Morgunblaðið - 17.09.1998, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998 53 V
FRÉTTIR
Meiri viðskipti forsenda
lækkunar gjaldskrár
Mison hlífðargas frá fsaga
VEGNA ummæla Þórólfs Árnason-
ar, forstjóra Tals, í Morgunblaðinu í
gær vill Hrefna Ingólfsdóttir, blaða-
fulltrúi Landssímans, gera eftirfai'-
andi athugasemd:
„Þórólfur heldur því fram að ein-
ungis á einni þjónustuleið bjóði
Landssíminn lægra verð en Tal.
E.t.v. hefur hann ekki séð nýju gjald-
skrána sem tekur gildi í dag, fimmtu-
dag, en allir sem kynna sér málið sjá
að þetta er einfaldlega rangt. Því hvet
ég alla farsímanotendur til að bera
saman verð þessara tveggja fyiir-
tækja og hvaða þjónustu þeir eru að
fá hjá hvorum aðila um sig. Þórólfur
vill sjálfur fá að komast í bókhald
samkeppnisaðilans og efast um að
rekstrarlegar forsendur séu fyrir
lækkun GSM-þjónustunnar. En
rekstur Símans GSM hefur gengið
framar vonum á þessu ári og afkoma
Landssímans íyrstu sex mánuði árs-
ins er mjög góð. Póst- og fjarskipta-
stofnun sem hefur efth'lit með Lands-
símanum hefur þegar fengið sendan
sundurgreindan árshlutareikning til
þess að þar sé hægt að sannreyna að
ekki er verið að niðurgreiða fai'síma-
þjónustu með hagnaði úr öðrum
rekstri. GSM-viðskiptavinum Lands-
símans hefur fjölgað jafnmikið það
Kennsla um
alnetið í
Nýja músík-
skólanum
sem af er þessu ári og þeim fjölgaði á
öllu ái'inu 1997. Þvi er ekki nokkur
þörf á að niðurgreiða farsímaþjónust-
una heldur vai- þvert á móti talin
ástæða til þess að láta rúmlega 58.000
GSM-notendur njóta mikilla viðskipta
með þvi að lækka gjaldskrána. En
hún vai' ekki eingöngu lækkuð þai'
heldur einnig hjá þeim sem nota
NMT-farsíma en þeim gefst nú kost>
ur á að velja sér þrjú símanúmer sem
þeh' geta hringt í með 15% afslætti
auk þess sem verð fyrir sérþjónustu í
NMT kei'finu var lækkað. Því er það
ekki rétt að einungis sé verið að
lækka verð á þjónustu til þess að
bregðast við samkeppni. Nýlega vai'
lækkað mínútugjald fyrir símhring-
ingar til Bandaríkjanna og Kanada og
nú hefur verið tilkynnt um lækkanir
til Norðurlandanna auk þess sem
fleiri verðlækkanh' til útlanda hafa
verið boðaðar. Einnig er rangt að tala
um að Landssíminn hafi einokun á
ákveðnum sviðum símaþjónustunnar.
Á sama hátt og Western Wireless og
The Walter Group stofnsettu Tal
geta önnur símafyrirtæki hvenær
sem er hafið hér starfsemi vegna þess
að samkeppni var gefin frjáls á öllum
sviðum fjai'skipta um síðustu ára-
mót.“
voru ái'ið 1919 og eru samtök Kven-
félagasambanda á Norðurlöndunum.
Um 300 þúsund konur eru í samtök-
unum og hafa þau látið margt gott af
sér leiða. Löndin skiptast á for-
mennsku í stjórn NHF og er for-
maður nú forseti Kvenfélagssam-
bands Islands, Dröfn Hjartardóttir.
UM ÞESSAR mundir er ísaga hf.,
dótturfyrirtæki AGA, að setja á
mai’kað hlífðargas sem nefnt er Mi-
son og segir í fréttatilkynningu að
það valdi minni mengun en sú gas-
tegund sem Isaga hefur hingað til
boðið upp á, Fogon. Helsti kostur
Mison hlífðargassins er að það dreg-
ur úr ósonmengun.
„Hefðbundnar aðferðir til að
minnka ósonmengun við suðu eru
uppsetning loftræstibúnaðar eða
jafnvel notkun hjálma með aðfluttu
lofti. Mison hlífðargas inniheldur
hins vegar köfnunarefnismónoxíð
(NO) og við suðu með Mison gengur
köfnunarefnismónoxíðið í efnasam-
band við óson og verður til súrefni
og köfnunarefnisdíóxíð. Víðtækar til-
raunir og reynsla hafa sannað að
þessi aðferð dregm' mjög úr mengun
og bætir vinnuaðstæður,“ segir enn-
fremur.
Myndin er tekin í Landssmiðjunni
þar sem Mison hefur verið notað að
undanfórnu. Frá vinstri: Stefán Frið-
þórsson, framleiðslustjóri Lands-
smiðjunnai’, Thomas Ljunggi'en,
framkvæmdastjóri málmiðnaðarsviðs
Isaga, og Þráinn Sigurðsson, þjón-
ustufulltrúi málmiðnaðarsviðs Isaga.
----------------------
LEIÐRÉTT
Ekki borgarstarfsmenn
f MYNDATEXTA á bls. 4 í gær var
sagt frá malbikunarframkvæmdum
við Ellliðavatn og sagði að mennirnir
á myndinni væru borgarstarfsmenn.
Þetta er ekki rétt heldur eru þeir
starfsmenn Hlaðbæjar-Colas. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
Erik, ekki Einar
í frétt í blaðinu sem birtist á
þriðjudag, var Erik Júlíus Mogensen
á einum stað sagður Einar. Það er að
sjálfsögðu ekki rétt og eru hlutaðeig-
endur beðnir velvirðingar á mistök-
unum.
NÝI músíkskólinn hefur flutt starf-
semi sína frá Laugavegi í félags-
heimili Fylkis í Árbæ. Flutningurinn
er m.a. í samræmi við niðurstöður í
greinargerð um málefni tónlistar-
skóla á vegum Reykjavíkurborgar.
Þar kom fram að verulegur skortur
væri á framboði tónlistarkennslu í
úthverfum borgai'innar. Nýi músík-
skólinn er nú á sínu fjórða starfsári
og hefst kennsla í honum 21. septem-
ber nk. í skólanum er m.a. boðið upp
á fjarkennslunám fyrir fullorðna í
gegnum alnetið.
í Nýja músíkskólanum er boðið
upp á nám fyrir börn, unglinga og
fullorðna. Lögð er áhersla á vandað
tónlistarnám þar sem þörfum hvers
nemanda er sinnt af kostgæfni. Mikil
áhersla er lögð á mætingu nemenda
og fylgst með framvindu námsins.
Nýi músíkskólinn hefur það að
markmiði að kenna samkvæmt þörf-
um einstaklingsins en þó eftir meg-
inmarkmiðum námskrár tónlistar-
skólanna. Námið er þannig upp-
byggt að nemandi getur stundað
nám við skólann í þrjú til fjögur ár
með aukagreinum. Að námi loknu á
nemandi að vera fær um inngöngu í
flestar framhaldsdeildir tónlistar-
skóla.
Boðið er upp á einkatíma í hljóð-
færaleik og söng, forskólanám fyrir
3-6 ára börn, tónfræði, hljómfræði,
tónlistarsögu, hljómsveitarsamspil
og hægferð fyrir fullorðna.
Skólastjóri Nýja músíkskólans er
Stefán S. Stefánsson.
Konur og
neytendavald
RÁÐSTEFNA Húsmæðrasambands
Norðurlanda verður haldin á Hótel
Loftleiðum 18.-20. september. Kon-
ur og neytendavald er yfirskrift ráð-
stefnunnar og verða þátttakendur
120 talsins frá öllum Norðurlöndun-
um.
Á ráðstefnunni verða flutt mörg
fróðleg erindi, Laufey Steingríms-
dóttir, forstöðumaður Manneldis-
ráðs, flytur aðalerindið, jafnframt
verður kynning á íslenskum ostum
og mjólkurafurðum. Einnig munu
þátttakendur kynnast íslenskum
heimilum.
Ráðstefnan verður sett kl. 10 laug-
ardaginn 19. september á Hótel
Loftleiðum, Þingsal 1-3.
NHF eru samtök sem stofnuð
Rætt um
utanríkismál
ÞRIÐJI og síðasti fundur í röðinni
opnum umræðufundi sem Stefna, fé-
lag vinstri manna, efnir til verður
fimmtudaginn 17. september. Fjall-
að verður um utanríkismál undir yf-
irski'iftinni ísland og umheimurinn.
Fundarstjóri verður Svanhildur
Kaaber kennari. Frummælendur
verða Ingunn Anna Jónasdóttir
kennari, Stefán Pálsson sagnfræð-
ingur og Steingi-ímur J. Sigfússon
alþingismaður.
Fundurinn verður í Risinu, Hverf-
isgötu 105, og hefst kl. 20.30.
Allt áhugafólk um stjórnmál og þá
sérstaklega um þau efni sem hér
verða til umfjöllunar er hvatt til að
sækja fundina sem eru opnir öllum
almenningi, segir í fréttatilkynningu.
Stuðningur
við ÍE
HEILBRIGÐISSTOFNUNIN á
Húsavík boðaði til opins fundai' á
Hótel Húsavík laugardaginn 12.
september sl. um miðlægan gagna-
grunn á heilbrigðissviði. Þar mættu
forsvarsmenn Islenskrar erfðagrein-
ingar og fóru yfir málið og svöruðu
fyrirspurnum.
í lok fundar var að kröfu fundar-
manna borin upp og samþykkt af öll-
um þorra fundarmanna eftirfarandi
ályktun:
„Opinn fundur á Hótel Húsavík
laugrdaginn 12. september á vegum
Heilbrigðisstofnunai' á Húsavik
þakkar forsvarsmönnum Islenskrar
erfðagreiningar góðan og upplýsandi
fund og lýsir stuðningi við starf fyr-
h'tækisins og skorar jaffnramt á
stjórnvöld að greiða götu þess.“
Göngufólk í
Seljahverfí
GÖNGUHÓPUR félagsmiðstöðvar-
innar Hólmasels byi'jar aftur laugar-
daginn 19. september. Mæting er
eins og venjulega alla laugardaga kl.
10.30 við félagsmiðstöðina.
Rúna íris Guðmundsdótth',
íþróttakennari, leiðir hópinn og býð-
ur gamla sem og nýja félaga vel-
komna.
Fallegar peysur
og prjónakjólar
Man
kvenfataverslun
Hverfisgötu 108,
á horni Hverfisgötu og
Snorrabrautar,
sími 551 2509.
INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT
GFP 4435
>
Tegund Lítrar (br.) Stærð Verð Stgr.
GFP4141 146 lítrar 85x60x60 31.263,- 29.700,-
GFP 4220 220 Iftrar 88x89x65 37.579,- 35.700,-
GFP 4290 294 lítrar 88x109x65 41.789,- 39.700,-
GFP 4370 370 lítrar 88x132x65 47.053,- 44.700,-
GFP 4435 443 lítrar 88x164x65 52.316,- 49.700,-
3)
Eigum einnig ymsan
stænðir frystiskápa
#indesil
Frystíkistur
Tilboðsverð sem eru komin til að vera.
___ BRÆÐURNIR
momssoK
Láqmúla 8 • Sími 533 2800