Morgunblaðið - 17.09.1998, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
I Hlíðardalsskóla fá þeir hjálp sem lent hafa á götunni
ÞEIR bera hitann og þungann af rekstri heimilisins: Guð-
mundur Jónsson, Hörður Sigmundsson og Gústaf Gústafs-
son. Með þeim á myndinni er Asta dóttir Guðmundar.
Morgunblaðið/AIdís Hafsteinsdóttir
GLÆSILEGT kvöldverðarborð bíður heimilismanna í
Hlíðardalsskóla á hverju kvöldi.
HÚN lætur ekki mikið yfir sér starfsemin
sem nú fer fram að Hlíðardalsskóla í Olfusi
og margir sem vita sjálfsagt ekki hvað
fram fer innan veggja þessa fyrrum skóla
aðventista á Islandi.
Nú dvelja að Hlíðardalsskóla rúmlega 80
manns, þar af eru 12 starfsmenn sem að-
stoða við reksturinn og starfsemina. Þeir
sem dvelja þarna eiga í flestum tilvikum að
baki langan feril þar sem ofneysla hinna
ýmsu vímuefna er rauði þráðurinn í lífi ein-
staklinganna.
Enginn vill bera ábyrgð
Að Hlíðardalsskóla dvelur nú fólk sem
allir hafa gefist uppá. Einstaklingar sem
sumir hafa farið allt að 40 sinnum í með-
ferð á hinar ýmsu meðferðarstofnanir.
Þetta er fólkið sem enginn vill bera
ábyrgð á. Þetta eru einstaklingarnir sem
við sjáum á Hlemmi. Þetta er fólkið sem
hvergi á höfði sínu að halla og gistir fanga-
geymslur lögregl-
unnar í Ieit að
skjóli. Að Hlíðar-
dalsskóla má nú
sjá hversu miklu
frumkvæði ör-
fárra einstaklinga
fær breytt.
Hjálpa þeim sem
minna mega sín
Starfsemin að
Hlíðardalsskóla er
rekin af Byrginu,
kristnu Iíknarfé-
lagi, sem var
stofnað í desember
1996 af kristnum
einstaklingum sem
sjálfir hafa losnað
frá fíkn og þeim
vandamálum sem
henni fylgja. Meg-
inmarkmið Byrgis-
ins er að boða
kristna trú og að
hjálpa þeim sem
minna mega sín í
samfélaginu.
Starfsemin hófst á heimili Guðmundar
Jónssonar; „ég losnaði úr viðjum fíknarinn-
ar og fann sanna trú, fékk köllun frá Guði.
Þá byijaði ég á því að taka fólk sem ég
kannaðist við úr ruglinu inn á heimili mitt
og reyna að hjálpa þvf. Fljótlega óx starf-
inu fískur um hrygg og ég ákvað að leigja
húsnæði fyrir tólf manns í Hafnarfirði. Það
fylltist strax. f júní ‘97 opnaði ég annað 25
manna heimili, einnig í Hafnarfírði, og síð-
an í október ‘97 byijum við hér að Hlíðar-
dalsskóla. Við gerðum ráð fyrir því að hýsa
65 manns en höfum lengst af verið yfir 80 á
staðnum“.
Þegar í ljós kom hve þörfin var brýn var
allt mögulegt pláss tekið undir rúm og það
sést berlega þegar skólinn er heimsóttur.
Kennslustofunum, tómstundaherberginu og
bókaherberginu hefur verið breytt í svefn-
staði fyrir dvalarfólkið.
Frábær árangur
f meðferðinni
Þó starfsemi Byrgisins sé ekki gamalgró-
in hefur þar verið sýnt fram á frábæran ár-
angur. Helmingur af þeim sem dvalið hafa
á heimilum þeirra eru enn lausir við fíkn-
ina. Hörður Sigmundsson, félagi Guðmund-
ar, segir að það sé greinilega þörf fyrir
ljölbreytt meðferðarform hér á landi. „Hér
í kristnum anda. Þar dvelur fólk sem farið hefur illa út
úr lífínu vegna ofneyslu áfengis og annarra vímuefna
en hefur með hjálp góðra manna fengið fótfestu á ný.
Aldis Hafsteinsdóttir fréttaritari heimsótti staðinn og
kynnti sér starfíð sem þar fer fram.
AÐ Hlíðardalsskóla í Ölfusi er nú rekið meðferðar- og áfangaheimili á vegum Byrgisins, kristins líknarfélags.
byggjum við sjálfsmynd einstaklingsins upp
á nýtt. Meðferðin byggist fyrst og fremt á
kristinni trú, fyrirlestrum, hópmeðferð,
bænastundum, biblíulestri, AA-fundum og
líkamlegri uppbyggingu. Hver dagur er
skipulagður frá morgni til kvölds og eftir
að fólk hefur náð þokkalegri heilsu tekur
það þátt í þeim verkum sem til falla á
staðnum. Við byggjum á væntumþykjunni
og því að hverjum einstaklingi finnist hann
vera einhvers virði. Byggjum upp á já-
kvæðan hátt en allt neikvætt tal er bannað
á staðnum. Við teljum fíknina ekki vera
sjúkdóm heldur andlegt og félagslegt
vandamál hvers og eins og úr því þarf að
greiða. Hér tölum við um vandamálin og
reynslan er sú að allir sem hér eru hafa sár
á sálinni.“
Syndir feðranna koma
niður á börnunum
Þeir félagar segjast oft sjá það að syndir
feðranna koma niður á börnunum. Hver
kynslóðin af annarri burðast með sömu
vandamálin og það mynstur verður að
bijóta. „Við byggjum mikið á fyrirgefning-
unni. Þeirri fyrirgefningu sem fæst með lif-
andi trú á Jesú Krist. Ef fólk nær því er
lausnin nærri,“ segir Guðmundur.
Það er greinilegt að þeir félagar bera
hag skjólstæðinga sinna mjög fyrir brjósti.
Á litlu skrifstofunni er talað af þunga um
vandamálin og alls staðar skín í gegn um-
hyggjan fyrir þeim sem minna mega sín í
samfélaginu. Þarna er talað af virðingu og
væntumþykju um fólkið sem við viljum ekki
vita að sé til. Meðan fréttaritari hlustar þá
opnast honum nýr heimur. Heimur sem
annars var hulinn. Heimur þeirra sem í
Byrginu hafa loksins fundið stað þar sem
þeim er tekið sem fullgildum meðliinum
okkar samfélags. Margir hafa ekki sofið í
rúmi lengi. Þeir hafa hvergi átt fastan
samastað og margir koma vannærðir til
Byrgismanna. En í Hlíðardalsskóla fá þeir
samastað og kjarngóðan mat, sumir í fyrsta
sinn í fjölmörg ár. Meðal heimilismanna
eru þónokkrir kokkar og þeir töfra fram
hina girnilegustu rétti enda er unnið á þrí-
skiptum vöktum í eldhúsinu.
Sækjum fólkið á göturnar
Orðstír Byrgisins hefur borist víða og sí-
fellt eykst aðsóknin. Margir hringja og
biðja um aðstoð, lögreglan bendir á staðinn
og aðstandendur biðja um aðstoð. „Einnig
förum við til Reykjavíkur og tölum við fólk
í neyð, bjóðum fram aðstoð okkar, sækjum
fólk á göturnar ef svo má segja. Við erum
að verða þekktir um allt land enda erum
við stoltir af starfinu hér og þeim árangri
sem við höfum náð.“ Til Byrgisins hefur
leitað fólk á öllum aldri. Þeir yngstu eru
16-17 ára en fjölmennasti hópurinn er á
milli þrítugs og fimmtugs.
Fíkniefnaheimurinn harðnar
Að sögn er það einnig sláandi hvernig
neyslan er að þróast hér á landi. Aldurinn
er sífellt að færast neðar og svokölluð
blönduð neysla verður sífellt algengari. Þá
blandar einstaklingurinn öllu saman,
læknalyfjum, áfengi jafnt sem amfetamíni
og áhrifin geta verið stórhættuleg. Það
vekur athygli að þeir einstaklingar sem
leitað hafa ásjár í Hlíðardalsskóla hafa
flestir misnotað áfengi en á eftir því koma
læknalyfín sem eru misnotuð í meira mæli
en bæði hass og amfetamín.
Að sögn Axels Kvaran, yfirmanns for-
varnardeildar lögreglunnar í Reykjavík,
hafa fangelsanir næturlangt minnkað um
300 síðan Byrgið hóf starfsemi sína. Þess
sér merki á götum borgarinnar að úti-
gangsfólki hefur
fækkað og hlýtur
það að teljast til
tíðinda.
Starfsemin aldrei
notið
opinberra styrkja
Á þriðja hund-
rað einstaklingar
hafa dvalið um
lengri eða
skemmri tíma að
Hlíðardalsskóla
sfðan starfsemin
byijaði en nú er
ljóst að það bráð-
vantar langtíma-
úrræði fyrir þá
sem vilja og þurfa
að dvelja lengur á
staðnum. Framtíð-
arverkefni Byrgis-
ins er að finna
lausn á þeim
vanda. Starfsemi
Byrgisins hefur
ekki notið neinna
styrkja frá hinu opinbera heldur er starf-
semin eingöngu Qármögnuð með dvalar-
gjaldi sem heimilismenn greiða og síðan
frjálsum framlögum fyrirtækja og einstak-
linga. „Við eigum marga velunnara sem
styrkja okkur með ráðum og dáð og fyrir
það erum við þakklátir."
Starfsemi Byrgisins hlaut nú nýverið við-
urkenningu landlæknisembættisins, heil-
brigðisráðuneytis og félagsmálaráðuneytis
sem meðferðarstofnun og áfangaheimili.
Að sögn Guðmundar og Harðar er þessi
viðurkenning afskaplega mikilvæg fyrir
stofnunina og ekki síður þau góðu orð sem
henni fylgdu.
Fréttaritari var óneitanlega léttari í
spori og fullur trúar á hið góða í mannin-
um þegar hann gekk út í rökkrið eftir
heimsóknina að Hlíðardalsskóla. Það var
föstudagskvöld og starfsmenn voru að gera
sig klára í ferð til Reykjavíkur á sjö manna
bíl. Einhverjir heppnir hafa þá um nóttina
vonandi getað kúrt undir heitri sæng í Ölf-
usinu í stað þess að hírast undir báti eða í
saggafullum skúr í Reykjavík á þessari
köldu haustnótt.
Það skiptir kannski ekki öllu máli hversu
margir losna úr viðjum fíknarinnar, hver
og einn einstaklingur sem hlýtur nýtt og
betra líf gerir starfsemi sem þessa fyrir-
hafnarinnar virði.
HJÖRDÍS Hjartardóttir og Finnur Jóhannsson töfruðu
fram ljúffengan kvöldverð og ekki spillti það andanum í
eldhúsinu að þau ætla að gifta sig innan tíðar.
„Hér skiptir hver
einstaklingur máliu
í Hlíðardalsskóla í Ölfusi fer fram merkileg starfsemi