Morgunblaðið - 17.09.1998, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998 57
FRÉTTIR
KIRKJUSTARF
Fyrirlestur í
Þjóðarbókhlöðu
Norræn
samstaða,
hlutleysið
og kalda
stríðið
DR. VALUR Ingimundarson,
sagnfræðingur, heldur fyrirlestur á
aðalfundi Sögufélagsins á laugar-
dag, sem ber heitið „Á mörkum
samstöðu og hlutleysis: Norður-
löndin og kalda stríðið.“ Fundurinn
hefst kl. 14:00 í Þjóðarbókhlöðu og
er öllum opinn. í fyrh'lestrinum
mun Valur fjalla um hlutverk Norð-
urlandaþjóðanna í þessari heims-
baráttu, hvað skildi þær að og hvað
dró þær saman, hvort norrænn
samhugur hafi haft áhrif á utanrík-
isstefnu þeiiTa eða hvort kalda
stríðið hafi stuðlað að óeiningu
þeirra.
Á undanförnum árum hefur ekki
aðeins komið fram margt nýtt um
þátt Norðurlandanna í kalda stríð-
inu, heldur einnig stefnu Sovét-
manna og Bandaríkjamanna gagn-
vart þeim. Harðvítugar deilur hafa
spunnist í Danmörku, Finnlandi og
Svíþjóð um grundvallarþætti í
stefnu stjórnvalda, einkum er varð-
ar kjarnorkuvopn og hlutleysi. Því
hefur verið haldið fram, að stjórn-
völd hafi ekki virt eigin stefnu og
leynt almenning mikilvægum upp-
lýsingum. Valur mun fjalla um
þessi álitamál og styðjast við helstu
niðurstöður alþjóðaráðstefnu, sem
haldin var um Norðurlöndin og
kalda stríðið í Reykjavík í sumar.
I fyrirlestrinum mun Valur eink-
um beina sjónum sínum að þrennu:
stefnu Sovétríkjanna og Bandaríkj-
anna gagnvart Norðurlöndunum,
beinum og óbeinum öryggistengsl-
um norrænu þjóðanna þrátt fyrir
ólík viðhorf í utanríkismálum og
sambandi stjómvalda og almenn-
ings. Loks mun Valur reyna að
svara þeirri spurningu hvort rann-
saka eigi Norðurlöndin sem eina
stjórnmálaheild eða hvort gagn-
legra er að fjalla um stefnu ein-
stakra ríkja.
HÉR sést vinningshafíim Ingibjörg Björnsdóttir taka við lyklunum að
Golfinum af Gísla Vagni Jónssyni, markaðsstjóra Heklu. Arna Ormars-
dóttir, auglýsingastjóri Vífilfells, Bergdís Kristjánsdóttir,
mamma Ingibjargar, og litla systir hennar fylgjast með.
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 14-17.
Hallgrímskirkja. Kyirðarstund kl.
12. Orgelleikur, íhugun, altaris-
ganga. Léttur málsverður í safnað-
arheimili eftir stundina.
Háteigskirkja. Kvöldsöngur með
taizé-tónlist kl. 21. Kyrrð, íhugun,
endurnæring. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12.10. Orgeltónlist frá kl. 12.
Léttur málsverður að stundinni
lokinni.
Breiðholtskirkja. Mömmumorg-
unn á föstudögum kl. 10-12.
Digraneskirkja. Bæna- og kyrrð-
arstund kl. 18. Bænarefnum má
koma til sóknarprests eða kirkju-
varðar, einnig má setja bænarefni
í bænakassa í anddyri kirkjunnar.
Kópavogskirkja. Kyrrðar- og
bænastund í dag kl. 18. Fyrirbæn-
arefnum má koma til prests og
kirkjuvarðar.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar-
sfcund kl. 22, kaffi og létt meðlæti á
eftir.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Opið hús í unglingastarfinu í
KFUM og K-húsinu kl. 20.
Hjálpræðislierinn. I kvöld kl.
20.30 Gospel og kaffihús. Kristín
Osk Gestsdóttir ásamt íleirum
syngur. Allir hjartanlega velkomn-
ir.
Síðasti Golfinn gengur út
ÞRIÐJI og síðasti Golfinn gekk
út í sumarflöskuleik Coca-Cola á
Islandi miðvikudaginn 2. septem-
ber sl. Það var Ingibjörg Krist-
jánsdóttir, 15 ára Hafnfirðingur,
sem datt í lukkupottinn. Ingi-
björg er því þriðji íslendingurinn
sem vinnur Golf í sumarflösku-
leik Coca-Cola í sumar.
Fjöldi Islendinga hefur fengið
vinninga í sumarflöskuleiknum í
sumar og hefur starfsfólk Vífil-
fells og Esso-stöðvanna afhent
vel á annað hundrað þúsund
vinninga og sumarglaðninga. Um
leið og starfsfólk Vífilfells óskar
vinningshöfunum til hamingju
skal minnt á að vitja þarf vinn-
inga fyrir 30. október, segir í
fréttatilkynningu.
Að halda röddinni
hreinni og tjá sig
skilmerkilega
ROZ Comins raddþjálfari heldur
málstofu á vegum Rannsóknarstofn-
unar Kennaraháskóla íslands og
Félags talkennara og talmeinafræð-
inga föstudaginn 18. september kl.
16.00. Málstofan nefnist: Að halda
röddinni hreinni og tjá sig skil-
merkilega
í fréttatilkynningu segir: „Röddin
er okkur nauðsynleg til þess að við
getum tjáð okkur í töluðu máli og
beitt henni sem tæki til náms og
kennslu. Kennarar og aðrar starfs-
stéttir sem byggja á röddinni við
störf sín standa oftar en ekki
frammi íyrir því að röddin brestur.
Ástæðan er oftast sú að viðkomandi
kann ekki að beita röddinni á viðeig-
andi hátt og álagið á raddböndin
verður of mikið. Fræðsla og þjálfun
í réttri raddbeitingu kemur í veg
fyi-ir óþægindin sem af þessu hljót-
ast.
Roz Comins er útskrifuð sem
raddþjálfari írá Central School of
Speech and Drama í London og hef-
ur að baki langa starfsreynslu á
þessu sviði. Roz var aðalhvatamaður
að stofnun Voice Care Network í
Bretlandi. Samtökin voru stofnuð
árið 1993 og hafa að markmiði að
veita fræðslu um rödd, raddbeitingu
og raddverna, m.a. með námskeið-
um fyrir kennaradeildir ýmissa há-
skóla. Þörfin fyrir slíkt er mikil þar
sem það hefur sýnt sig að stór hluti
kennara á við raddvandamál að
stríða sem að stórum hluta má rekja
til þekkingarleysis á röddinni."
Málstofan er öllum opin og verðui'
haldin í stofu M-301 í Kennarahá-
skóla Islands við Stakkahlíð.
Breyttir tímar
Mánud. - föstud.
Fimmtudagar
Laugardagar
Sunnudagar
10:00 - 18:00
10:00 - 20:00
11:00 - 16:00
13:00 - 16:00
TM ■ HÚSGÖGN
SíSumúla 30 -Sími 568 6822
NÝR&BETRI
www.hekla.is
OMeiri kraftur
pMinni eyðsla
OAfl:
stýn
OHreyfiltengd þjófnaðarvörn
OÚtvarp/segulband, 2 hátalarar og loftnet á
OPIasthús með hurðum
QAfturhurðir opnast í 180°
QFestilykkjur á palli________
pBurðargeta 605 kg án húss
og 575 kg með húsi.__________
QFIutningsrými 2,41 rúmmetrar
ORými fyrir Euro bretti
>Verð með virðisaukaskatti 996.000.-
þaki
HEKLA
strrw SS9 5500
SKODA FELICIA PICK-UP
með plasthúsi kostar aðeins kr.