
orðasafnið hjá okkur,“ sagði Hug-
hes. „Áður varði hann miklum tíma
í að horfa á fólk í gegnum glugga,
en nú eru engir gluggar og eyðir
nýja þingflokki og væntum þess að
við látum nokkuð að okkur kveða á
komandi þingi,“ sagði Hjörleifur rið
þetta tækifæri.
Ákvörðun um framboð óháð
stofnun þingflokksins
Aðspurður hvort í þessari ákvörð-
un um stofnun þingflokksins fælist
ákvörðun um samstarf að framboðs-
málum fyrir Alþingiskosningamar í
vor, sagði Steingrímur J. Sigfússon
að ákvörðun þar að lútandi væri al-
gjörlega óháð stofnun þingflokks-
ins. Stofnun hans lyti að skipulagn-
ingu starfa í þinginu, en það væri
sjálfstætt mál hvers og eins hvað
hann gerði varðandi þær hræringar
sem væru í stjómmálum út í þjóðfé-
laginu og því hverjir yrðu með í
væntanlegri stofnun nýrrar hreyf-
ingar, vinstri hreyfingar.
Steingrímur sagði að þingflokk-
arnir væru mjög mikilvæg grunn-
eining í öllu starfi og skipulagi
þingsins og það væri fullkomlega
eðlilegt og sjálfsagt mál að hópur
þingmanna, sem væru eins settir,
skipulegði sín störf saman. „Það
fylgja þessu ekki neinar skuldbind-
ingar um þátttöku í neinu öðra. Hitt
er svo annað mál að við teljum okk-
ur munu eiga auðvelt með að ná
saman um allt sem snýr að störfun-
um hér og höfum auðvitað farið vel
yfir það. Við erum allt þingmenn í
stjórnarandstöðu og þar af leiðandi
sömu megin meginvíglínunnar í
stjórnmálabaráttunni sem skiptir
stjórn og stjórnarandstöðu og við
erum öll eins sett hvað það snertir
að við höfum sagt skilið við okkar
flokka. Við ætlum ekki með í þann
sambræðing sem verið er að reyna
að mynda og höfum þar af leiðandi
sjálfstæða eða óháða stöðu í stjórn-
hann því miklu meiri tíma dýpra í
kvínni, í að synda um kvína og er
minna með starfsfólkinu uppi á yfir-
borðinu og meira með sjálfum sér.
Hann er ekki hættur að virða
starfsmenn viðlits, en leitar dýpra í
kvína.“
Forvitinn og áhugasamur
Hún sagði að Keikó virtist forvit-
inn og það væri ánægjulegt að hann
væri svona áhugasamur um kvína.
Að sögn Hughes hafa þrisvar
málunum um þessar mundir, eins
og nafn þingflokksins ber með sér,“
sagði Steingrímur.
Aðspurður hvort gera megi ráð
fyrir að þingflokkurinn móti sam-
eiginlega afstöðu til mála, sagði
Steingrímur að það yrði væntanlega
unnið með mjög svipuðu sniði og
gert væri. Farið yrði yfir mál og
þau mál rædd sem menn hygðust
flytja og strengirnir stilltir saman
eftir því sem við ætti. „Auðvitað eru
aðstæðurnar að sumu leyti óvenju-
legar, en ég hef ekki nokkrar
minnstu áhyggjur af því að okkur
gangi verr í þeim efnum en oft og
komið önnur sjávarspendýr að
kvínni. Á þriðjudag hefði hnísa
komið að henni og væri talið að
þessi dýr væra einfaldlega vön að
leita í Klettsvíkina, fremur en að
þau kæmu vegna háhymingsins.
„Það er ekki víst að Keikó nái
sambandi við þessi dýr,“ sagði hún.
„Hann gefur frá sér hljóð þegar dýr
er í nágrenninu, en það er ekki
hægt að segja til um það hvort sam-
skipti eigi sér stað.“
Á öryggismyndavélum, sem not-
iðulega hefur verið um þingflokka,"
sagði Steingn'mur ennfremur.
Ekki í framboð næsta vor
Kristín Ástgeirsdóttir segist ekki
vera á leið í nýjan vinstriflokk og að
hún muni að öllu óbreyttu hætta á
þingi í vor. „Ég er fyrst og fremst
að ganga til samstarfs við þingmenn
sem eru lentir í sömu stöðu og ég;
að vera utan flokka. Við erum að
leggja saman okkar atkvæðamagn
til þess að tryggja stöðu okkar í
þingnefndum og aðkomu að stjórn
þingsins og þeim upplýsingum sem
þingmenn þurfa nauðsynlega að fá.
aðar eru til að fylgjast með ferðum
Keikós í kvínni, hefur komið fram
að fiskar og ýmsar lífverur hafsins
hafa farið í gegnum kvína.
„Við vitum að hann hefur elt fiska
í kvínni, en við höfum ekki séð hann
veiða fisk og éta hann,“ sagði hún.
„Nú sjáum við ekki jafnvel til hans
og í lauginni í Newport þar sem
voru gluggar, þannig að það er
erfitt að segja til um það.“
Kostnaður samkvæmt áætlun
Að sögn Beverly Hughes, for-
stjóra Frelsið Willy Keikó-stofnun-
arinnar, var gert ráð fyrir því að
kostnaður við flutninginn yrði tvær
milljónir dollara (um 140 milljónir
króna) að öllu meðtöldu, þar á með-
al smíði kvíarinnar, og hefði sú
áætlun staðist. Kostnaður við flutn-
inginn með C-17 flutningavél
bandaríska sjóhersins hefði verið
300 þúsund dollarar og hefði það
ekkert breyst þótt vélin hefði bilað
og þurft að standa í nokkra daga á
flugvellinum í Vestmannaeyjum.
Það hefði alfarið verið á ábyrgð
flughersins að sögn Hughes, sem sá
um bókhaldið vegna flutningsins.
Ég rak mig á það sjálf í fyrra að ég
var nokkuð utangátta þannig að í
þeirri stöðu sem upp er komin
finnst mér ástæða til þess að við
nýtum okkur þessa stöðu. Við erum
ekki að binda okkur á nokkurn hátt
málefnalega. Við eigum eflaust sam-
leið í ýmsum málum og öðram ekki.
Það verður bara að koma í ljós,“
segir Kristín.
Kristín segir aðspurð að eins og
staðan sé í dag þá sjái hún ekki
fram á að vera í framboði fyrir
næstu þingkosningar og að mikið
megi breytast til þess að svo
verði.
Herjólfur
fari hægar
FERJAN Herjólfur mun fram-
vegis hægja á ferðinni þegar
siglt er fram hjá Klettsvík til
hafnar í Vestmannaeyjum og
frá vegna háhyrningsins
Keikós.
Sævaldur Elíasson, skip-
stjóri á Herjólfí, sagði í gær að
borist hefðu tilmæli í gærmorg-
un um að hægja á ferðinni og
orðið yrði við þeim. Ekki hefði
verið nefndur ákveðinn há-
markshraði, en venjulega hefði
hann siglt ferjunni fram hjá
víkinni á um tólf mílna hraða og
sennilega yrði framvegis faiáð
framhjá henni á átta til níu
mílna hraða.
Þegar Herjólfur siglir hjá
Klettsvík verður nokkur öldu-
gangur og gengur kvíin, sem
Keikó er geymdur í, þá öll til.
Hefur aðstandendum Keikó-
stofnunarinnar sennilega þótt
nóg um.
Keikó farinn að éta 60 kfló á dag
Breytt hegð-
un í nýju
umhverfí