Morgunblaðið - 17.09.1998, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Swissair-þotan sem fórst við Kanada
Hljóðritinn
stöðvaðist áður
en þotan fórst
KOMIÐ er í ljós, að hljóðriti sviss-
nesku MD-11 þotunnar, sem fórst
við Nova Seotia 2. september sl.,
stöðvaðist sex mínútum áður en
flugvélin hrapaði í hafíð.
Engu að síður er búist við að
hljóðritinn, sem varðveitir samtöl í
stjórnklefa þotunnar, muni auð-
velda rannsóknarmönnum að gera
sér mynd af þeim vanda, sem flug-
mennirnir glímdu við.
Flugriti þotunnar, sem varðveit-
ir upplýsingar um starfsemi stjórn-
og flugleiðsögukerfis þotunnar,
hætti sömuleiðis að starfa sex mín-
útum áður en þotan fórst.
Hvort tveggja styrkir þá skoðun
að alvarleg bilun hafí orðið í raf-
kerfum þotunnar, að sögn Dana
Doiron, talsmanns kanadísku sam-
gönguöryggisnefndarinnar
(CTSB), sem stýrir rannsókninni á
flugslysinu.
Slökktu flugmennirnir sjálfir
á hljóð- og flugritunum?
Hugh Waterman, fyrrverandi
þotuflugmaður og flugslysarann-
sóknarmaður hjá bandarísku flug-
málastjórninni (FAA), heldur því
þó fram að flugmennirnir hafi allt
eins getað hafa slökkt á tækjunum
í tilraunum sínum til að finna or-
sakir reykmyndunar í stjórnklef-
anum.
,Ekki hefur slokknað sjálfkrafa á
ritunum tveimur samtímis því þeir
eru tengdir hvor sínu rafkerfinu,"
sagði Watennan.
Fjarskiptum við þotuna lauk
einnig um sex mínútum áður en
hún fórst. Hið síðasta sem flug-
mennirnir sögðu í samtölum við
flugumferðarstjóra á jörðu niðri
var að þeir yrðu að lenda tafarlaust
vegna reykmyndunar í stjómklef-
anum.
Talið enn brýnna að ná
braki þotunnar upp
Við framrannsókn á flugritanum
hefur í ljós komið, að ýmis kei-fi
þotunnar störfuðu óeðlilega á síð-
ustu mínútum flugsins áður en
flugritinn hætti að virka.
Þetta, segja fulltrúar CTSB,
gera enn brýnna en áður að sem
mest af braki þotunnar náist upp
af hafsbotni svo hægt verði að
gera ítarlega rannsókn á rafköpl-
um hennar í þeim tilgangi að kom-
ast að því hvað olli óeðlilegri starf-
semi stjórn- og aflkerfa MD-11
þotunnar.
Höfuðborg
í kafí
ÞESSI sýn af Dhaka, höfuðborg
Bangladesh, blasti við Sheikh
Hasina, forsætisráðherra lands-
ins, er hann kynnti sér skemmdir
af völdum flóða undanfarnar vik-
ur og mánuði. Hafa þau valdið
gífurlegum skaða í Iandbúnaði
og iðnaði um allt landið. Næstum
eitt þúsund manns er talið hafa
látist vegna flóðanna, sem hófust
í byrjun júlí.
Reuters
Kínverskir fjölmiðlar
fara á kostum
Monica
Lewinsky
sögð KGB-
njósnari
Peking. Reuters.
KÍNVERSKIR fjölmiðlar hafa
ekki þagað um vandræði Bills
Clintons Bandaríkjaforseta
frekar en aðrir og líklega hafa
óvíða verið settar fram ævin-
týralegri tilgátur um hvað að
baki liggi. Þannig segir vinsælt
slúðurrit að Monica Lewinsky,
sem átti í kynferðissambandi
við forsetann, hafi í raun verið
sovéskur njósnari.
Opinber málgögn kínverskra
stjórnvalda hafa falið fréttir af
skýrslu saksóknarans Kenneths
Starrs á Clinton á innsxðum og
sleppt því að greina frá inni-
haldi hennar í smáatriðum.
Hins vegar hafa víðlesnustu
blöð Kína smám saman verið að
færa sig upp á skaftið og í gær
birtu Guandong-tíðindi grein
undir fyrirsögninni: „Kynlífs-
hneyksli Clintons: Hvíta húsið
eða lostahöllin?" Er þar komið
víða við en mesta athygli vekur
fullyrðing um að Lewinsky hafí
barnung verið send til Banda-
ríkjanna frá Sovétríkjunum,
þar sem henni hafí verið ætlað
að koma Bandaríkjaforseta í
kynlífskh'pu er hún kæmist til
vits og ára. „Upplýsingar hafa
leitt í Ijós að Monica Lewinsky
var njósnari á vegum Sovétríkj-
anna. Ætlunarverk hennar var
að draga Bandaríkjaforseta
niður í svaðið,“ segir í blaðinu.
Heimildarmaður þess er sagður
fyrrverandi yfírmaður í KGB,
sem nú rekur karaókí-bar í
Moskvu.
Lagt að Tony Blair að lækka skatta
Hafnar skamm-
tímaúrræðum
Sunderland. Reuters.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær, að Bretar
gætu ekki skýlt sér fyrir þeim vind-
um, sem nú blésu um efnahagslífið í
heiminum, en hann kvaðst vera
andvígur einhverjum skammtíma-
úrræðum vegna hás gengis punds-
ins og hárra vaxta.
Blair lýsti þessu yfir er hann
kom til Norðaustur-Englands þar
sem nokkrum verksmiðjum hefur
verið lokað að undanfornu en leið-
togar verkalýðsfélaganna, sem
halda ársþing sitt í Blackpool í
þessari viku, hafa rekið mikinn
áróður fyrir vaxtalækkun. Blair
sagði, að takast yrði á við efnahags-
erfiðleika en mikla þá ekki fyrir sér
um leið.
Blair tilkynnti, að 4,5 milljörðum
ísl. kr. yrði varið til að hjálpa því
fólki, sem misst hefði vinnuna, en
lagði um leið áherslu á, að stjórn-
völd ættu fá svör við þeim efna-
hagshræringum, sem ættu sér stað
utan landsteinanna. Það eru tvö er-
lend fyrirtæki, Fujitsu og Siemens,
sem hafa lokað verksmiðjum í
Norðaustur-Englandi og sagt upp
1.600 manns.
Afstaða Blairs í efnahagsmálum
mælist vel fyrir í atvinnu- og fjár-
málalífinu en vitað er, að nokkur
kurr er í verkalýðsfélögunum.
Fyrrverandi fjármálaráðherra Malasíu
Býr sig undir að
verða handtekinn
Kuala Lumpur. Reuters.
ANWAR Ibrahim, fyrrverandi fjár-
mála- og aðstoðarforsætisráðherra
Malasíu, sagði í gær að lögreglan
hefði handtekið enn einn af fyrrver-
andi aðstoðarmönnum hans. Er
þetta fimmta handtakan er tengist
ásökunum, um óviðurkvæmilega
hegðun í kynferðismálum, landráð
og spillingu, á hendur Anwar og fé-
lögum hans.
Abdul Rahim Mohamad Noor,
lögreglustjóri í Malasíu, sagði í gær
að ummæli Anwars frá því á þriðju-
dag, þess efnis að starfsaðferðir lög-
reglunnar minntu á starfsaðferðir
ísraelsku leynisþjónustunnar,
Mossad, væru algerlega óviðunandi.
„En ef Anwar er að halda því
fram að við beitum eins konar fram-
skógarlögmáli í rannsókn okkar á
ásökunum á hendur honum get ég
svo sem skilið það, í ljósi sálará-
stands hans nú um stundir."
Anwar kvaðst á þriðjudag búast
við því að verða handtekinn seinna í
mánuðinum, eða eftir að Elísabet
Englandsdrottning er farin frá
Malasíu en hún fer þangað í heim-
sókn um helgina til að vera viðstödd
lokahátíð Samveldisleikanna.
Anwar, sem áður var álitinn
væntanlegur eftirmaður Mahathir
Mohamads forsætisráðherra, var
sviptur embættum sínum 2. septem-
ber síðastliðinn en hefur margoft ít-
rekað að ásakanir á hendur sér um
kynferðisglæpi og landráð séu upp-
lognar, einungis tilkomnar vegna
þess hve margir litu stjórnmála-
frama hans hornauga.
Vangaveltur fréttaskýrenda í Noregi
Líklegast
að Bondevik
sitji áfram
VEIKINDI Kjell Magne Bonde-
viks, forsætisráðherra Noregs,
hafa ýtt mjög undir vangaveltur
um hvort ríkisstjórn hans muni
sitja út árið en á næstu mánuðum
bíður hennar fjárlagaumræða, sem
talið var á fyrstu mánuðum stjórn-
arinnar, að myndi fella hana. Eitt
mesta átakamálið era hinar um-
deildu foreldragreiðslur til þeirra
sem vilja vera heima hjá böi’num
sínum. Þá era horfur í norskum
efnahagsmálum verri en um árabil
vegna lægra olíuverðs og lægra
gengis norsku krónunnar. Engu að
síður telja stjórnmálaskýrendur
líklegast að stjómin muni standast
áfóllin og ástæðan er sögð sú að
aðrir valkostir séu fáir og ólíklegir.
Sú er að minnsta kosti niðurstaða
úttektar Aftenposten.
Bondevik hefur tilkynnt að hann
muni snúa aftur til starfa 24. sept-
ember en hann hefur verið í veik-
indaleyfi frá 31. ágúst. I fjarveru
hans hafa mörg einkennileg um-
mæli verið látin falla, t.d. vakti það
furðu margra er Jon Lilletun,
kirkjumálaráðherra, sagði að ef til
vill hefðu ráðherrar treyst um of á
Bondevik. RáðheiTai’nir yrðu að
leysa málin sjálfir og gætu ekki
treyst því að forsætisráðherrann
gerði allt. Þá hafa ummæli föður
Bondeviks vakið athygli en hann
hefur ítrekað viðvaranir til sonar
síns um að embættið myndi reyn-
ast honum ofviða.
Foreldrar Anne Enger Lahn-
stein, starfandi forsætisráðherra,
hafa einnig séð ástæðu til að leggja
orð í belg og vara við því að dóttir
þeirra haldi of lengi um stjórnar-
taumana, því hún sé „of umdeild"
og hafi tilhneigingu til að „ryðjast
áfram“. Bondevik einn sé fær um
að ná samkomulagi við aðra.
Augun beinast
að Jagland
Veikindaleyfi Bondeviks hefur
verið framlengt í tvígang, en snúi
hann aftur á tilsettum tíma, virðast
stjórnmálaskýrendur á einu máli
um að hann geti tekið til við fjár-
málaframvarpið eins og ekkert hafi
ískorist. Bondevik verði þó ekki að-
alleikarinn í átökum haustsins, því
augu flestra murú beinast að Thor-
bjorn Jagland, leiðtoga Verka-
mannaflokksins og fyrrverandi for-
sætisráðheiTa, sem hefur nú mik-
inn meðbyr. Samkvæmt nýjustu
skoðanakönnunum styðja um 44%
kjósenda flokk hans.
Jagland verður að gera það upp
við sig hvort Verkamannaflokkur-
inn eigi að veita minnihlutastjórn
miðflokkanna stuðning, eða reka
stjómina í fang Hægriflokksins og
Framfaraflokksins. Sé ekki stuðn-
ing þar að fá, gæti Jagland orðið
næsti forsætisráðheira.
Stjórnmálaskýrendur Aftenpost-
en telja að línumar muni hafa
skýrst áður en október sé úti, en
telja hins vegar yfir helmingslíkur
á því að ríkisstjórnin haldi velli,
vegna þess hve aðrir valkostir séu
rýrir.
Astæðan sé sú að Verkamanna-
flokkurinn og Hægi'iflokkurinn
vilji ekki verða til þess að kalla
stjórnai’kreppu yfir Norðmenn.
Þeir kjósi að ríkisstjómin gefist
sjálf upp. Þó sé ekki útilokað að
þessir flokkar felli stjórina, eða að
Carl I. Hagef, formaður Framfara-
flokksins, ákveði að hætta stuðn-
ingi við stjórnina þar sem hún hafi
tapað vinsældum sínum.
Verkamannaflokkui’inn
líklegasti arftakinn
Falli stjórnin, telja stjórnmála-
skýrendurnir einna líklegast að
Verkamannaflokkui’inn muni taka
við völdum sem minnihlutastjórn.
Einn möguleikinn sé stuðningur
erkióvinarins, Hægriflokksins, eða
þá með stuðningi Miðflokks eða
Sósíalíska vinstriflokksins. Þá úti-
loka stjómmálaskýrendur ekki að
Kristilegi þjóðarflokkurinn skipti
um forsætisráðherra, og er nafn
Einars Steensnæs einna helst
nefnt.
Af öðram möguleikum, sem þó
þykja fjarlægir, era nefndir:
Verkamannaflokkurinn með stuðn-
ingi Kristilega þjóðarflokksins,
meirihlutastjórn Verkamanna-
flokks og hægrimanna, stjórn allra
flokka og minnihlutastjórn Mið-
flokks, Hægriflokks og mögulega
Framfaraflokks.