Morgunblaðið - 17.09.1998, Side 60
60 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hjólað fyrir krabba-
meinssjúk börn
FYRIR stuttu efndi fyrirtækið
Nói-Siríus tii Kellogg’s daga í
Perlunni. Meðal þess sem gestum
var boðið upp á var að hjóla á
þrekhjóli til styrktar börnum
með krabbamein.
Mælt var hversu langt þátttak-
endur hjóluðu og hét Nói-Siríus
500 kr. í styrktarsjóð SKB fyrir
hvern kílómetra. Um 500 gestir
tóku þátt og söfnuðust samtals
300.000 kr. sem Hjalti Jónsson,
markaðsstjóri Nóa-Siríus, afhenti
Þorsteini Olafssyni, fram-
kvæmdastjóra SKB, að Kellogg’s
dögum loknum.
Fyrirlestur um
hveraörverur
LÍFFRÆÐISTOFNUN heldur
fyrsta fóstudagsfyrirlestur sinn
föstudaginn 18. september í húsa-
kynnum Líffræðistofnunar að
Grensásvegi 12, stofu G-6 og hefst
það kl. 12.20. Erindið flytur Jakob K.
Kristjánsson rannsóknaprófessor og
nefnist erindið Islenskar hveraör-
verur ehf.: Sérleyfi til hagnýtra
rannsókna.
Hér fylgir útdráttur úr erindinu:
„Fyrirtækið Islenskar hveraörverur
ehf. (ÍH) var stofnað nú í sumar í
þeim tilgangi að efla á ný hagnýtar
rannsóknir á hveraörverum hérlend-
is, en þær hafa dregist mjög saman
sl. tvö ár.
ÍH hefur sótt um 5 ára sérleyfi til
' * söfnunar hveraörvera og rannsókna
á þeim í hagnýtingarskyni. Sá vernd-
artími er talinn vera forsenda þess
að nægilegt fjármagn fáist til endur-
uppbyggingar hérlendis á þessu
sviði. Gegn því að fá slíkt sérleyfi
myndi ÍH skuldbinda sig til að fjár-
festa a.m.k. sem svarar 5 milljónum
dollara í rannsóknum hérlendis.
Heimild til veitingai- slíks sérleyfis
er í nýsettum auðlindalögum. Ríó
samningurinn, sem samþykktur var
á Alþingi 1994, staðfestir að erfða-
auðlindir náttúrunnar skuli með-
höndla sem aðrar náttúruauðlindir.
Þær eru því eign viðkomandi landa
og aðgangur að þeim háður löggjöf
hvers lands. Ein afleiðing þessa er
að hveraörverur falla m.a. undir
eignarrétt landeigenda enda er hægt
að líta á þær sem iðnaðarhráefni."
-----------------------
Endurbætt
hljóðkerfí í
Bíóborg-inni
UNDANFARIÐ hefur verið unnið
að endurbótum á hljóðkerfi Bíóborg-
arinnar. Af þessu tilefni hafa
Sambíóin ákveðið að halda sérsýn-
ingu á kvikmyndinni Armageddon í
dag, fimmtudag, til að kynna áhorf-
endum nýja kerfið.
í fréttatilkynningu segir m.a. að
hljóðkerfið sem sett hafi verið upp sé
eitt hið fullkomnasta sem völ sé á í
nokkru kvikmyndahúsi. Einnig segir
að kvikmyndin Armageddon sé stór-
mynd af dýrustu gerð, uppfull af
tæknibrellum og hasaratriðum, sem
ætti að henta vel til að láta reyna á
kosti hins nýja hljóðkerfis.
Myndin verður sýnd kl. 9 og er að-
gangseyrir 100 kr.
......Nýtt gildi...............
Opnum á næstunni verslun á Snorrabraut 22
með notaðan fatnað. Tökum í umboðssölu
vandaðan kvenfatnað, hreinan og óskemmdan.
Upplýsingar í síma 551 2509
eftir kl. 14, næstu daga.
STEINAR WAAGE
Leikf imiskór
Verð: 1.195
Tegund:Sabu
Svart og hvítt leður í stærðum 24-41
Domus Medica
Kringlunni
551 8519
568 9212
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Fyrirspurn
ÉG ER eldri borgari og
lagði leið, mína í Glæsi-
bæ þar sem verið var að
opna aðstöðu fyrir fé-
lagsstarf aldraðra. Ég
hafði það á tilfinning-
unni að ég væri ekki vel-
komin þar vegna þess að
ég var ekki nógu vel
klædd, en ég var mikið
klædd vegna kvefs. Er
þessi félagsskapur fyrir
alla eða aðeins fyrir sér-
staka, þ.e. vel klædda?
Svar óskast.
Eldri borgari.
Til ökumanns
á Bústaðavegi
ÞU stressaða kona sem
ókst vestur Bústaðaveg
þriðjudaginn 1. sept. sl.
kl. 12.30 með tánings-
stúlku við hlið þér í
framsætinu ættir að at-
huga að hámarkshraði á
þessari götu er 50
km/klst. Þér lá svo mik-
ið á að þú ætlaðir að
nota gatnamót til að aka
fram úr bílnum sem var
á undan þér, en honum
ók gráhærð kona á 50
km hraða. Það var al-
deilis engin ástæða til að
hrista höfuðið og hlæja
að henni því að hún ók á
mesta hraða sem þarna
er leyfður. Vonandi
sérðu að þér í umferð-
inni og hættir að gera
grín að fólki sem fer eft-
ir umferðarreglum.
Hneykslaður
ökumaður.
Tapað/fundið
Næla týndist
í Glæsibæ
GYLLT næla með víra-
virki, aflöng, týndist í
Ásgarði í Glæsibæ sl.
sunnudagskvöld. Nælan
er erfðagripur og eig-
anda því kær. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 568 1504.
Hvítur barnaskór í
óskilum
HVÍTUR, reimaður
barnalakkskór fannst á
homi Bergstaðastrætis
og Bjargarstígs. Upp-
lýsingar í síma 552 9716.
Hliðartaska týndist
FÖSTUDAGINN 4.
september týndi nemi í
Iðnskólanum röndóttri
hliðartösku með hár-
snyrtidóti, skærum og
greiðum. Finnandi vin-
samlega hafið samband í
síma 5861291 eða
891 8430.
GSM-sími týndist
GSM-sími, Nokia 3110, í
leðurhulstri, týndist úr
bíl fyrir utan BT, Skeif-
unni 11, sl. sunnudag.
Skilvís finnandi hafi
samband í síma
567 0443 eftir kl. 17.
Umslag týndist
í Skipholti
UMSLAG með pening-
um í týndist sl. laugar-
dag, líklega í Skipholti.
Umslagið innihélt brúð-
kaupsgjöf og var merkt:
„Kristjana og Bene-
dikt“. Skilvís finnandi
hafi samband við Guð-
mund í síma 899 0191.
Úr týndist í FB
UR týndist í Félagsmið-
stöð FB í Breiðholti. Úr-
ið er stórt gullúr. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 566 6918. Fundar-
laun.
Veski með
skilríkjum týndist
LÍTIÐ svart veski með
skilríkjum týndist um
síðustu helgi í miðbæn-
um. Skilvís finnandi hafi
samband i síma
553 0711.
Dýrahald
Fress óskar
eftir heimili
VEGNA óviðráðanlegra
orsaka þarf stálpaður
fress að komast á barn-
laust heimili. Upplýsing-
ar í síma 552 6154.
Ný kisumamma
óskast
ÉG er lítill kisi og mig
vantar nýtt heimili.
Mamma mín vill ekki
eiga mig lengur þvi ég er
víst orðinn of stór. Ef þið
hafið áhuga vinsamlega
hringið í síma 557 6315.
SKAK
Dmsjón Margeir
Péturssnn
STAÐAN kom upp á
minningarmótinu um Paul
Keres í Tallinn í Eistlandi í
sumar í viðureign
tveggja sterkustu
skákmanna Eist-
lands. Lembit Oll
(2.645) hafði hvítt
og átti leik gegn
Jan Ehlvest
(2.610).
33. Hxd5! - exd5
34. Dxd5 - Bd6 35.
exd6 - Kc8 36. Bg2
- Da7 37. Rf5 -
Hxg4 38. Re7+ -
Kd8 39. De5 - He8
40. Rc6+ - Bxc6
41. Df6+ - Kc8 42.
Bxc6 og Ehlvest
gafst upp.
Atskókmót Reykjavíkur fer
fram um helgina í félags-
heimili Hellis, Þönglabakka
1 í Mjódd. Mótið hefst
föstudagskvöldið 18. sept-
ember kl. 20. Þvi er fram-
haldið á iaugardaginn kl. 14,
en undanúrslit og úrslit eru
tefld á sunnudag. Mótið er
öllum opið.
HVÍTUR leikur og vinnur.
ÞESSAR duglegu stúlkur söfnuðu kr. 1.240 til styrktar
Rauða krossi Islands. Þær heita Björk Jónsdóttir, Una
Arnadóttir og Erla Marfa Árnadóttir.
HÖGNI HREKKVÍSI
kcnnlrEl hlino umþa&cÁ hari'i
för út ci g/<xpa£/zui-6inja.-"
Víkveiji skrifar...
NÚ ER lokasprettur íslands-
mótsins í knattspyrnu fram-
undan og ijóst að keppnin verður
æsispennandi bæði á toppi og botni
úrvaisdeildarinnar. Og enn einu
sinni er sú eilífa spurning á allra
vörum, verður þetta ár KR-inga?
Þeir hafa ekki orðið meistarar í 30
ár og finnst víst æði mörgum að
kominn sé tími til að breyta því.
Líkiega fæst ekki úr þvi skorið fyrr
en KR og ÍBV mætast í lokaum-
ferðinni hvort liðið verður Islands-
meistari.
Víkverji sér það á íþróttasíðum
dagblaðanna að þar eru byrjaðar að
birtast gamalkunnar fyrirsagnir
s.s. er bið KR-inga brátt á enda?
Svona fyrirsagnir gera ekki annað
en auka spennuna á leikmenn KR
og áhangendur og var hún þó ærin
fyrir. KR-ingar hafa áður verið í
svipaðri stöðu en ekki klárað dæm-
ið. Víkverji telur t.d. að lið KR fyrir
tveimur árum hafi verið betra en
núverandi lið þeiiTa. Hins vegar.
virðist núverandi lið vera heil-
steyptara og því líklegra til að klára
dæmið. En úr því fæst skorið innan
skamms.
xxx
VÍKVERJI hefur lengi fylgst
með íslenzku knattspymunni
og verður að segja það umbúðalaust
að íslandsmótið í ár hefur valdið
vonbrigðum. Gæði knattspyrnunnar
eru lakari en áður og þeir eru ekki
margir leikirnir sem Víkverja hefur
virkiiega iangað að sjá. Þegar haft
er í huga hve margir knattspyrnu-
menn leika erlendis þarf þetta ekki
að koma á óvart. En íslenzk knatt-
spyrna hefur ætið átt sínar hæðir
og lægðir og svo mun vera áfram.
xxx
GLEÐIGJAFI sumarsins á
knattspyrnusviðinu er án efa
íslenzka landsiiðið. Eftir rólega
byrjun er Guðjón Þórðarson greini-
lega að uppskera árangur vinnu
sinnar. Sigurinn gegn Lettum og
jafnteflið gegn Frökkum er framúr-
skarandi árangur. Guðjón tók þá
ákvörðun að byggja upp nýtt lið og
ungu mennirnir sem hann valdi til
verkefnisins hafa verið traustsins
verðir. Víkverji hafði alltaf þá trú að
Guðjóni tækist ætlunarverk sitt
enda ekki ástæða til annars þegar
ferill hans er skoðaður.
xxx
AÐ var snjallræði hjá hinum
hugmyndaríka formanni KSÍ,
Eggert Magnússyni, að fá til lands-
ins færanlegar stúkur fyrir leikinn
gegn Frökkum. í fyrsta sinn fannst
Víkverja að hann væri staddur á al-
vöru þjóðarleikvangi. Næsta skrefið
verður væntanlega að kaupa svona
stúkur til landsins. Þær geta nýzt á
mannfagnaði af margvíslegu tæi. Til
dæmis er ljóst að svona stúkur
þurfa að vera til staðar á hljómleik-
um Rolling Stones í Sundahöfn
n.æsta sumar.