Morgunblaðið - 17.09.1998, Síða 13
MORGUNB LAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998 13
FRÉTTIR
Fín útkoma
í Flekkunni
STUTT í löndun á Iðunni.
MJÖG góð útkoma var í Flekku-
dalsá á Skarðsströnd í sumar, en
vertíðinni lauk þar nýverið. Þar
veiddust 230 laxar, en alls er veitt á
þrjár stangir og veiðitíminn aðeins
70 dagar en ekki 90-100 eins og víð-
ast er lenska.
Að sögn Ómars Blöndal Siggeirs-
sonar, eins leigutaka árinnar, var
meðalþunginn hærri heldur en
gengur og gerist í Dölunum og
stærsti laxinn var 24 pund. Veiddist
sá snemma sumars og sagði Ómar
að mjög vænir fiskar, allt að 19
punda, hefðu veiðst reglulega þótt
auðvitað hefðu smálaxar einnig
gengið og veiðst samhliða.
Lélegn sumri lokið í Elliðaánum
Einhverri lélegustu vertíð sem
um getur er nú lokið í Elliðaánum.
Lokatalan var 492 laxar. 568 laxar
veiddust í fyrra og var þá talið varla
mögulegt að veiðin gæti orðið verri.
Það hefur þó gengið eftir og aug-
ljósasta spurningin er sú hvað ger-
ist næsta sumar. Aðeins 965 laxar
gengu fram hjá teljaranum við raf-
stöðina og miðað við að lítið er orðið
af laxi sem iiggur þar fyrir neðan
má ljóst vera að það er ekki mikill
lax eftir á þessu mikla vatnasvæði
sem nær alveg inn í Hólmsá og Suð-
urá.
Ljómandi veiði í Leirvogsá
Enn er veitt í Leirvogsá og í gær-
morgun voru komnir 525 laxar á
land. Reytingsveiði hefur verið í
september. Þetta er nær allt smá-
lax, allt niður í 2-2,5 pund. Nokkrir
10-11 punda hafa veiðst en þeir
stærstu voru 16 punda fiskur úr
Tröllafossrennum og svo einn 13
punda. Samkvæmt veiðibók hefur
sá 16 punda verið borinn miklu of-
urliði, því eigi færri en fjórir veiði-
menn eru ski'áðir fyrir hænginn
sterka. Kannski hefur ekki veitt af.
Þetta er næstum jafnmikil heildar-
veiði og í Elliðaánum, en tekin á
tvær stangir á móti 6 stöngum í El-
liðaánum. 411 laxar veiddust í Leir-
vogsá í fyrra, þannig að hér er um
verulega viðbót að ræða.
Sæmilegt í Koi-pu
Enn eni einhverjir veiðidagar
eftir í Korpu og samkvæmt veiði-
bók eru komnir 230 laxar á land eða
þar um bil. Það vantar eina opnu í
bókina, en séu 30 laxar á henni eins
og búast má við, þá er fyrrgreind
tala rétt. Þetta er nokkuð langt frá
því sem Korpa getur best, en samt
örlítið betra en í fyrra, er 217 laxar
komu á land. September hefur ver-
ið fremur stirður og þeir veiða helst
sem nota flugu. Stíflan og Brúar-
hylur hafa verið drýgstu veiðistað-
irnir í seinni tíð. Laxinn er nánast
allur smár, sá stærsti í sumar 9
punda.
Tölur úr ýmsum áttum
36 sjóbirtingar og 12 laxar hafa
veiðst í Tungufljóti það sem af er.
Rólegt hefur verið í veiðinni þar
eystra, en á mánudag og þriðjudag
dró þó til tíðinda með þeim hætti að
veiðimenn sáu nokkuð af fiski að
ganga og birtingur sást víða um
ána. Næstu dagar gætu því orðið
góðir, sérstaklega ef einhver veður-
breyting lætur á sér kræla.
Stóra Laxá hafði gefið 223 laxa í
gæi-morgun og ljóst að aflahrotan
mikla á dögunum var ekki nýr tónn.
Eitthvert slangur er þó af fiski, en
hefur tekið illa. Alls voru 96 laxar
komnir af svæðum 1 og 2, 34 af
svæði 3 og 93 af svæði 4. Alls 223
laxar.
HJÁ OKKUR HALDAST VERÐ OG GÆÐI í HENDUR - VIÐ BJÓÐUM ÁVALT HAGKVÆMUSTU LAUSNINA FYRIR ÞIG
20“ LG sambyggt sjónvarp og video.
Með Black Hi-Focus skjá, skarpari mynd,
PAL/SEGAMBG með NTSC video, 100 rása
mynni. rafræna barnalæsingu og fjarstýringu.
2ja hausa VHS- video með NT5C afspilun, Digilal
Auto Tracking, hægt að stilla á “replay".
Hágæðatæki á góðu verði.
20" LG sjónvarp með Black Hi-Focus skjá sem
gefur einstaklega skarpa mynd. Hátalara að
framan, ACMC sjálfvirkum stöðvaleitara, 40
rása minni, fjarstýringu, barnalæsingu og fl.
Hægt að fá með og án textavarpi.
Black Line myndlampi, fiatur skjár, Nicam
Stereo, íslenskt textavarp, allar aðgerðir á
skjá, Pat/NTSC, barnalæsing, tengi fyrir
höfuðtól, 2x20 W magnari, 2 Scarttengi o.mfl.
LG 6 hausa stereo videotæki. Topptækið frá
LG, NICAM HiFi stereo. Gefur fullkomna
upptöku og afspilun. Long play, fjarstýringu,
80 stöðva minni, barnalæsing og fl.
LG Brauðvél, tilbúið brauð W-;
vegur ca. 700 gr.
Tímastillir hægt að stilla ’> ..Jg
vélina allt að 13 tímum fyrir
bakstur. 3 stillingar Ijóst,
meðal, eða dökkt
Mál: (b,h,d.)35x33x25,5 cm. 7,2kg.
LG uppþvottavél.lítil en öflug
Ummál 50x54 cm. Vegur aðeins 24 kg.
900W, öflugur og vandaður
Ummál: (h,b,d) 53 x 32,2 x 39,2 /16,3 kg.
GOLDSTARLG S10HP 2 hausa videotæki með
VHS, gefur sérlega góða og skarpa mynd,
60 rása mynni, Auto play, kyrramynd, QSR
flýtiprógram, og fl. gott og vandað tæki á
frábæru verði.
Wð erum ' nKs^a
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
á íslandi
Stærsta heimilis-og raftækjaverslunarkeftja ( Evrópu
VERIÐ VELKOMIN Í VERSLUN OKKAR